Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Qupperneq 45

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Qupperneq 45
Helgarblað 27.–30. júní 2014 Fólk Viðtal 29 honum það ekki vera svo. „Nei, nei, það er bara þannig. Eða jú, kannski á suman hátt. Þegar hjartað slær ná- lægt þér er náttúrlega auðveldara að gera hlutina. Við getum alveg sagt að ég þurfti ekki að kafa mjög djúpt til að finna þennan mann. Þetta er óþægi- legt á vissan hátt. Þegar þú vinnur við leiklist er það bara þannig. En það er ekkert í boði að finnast eitthvað óþægilegt. Þú verður bara að fara þangað. Ef þú ætlar ekki þangað get- ur þú bara farið að finna þér eitthvað annað að gera,“ segir Hilmir og hlær. Annað erfitt hlutverk sem Hilm- ir hefur þurft að glíma við er úr leik- ritinu Veislunni sem Þjóðleikhúsið sýndi rétt eftir aldamót. Þar lék hann tilfinningaþrungið hlutverk Kristjáns sem ásakar föður sinn um kynferð- isbrot. „Það var tilfinningalega mjög erfitt hlutverk. Þegar þú leikur svona hlutverk eru dyrnar á leikhúsinu svo- lítið þungar þegar þú mætir. Þú veist hvaða pakka þú ert að ganga inn í og dagarnir verða svolítið öðruvísi. Þú vaknar og veist að þú ert að fara að leika þetta á kvöldin og það litar daginn.“ Hilmir segir að það geti verið and- lega erfitt að vera leikari. „Ég ætla ekkert að skafa af því. Það er mjög erfitt stundum að vera í þessu starfi ef maður ætlar á annað borð að gera það vel. Þar sem maður gerir kröf- ur til sjálfs síns, er stundum erfitt að uppfylla þær,“ segir Hilmir. „Ef manni finnst maður ekki ná eins langt og maður vill þá verður maður fyrir von- brigðum.“ „Allar fjölskyldur eiga einhver leyndarmál“ Í leit að þeirri fyrirmynd sem mót- aði hann hvað mest sem manneskju nefnir Hilmir föður sinn. „Ég miða mig við hann sem manneskju. Hvern- ig maður á að vera sem manneskja og hvernig maður á að koma fram, það er hann sem hefur mótað mig.“ Hann segist þannig eiga í mjög góðu sambandi við föður sinn, eins og fjölskylduna alla. Hilmir Snær er giftur Bryndísi Jónsdóttur og saman eiga þau 19 ára dóttur. Hilmir Snær á einnig aðra dóttur sem fæddist árið 2009. Fjölskyldulífið er nokkuð hefð- bundið að hans sögn, þótt lífið sé ekki alltaf dans á rósum. „Ég veit í rauninni ekkert hvern- ig hin hefðbundna fjölskylda er. Allar fjölskyldur eiga einhver leyndarmál. Engin fjölskylda er eins fullkomin og hún virðist út á við. Ég held við séum mjög venjuleg fjölskylda, án þess að ég viti hvernig fjölskylda á að vera. Það er eitthvað að hjá öllum,“ segir Hilmir. Hafa yfirstigið erfiðleika Þau hjónin eru búin að vera saman í 20 ár. Þrátt fyrir erfiðleika sem upp hafa komið segir hann sambandið þeirra mjög gott, enda hafi þau unnið úr vandamálunum. „Við erum mjög opinská og höfum farið í gegn- um margt. Við höfum lent í mörgu á leiðinni. Eins og ég held að allir lendi í sem eru búin að vera saman í 20 ár. Ég held það sé óhjákvæmilegt að lenda í einhverjum stormum á sigl- ingunni. Við erum opinská að því leyti að við höfum talað um það og athugað hvort að við ætlum að sigla þessum bát áfram saman eða ekki,“ segir Hilmir sem vill ekki halda neinu í felum. „Erfiðleikar eru bara hluti af lífinu. Hvort sem þú ert einn á ferða- lagi í gegnum það eða með einhverju öðrum, þá er það alltaf erfitt. Það er bara hluti af því að vera til.“ Hilmir myndi helst vilja vera laus við allar áhyggjur en er þó raunsær. „Það er hundleiðinlegt en mað- ur verður bara að gera það. Ég vildi helst af öllu ekki takast á við neitt. Ég vildi að allt væri gott og allir væru góðir og enginn myndi gera neitt af sér. Ég vildi að ég ætti auðveldara með að taka ákvarðanir og myndi aldrei lenda í árekstrum við neinn. En maður verður bara að horfast í augu við það og takast á við það, hversu lítið sem mann langar til þess,“ segir Hilmir. Eftirsjá er ekki eitthvað sem Hilm- ir leyfir sér að tönnlast á þótt hann geri sér grein fyrir eigin mistök- um. „Það er margt í lífinu sem mað- ur gæti séð eftir en ég reyni frekar að halda áfram heldur en að sjá eft- ir einhverju, af því mér finnst fortíð- in ekki eins spennandi. Maður gerir alls konar afglöp, maður gerir eitt- hvað af sér, maður gerist sekur um hina og þessa hluti í lífinu. Alls kon- ar mistök og alls konar vandræði, en ef maður ætlar að hanga þar þá held ég að maður verði aldrei neitt stærra. Maður verður bara að segja jæja, þarna var ég og þarna var brautin Uppgjör Hilmis„Ég veit ég er heiðarleg og góð manneskja, sem hleypur stundum fram úr sér m y n d s ig tr y g g u r A r i
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.