Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Side 12
12 Fréttir Helgarblað 27.–30. júní 2014
D
agný Albertsdóttir og eig-
inmaður hennar, Samuel
Eboigbe Unuko frá Níger-
íu, kynntust í Hjartagarðin-
um á fjölmenningardegi
Reykjavíkur sumarið 2011. „Við höf-
um verið saman öllum stundum síð-
an,“ segir Dagný í samtali við DV en
þau hafa verið hvort öðru til halds
og trausts síðustu þrjú ár. Það var
þeim því mikið áfall þegar Samu-
el var handtekinn í nóvember á síð-
asta ári, færður í fangageymslur lög-
reglunnar þar sem sími hans var
gerður upptækur, og fluttur til Sví-
þjóðar í fylgd tveggja lögreglumanna
frá alþjóðadeild lögreglunnar. Þá var
honum gert að afhenda aleigu sína
ellegar skrifa undir skuldaviður-
kenningu og skuldbinda sig þannig
til þess að greiða 197 þúsund krónur
fyrir flutning og fylgdarmenn. Hann
valdi síðari kostinn og er því í skuld
við ríkissjóð.
Helsti glæpur Samuels gagnvart
íslenska ríkinu var sá að vera frá Afr-
íkuríkinu Nígeríu en eins og DV hef-
ur greint ítarlega frá er nær ómögu-
legt fyrir fólk utan Schengen að fá
dvalarleyfi til lengri tíma á Íslandi.
Samuel kom til Íslands í desember
2011 og sótti um hæli sem flótta-
maður. Mál hans var aldrei tekið
efnislega fyrir og að endingu stað-
festi Hæstiréttur Íslands úrskurð
Útlendingastofnunar um að hon-
um skyldi vísað úr landi á grundvelli
Dyflinnar-reglugerðarinnar sem
kveður á um að heimilt sé að senda
hælisleitendur aftur til þess lands
þar sem þeir sóttu fyrst um hæli. „Ég
vil ekki að skrifræðisbatteríið eyði-
leggi það sem okkur Dagnýju hefur
tekist að byggja upp,“ segir Samu-
el í samtali við DV en hann hefur
ástæðu til að óttast um öryggi sitt
verði hann sendur aftur til Nígeríu.
Barist við vindmyllur
DV ræddi við Nígeríumanninn sem
mátti ekki vera á Íslandi en hann fer
nú huldu höfði hjá velviljuðum vini í
Malmö í Svíþjóð. „Ég hef verið á Ís-
landi í tvö ár, unnið fyrir mér, eignast
kærustu sem hefur reynst mér svo
vel og á í raun nýja fjölskyldu. Mér
fannst ég loksins vera búinn að öðl-
ast friðsælt líf þegar ákveðið var að
taka það allt frá mér á einu bretti.“
Samuel tók þátt í pólitísku starfi
aðgerðasinna á vegum MEND
(Movement for Emancipation of the
Niger Delta) gegn stjórnvöldum í Ní-
geríu á námsárum sínum. Hann ber
enn þá sýnilega áverka sem hann
fékk þegar hann varð fyrir fólskulegri
árás í tengslum við stjórnmálastarf
sitt. Hann flúði heimalandið í kjöl-
farið og hefur því verið á vergangi í
um átta ár. Samuel óttast að valda-
mikið fólk ógni öryggi hans snúi
hann aftur: „Þó að það séu líkur á
því að ég komist óhultur inn í landið
[Nígeríu] eru miklar líkur á því að
einhver þekki mig þegar þangað er
komið og þá getur allt gerst.“
Dagný hefur farið fjórum sinnum
til Svíþjóðar til þess að heimsækja
Samuel en þau giftu sig þar í janúar
síðastliðnum. Hún segist langþreytt
á baráttunni við Útlendingastofnan-
ir, hvort sem þær eru íslenskar eða
sænskar, og líkir þeim við vindmyll-
ur. Samuel fékk þau skilaboð á mið-
vikudaginn að fyrirhugað væri að
senda hann aftur til Nígeríu þar sem
mál hans verði ekki endurupptekið í
Svíþjóð.
„Ómannlegt“
„Okkur finnst þetta svo ósanngjarnt
vegna þess að við erum gift,“ seg-
ir Dagný og heldur áfram: „Ég er frá
Íslandi en maðurinn minn má ekki
koma þangað með mér. Þetta er eitt-
hvað svo ómannlegt.“ Eins og fyrr
segir hefur Dagný heimsótt Samuel
fjórum sinnum til Svíþjóðar en hún
hefur varið sumarfríinu sínu í Mal-
mö. „Þetta er búið að vera rosalega
mikið púsl en ég er heppin að eiga
góða fjölskyldu,“ segir Dagný sem
hefur þurft að taka sér töluvert mik-
ið frí frá störfum síðustu mánuði.
„Þetta er rosalega lýjandi og það
er mikil pappírsvinna og kostnað-
ur sem fylgir þessu.“ Hún segir erfitt
að finna sig í stöðu sem margir telji
einungis heyra til fortíðarinnar, eða
fjarlægra landa. „Manni finnst ein-
faldlega eins og það séu mann-
réttindi okkar að fá að vera saman.“
Eins og fyrr segir giftu þau Samuel
sig í Svíþjóð í janúar. Í kjölfarið lét
Dagný skrá hjónaband þeirra hjá
þjóðskrá á Íslandi og sótti um dval-
arleyfi til handa Samuel á grundvelli
fjölskyldusameiningar.
„Eftir þetta héldum við að það
yrði auðsótt fyrir hann að fá leyfi til
þess að koma aftur til Íslands þar
sem við værum gift,“ segir Dagný. Í
mars fékk Dagný símtal frá starfs-
manni Útlendingastofnunar þar
sem tilteknar voru þrjár ástæður fyr-
ir því að dvalarleyfi hefði ekki verið
samþykkt.
„Catch 22“
Í fyrsta lagi hefði ekki verið sýnt fram
á nógu háa framfærslu. Dagný seg-
ist ekki skilja hvernig stofnunin hafi
getað komist að þessari niðurstöðu
enda hefði hún sýnt fram á tölu-
vert hærri framfærslu en framfær-
sluviðmið Útlendingastofnunar gera
ráð fyrir. Í annan stað var tiltekið að
Samuel gæti ekki fengið dvalarleyfi
þar sem Dagný væri skráð með lög-
heimili í Svíþjóð, en þangað færði
hún lögheimili sitt í þeirri trú að
skráningin myndi hjálpa þeim hjón-
um að sameinast á ný. Í þriðja lagi til-
tók starfsmaður Útlendingastofnun-
ar að Samuel væri í 197 þúsund króna
skuld við ríkissjóð vegna ferðarinnar
til Malmö og að hann fengi ekki dval-
arleyfi fyrr en sú skuld væri greidd að
fullu.
Dagný hefur staðið í svipuðu
stappi við sænsk útlendingayfirvöld
síðustu mánuði en allt kemur fyr-
ir ekki. Tölvan segir nei, Samuel skal
aftur til Nígeríu, og allar mögulegar
lausnir virðast fela í sér þversagnir,
eins konar „Catch 22“, ástand sem er
ómögulegt að vinna sig út úr. Dagný
segist hafa sent tölvupóst á Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur fyrir um það
bil mánuði síðan. Hún hafi feng-
ið kurteislegt bréf til baka þar sem
greint hafi verið frá því að ráðuneytið
gæti ekki beitt sér í málinu. Nú séu
þau bæði orðin úrkula vonar. Dag-
ný segist ekki hafa gert sér grein fyr-
ir þeirri hræðilegu stöðu sem hæl-
isleitendur á Íslandi væru í fyrr en
hún kynntist Samuel. Viðhorfin til
flóttafólks séu almennt slæm og kerf-
ið sem mæti þeim sé ískalt. „Við erum
tilbúin til þess að taka á móti konum
með börn en ef það eru karlmenn
sem eru í vanda þá er allt sett í lás.“
Úrskurðum og dómum snúið
Töluvert hefur verið fjallað um hæl-
ismál Samuels í íslenskum fjölmiðl-
um en hann hefur ekki átt sjö dagana
sæla hér á landi. Rúv greindi frá því í
nóvember 2012 að hann hefði verið
sviptur framfærslu sinni hjá félags-
þjónustu Reykjanesbæjar á þeirri
forsendu að hann dveldist ekki leng-
ur í Reykjanesbæ en Samuel hafði þá
verið búsettur hjá Dagnýju í Hafnar-
firði. Ári síðar greindi DV frá því að
Samuel hefði ekki fengið framfær-
sluna endurgreidda þrátt fyrir að
þessi ákvörðun Útlendingastofnun-
ar hefði verið dæmd ógild í Héraðs-
dómi Reykjavíkur. „Það er algjörlega
óásættanlegt að það sé ekki búið
að endurgreiða þetta,“ sagði Katrín
Oddsdóttir, lögfræðingur Samuels,
af þessu tilefni.
Þá greindu fjölmiðlar frá því
þegar hann var handtekinn í sept-
ember árið 2012 þar sem vísa ætti
honum úr landi, og það þrátt fyrir að
hann væri í sambandi við Dagnýju.
Innanríkisráðuneytið greip síðar
inn í málið og Samuel var leystur
úr haldi. Útlendingastofnun taldi
sig ekki þurfa að taka hælisumsókn
hans til efnislegrar umfjöllunar þar
sem hann hefði áður sótt um hæli
í Svíþjóð og innanríkisráðuneytið
staðfesti þann úrskurð. Lögmað-
ur Samuels kærði málið hins vegar
til Héraðsdóms Reykjavíkur sem
felldi úrskurð Útlendingastofnun-
ar úr gildi. Útlendingastofnun áfrýj-
aði þeim dómi hins vegar til Hæsta-
réttar Íslands sem komst að þeirri
niðurstöðu að senda mætti Samu-
el úr landi á grundvelli Dyflinnar-
reglugerðarinnar sem varð úr.
Fleiri hjónum sundrað
Mál Dagnýjar og Samuels svipar til
mála sem fjallað var um í fjölmiðl-
um í maí síðastliðnum. Hinn 12. maí
greindi DV frá því að lögreglumenn
frá embætti lögreglustjórans á höf-
uðborgarsvæðinu hefðu handtekið
Izekor Osazee frá Nígeríu, eiginkonu
Gísla Jóhanns Grétarssonar, þar sem
vísa ætti henni úr landi á grundvelli
Dyflinnar-reglugerðarinnar. Mál-
ið vakti mikla athygli og í kjölfar há-
værra mótmæla og fundarhalda í
innanríkisráðuneytinu var henni
sleppt úr haldi og ákvörðun um
brottvísun dregin til baka.
Kristín Völundardóttir, forstjóri
Útlendingastofnunar, sagði að fara
þyrfti yfir verkferla í málum þar sem
hælisleitendur væru giftir íslenskum
ríkisborgurum og því yrði ákvörðun
í máli Izekor frestað. Þá sagði hún
málið fordæmalaust en svo var þó
ekki. DV hafði til að mynda greint
frá því nokkrum dögum fyrr, eða
hinn 8. maí, að Hassan Al Haj, eigin-
manni Margrétar Láru Jónasdóttur,
hefði verið vísað úr landi á grund-
velli Dyflinnar-reglugerðarinnar
þrátt fyrir að þau væru gift. Þegar
DV ræddi við Margréti hinn 18. maí
hafði ekkert gerst í máli þeirra og
hún sagði að sér fyndist eins og búið
væri að gleyma þeim. Helga Vala
Helgadóttir, lögmaður þeirra Ha-
ssans og Margrétar, staðfestir nú í
samtali við DV, að Hassan sé enn þá
úti í Svíþjóð og þá fáist engin svör
frá ráðuneyti eða Útlendingastofn-
un varðandi það hvort honum verði
gert kleift að snúa aftur.
Viðbragð við 11. september
Á fundi með mótmælendum hinn
12. maí sagði forstjóri Útlendinga-
stofnunar að engin skrifleg stefna
væri til í útlendingamálum á Íslandi.
DV gerði hinni óorðuðu útlendinga-
stefnu íslenskra stjórnvalda ítar-
leg skil í úttekt hinn 23. maí. Þar var
meðal annars rifjað upp að núgild-
andi útlendingalög væru að stofnin-
um til frá árinu 2002.
Sólveig Pétursdóttir, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, fylgdi frum-
varpinu úr hlaði og sagði það
viðbragð við árásunum á tvíbura-
turnana hinn 11. september 2001.
Mikilvægt væri að setja strangari
reglur varðandi útlendinga til að
sporna við því að hryðjuverkamenn
úr fjarlægum heimshlutum hreiðr-
uðu um sig.
Frumvarpið var gagnrýnt harð-
lega af stjórnarandstöðuþingmönn-
um en svar Sólveigar við þeirri
gagnrýni birtist meðal annars í eft-
irfarandi spurningu: „Hvar er réttur
íslenskra borgara til verndar gagn-
vart þessu fólki? Þurfum við ekki líka
að hafa hann í huga?“ n
Ríkið sundrar hjónum
n Samuel fær ekki að koma til Íslands þótt hann sé kvæntur íslenskri konu n Fer huldu höfði í Malmö
„Ég vil ekki að
skrifræðisbatteríið
eyðileggi það sem okkur
Dagnýju hefur tekist að
byggja upp.
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Kynntust í Hjartagarðinum Dagný Albertsdóttir og eiginmaður hennar, Samuel Eboigbe Unuko frá Nígeríu, kynntust í Hjartagarðinum á fjölmenningardegi Reykjavíkur sumarið 2011.
Íslensk stjórnvöld sendu hann til Svíþjóðar þaðan sem á að senda hann til Nígeríu. Mynd Sigtryggur Ari
„Manni finnst
einfaldlega
eins og það séu
mannréttindi okkar
að fá að vera saman