Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Side 4
Gangi það eftir að Yngvi Örn Krist-
insson, fyrrverandi forstöðumað-
ur hagfræðisviðs Landsbankans, fái
launakröfu sína greidda úr þrotabúi
bankans og láti upphæðina renna
til góðgerðarmála græðir hann sjálf-
ur engu að síður nærri 40 milljón-
ir króna. Milljónirnar hlýtur hann í
formi lífeyrissjóðsgreiðslna og við-
bótarlífeyris.
Yngvi Örn fer fram á 230 milljón-
ir í laun frá þrotabúi Landsbankans.
Það sem eftir stendur af launakröf-
unni, þegar skattar hafa verið dregn-
ir frá, lofar hann að renni til góðgerð-
armála. Ef af verður fær hann engu
að síður milljónir í lífeyrissjóð sinn,
eða sautján prósent kröfunnar sam-
kvæmt reglum Lífeyrissjóðs banka-
manna.
Ef sama formúla er notuð og reikn-
uð út lífeyrissjóðsgjöld af launakröfu
Williams Fall, fyrrverandi forstjóra
Straums fjárfestingabanka, kemur í
ljós að til eigin nota hlýtur hann rúm-
ar hundrað milljónir króna. Hann fer
fram á 640 milljónir í laun úr þrota-
búinu og hefur lýst því yfir að fjár-
hæðin renni til góðgerðarmála. Það
fullyrðir Yngvi Örn einnig.
Enginn undanskilinn
Til viðbótar getur verið að tvímenn-
ingarnir séu með samninga um sér-
eignarsparnað og þá hækka upp-
hæðir til þeirra beggja enn frekar.
Sigtryggur Jónsson, framkvæmda-
stjóri Lífeyrissjóðs bankamanna,
segir engan launamann undanskil-
inn því að greiða lífeyrissjóðsgjöld
af launum sínum. Aðspurður tel-
ur hann fullvíst að bankastjórnend-
ur eigi að greiða lífeyrissjóðsgjöld
af launakröfum þeirra. „Það slepp-
ur enginn við þessa prósentu og
það greiða allir lífeyrissjóðsgjöld af
launum sínum. Undir þetta falla líka
stjórnendur banka. Ég tel það alveg
fullvíst að menn þurfi að greiða líf-
eyrissjóðsgjöld af kröfum sínum og
það sem fæst í lífeyrissjóð er að sjálf-
sögðu viðkomandi til tekna,“ segir
Sigtryggur.
Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt í
viðskiptafræði við Háskóla Íslands,
segir tvímenningana, og aðra stjórn-
endur bankanna, ekki eiga að fá
krónu greidda. „Mennirnir geta ekki
lagað samvisku sína með því að þykj-
ast ætla að gera góðverk. Þeir skána
ekkert við slíkar yfirlýsingar. Með því
væru þeir bara að stela með annarri
en gefa með hinni. Fái þeir eitthvað
af kröfunum greiddar fá þeir sjálfir
greitt í lífeyrissjóð. Þeir eiga ekki að
fá krónu,“ segir Vilhjálmur.
Ævi láglaunamanns
William og Yngvi Örn eru einu
bankastjórnendurnir sem hafa lýst
því yfir að launakröfur þeirra renni
til góðgerðarmála fáist þær greidd-
ar. Margir aðrir stjórnendur krefjast
hárra launa en samtals fara starfs-
menn Landsbankans fram á nærri
tvo milljarða króna. Slitastjórn bank-
ans hefur ekki tekið afstöðu til launa-
krafna starfsmannanna og því ekki
víst að þær verði samþykktar.
Lágmarkslaun á Íslandi eru 157
þúsund krónur á mánuði. Það tæki
því láglaunamanninn heila starfs-
ævi og rúmlega það að vinna sér inn
þær milljónir sem tvímenningarnir
hljóta í lífeyrissjóðsgreiðsl-
ur. Sé litið til samanlagðr-
ar upphæðar krafna þeirra
tekur það láglaunafólk 78
ár að safna upp í þær tæpu
150 milljónir sem þeir
hljóta. Það gera tæplega
950 mánaðargreiðslur ís-
lenskra lágmarkslauna.
Verði þeim að góðu
Guðmundur Ólafsson hagfræðing-
ur skilur ekkert í launakröfum fyrr-
verandi bankastjórnendanna. Hann
trúir því ekki að þeir hljóti milljónir
til eigin nota í gegnum lífeyrissjóði.
„Ég segi nú ekki annað en verði
þeim að góðu. Þessir menn ættu
að geta haft það gott í ellinni og
fyrir þeirra hönd fagna ég því.
Þeir geta sagt okkur það að allt
renni til góðgerðarmála en þeir
slá ekki ryki í mín augu með
því. Með þessum lífeyrissjóðs-
greiðslum værum við að tala um
ævilaun verkafólks,“ segir Guð-
mundur.
„Það sjá allir hvað
þetta er heimskulegt
og mér fyndist mjög
óeðlilegt ef mennirnir
fengju þess-
ar millj-
ónir
til eig-
in nota
úr lífeyris-
sjóði. Mér litist mjög
illa á. Þessir menn gera launa-
kröfur fyrir það eitt að hafa ekki tek-
ið kúlulán hjá bönkunum og krefj-
ast þannig skaðabóta. Mér er í raun
algjörlega sama hvert þeir ætla síð-
an að gefa ránsfenginn. Kröfurnar
sjálfar eru náttúrlega dæmalausar og
mér dettur ekki til hugar að þeir fái
þær greiddar.“
Þrátt fyrir tilraunir fengust hvorki
svör frá Yngva Erni né William Fall
við vinnslu fréttarinnar.
Sandkorn
n Ásmundur Stefánsson
hefur verið gagnrýndur fyrir
framgöngu sína eftir að hann
var settur í forsvar bankaráðs
Landsbankans og skipaði sig
síðar bankastjóra bankans.
Ásmundur
segist þó í
viðtali við
Viðskipta-
blaðið, sem
kom út á
fimmtudag,
ekki ætla
sér að verða
bankastjóri
til frambúðar. Hann segist ekki
ætla að sækja um bankastjóra-
stöðuna þegar hún verður aug-
lýst laus til umsóknar en óvíst
er hvenær það verður. Hann er
þó ekki í vafa um ágæti banka
síns og segir hann hagkvæm-
astan allra íslenskra banka.
n Aðalfundur Fjármálaeftirlits-
ins var haldinn á fimmtudag.
Þetta var í fyrsta skipti í tvö ár
sem slíkur fundur er haldinn.
Eða eins og Gunnar Ander-
sen, forstjóri Fjármálaeftirlits-
ins, sagði:
„Annar var
fyrirhugaður
haustið 2008
en var aldrei
haldinn af
ástæðum
sem ég held
að ég þurfi
ekki að skýra
fyrir þeim sem hér sitja.“ Ann-
ars vakti athygli í ræðu Gunn-
ars að hann sagði bæði þá sem
kennt hafa innlendum þátt-
um og þeim sem hafa kennt
erlendum þáttum um hrunið
hafa eitthvað til síns máls en
að vissulega hefðu verið fram-
in lögbrot hér og hrunið hefði
ekki verið eitthvað sem Íslend-
ingar „lentu“ í.
n Finnur Sveinbjörnsson,
bankastjóri Arion-Kaupþings, á
ekki sjö dagana sæla. Flest sem
hann gerir er lagt út á versta
veg. Honum er kennt um að af-
skrifa skuld-
ir Haga um
rúmlega 30
milljarða
króna sem
þó er ekki
sanngjarnt.
Finnur tók
við niður-
skrifuð-
um skuldunum af skilanefnd
gamla bankans sem þannig ber
ábyrgðina. Sjálfur er Finnur í
öngum sínum vegna umræð-
unnar og greip til þess ráðs að
fresta Hagamálinu þar til um
miðjan janúar.
4 föstudagur 27. nóvember 2009 fréttir
Yngvi Örn Kristinsson, fyrrverandi stjórnandi í Landsbankanum, og William Fall,
fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingabanka, geta fengið nærri 150 milljónir króna
til eigin nota verði launakröfur þeirra samþykktar úr þrotabúi. Þó svo þeir lofi að gefa
andvirði eftir skatt til góðgerðarmála fá þeir sjálfir vænan skerf í lífeyri.
GRÆÐA TUGMILLJÓNIR
Á GÓÐGERÐARSTARFSEMI
„Ég segi nú ekki annað
en verði þeim að góðu.
Þessir menn ættu að
geta haft það gott í ell-
inni og fyrir þeirra hönd
fagna ég því.“
TrausTi haFsTEinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
skipting greiðslna samkvæmt
reglum Lífeyrissjóðs banka-
manna:
Yngvi Örn Kristinsson - launakrafa
230 milljónir
4% eigið framlag = 9,2 milljónir
6% mótframlag atvinnurekenda =
13,8 milljónir
7% viðbótarsparnaður = 16,1 milljón
samtals: 39,1 milljón
William Fall - launakrafa 640 milljónir
4% eigið framlag = 25,6 milljónir
6% mótframlag atvinnurekenda =
38,4 milljónir
7% viðbótarsparnaður = 44,8
milljónir
samtals: 108,8 milljónir
109 milljónir William Fall gæti fengið 109 milljónir til eigin nota sé horft til reglna
Lífeyrissjóðs bankamanna.
Ekki krónu
Vilhjálmur
gefur lítið út
á það að
banka-
stjórnend-
ur segist
ætla að
greiða
kröfur til
góðgerð-
armála.
Líst illa á Guðmundur
trúir því ekki að banka-
stjórnendur fái hundruð
milljóna greidd úr
þrotabúunum.
Jólagjöfin hans/hennar
Fjöltól:
Vasaljós,hnífur,sög
töng og skrúfjárn
kr 3.900
með beltistösku
Nóatúni 17
S: 534 3177 eða 820 7746
www.icefin.is