Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 62
Helgarblað 27.–30. júní 201446 Menning H in sígilda saga af Þyrnirós er ekki öll þar sem hún er séð. Disney hefur undanfar- ið stigið út fyrir hefðbund- inn ramma ævintýra og boðið upp á nýbreytni í kynjahlutverkum og aukna dýpt í persónum. Helst ber að nefna Brave og Frozen þar sem uppskriftinni er breytt. Maleficent fylgir þessari nýju stefnu en er öllu drungalegri, enda bönnuð yngri en tíu ára. Áður fyrr þekkt sem eitt versta illmenni Disney, holdtekja illskunnar sem nýtur þess að drepa börn, er titilpersóna myndarinnar nú misskilin og særð álfkona. Angelina Jolie fer með titil- hlutverkið og tekst að draga fram ákveðinn grunntón persónu sem flestir þekkja frá barnæsku sinni. Útlit hennar er alfarið byggt á Disn- ey-myndinni ástkæru og oddhvöss kinnbeinin setja punktinn yfir i-ið. Jolie tileinkaði sér breskan hástétt- arhreim fyrir hlutverkið og tekst nokkuð vel til, sérstaklega í ljósi þess að svo mörgum bandarískum leikur- um hefur mistekist sama verkefni. Ekki er um að villast, hér er á ferð sama persóna og hrellti Þyrni- rós í teiknimyndinni og birtist al- ræmd illska hennar þó ekki sé nema í stutta stund í senn. Nýjum og fram- andi eiginleikum Maleficent er bætt við þennan þekkta grunn og þannig er gefið í skyn að hér sé á ferð hin „raunverulega“ saga um Þyrnirós sem muni leiðrétta allan misskiln- ing. Maleficent vekur áhorfendur til umhugsunar um mikilvægi þess að setja sig í spor annarra. Þrátt fyrir þessa áherslu er ekki unnið á sama hátt í öðrum persónum myndar- innar. Þyrnirós öðlast að einhverju leyti umboð en því fylgir ekki marg- slunginn persónuleiki og prinsin- um, er jafnvel tvívíðari persóna en í teiknimyndinni. Í stað Maleficent er síðan kynnt til sögunnar nýtt illmenni sem er jafn einfalt og hún var áður, drifið áfram af engu nema græðgi. Maleficent bendir á veigamikinn galla í ævin- týrum og mikilvægi þess að segja börnum sögur þar sem heimurinn er ekki svart-hvítur en fellur síðan sjálf í þessa gröf. Boðskapur myndarinnar týnist því að nokkru leyti. Maleficent stígur skref í áttina að heilbrigðari frásögn en hefði mátt stíga það til fulls. n Illmenni endurskoðað Sigríður Regína Sigurþórsdóttir Kvikmynd Maleficent IMDb 7,4 RottenTomatoes 50% Metacritic 56 Leikstjórn: Robert Stromberg Aðalhlutverk: Angelina Jolie og Elle Fanning Handrit: Linda Woolverton 97 mínútur Maleficent Angelina Jolie í hlutverki vondu nornarinnar sem er ekki bara vond lengur. Þ að er allt stórt við Meat Loaf. Nafnið, röddin, skrokkurinn. Og árið 1977 fékk hann lög við hæfi líka. Lagahöfund- urinn Jim Steinman fékk söngvarann, sem hafði getið sér gott orð fyrir hlutverk í söngleikjunum Hair og Rocky Horror Show, til að syngja verkið Bat Out of Hell. Á þess- um árum diskó og pönks féll platan í hvorugan flokk, en Steinman kallaði tónlistarstefnu sína Wagner-rokk. Er það því vel við hæfi að tónleik- ar plötunni til heiðurs hefjist á því að Matti í Pöpum komi svífandi niður á sviðið í leðurblökubúningi, mótor- hjól er keyrt inn á sviðið og áður en yfir lýkur er sjálfur Eiríkur Hauks- son staddur þar líka. Áhorfendur, sem flestir virðast hafa verið á ung- lingsárum fyrir um 35 árum, haldast varla kyrrir í sætum sínum og virðast þekkja hverja nótu. Á kókaíni í hjólastól Platan fór þó hægt af stað, enda á skjön við alla tísku. En ef til vill varð þetta henni til happs til lengri tíma litið, því þvert á alla flokkadrætti hefur hún nú selst í um 43 milljón- um eintaka og ekki yfirgefið breska topp 200-listann enn. Jafnframt mun hún vera mest selda erlenda plata Ís- landssögunnar, en um einn af tíu Ís- lendingum eiga hana. Tónleikaferðin í kjölfar plötunn- ar tók mjög á. Meat Loaf fótbrotnaði og kom fram í hjólastól, fékk tauga- áfall og hótaði að henda sér fram af byggingu, ánetjaðist kókaíni og missti röddina. Allt þetta leiddi til þess að hann kom ekki fram á fram- haldsplötunni Bad For Good, sem Steinman söng sjálfur illu heilli. Næsta plata, Dead Ringer, kom ekki út fyrr en árið 1981 og brátt fór að halla undan fæti. Plötur hans á 9. áratugnum seldust illa og hann reyndi fyrir sér sem gamanleikari, var meðal annars í slagtogi við Hugh Laurie áður en sá fann sálufélaga sinn í Stephen Fry. Meat Loaf fór á hausinn eftir málaferli við Steinman. Varð hann að hafa ofan af fyrir sér með tón- leikahaldi og lærði kona hans Leslie (Loaf?) ferðamálafræði til að spara í bókunum. Kom hann fram í Laugar- dalshöllinni árið 1987, í þá daga þegar aðeins útbrunnir þungarokk- arar komu hingað, og vakti mikla lukku. Í deilum við grænmetisætur Leiðir Steinman og Meat Loaf lágu loks saman aftur árið 1993 þegar þeir gerðu Bat Out of Hell II og tókst að endurtaka vinsældir hinnar fyrri, en lagið I Would Do Anything For Love fór í fyrsta sæti í 28 löndum. Sagan endurtók sig þó, vinsældirnar dvínuðu aftur vegna heilsuleysis og málaferla við Steinman, allt þangað til platan Bat Out of Hell III kom út árið 2006. Varð hún ekki jafn vinsæl og hinar tvær fyrri, en gekk þó bet- ur en það sem hann hafði gert síð- an. Í millitíðinni hafði hann leikið í myndinni Fight Club og grennst sem grænmetisæta en síðan fitnað á ný, en sagan segir að aðrar græn- metisætur hafi verið lítt ánægðar með sviðsnafn hans. Meat Loaf hélt í fyrra í tón- leikaferðina Last at Bat, þar sem hann segist hafa spilað Bat Out of Hell-lögin í síðasta sinn, inni á milli þess sem viðtöl eru sýnd á skjá um gerð hennar. Litlar líkur eru á að hann komi aftur til Íslands þar sem hann neitar að koma fram þar sem kalt er á veturna og ærðist um árið þegar hann frétti að hann hefði verið bókaður í Kanada í febrúar- mánuði. Síðasti séns Loaf-aðdáendur þurfa þó ekki að örvænta, heiðurstónleikarnir verða endurteknir í Hörpu í kvöld, 27. júní. Er fyrri hluti þeirra tileinkað- ur Bat Out of Hell, sem enn er tíma- laus og út fyrir alla tísku. Í kjölfar- ið verða flutt valin lög úr safni Jim Steinman sem samdi meðal annars Total Eclipse of the Heart fyrir Bonnie Tyler. Friðrik Ómar heldur öllu saman og dúkkar einnig upp á sviðinu og við fáum jafnframt að sjá heimildarmyndina góðu. n Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Wagner-rokk n Heiðurstónleikar Meat Loaf í Hörpunni n Átakanleg saga Meatloaf Meatloaf Sýningin hefur verið gríðarlega vel sótt í Hörpu. Matti Matt „Er það því vel við hæfi að tónleikar plötunni til heiðurs hefjist á því að Matti í Pöpum komi svífandi niður á sviðið í leðurblökubúningi.“ Við máluðum bæinn rauðan Eitt af því mikilvægasta á veg- ferð manns er að lýsa öðrum leiðina. Þannig birtir ekki að- eins yfir samferðafólki, held- ur og manni sjálfum. Það er nefnilega svo að þeir sem færa öðru fólki sólskin geta ekki haldið því frá sjálfum sér. Eitthvað í þessa veru leið mér að afloknum haustfundi Vestnorræna þingmanna- ráðsins í þorpinu Tasilaq á Grænlandi þegar áratugur var liðinn af nýrri öld. Þar vorum við fjögur austan af Íslandi, fulltrúar nokkuð ólíkra stjórn- málaflokka, en í reynd góðir samverkamenn og vinir. Okk- ur hafði áskotnast aukadagur í lífi okkar, af því samgöngur eru með glöppum á þessum til- komumiklu slóðum á austur- strönd stærstu eyju jarðar. Og þar með fæddist sú hugmynd í okkar hópi að gera eitthvert gagn í samfélagi vinaþjóðar okkar og skilja eftir okkur svo sem eins og eitt sjáanlegt góð- verk í stað þess að ráfa daglangt um svæðið í einhverju innan- tómu tilgangsleysi. Við höfðum orðið þess áskynja á þriggja daga fundi okkar í plássinu að híbýli fólks- ins í Tasilaq voru í æði mis- jöfnu ásigkomulagi; mörg hver vissulega í prýðisgóðu standi, en önnur fremur lasburða að innviðum og útliti. Það allra þjáðasta var að finna í böltan- um ofan við læk. Það reyndist vera heimkynni miðaldra veiði- manns að nafni Vittusar Napp- arngummuts, fjögurra barna föður sem konan hafði yfirgef- ið fyrir annan mann fyrir all- nokkrum árum og aldrei skilað sér til baka. Það sást harla skýrt í augunum hans Vittusar – og reyndar öllu hans atgervi – að enn var hann aumur að inn- an eftir að konan fór í fússi, en hvað um það; börnin þurfti eft- ir sem áður að fæða – og því fór hann á lánsbáti hvern þann dag sem gaf til sjós og skilaði aflanum til hálfs upp í leigu; af- ganginn gat hann gefið krökk- unum sínum að bíta úr beini og brjóski. Hann hafði auðvitað engin efni á að lífga upp á íveru- stað sinn. Og varla kraftinn til þess heldur, enda skrokkurinn orðinn næsta sprekaður af öllu áratogi ævinnar. Og þarna mættum við fjög- ur framan við húsið hans einn heiðskíran haustdag í Tasilaq, hvítgölluð úr dönsku málara- búðinni á staðnum þar sem við eyddum síðustu dagpeningun- um okkar í að kaupa blóðrauða málningu á kotið hans Vittusar ofan við læk. Við máluðum allan daginn, hæðirnar báðar og kjallarann allan – og mest allan tímann sat húsbóndinn á kolli úti á tröð og gat ekki annað en gapað yfir þessari óvæntu heimsókn ein- hverra þingmanna úr allt öðru landi. Þegar við skildum við hann, svo og börnin Dibo, Henn- ing, Otto og Peter, þar sem þau stóðu öll framan við eldrauða húsið sitt í sólroða sigins dags, var ekki annað að sjá úr svipn- um en feimnislegt þakklæti. Og það lá við sjálft að sólin færi aftur á loft. Úr vegabréfi Sigmundar Ernis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.