Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Side 25
Umræða 25Helgarblað 27.–30. júní 2014
Dómurinn kom Birki
verulega á óvart
Svo tók ég svefntöfluEins og hver önnur
blómaplanta
Lögfræðingur Birkis Kristinssonar um fimm ára fangelsisdóminn. - DV. Ásbjörg Margrét Emanúelsdóttir sefur í bíl sínum. - DV.Jóhanna Björk Hallbergsdóttir lá á sjúkrahúsi í 20 mánuði. - DV.
Umsjón: Henry Þór Baldursson
Næsti bær við landráð? – af gáleysi
Á
fjölmennum útifundum á
Austurvelli í vor leið voru
haldnar margar góðar ræð-
ur líkt og á útifundunum,
sem steyptu ríkisstjórn Sjálfstæð-
isflokksins og Samfylkingarinnar í
febrúar 2009, fáeinum mánuðum
eftir hrun. Tilefni fundanna nú í vor
var sú fyrirætlan Alþingis að draga
til baka umsókn Íslands frá 2009
um aðild að ESB, án þess að fólkið
í landinu fengi nokkuð um málið að
segja.
Þessi ráðagerð var athugaverð
af tveim ástæðum. Annars vegar
höfðu báðir ríkisstjórnarflokkarn-
ir lofað því statt og stöðugt að mál-
ið yrði til lykta leitt með þjóðarat-
kvæði. Hins vegar hefði einhliða
uppsögn samningaviðræðna við
ESB haft þau áhrif, að nær ógerlegt
hefði verið að taka þráðinn upp aft-
ur á næstu árum, þar eð þá þyrfti
upp á nýtt að afla samþykkis allra
einstakra aðildarlanda ESB; hvert
einstakt land í sambandinu hefði þá
neitunarvald. Hér hugði ríkisstjórn-
in því á fáheyrt skemmdarverk í
skjóli meiri hluta síns á Alþingi.
Fólkinu, sem fylkti liði á Austur-
völl laugardag eftir laugardag í vet-
ur og vor og skrifaði tugþúsundum
saman undir áskorun til Alþing-
is um að sjá sig um hönd, tókst að
hrinda þessari árás Alþingis á lýð-
ræðið. Enn á lýðræðið samt undir
högg að sækja. Það er varla tilviljun,
að þessir atburðir eiga sér stað hér
heima á sama tíma og þjóðremba
veður uppi í evrópskum stjórn-
málum og teygir sig jafnvel hingað
heim í fásinnið í fyrsta sinn frá lok-
um síðari heimsstyrjaldar. Hér má
greina munstur.
Ein bára stök?
Aðför Alþingis að lýðræðinu í ESB-
málinu er angi á miklum meiði.
Alþingi situr á svikráðum við lýð-
ræðið eins og dæmin sanna. Það
tókst með naumindum að fá þing-
ið ofan af því eða a.m.k. fresta því að
rjúfa heit sitt um þjóðaratkvæði um
ESB-málið. Alþingi lætur þó engan
bilbug á sér finna í stjórnarskrár-
málinu, miklu brýnna máli. Um
það mál var haldin þjóðaratkvæða-
greiðsla 2012, þótt núverandi ríkis-
stjórnarflokkar reyndu koma í veg
fyrir hana. Tveir þriðju hlutar kjós-
enda lýstu stuðningi við nýja stjórn-
arskrá. Með þeim úrslitum hefði
málinu átt að ljúka. Alþingi ætlar
samt að láta þjóðaratkvæðagreiðsl-
una sem vind um eyru þjóta.
Það hefur aldrei fyrr gerzt í lýð-
ræðisríki, að löggjafarsamkoman
virði að vettugi þjóðaratkvæði um
nýja stjórnarskrá. Þvílíkt athæfi er
rétt nefnd tilraun til valdaráns. Það
hefur ekki heldur gerzt í nokkru
lýðræðisríki, aldrei nokkurn tí-
mann, að þjóðkjör hafi verið úr-
skurðað ógilt í heilu lagi líkt og sex
hæstaréttardómarar, þar af fimm
skipaðir í embætti af dómsmálaráð-
herra Sjálfstæðisflokksins, gerðu að
lokinni kosningu til Stjórnlagaþings
2010. Guðbjörn Jónsson fv. ráðgjafi
færði í opnu bréfi til Hæstaréttar
sannfærandi rök að því, að úrskurð-
urinn væri beinlínis ólöglegur.
Gangur leiksins
Skoðanir einstakra manna innan
þings og utan á nýrri stjórnarskrá
hættu að skipta hagnýtu máli, eft-
ir að úrslit þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar 2012 lágu fyrir. Úrslitin voru
endanleg líkt og úrslit allra annarra
kosninga. Engum leyfist, ekki held-
ur Alþingi, að vanvirða kosninga-
úrslit. Þeir, sem telja sig hafna yfir
úrslit þjóðaratkvæðagreiðslu um
nýja stjórnarskrá eða úrslit annarra
kosninga, grafa undan lýðræðinu.
Þeir, sem hefðu heldur kosið, að
einstök ákvæði nýrrar stjórnarskrár
hljóðuðu öðruvísi, þurfa að bíða
næstu endurskoðunar, vonandi eftir
20-30 ár frekar en 70. Það er gangur
leiksins í lýðræðisríkjum.
Guðrún Pétursdóttir, fv. formaður
stjórnarskrárnefndar, hvatti fundar-
menn á Austurvelli í vor til að rifja
um skilgreiningu orðsins landráð.
Um þetta segir í hegningarlögum:
„Hver, sem sekur gerist um verkn-
að, sem miðar að því, að reynt verði
með … svikum að ráða íslenska rík-
ið eða hluta þess undir erlend yfir-
ráð… skal sæta fangelsi ekki skemur
en 4 ár eða ævilangt.“ Á þetta þrönga
ákvæði hefur aldrei reynt fyrir dóm-
stólum. Ákvæðið er barn síns tíma:
það voru þau ár um ofanverða nítj-
ándu öld, þegar þjóðríkin voru að
hasla sér völl fyrir tíma alþjóðasam-
starfs og efnahagsbandalaga nútím-
ans. Í nútíma lýðræðisríki væri nær,
að í stað orðanna „ráða íslenska rík-
ið eða hluta þess undir erlend yf-
irráð“ kæmi heldur „leysa íslenska
ríkið eða hluta þess undan yfirráð-
um kjósenda.“ Slíkur texti leggur að
jöfnu svik t.d. auðlinda í þjóðareigu
undir erlend yfirráð og undir yfirráð
innlendra hagsmunahópa.
Arnaldur og Salka
Halldór Laxness skildi þetta. Hann
lætur Arnald segja við Sölku Völku:
„Hvað var það, sem gerðist 1874,
þegar fjárhagur okkar var aðskilinn
Danmörku? Í raun og veru ekki ann-
að en það, að arðránið af alþýðunni
færðist inn í landið. Það voru bara
höfð þjóðernaskipti á ræningjun-
um.“ n
Þorvaldur Gylfason
skrifar
Kjallari
Mynd SiGtryGGUr Ari
Áfangar eða áfangar …
Í
ellefu hundruð árin rúm við eilífð-
ar veginn gengum og sjö eru tugir
síðan við sjálfstæði okkar feng-
um. Íslenska þjóðin þráir auð
þegar við landið mengum; ég tel að
sú byrði bara sé bölvun sem þjónar
engum.
Bráðnandi jöklar, brunnin tún,
bliknar nú andinn fúsi og þjóð minni
finnst sem foldin öll í fangelsi tímans
dúsi; sem glóandi afl af grimmd og
heift með græðgi hvert hjarta knúsi,
líkt einsog nú sé lífið sjálft lokað í
gróðurhúsi.
Hellis- við gráa -heiði er hiti í
iðrum jarðar, frá Hengli þar mynda
mikinn krans máttugir fjallagarð-
ar, eiturský þarna uppi fá að iða sem
ljósir farðar, og jafnan í gegnum gufu
sjást græðginnar minnisvarðar.
Akrafjall blasir öllum við með
iðnað í sínu skjóli, stálbræðslan
mikla stað sinn fékk sem stytta á lág-
um hóli, álverið bláa ýlfrar hátt sem
úlfur í sauðabóli þar sem hér áður
sýndu sig sóleyjar, hvönn og njóli.
Við Straumsvík er álver starf-
rækt enn og staðið það lengi hefur,
erlendum millum orkulind arðinn
af bræðslu gefur, spunninn er þar
um gullsins glit garpanna lygavef-
ur meðan til fjalla Fróni á fossbúinn
aldrei sefur.
Sigalda líkt og Sognið þarf seið-
andi afl af fjöllum og Búrfell og
einnig Blanda fær bugður af háum
stöllum. Íslenskum hjörtum yljar vel
orkan frá Nesjavöllum en Þjórsárver,
okkar stolt og stoð, standa nú fæti
höllum.
Frá Kröflu í gufu gengið er að Gjá-
stykki niður bratta; Húsavík þaðan
helst vill nú hljóta af orku slatta; til
iðju á Bakka þjóðin þarf þúsundir
megavatta. En útlenskir jöfrar ekki fá
til okkar að greiða skatta.
Á veraldarinnar veisluborð vel-
megun breiðir dúka er gljúfur sem
áður geymdu fljót gleymast og
keppni ljúka og þarna af lóni lengi
fær leirinn um auðn að fjúka, þar
sem í brattri brekku dó blómið við
Kárahnjúka.
Hjá Gullfossi vart fær dauði deyft
drunur í þungum bassa og Geysir er
sagður gefa hér guðdómsins fyrsta
klassa, milljónir ferðamanna brátt
munu þar sýna passa svo gjaldeyrir
fái glatt í raun gattóman ríkiskassa.
Af skinhelgi verður skömmin
mest skapar hún böl og æði er olía
brátt með arði fær að auka hin fölsku
gæði; með orku menn vilja efla helst
auðmagnsins seðlaflæði því bráð-
um mun Mammons merki reist með
mengun á Drekasvæði.
Núna ég ljóssins notið fæ nóttina
dimma, langa er ylríkur bjarminn
áfram berst út yfir nes og tanga. Í Ís-
landi sjálfu orkan býr sem auðvaldið
helst vill fanga, mér er þó enn í minni
ferskt myrkrið við Sultartanga. n
Þrungið er orku Þórisvatn,
þarna er aflið vakið,
þótt jötunninn hengi höfuð þar;
svo hræddur við andartakið,
því fjallkonan bæði þreytt og þjáð
í þrengingum leggst á bakið
en karlinn í neðra sigursæll
á sálunum herðir takið.
Kristján Hreinsson
Skáldið
skrifar
Dýrast í heimi
1 „Þessum manni er alveg sama þótt kona
sé ófrísk, það stoppar hann
ekkert“ Olga Genova segir að það að
búa með hennar fyrrverandi sambýlis-
manni, Jörgen Má Guðnasyni, hafi verið
eins og að búa ofan á eldfjalli; allt gat
verið í lagi og á næsta augnabliki gat of-
beldið blossað upp. Hún hefur kært hann
fyrir líkamsárás, líflátshótun, eignaspjöll,
húsbrot, þjófnað og skjalafals.
47.953 hafa lesið
2 Jörðin gleypti þau Manns-hvörf á Íslandi hafa löngum vakið
mikla athygli. Það er nánast mánaðarlegt
að björgunarsveitir eru kallaðar út til að
leita að týndum eða jafnvel slösuðum
Íslendingum og ferðamönnum sem hafa
lent í hrakningum á ferðum sínum um
íslenska náttúru. „Það er ekkert eitt sem
sameinar alla þá sem við leitum að, nema
þá að þeirra er saknað,” segir Sigurður
Ólafur Sigurðsson, margreyndur leitar-
maður hjá Landsbjörg.
34.993 hafa lesið
3 Stjórnendur dularfullrar gróðamaskínu ákærðir
fyrir fjárdrátt Bjarni Þór Júlíusson
og Úlfar Guðmundsson, stjórnarmenn
fyrirtækjanna Arðvís og Costa, hafa
verið ákærðir fyrir stórfelldan fjárdrátt
og bókhaldsbrot, að því er fram kemur á
fréttavef RÚV.
33.841 hafa lesið
4 Ásbjörg sefur í bílnum sínum Hinn 1. febrúar síðast-
liðinn flutti Ásbjörg Margrét Emanúels-
dóttir af heimili sínu í Breiðholti og í bifreið
sína, lítinn smábíl. Þar hefur hún sofið og
hafst við í öllum veðrum, en fær einstöku
sinnum inni hjá aðstandendum þegar
þess þarf.
32.950 hafa lesið
5 „Þjófur á að missa höndina fyrir þjófnað“
„Það stendur í Kóraninum: Þjófur á að
missa höndina fyrir þjófnað. En skilyrði
fyrir því að missa höndina er að samfélag-
ið sé algjörlega íslamískt, þar sem enginn
þarf að stela einu eða neinu,“ sagði
Salmann Tamimi, hjá Félagi múslima, í
viðtali við Ísland í dag.
31.962 hafa lesið
Mest lesið
á DV.is