Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Qupperneq 12
12 föstudagur 27. nóvember 2009 fréttir
Stórviðburðir hafa gerst í sögu líf-
tæknifyrirtækisins Íslenskrar erfða-
greiningar síðustu daga. DeCode,
móðurfélag Íslenskrar erfðagrein-
ingar, sótti um greiðslustöðvun fyr-
ir gjaldþrotadómstóli og fékk hana
í vikunni sem er að líða og félagið
verður að öllum líkindum selt til fjár-
festingafélagsins Saga Investments
eftir slitameðferðina. Félagið hefur
jafnframt fengið tilkynningu um af-
skráningu úr bandarísku kauphöll-
inni Nasdaq - sem reyndar verður
líklega áfrýjað - og Kári Stefánsson,
hinn litríki og umdeildi forstjóri fé-
lagsins og andlit þess, mun láta af
störfum sem forstjóri í kjölfar eig-
endaskiptanna þó hann muni áfram
verða stjórnarformaður í því.
Móðurfélagið skilur eftir sig um
40 milljarða króna skuldir á móti litl-
um eignum en með aðkomu Saga
Investments er talið að Íslensk erfða-
greining hafi tryggt starfsemi sína í
að minnsta kosti tvö ár til viðbótar.
Þetta verða þó ekki sársaukalaus
ár því líkt og DV greindi frá á mánu-
daginn hefur nú þegar verið ákveðið
að segja upp á milli 20 til 30 starfs-
mönnum eftir eigendaskiptin í byrj-
un næsta árs. Listi með nöfnum
þeirra starfsmanna sem halda vinn-
unni lak á netið í síðustu viku og hef-
ur valdið miklum óróa meðal starfs-
manna fyrirtækisins.
Á bak við þessi miklu tíðindi og
hinn mikla skuldahala liggur dram-
atísk saga fyrirtækis sem átti að verða
hið nýja óskabarn íslensku þjóðar-
innar á tuttugustuogfyrstu öldinni.
Eimskip opnaði vanþróað land fyrir
nútímanum og umheiminum með
skipaflutningum hingað til lands á
öðrum áratugi 20. aldar og átti það
án vafa þátt í því að byrja að bæta lífs-
skilyrði hér á landi og „alþjóðavæða“
Ísland. Að sama skapi átti deCode að
verða tákn fyrir nýtt og betra Ísland
og hluti af þjóðarsálinni: líftæknifyr-
irtæki með framúrskarandi alþjóð-
legu starfsfólki sem ynni að göfugum
vísindarannsóknum og skilaði mikl-
um peningum í þjóðarbúið um leið.
En þessi dramatíska saga þessa
ætlaða óskabarns þjóðarinnar verð-
ur ekki aðskilin frá persónu Kára
Stefánssonar sem stjórnað hefur fyr-
irtækinu frá stofnun og þar til nú.
Að vissu leyti má segja það sama
um tengsl Kára og Íslenskrar erfða-
greiningar og Loðvík 14. Frakklands-
konungur sagði um samband sitt og
Frakklands fyrir nokkrum öldum:
Ríkið það er ég. Í tilfelli Kára og de-
Code myndi setningin hljóma: de-
Code það er ég.
Frá 18 dollurum til líklegrar
afskráningar
Með greiðslustöðvun, eigendaskipt-
um og forstjóraskiptum hjá Íslenskri
erfðagreiningu má í vissum skilningi
segja að ákveðnum þætti í íslenskri
viðskiptasögu sé formlega lokið. Þó
verður að bæta því við að þrátt fyr-
ir þessa sviptivinda segja heimildir
DV að ólíklegt sé að mikið breytist
hjá Íslenskri erfðagreiningu í kjölfar
eigendaskiptanna því hinir nýju eig-
endur hafa átt í félaginu áður og Kári
verður áfram stjórnandi hjá fyrirtæk-
inu.
Árið 1995 fór Kári að velta fyrir
sér stofnun Íslenskrar erfðagreining-
ar. Hann hafði þá verið að vinna að
rannsóknum á erfðafræði MS sjúk-
dómsins. Til að láta hugmyndina
verða að veruleika flutti hann aftur
til Íslands eftir að hafa búið í Banda-
ríkjunum í um 20 ár. Hann fór til um
tíu áhættufjárfesta ásamt Cynhyu
Bailey, sem starfað hafði með hon-
um í Chicago og söfnuðu þau um
850 milljónum króna. Var fyrirtæk-
ið stofnað sumarið 1996. Stofnfé var
850 milljónir króna sem kom frá sjö
bandarískum áhættufjárfestum. Í
upphafi árs 1998 var skrifað undir 15
milljarða króna samning við sviss-
neska lyfjarisann Hoffman La-Roche
til rannsóknar á sjúkdómum. Á sama
tíma var íslenskum fjárfestum gef-
inn kostur á að kaupa hlutabréf í de-
Code fyrir um 800 milljónir íslenskra
króna á svokölluðum gráa markaði.
Um 6000 Íslendingar keyptu hluta-
bréf í deCode á gráa markaðinum.
Hæst fór gengi deCode í 65 dali á
gráa markaðinum.
Kári taldi að forsenda þess að fyr-
irtækið myndi ná árangri væri gott
starfsfólk. Einn sá fyrsti sem Kárið
réð var Hannes Smárason sem varð
aðstoðarforstjóri. Þeir kynntust í
Boston þegar Hannes var þar í MBA
námi. Félagið var skráð á Nasdaq
árið 2000 á genginu 18 dollarar fyr-
ir atbeina Hannesar og var að mörgu
leyti fyrsta íslenska útrásarævintýr-
ið.
Töpuðu tugum milljóna
Um þetta leyti voru vonirnar sem
bundnar voru við deCode gríðarleg-
ar hér á landi. Jón Fjörnir Thorodd-
sen ræðir um þetta atriði í bók sinni
Flugeldahagfræði fyrir byrjendur:
„Það fyrirtæki átti að finna lækn-
ingu við öllum sjúkdómum heims-
ins með því að nota íslensku þjóðina
og einangra erfðavísa þjóðar með
mikinn ættfræðigrunn. Hugmynd-
in um smáþjóð úti í miðju Atlants-
hafi þar sem ný tækni gerði mönn-
um kleift að kortleggja erfðamengi
heillar þjóðar hljómaði vel.“ Raunin
átti þó eftir að verða önnur þar sem
fyrirtækið hefur átt í miklum rekstr-
arörðugleikum síðustu ár þó svo að
vísindalegt gildi starfseminnar hafi
sjaldan verið dregið í efa.
Margir fóru flatt á því að fjárfesta
í deCode í kringum aldamótin. Má
þar nefna Raufarhafnarhrepp sem
keypti bréf á genginu 25. Hreppur-
inn tapaði tugum milljóna á þess-
um tíma vegna kaupa á bréfum í de-
Code auk félaga eins og Íslandssíma
og Oz.
Siv Friðleifsdóttir alþingismað-
ur er sögð hafa fengið 75 milljóna
króna lán hjá Landsbankanum til
kaupa á bréfum í deCode. Hún hef-
ur hins vegar alfarið neitað að hafa
tekið lánið í fjölmiðlum. Sömu sögu
er að segja um Svein Andra Sveins-
Miklar sviptingar hafa átt sér stað innan líftæknifyrirtækis-
ins deCode á síðustu dögum. Móðurfélag deCode hefur fengið
greiðslustöðvun eftir að hafa safnað 40 milljarða skuldahala, fé-
lagið verður selt og uppsagnir eru yfirvofandi. Kári Stefánsson
forstjóri mun loks láta af störfum en hann er umdeildur og erfið-
ur maður sem starfsmenn fyrirtækisins eru margir smeykir við
líkt og kemur fram í nærmynd DV af honum.
KONUNGSRÍKI KÁRA
„Stjórnandinn Kári er
ekkert nema harkan
sex.”
annaS SigmundSSon
blaðamaður skrifar: as @dv.is
Skapbrestir Kári þykir erfiður
maður í samskiptum og dyntóttur.
Enginn veit hverju má búast við frá
Kára. LjóSmyndari: guðmundur VigFúSSon