Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Síða 29
m æ li r m eð ... ... Jóni Leifs - Lífi í tónum Fyrri verk um Jón Leifs hverfa í skuggann af þessari vönduðu ævisögu. ... AugnAbLiki eftir mALcoLm gLAdweLL Ein af þeim sjaldgæfu bókum sem eru allt í senn lærdómsríkar, gagnlegar og skemmtilegar. ... LoftkAstALAnum sem hrundi eftir stieg LArsson Allir lausir endar úr fyrri bókunum tveimur hnýtt- ir í alveg sérlega spennandi og skemmtilegri glæpasögu. ... sJúddirArí rei - endur- minningAr gyLfA Ægis- sonAr Jólabók sjómanns- ins og allra hinna. ... orrustunni um spán eftir Anthony beevor Heilt yfir skrifar Beevor afskaplega vel um skelfilega atburði. ... komin tiL Að verA, nóttin eftir ingunni snÆdAL Listasmíð. Ort af öryggi, fimi, fegurð og húmor. fókus 27. nóvember 2009 föstudagur 29 Græni ormurinn glóir föstudagur n Afmæli stórsöngvara Sjálfur Kristján Jóhannsson fagnar 30 ára óperuafmæli sínu í Háskóla- bíói á föstudagskvöldið og býður landanum í partí. Hann mun syngja ásamt Diddú, Þóru Einarsdóttur, Gissuri Páli Gissurarsyni og Kammer- sveit Hjörleifs Valssonar. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 og miðinn kostar 7.900 krónur. Hægt er að kaupa miða á midi.is. n vinalög í salnum Hinir myndarlegu Friðrik Ómar og Jógvan Hansen syngja sín feykivin- sælu vinalög í Salnum í Kópavogi á föstudagskvöldið en diskurinn með lögunum hefur slegið rækilega í gegn. Þetta eru aukatónleikar þar sem seldist upp á hina. Þeir hefjast klukkan 20:00 og kostar 2.900 krónur inn. n maggi eiríks ómissandi Nemdur í Tónlistarskóla FÍH hefja á föstudagskvöldið tónleikarispu undir nafninu Ómissandi fólk. Eins og allir vita er Magnús Eiríksson ómissandi í íslensku tónlistarlífi og munu því ríflega 20 manns flytja úrval af lögum Magnúsar í Tónlistarskólanum klukkan 20:00 á föstudagskvöldið. Aðeins kostar 1000 krónur inn. n vitiði hver hann var? Sigurður Hlöðversson er eigandi auglýsingastofunnar Pipar. En Siggi Hlö er einn alvinsælasti plötusnúður landsins í dag með sitt magnaða „Veistu hver ég var?“-prógramm. Hann mun þeyta skífum á Spot á föstudaginn. laugardagur n Þú og ég á glóðinni Vegna fjölda áskorana og eftirspurna skemmta Helga Möller og Jóhann Helgason úr dúettinum Þú og ég á Glóðinni næsta laugardagskvöld. Þau halda þessa dagana upp á 30 ára starfsafmæli. Húsið er opnað klukkan 23:30 en sjálf stíga þau á svið klukkan 1:30. Þúsund kall inn. n kokteilpinnarnir á flugi Helgi Björns og Kokteilpinnarnir hafa svo sannarlega slegið í gegn með sínar drykkjuvísur og ballstemningu í Þjóðleikhúskjallaranum. Þeir eru hvergi nærri hættir og leika fyrir dansi í Kjallaranum á laugardags- kvöldið. Ekki kostar nema 1.500 krónur inn en ballið hefst klukkan 23:00. n magni og matti á hressó Á laugardagskvöldið munu Magni úr Á móti sól og Matti í Pöpunum trúbba á Hressó eins og þeim er ein- um lagið. Frítt er inn á þá félagana en svo mun DJ Fannar sjá um dansgólfið fram til morguns og því frábært kvöld á Hressó á laugardaginn. n tekknó-veisla á Jacobsen Klúbburinn Jacobsen býður upp á sanna veislu fyrir tekknó-hausa Íslands á laugardaginn. Alla nóttina verður bullandi tónlist í gangi og hefst nú upptalning á listamönnum. Efri hæð: Hannes Smith, Plugged, DJ Damien. Neðri hæð: Halliball, A. T. L., DJ Impulze og DJ Exos. Toppið það. Hvað er að GERAST? Í október gaf íslenski raftónlistar- kvartettinn Worm is Green út sína þriðju breiðskífu, Glow. Hljómsveit- in hefur fengið góða dóma fyrir plöt- ur sínar víðs vegar um Evrópu og nýja platan fær fínar viðtökur. Hljómsveit- in sjálf sér um að gefa plötuna út en hún kemur fyrst um sinn aðeins út á Netinu. Fyrsta plata W.I.G., Automagic, kom út 2002 og fékk góðar viðtök- ur og dóma hér á landi sem erlend- is. Sveitin var meðal annars tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna sem besti nýliðinn það árið. Árið 2005 kom síðan Push Play út þar sem sveitin prófaði nýja og örlítið popp- aðri hluti frá fyrra verki. Tvær frá- bærar plötur. Á Glow heldur forsprakki sveitar- innar, Árni Teitur Ásgeirsson, sig við þá formúlu sem reynst hefur sveitinni vel í gegnum tíðina. Lágstemmd raf- tónlist með poppskotnum áhrifum, grípandi og ómþýðum melódíum og þéttum töktum. Guðríður Ringsted er frábær söngkona með seiðandi rödd sem svínliggur í minimalískri raftónlist Worm is Green. Þó það sé með ráðum gert saknar maður þess á Glow að meiri kraftur sé settur í sönginn á vissum tímapunktum, lög- in brotin eilítið upp og platan í heild sinni poppuð meira upp. Ég er ekki frá því að sveitin gæti náð til stærri aðdáendahóps með því. Á Glow er þó hvergi misstig að finna. Hér hefur verið vandað vel til verks og Árni Teitur sem lagahöfund- ur er ótrúlega næmur fyrir grípandi laglínum og fallegum melódíum. Maður hefði þó viljað sjá plötuna fara á næsta level og brjóta upp hefð- ir sveitarinnar. Ef eitthvað er hægt að setja út á er það hugsanlega það að maður hefði viljað heyra sveitina taka eilítið meiri áhættu að þessu sinni og brjótast úr viðjum vanans. Lögin Hopeful, The Politician og March On! eru frábær lög sem grípa mann strax frá upphafi, enda eru þau fyrstu þrjú lög skífunnar sem telur tíu lög. Önnur lög sem vert er að hlýða á eru Around The Fire og Electric Eyes. Glow er frábær plata og verðugt framhald af fyrri plötum sveitarinn- ar. Þægileg, áhugaverð og grípandi plata frá einni fremstu raftónlistar- sveit landsins. Hægt er að hala allar plötur sveit- arinnar niður gegn greiðslu á heima- síðu sveitarinnar wormisgreen.com. Sigurður Mikael Jónsson worm is green Býður upp á stórgóða plötu sem er í senn þægileg og grípandi. Worm is Green plata: Glow útgefandi: ata:digital TónliST Mega hvíla sig á g-bletta leitinni „Núna þegar hann er að elskast með kærustu sinni ber á ristruflun- um vegna hálfgerðr- ar „paranoju“, eins og hann orðar það sjálfur, því hún er í nálægð við þennan tiltekna mann.“ aðrir hvað það varðar. Við erum bara manneskjur af holdi og blóði og öll viljum við eiga góð samskipti, þarna sem annars staðar, en þau ganga ekki alltaf snurðulaust fyrir sig eins og all- ir vita,“ segir Jóna og nefnir í þessu samhengi nærtækt dæmi. „Ég var bara í morgun [gærmorg- un] að tala við mann úti á landi sem lenti í því að konan hans var búin að halda framhjá honum í hálft ár áður en þau skildu. Hann eignaðist svo kærustu sem vinnur á sama stað og maðurinn sem var að halda framhjá með fyrrverandi konunni hans. Og núna þegar hann elskast með kær- ustu sinni ber á ristruflunum vegna hálfgerðrar „paranoju“, eins og hann orðar það sjálfur, því hún er í nálægð við þennan tiltekna mann. Ég talaði við hann í um hálftíma og sagði hon- um að vandamálið væri að hann er heilbrigður. Honum stendur ekki á sama og tilfinningar hafa áhrif á lík- amlegt ferli. En það þarf ekki að vera sjúklegt vandamál.“ sótti á konuna í svefni Spurð hvort hún hafi einhvern tím- ann fengið til sín kúnna sem var með vandamál sem hún stóð á gati gagn- vart játar Jóna því. „Það voru tvö skipti þar sem ég þurfti að kynna mér hlutina því ég hafði ekki lent í þeim áður. Annars vegar einstaklingur sem var með ákveðna svefntruflun sem lýsti sér í því að hann bæði gekk og leitaði á konu sína í svefni. Ég vísaði honum áfram í kerfinu og hann fékk hjálp hjá geðlækni. Hitt skiptið var maður sem hafði verið að fikta við stera í mörg ár og hafði með því truflað testósterón- framleiðslu líkama síns svo að kyn- löngun hans var eiginlega horfin. Ég vísaði honum til Svíþjóðar í með- ferð,“ segir Jóna og bætir við að síðast þegar hún frétti af honum hafi hann verið að fá hjálp sem mögulega átti að koma hormónaframleiðslunni í samt lag á ný. Jóna segir frá því í formála bók- arinnar að kynheilbrigði sé órjúfan- legur hluti heilbrigðis og lífsgæða, en íslensk heilbrigðisþjónusta eigi nokkuð í land með að taka undir það. „Það eru allir sem viðurkenna það á borði að þetta skipti fólk máli. En það er ekki jafn mikil viðurkenning á því að þetta skipti fólk máli með þeim hætti að fólk geti leitað sér upplýs- inga, stuðnings, fræðslu eða ráðgjaf- ar ef eitthvað bjátar á.“ Jóna tekur þó fram að einstaka starfsmenn innan heilbrigðisþjón- ustunnar séu opnir fyrir þessu og sýni það í verki eftir bestu getu. „Aðr- ir eru óöruggari, og það er ekkert skrýtið því það þarf þjálfun í að ræða þessa hluti og það þarf að afla sér þekkingar til að hafa svör á reiðum höndum þegar fólk knýr dyra með svona vandamál. Það sem ég vil fara að gera mikið meira er að hjálpa öðr- um í að verða sérfræðingar.“ bjöguð umræða um klám Í bókinni ræðir Jóna einnig um klám og umræðuna sem um það er í sam- félaginu. Jónu finnst sú umræða vera nokkuð yfirborðsleg. „Ég er alls ekki ein um það, en það eru af ein- hverjum sökum fáir sem hafa skor- að á hólm þá yfirborðslegu umræðu. Þetta fer eiginlega alltaf í skotgrafar- hernað, fer út í að ef þú ert fylgjandi klámi þá þýði það að þú sért fylgjandi alls kyns hroðalegum glæpum. Þessi umræða er svo skökk og bjöguð, og svo mórölsk, að það hálfa væri nóg.“ Spurð hvort það sé svo að skilja að hún sé á þeirri skoðun að ekki sé rétt að setja samasemmerki á milli kláms og mansals eða vændis segir Jóna erfitt að svara þeirri spurningu. „Það þarf nefnilega að svara henni svo ít- arlega. En í grunninn er ég á þeirri skoðun að klám sé eitt, mansal ann- að og vændi það þriðja. Fólk getur hagað sér illa hvar sem er og mansal er ekkert annað en þrælahald og hef- ur ekkert með kynlíf að gera.“ forðast „hótel sögu-uppákomuna“ Að sögn Jónu fer umræðan um klám hér á landi alltaf í eitthvert fár. Hún nefnir sem dæmi þegar hópur klám- framleiðenda hugði á ferð til Íslands fyrir tveimur árum til að halda ein- hvers konar árshátíð eða ráðstefnu. Hópurinn hafði bókað gistingu á Hótel Sögu en eftir mikla umræðu um væntanlega komu fólksins mein- aði hótelið þeim að gista þar. „Þarna fór háværi minnihlutinn mikinn og fékk marga í lið með sér. Mér finnst þetta svolítið hæpið, en þó maður vilji leyfa fólki sem framleiðir kynferðislega opinskátt efni að halda árshátíð þýðir það ekki að maður sé fylgjandi mansali og vændi. Þessi flækja er bara ekki sniðug,“ segir Jóna en tekur um leið fram að hún sé ekkert að ræða þetta í bók sinni. „Þessi bók á að vera frekar tímalaus þannig að ég tala vísvit- andi ekki um þennan atburð.“ Á hinn bóginn er Jóna með ábend- ingar í bókinni um hvernig hægt sé að dýpka þessa yfirborðslegu umræðu um klám. „Þar segi ég til að mynda að kynferðislega opinskátt efni, lýs- ingar á því sem fólk gerir í kynlífi, myndrænar eða aðrar, geta haft ýmsa jákvæða hluti í för með sér. Fólk get- ur til dæmis örvast af því, kynnst margbreytileika, þetta getur nýst við kennslu, nýst til að draga úr kvíða hjá fólki og margt fleira. En þessar já- kvæðu hliðar kynferðislega opinskás efnis eru aldrei nefndar á nafn.“ kristjanh@dv.is svefngredda? Jóna fékk eitt sinn til sín mann sem bæði gekk og leitaði á konu sína í svefni. mynd getty
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.