Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Page 15
Fréttir 15Helgarblað 27.–30. júní 2014 Framkvæmt á háannatíma n Ekki gert ráð fyrir náttúrupassa fyrr en á næsta ári n Verkefnin talin bráðnauðsynleg Flosagjá/Peningagjá 11.000.000 krónur Svæðið í kringum Flosagjá hefur mikið látið á sjá í gegnum árin, enda hefur lítið verið gert vegna allra þeirra ferðamanna sem um svæðið fara. Nú er svo komið að óhjákvæmilegt er að bregðast við og farið verður í aðgerðir til að bæta svæði allt í kringum Flosagjá, með göngustígum og öðru. Eins og sést á myndinni er virkilega þörf á því að aðgengi sé betrumbætt. Vatnajökulsþjóðgarður 79.250.000 krónur Stór hluti af styrkjunum renna til Vatnajökulsþjóðgarðs en þar verður ráðist í að byggja tvo útsýnispalla og einn göngupall. Aðgengi og öryggi ferðamanna við Eldgjá verður bætt og þá á að laga göngustíg að Svarta- fossi, leggja ræsi og setja upp handrið. Útsýnispallarnir tveir verða við Svartafoss og við Dettifoss auk þess sem göngupallur verður lagður við fossinn að vestanverðu. Fyrirhuguð var gjaldtaka landeigenda í Reykja- hlíð við fossinn en með þessum áformum samþykktu þeir að falla frá þeim áætlunum. Þeir hófu samt sem áður gjaldtöku á öðrum ferða- mannastöðum í þeirra eigu. Samtals fara 79 milljónir til uppbyggingar í Skaftafelli en í apríl samþykkti Framkvæmdasjóður ferðamannastaða að setja tæpar 30 milljónir í viðbyggingu við núverandi aðstöðu ferða- manna á svæðinu. Þjóðgarðurinn fékk auk þess rúmar 16 milljónir til annarra verkefna í sömu úthlutun. Alls verður því 125 milljónum króna varið í uppbyggingu á Skaftafelli. Þórsmörk 15.349.159 krónur Geysivinsæll ferðamannastaður enda er fátt betra en góð gönguferð í Þórsmörk á góð- um sumardegi. Styrkurinn er til viðhalds á gönguleiðum en þær eru fjölmargar á svæð- inu og erfitt að komast þangað með efni og búnað til að sinna stígum. Geysir 15.000.000 krónur Hið umdeilda Geysissvæði fær 15 milljónir króna í úthlutuninni til hönnunar, stígagerðar og uppsetningar öryggisgrindverka. Nýlega lauk samkeppni um hönnun og skipulag svæðisins en það var landslagsarki- tektastofan Landmótun sem bar sigur úr býtum með sinni tillögu. Ekki er öruggt að eftir tillögunni verði farið enda var aðeins um hugmynda- samkeppni að ræða. Þó má ætla að ýmislegt verði notað, eins og göngu- pallar og handrið úr timbri og áli. Ekki var gert ráð fyrir breyttri aðkomu að svæðinu. Göngupallar um svæðið verða mikil bót, en nú þarf að ganga um drullusvað þegar blautt er úti og þeir göngustígar sem nú þegar eru á svæðinu ná ekki til þess svæðis sem hvað eftirsóttast er. Miklar deilur hafa staðið um gjaldtöku við Geysi eins og frægt er orðið, en í vetur hóf Land- eigendafélagið að rukka 600 krónur fyrir aðgang að svæðinu, í óþökk ís- lenska ríkisins sem á landið sem hverasvæðið er á og einnig hlut í svæðinu sem ganga þarf um áður en komið er að hverunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.