Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Page 24
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Ingi
Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Viktoría Hermannsdóttir • Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri
og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéttASkot
512 70 70FR jál S t, ó Háð DAg b l Að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AðAlnÚmeR
RitStjóRn
áSkRiFtARSími
AUglýSingAR
Sandkorn
24 Umræða Helgarblað 27.–30. júní 2014
Ég er mjög
spennt
Meira malt.
Meiri humlar.
Hann verður
alveg brjálaður
Þetta verður
frábært
„Get ég fengið mynd af brjóstunum á þér?“
Sjónvarpkonan Lóa Pind hjólar í kringum landið. - DV. Tæknimaðurinn Þráinn Steinsson smakkar ódýrustu bjórana. - DV. Fuglinn Máni fylgir Írisi Leu hvert sem er. - DV. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, en liðið mætir Celtic. - DV.
G
et ég fengið mynd af brjóstun-
um á þér?“ Þannig hljómaði
spurningin sem dundi daglega
á unglingsstúlku í London.
Þetta kom fram í grein Guardian um
krípiskot. Þar var líka rætt við stúlku
sem lenti í því 16 ára að fyrsti kærast-
inn hennar lofaði að byrja aftur með
henni eftir sambandsslit ef hún sendi
honum berbrjósta myndir. Hún gerði
það og hann sendi myndirnar sam-
stundis á alla á kontaktlistanum.
Hún komst að því þegar allir fóru að
hlæja að henni og kalla hana hóru.
Vinir hennar sögðu hana ógeðslega
og kennararnir gerðu grín að henni.
Sex mánuðum seinna reyndi hún að
fyrirfara sér. Fjórum árum seinna var
hún enn að lenda í því að fólk kall-
aði hana hóru, ef það þekkti hana af
myndum.
Þetta er ekkert öðruvísi hér á
landi. Ekki er langt síðan Tinna Ing-
ólfsdóttir sagði söguna af sjálfri sér.
Á aldrinum 13–15 ára sendi hún
frá sér nektarmyndir sem komust í
dreifingu.
Viðbrögðin voru þau sömu – hún
var dæmd, talað var illa um hana
og hún þurfti að kljást við kvíða og
þunglyndi. Hún sagði það versta
vera þegar fólk skellti allri ábyrgð-
inni á hana, „jesúsar sig hægri vinstri
yfir því að ég hafi getað verið svona
vitlaus, þegar það kallar mig athygl-
issjúka druslu“ og spurði hvort hún
hafi virkilega haldið annað en að
þetta færi í dreifingu. Í skólanum var
henni velt upp úr skömminni með
athugasemdum á borð við „gaman
að sjá þig í fötum“, en skömm þeirra
sem á horfðu og tóku þannig þátt í
ofbeldinu virtist engin.
Í helgarblaði DV segir frá karl-
manni sem hefur verið kærður til
lögreglu fyrir að senda myndir af sér
í samförum við annan mann, á kær-
ustu mannsins og tengdaforeldra.
Fórnarlambið í málinu segist aldrei
hafa verið samkynhneigður held-
ur hafi samskipti hans við þennan
mann aldrei verið eðlileg, satt best
að segja alveg skelfileg. Hann hafi
verið notaður og sú misnotkun hafi
enn verri áhrif á sig vegna mynd-
anna. „Hann setti mig í andlegt fang-
elsi. Hann tók upp myndband af mér,
fullt af nektarmyndum.“
Samkvæmt framkvæmdastýru
Kvennaathvarfsins er það orðið mjög
algengt að menn í ofbeldissambönd-
um hóti dreifingu á óþægilegu og
grófu myndefni af þeim. Dæmi eru
um að myndirnar séu sendar á milli
manna, til vinnuveitenda, samstarfs-
fólks eða kunningja. Aðrar fara á
netið, þar sem þeim er dreift manna
á milli.
Á undanförnum misserum hef-
ur hver vefsíðan á fætur annarri
sprottið upp þar sem netníðingar
sameinast í þessu áhugamáli sínu,
að dreifa myndum ásamt persónu-
upplýsingum um stúlkurnar og
athugasemdum um þær. „Klámið er
mjög auðveld leið til þess að nálgast
næsta kvenlíkama, maður þarf bara
að kíkja á netið,“ sagði unglingspiltur
í viðtali við DV hér um árið.
Svipuð viðhorf virðast ríkja á
þessum vefsíðum þar sem stelpurn-
ar sem um ræðir eru afmennskað-
ar og niðurlægðar, ekki bara með
dreifingunni heldur einnig með orð-
um, þær eru kallaðar druslur og hór-
ur, smækkaðar niður í einstaka lík-
amshluta og virði þeirra metið út frá
myndunum.
Rætt var við nokkur ungmenni
um þessa þróun í ársriti Kven-
réttindafélags Íslands, 19. júní. Þar
sagði frá stelpu sem hafði lent í því að
fyrrverandi kærasti dreifði myndum
af henni. Hún var niðurlægð, baktöl-
uð og útskúfuð en strákurinn lenti
aldrei í vandræðum.
Önnur hafði sjálf lent í því að
kærastinn dreifði myndum þegar
þau hættu saman. Þegar hún hringdi
í hann sagðist hann hafa skuldað vini
sínum fyrir myndir af annarri stelpu.
„Hann leit ekki á þetta sem brot
gagnvart mér og skildi ekki af hverju
ég var svona sár. Næstum eins og
hann greindi ekki að ég væri á þess-
um myndum.“ Benti hún á að strákar
horfi mikið á klám, séu vanir því að
sjá naktar stelpur á netinu „og gera
þess vegna lítinn greinarmun“.
Strákarnir tóku í sama streng.
Einn sagði frá því hvernig honum
hefði tekist að plata tugi útlenskra
stelpna til að senda sér nektarmynd-
ir eða myndbönd, með því að byggja
upp traust sem hann síðan braut
með því að áframsenda myndirnar.
„Þetta er svo fjarlægt,“ útskýrði hann.
Annar sagðist hafa fengið um
fimmtíu myndir af stelpum frá vinum
sínum. Myndir sem þeir höfðu feng-
ið frá stelpum og dreift. „Ég held að
fólki finnist allt í lagi að vista mynd-
irnar því þeim líður eins og mann-
eskjan á myndinni sé ekki mann-
eskja. Þetta verður svo óraunverulegt
á netinu. Næstum eins og klám.“
Eins og krakkarnir bentu á, þá
er þetta svo auðvelt og eftir stend-
ur lögreglan ráðalaus. Jafnvel þegar
það hefur tekist að hafa hendur í hári
þeirra sem dreifa svona myndefni
hafa þeir gjarnan sloppið við ákæru
þar sem vefsíðurnar eru hýstar er-
lendis og brotin því ekki framin inn-
an íslenskrar lögsögu. „Það er einnig
mjög takmarkað hvað fáliðuð lög-
regla getur gert,“ sagði þáverandi yf-
irmaður kynferðisbrotadeildarinnar
í fyrra.
Meira að segja innan veggja fang-
elsisins virðist þetta þrífast, þar sem
karlmaðurinn sem um ræðir hér
að ofan situr í fangelsi og sat þegar
myndirnar voru sendar á tengdafor-
eldra fórnarlambsins.
Ef enginn þarf að axla ábyrgð á
dreifingunni er kannski auðvelt að
telja sér trú um að þetta skipti ekki
máli. Þetta er engu að síður gróf at-
laga að kynfrelsi fólks. Þeir sem á
horfa taka þátt í ofbeldinu, sem hefur
víðtækar og alvarlegar afleiðingar á
líf og heilsu þeirra sem fyrir því verða.
Sömuleiðis er það ákveðið ofbeldi að
varpa skömminni á þolandann með
niðurlægjandi athugasemdum og
framkomu, þegar þolandinn er lát-
inn halda á ábyrgðinni á meðan net-
níðingarnir sleppa.
Frásögn Tinnu varpaði ljósi á
áhrif þess og afleiðingar. Tinna er
fallin frá en hennar verður minnst
fyrir hugrekkið sem hún sýndi með
því að stíga fram. Saga hennar var
liður í því að draga mennskuna fram
og færa skömmina þangað sem hún
á heima. Hún vakti vonandi ein-
hverja til umhugsunar. n
Spurt um
hagsmunatengsl
Sveinn Andri Sveinsson hæsta-
réttarlögmaður spyr Jón Stein-
ar Gunnlaugsson, fyrrverandi
hæstaréttardómara, spurninga
á Facebook-síðu sinni um hags-
munatengsl hans og Hreiðars
Más Sigurðssonar, fyrrverandi
forstjóra Kaupþings. Ástæða
spurninganna er grein sem Jón
Steinar Gunnlaugsson skrifaði í
Morgunblaðið í síðustu viku um
kæru sem Hreiðar Már Sigurðs-
son lagði fram á hendur Bene-
dikt Bogasyni, núverandi hæsta-
réttardómara, fyrir meint brot í
starfi. Telur Sveinn Andri að Jón
Steinar hafi búið yfir upplýsing-
um um málið sem ekki hafi kom-
ið fram opinberlega og ályktar að
hann hafi haft kæru Hreiðars Más
undir höndum. Svo spyr Sveinn
Andri: „Hefur JSG fengið greitt
fyrir ráðgjöf frá HMS, beint eða
óbeint, frá félögum í hans eigu
eða sem tengjast HMS, eða var
þetta „pro bono”?“
Forvitni vegna fjárfestis
Talsverð forvitni er meðal áhuga-
manna um fasteignamarkaðinn
vegna tilboðs ótilgreinds fjár-
festis, eða fjár-
festa, í meira en
150 íbúðir sem
Íbúðalánasjóð-
ur á. Unnið er
að fjármögn-
un kaupanna
og hefur Sigurð-
ur Erlingsson, framkvæmdastjóri
Íbúðalánasjóðs, gefið það út í
Viðskiptablaðinu að um sé að
ræða fjársterka aðila. Engin nöfn
hafa hins vegar verið nefnd í
þessu samhengi en DV hefur
greint frá því að kauptilboðið hafi
hljóðað upp á tæpa tvo millj-
arða. Fróðlegt verður að sjá hverj-
ir kaupendurnir eru þegar búið
verður að ganga frá kaupunum.
Dæmið snýst við
Tíðindi liðinnar viku um kærurn-
ar tvær sem lagðar hafa verið
fram gegn tveimur dómurum eru
sögulegar. Báðir
dómararnir komu
að því að veita eft-
irlitsaðilum heim-
ildir vegna rann-
sókna á meintum
lögbrotum. Þeir
Hreiðar Már Sig-
urðsson og útgerðarfélagið Sam-
herji sneru hins vegar vörn í sókn
og kærðu dómarana. Þannig geta
einkaaðilar slegið á puttana á op-
inberum aðilum og má segja að
slíkar aðgerðir geti haft fælingar-
mátt: Látið okkur vera, annars
kærum við ykkur. Ýmsir sem hafa
verið til rannsóknar hafa beitt
sömu meðulum gegn blaða-
mönnum.
Bandaríkin og Íran saman í liði
N
ú virðist það staðfest sem
mörgum var löngum ljóst, að
það að ráðast inn í Írak er ein-
hver versta ákvörðun sem tek-
in hefur verið í lýðræðisþjóðfélagi. Af-
raksturinn hefur verið skelfilegur fyrir
Íraka og hinn mikli kostnaður sem af
þessu hefur hlotist fyrir Bandaríkja-
menn í mannslífum, dollurum og
missi á trúverðugleika hefur flýtt fyr-
ir hnignun þess sem stórveldis. Þegar
Bush var kjörinn forseti voru margir
sem töluðu um nýja bandaríska öld til
jafns við þá tuttugustu. Nú gera flestir
ráð fyrir að Kína fari fram úr sem efna-
hagsveldi undir lok þessa áratugar.
Á meðan geisar stríðið enn í Írak.
Samtök sem nefna sig ISIS stjórna nú
svæði á stærð við Jórdaníu sem nær frá
Sýrlandi og yfir næststærstu borg Írak
og nálgast Bagdad óðum. Eru samtök-
in afsprengi Al-Kaída en þykja taka
þeim fram í grimmd. Al-Maliki for-
sætisráðherra stjórnar enn í Bagdad í
nafni shíta-meirihlutans, en hagar sér
æ meir eins og einræðisherra.
Ísrael og Sádi-Arabía gegn Íran
Núverandi vandræði hófust árið 2011,
þegar al-Maliki lét handtaka vara-
forsætisráðherra sinn, al-Hashimi,
daginn eftir að Bandaríkjaher yfirgaf
landið. Al-Hashimi er súnníti, sem
eru í minnihluta en réðu landinu í tíð
Saddams Hussein. Handtökuskipan-
in gerði því líklega endanlega út af við
samstarf trúarhópanna. Al-Hashimi
komst undan til Kúrdahéraðanna,
en var dæmdur til dauða í fjarveru
sinni. Í kjölfarið hófst uppreisn með-
al súnníta sem hefur leitt til valdatöku
ISIS, þótt samtökin séu varla mjög
vinsæl hjá heimamönnum vegna þess
siðar þeirra að taka trúbræður sína af
lífi til jafns við shíta, telji þeir menn
ekki guði þóknanlega.
Bandaríkjamenn vilja fyrir alla
muni berja niður ISIS og Al-Kaída,
þó ekki vilji þeir sjálfir, af fenginni
reynslu, senda her á svæðið. Íranar
vilja hjálpa trúbræðrum sínum í Írak,
shítunum, enda hafa þeir mikil ítök
þar. Eru Bandaríkjamenn og Íran-
ar þar með orðnir óformlegir banda-
menn í Írak. Hinum megin víglínunn-
ar standa Sádi-Arabar og Ísraelar, sem
eru einnig orðnir óformlegir banda-
menn í þeirri viðleitni sinni að sporna
gegn Írönum.
Bandaríkjamenn og Rússar
saman með Assad?
Staðan er þó ekki alveg svona ein-
föld. Tyrkir styðja súnníta gegn Írön-
um, en vilja á sama tíma fá aðstoð shíta
gegn Kúrdum sem eru bandamenn
súnníta. Íranar styðja Assad í Sýrlandi
sem Bandaríkjamenn vilja koma frá,
en á sama tíma vilja þau enn frekar
berjast gegn ISIS. Assad hefur notfært
sér þetta og beint öllum sínum kröft-
um gegn hófsamari uppreisnarmönn-
um en látið ISIS vera. Veit hann sem
er að eftir því sem andstæðingar hans
verða grimmari og tengdari Al-Kaída,
því betur lítur hann sjálfur út í aug-
um umheimsins. Á endanum munu
því líklega Assad og ISIS hafa gert út af
við aðra uppreisnarmenn hvor í sínu
lagi. Þá verða góð ráð dýr fyrir Banda-
ríkjamenn sem verða að velja á milli
þessara póla. Ef til vill munu þeir þá
flykkja sér á bak við Assad ásamt Rúss-
um, sem þeir nú deila við um Krím-
skaga.
Staðan í Írak er eilítið flóknari. Lík-
lega tekst Al-Maliki að stöðva fram-
göngu ISIS með aðstoð Bandaríkja-
manna og Írana, en erfitt er að sjá fram
á að hann muni geta treyst völd sín á
súnnítasvæðum eftir það sem á undan
er gengið. Möguleg niðurstaða í Írak
er þá sú að landinu verði skipt upp,
þar sem Al-Kaída og vinir þeirra fara
með völdin norðan megin og Íranar og
leppar þeirra sunnan megin.
Og þá geta þeir Bush og Blair, Hall-
dór og Davíð hallað sér aftur og klapp-
að sér á bakið eftir vel unnið ævistarf. n
„Möguleg niður-
staða í Írak er þá
sú að landinu verði skipt
upp.
Ingibjörg Dögg
Kjartansdóttir
ingibjorg@dv.is
Leiðari „Þeim líður eins
og manneskjan á
myndinni sé ekki mann-
eskja.
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kjallari