Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Side 24
Jóla hvað?
Aðventan er versti tími árs-ins í huga Svarthöfða og hingað til hefur hann aldrei verið viðskotaverri en í að-
draganda jólanna. Auðvitað hefur
Svarthöfði samt ekki verið svo skyni
skroppinn að hann hafi ekki gert
sér grein fyrir því að í innsta kjarna
jólaandans leynist eitthvað voðalega
göfugt og fallegt. Það fer bara alltaf
svo lítið fyrir því í allri geðveikinni
sem fylgir hátíðinni.
Svarthöfði komst því í brjál-að skap þegar hann keyrði í gegnum Vesturbergið á köldum og dimmum morgni
í vikunni og við honum blöstu jóla-
seríur á öðru hverju húsi. Nóvember
er rétt hálfnaður og strax er byrjað
að kynda undir delluna sem tekur
Svarthöfða á taugum einu sinni á ári.
Jólin koma í IKEA í október, í Breið-
holtið og alls staðar annars staðar í
nóvember en sjálft Jesúbarnið á ekki
afmæli fyrr en í lok desember. Hvað
liggur á?
Svarthöfði hefur aldrei átt jafn bágt með að skilja hvers vegna Íslendingum liggur svona ofboðslega á að byrja
jólin en nú þar sem á undanförnum
árum voru hér jól alla daga, allan
ársins hring, með þeim eðlilegu af-
leiðingum að með réttu ættu engin
jól að vera í ár, frekar en í fyrra.
Þetta hugsaði Svarthöfði með sjálfum sér fram eftir Vesturberginu. Hann var hálfnaður við að semja í
huganum tölvupóst til Steingríms J.
Sigfússonar þar sem hann skoraði
á hann að fara að fordæmi Fidels
frænda síns á Kúbu og fresta hrein-
lega jólunum vegna þess að við
höfum ekki efni á þeim. Í miðjum
þessum þönkum hlýnaði Svarthöfða
skyndilega um hjartaræturnar og
hann komst alveg óvart í jólaskap.
Þegar Svarthöfði var lítill gló-kollur leit hann mjög upp til hans Trölla sem stal jól-unum og fannst heiðarleg
tilraun hans til þess að þagga niður í
jólasköllunum með því að stela bara
jólunum alveg hreint frábært fram-
tak. Áður en Svarthöfði var kominn
í Árbæinn rann upp fyrir honum
að útrásarvíkingarnir og bankaber-
serkirnir eru Tröllar okkar tíma og
að þeir eru í raun búnir að stela jól-
unum en alveg eins og í ævintýrinu
um Trölla þá fyrst rifjaðist upp fyrir
bæjarbúum að jólin snúast ekki um
prjál, glingur, dót og veraldleg gæði.
Jólin sem urðu eftir þegar Trölli hafði stolið jólunum voru miklu betri jól en þau sem óbermið hafði á brott með sér og Svart-
höfði er alveg til í svoleiðis jól og
vonar bara að útrásardólgarnir fari
nú ekki að reyna að fara að dæmi
Trölla og skila jólunum. Það myndi
bara kalla á annað efnahagshrun og
eyðslufyllerí. Svarthöfða er eiginlega
alveg sama hvort jólakötturinn eða
hinn sérkennilegi saksóknari taki
víkingana svo lengi sem við hin get-
um gefið hvert öðru kerti og spil.
Þá eigum við alveg von á jólum sem geta meira að segja komið Svarthöfða í rétt skap.
Sandkorn
n Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
borgarfulltrúi er alvarlega að
hugsa um að gefa kost á sér í
2. sætið í prófkjöri sjálfstæðis-
manna sem fram fer í lok janúar.
Þorbjörg
þykir hafa
farið fram
úr þeim
vænting-
um sem til
hennar voru
gerðar þegar
hún kom
ný inn eftir
síðustu kosningar. Aðrar konur
sem huga á framboð eru sagðar
styðja hugmyndina um að Þor-
björg sækist eftir 2. sætinu. Þær
vilji frekar að Þorbjörg etji kappi
við þá kappa Gísla Martein
Baldursson, Júlíus Vífil Ingvars-
son og Kjartan Magnússon. Þær
losni þannig sjálfar við skæðan
keppinaut neðar á listanum.
n Ólafur Nielsen hóf innreið
sína sem formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna þegar
hann lagði til fyrir skemmstu
að nánast öll framlög ríkisins
til menningarstarfsemi yrðu
lögð niður. Þar á meðal framlög
til Ríkisútvarpsins. Nú gengur
skjámynd af spjallsíðu á netinu
þar sem Ólafur óskar bljúgur
eftir aðgangi að niðurhalssíðu,
þar sem meðal annars var boðið
upp á höfundarréttvarið efni.
„Ef einhver á invite handa mér
á kreppa.org myndi það gleðja
mitt litla hjarta,“ skrifar hann.
Þar með sýnir Ólafur fram á að
hádegisverðurinn er stundum
ókeypis, ólíkt því sem hug-
myndafræðingurinn Hannes
Hólmsteinn Gissurarson skrif-
aði á sínum tíma.
n Vefmiðillinn Eyjan.is, undir
ritstjórn Guðmundar Magnús-
sonar, hefur þrifist nánast ein-
göngu á því að endurtaka eða
hlekkja á fréttir sem aðrir fjöl-
miðlar leggja út í kostnað við að
vinna. Í vik-
unni gekk
vefurinn
svo langt
að eigna
sér að hafa
skúbbað því
að ákveð-
inn ráð-
herra hefði
talað við Fréttablaðið. „Eyjan
greindi frá því í gær að Kristján
L. Möller, samgönguráðherra,
sagði í Fréttablaðinu ...“ Fram að
þessu hefur það ekki þótt vera
fjölmiðlum sérstaklega til fram-
dráttar að taka fréttir frá öðrum
miðlum og gera að sínum eigin,
en að þessu leytinu til er
Eyjan.is stolt sníkjudýr.
n Sena, sem fram að þessu
hefur verið þekkt fyrir útgáfu á
tónlist, er yngsti bókaútgefandi
landsins. Fyrirtækið er með
tvær ævisögur á markaðnum,
Sjúddirarí rei, ævisögu Gylfa
Ægissonar og Söknuð, sögu Vil-
hjálms heitins Vilhjálmssonar.
Báðar bækurnar eru í fínni sölu
og seldist fyrsta prentun upp.
Nýliðinn á markaðnum er því
að koma sterkur inn. Reyndari
útgefendur mega vara sig á hin-
um nýja keppinauti.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: sverrir arngrímsson
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
elísabet austmann, elisabet@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Ég flækti
fótinn
í einhverri
stóllöpp og
hrasaði bara.“
n Laddi úlnliðsbrotnaði en lætur það ekki aftra
sér frá tökum á Áramótaskaupinu. - Fréttablaðið
„Þegar vörnin er svona
góð þá er auðvelt að eiga
góða leik.“
n Landsliðsmarkvörðurinn Íris Björk
Símonardóttir er að vakna til lífsins í N1-deild
kvenna. - Morgunblaðið
„Þetta slapp þó
betur en á
horfðist því
allavega
fjörutíu prósent
af dvd-diskunum eru í
lagi.“
n Gunnar Jósefsson, eigandi Laugarásvideos,
hefur átt fullt í fangi með að koma leigunni aftur í
gang. - Fréttablaðið
„Síðustu vikur höfum við
fylgst með húsi þar vegna
grunsemda um vændi og
skipulagða glæpastarf-
semi.“
n Björgvin Björgvinsson, yfirmaður
kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu. - DV.is
Á valdi Jóns Ásgeirs
Leiðari
Eitt algengasta bragð áróðursmeist-ara er að lýsa því yfir að þeir sem séu ekki með þeim í liði, séu í liðinu á móti þeim. Benito Mussolini lýsti
þessu margoft yfir í ræðum þegar hann lagði
undir sig Ítalíu. Lenín fullyrti einnig: „Sérhver
maður verður að velja milli okkar og hinna.“
George W. Bush lýsti því svo: „Annaðhvort
ertu með okkur eða með hryðjuverkamönn-
unum.“ Þetta eru úrslitakostir, eins konar hót-
un. Ef fólk fylgir ekki stefnu þess sem talar er
það sjálfkrafa komið í óvinahópinn. Þessari
tvískiptingu fylgir gamaldags, svarthvít heims-
mynd, þar sem menn eru annaðhvort góðir
eða vondir. Hún hefur verið einkennandi fyrir
stefnu Bush og Sjálfstæðisflokksins á þessum
áratug.
Undanfarna mánuði hefur staðið yfir til-
raun hjá yfirlýstum fylgismönnum Davíðs
Oddssonar til að endurvekja tvískiptingu ís-
lensks samfélags milli Sjálfstæðisflokksins og
þjóðarinnar annars vegar, og Baugs og Sam-
fylkingarinnar hins vegar. Þeir sem ekki vilja
gangast við því að vera vinstrimenn eða Baugs-
menn, og gagnrýna samt leiðtoga Sjálfstæð-
isflokks, eru sagðir vera í eigu Baugs á laun
eða vinstrimenn án flokksskírteinis. Önnur
tvískipting er milli þjóðernissinna og þeirra
vinstrimanna sem sagðir eru svíkja þjóðina í
Icesave-málinu og með aðildarviðræðum við
Evrópusambandið.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, hug-
myndafræðingur Sjálfstæðisflokksins, ýjar að
því á bloggsíðu sinni að Indriði Þorláksson, að-
stoðarmaður fjármálaráðherra, sé „í liði“ með
Bretum í Icesave-málinu. Auk þess fullyrðir
hann að ritstjórn DV sé á valdi Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar, aðaleiganda Haga. „Nú á hann
DV á laun og notar til þeirra verka, sem aðr-
ir fjölmiðlar hans treysta sér ekki til,“ fullyrð-
ir Hannes. Engin rök fylgja rangri fullyrðingu
hans um að Jón Ásgeir eigi DV og að starfs-
menn brjóti gegn eigin siðferði með því að láta
nota sig. Agnes Bragadóttir, blaðamaður Morg-
unblaðsins, hefur líka fullyrt að Jón Ásgeir sé
eigandi DV, án þess að færa rök fyrir því.
Í foringjaveldi Sjálfstæðisflokksins þekkt-
ist varla að þingmenn væru ósammála leið-
toga sínum. Margt bendir til þess að hörðustu
foringjadýrkendurnir í flokknum yfirfæri sinn
eigin veruleika yfir á aðra. Þeir líta þá svo á
að Jón Ásgeir sé ígildi Davíðs; óvéfengjanleg-
ur leiðtogi þeirra sem tengjast honum með
nokkrum hætti. En Jón Ásgeir er ekki sam-
bærilegur við stjórnmálaleiðtoga. Hann hef-
ur ekki einu sinni hugmyndafræði til að boða
meintum fylgismönnum sínum. Nema það sé:
„Bónus býður betur,“ sem er ágætt auglýsinga-
slagorð, en varla tilefni til að gefa sig honum
á vald.
Um leið og einhverjum er lýst þannig,
að hann sé á valdi einhvers, er viðkomandi
brennimerktur. Jafnvel ef hann ber af sér sakir
er hann eins og meinta nornin, sem staðfestir
tengsl sín við Satan með geðsýkislegu tilfinn-
ingauppnámi fyrir brennuna.
Það er full ástæða til að tortryggja athafnir
Jóns Ásgeirs, rétt eins og annarra útrásarvík-
inga, og ekki síst stjórnmálamanna. En það er
ekki síður ástæða til að tortryggja rakalausar
fullyrðingar sem bera öll einkenni ómerkileg-
ustu áróðursbragðanna.
Jón TrausTi reynisson riTsTJóri skrifar. Þeir líta þá svo á að Jón Ásgeir sé ígildi Davíðs.
bókStafLega
Vol og væl
Ég varð fyrir því óláni um daginn
að horfa á ÍNN. Það er ábyggilega
versta sjónvarpsrás sem fyrirfinnst
á jarðkringlunni. Þarna hafa afætur
íhaldsins rottað sig saman við skít-
kast og einstaklega ómálefnaleg-
ar árásir á þá sem landinu stjórna.
Þarna sat Hallur Keikó Hallsson
og grenjaði einsog hlandbrenndur
krakki. Þá kom þar Guðlaugur Þór,
fyrrverandi ráðherra, og grenjaði á
við þrjá. Og síðast en ekki síst mætti
þar, sú glæsilega kona, Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, Eyjólfsson-
ar leikara, og hámarkaði hróp grát-
kórsins. Þarna fór fólk bókstaflega
á kostum og minntist ekki einu ein-
asta aukateknu orði á það að Sjálf-
stæðisflokkurinn ásamt Framsókn á
allan heiður af því hvernig er komið
fyrir okkar unaðslegu þjóð.
Hvernig má það vera, að skyn-
samt fólk geti ekki lært að skamm-
ast sín?
Áður en ég náði að slökkva sá
ég á þessari ömurlegu rás að leidd-
ir voru til sætis menn sem veltu sér
í velmegunarspiki þess tíma þegar
sjálfstæðismenn græddu á daginn
og grilluðu á kvöldin. Og það síðasta
sem ég heyrði var orðrétt tilvitnun í
eitt magnaðasta slagorð búsáhalda-
byltingarinnar: VANHÆF RÍKIS-
STJÓRN!
Við ættum að segja okkur það oft
á dag og við megum aldrei hætta að
tönnlast á því, að Sjálfstæðisflokk-
urinn, með frjálshyggju sinni, kippti
stoðum undan bankakerfinu. En ef
þetta fólk er svona stolt af rústunum
þá á það að þora að horfast í augu
við sannleikann.
Brátt hætta LÍÚ-tíðindi að koma
út. En á meðan náhirð íhaldsins
með Hádegismóra í fylkingarbrjósti
heimtar það að Mogganum sé haldið
í öndunarvélinni þá skiptir það litlu
máli fyrir útgerðina þótt menn þurfi
að ausa peningum í Moggaræksnið.
Heljarstökk hirðsveinanna, úrvinda
af andleysi, verður að eiga sér stað
svo tryggja megi yfirráð kvótakóng-
anna yfir sameign þjóðarinnar.
Ekki vil ég gleyma þætti Fram-
sóknar þegar ég bið menn að muna
hverjir hruninu ýttu af stað. Feðg-
arnir í Framsókn, þ.e.a.s. formaður-
inn og faðir hans, komu sínum pen-
ingum inná reikning í Lúxemborg.
En samt sem áður væla þeir feðgar
einsog stungnir grísir hvar sem til
þeirra heyrist.
Við hin verðum bara að fórna
öllu sem hægt er að fórna og trúa
því í blindni að núna sé fólk að
reyna að sýna heiðarleika við stjórn
landsins.
Í djúpri kreppu sátt og sæl
við saman skulum fórna
en látum hvorki vol né væl
vegferð okkar stjórna.
kristján hreinsson
skáld skrifar
„Hvernig má það
vera, að skynsamt
fólk geti ekki lært
að skammast sín?“
SkáLdið Skrifar
24 föstudagur 27. nóvember 2009 umræða