Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Page 34
34 Föstudagur 27. nóvember 2009 Jólablað Skelltu þér í prjónabúð, keyptu mikið af garni og farðu að prjóna til að gefa fjarskyldum. Kostar nánast ekki neitt. Ef þú kannt ekki að prjóna - lærðu það. Keyptu fullt af kertum og eigðu rómantíska kvöldstund með makanum. Settu upp seríur í gluggana, gott að fá smá ljós í skammdegið. Gerðu eitthvað fyrir þig og þína í kvöld. Sniðugt að fara í bíó eða út að borða, spila Fimbulfamb eða rifja upp Forrest Gump. Dagurinn tekinn snemma enda margt sem þarf að komast yfir. Skreyta, kaupa jólagjafir, baka, skúra, þurrka af, taka til, skipta á rúmunum, fara í mat til tengdó, kíkja í sund, leigja spólu, lesa bók, slaka á, drekka jólabjór og njóta lífsins. Kannski er samt best að dreifa þessu aðeins. Það er samt laugardagur þannig að það er um að gera að sleppa sér aðeins. Síðasti dagur rjúpnaveiða. Ef þú hefur ekki skotið í jólamatinn – drífðu þig. Nú verður að bjarga jólunum með því að redda í jólamatinn, hangikjöt, hamborgarhryggur, gæs, hreindýr… uss. Byrjaðu að púsla Wasgij- púsl og pantaðu áskrift að Stöð 2 Sport 2 til að kallinn geti horft á enska boltann. Fara og sjá A Christmas Carol í bíó. Um að gera að föndra eitthvað skemmtilegt með börnunum, jafnvel eitthvað til að setja í jólapakkann. Ætli jólasveinarnir séu ekki örugglega alveg tilbúnir með gjafir í skóinn handa börnunum? Eftir það stresskast er hægt að horfa á Christmas Vacation eða The Grinch á DVD. Kíktu í Kolaportið. Pottþétt stemming og ódýrar gjafir. Um kvöldið geturðu hitt vini og ættingja sem búa í útlöndum og drukkið jólabjór. Fyrsti jólasveinn- inn kemur í dag, skórinn settur út í glugga, um að gera að leyfa börnunum að skilja eftir smáköku og mjólk handa jóla (það verður svo að sjálfsögðu horfið daginn eftir!) Sendu konuna í verslunarferð í IKEA með mömmu sinni og systur. Vertu viss um að þær verði allan daginn. Á meðan býðurðu félögunum í stórleik Arsenal og Liverpool í enska boltanum. Pottþétt síðasta skiptið sem þið félagarnir getið lyft ykkur upp fyrir jólin. Góða skemmtun. Alveg tilvalið að baka smákökur, ef það er búið er um að gera að baka fleiri! Taka til ónotuð barnaleikföng, föt og önnur fínheit til að gefa Mæðrastyrksnefnd. Heimsæktu vini og ættingja, um það snúast jólin, ekki gleyma gamla fólkinu. Settu jólakortin í póst. Þú getur líka sparað með því að skella þér á fésbókina og senda kveðjur þaðan. Kaupa í einn matarpoka og gefa Mæðrastyrks- nefnd. Nú er um að gera að rölta niður Laugaveginn ef veður leyfir. Skemmir ekki ef það er jólasnjókoma úti. Skoða jólaskreytingarnar í gluggunum og fá sér einn jólabjór á góðu kaffihúsi. Nú þarf að klára að skreyta, kaupa síðustu jólagjafirnar, baka síðustu sortina, taka til, skipta á rúmunum, fara í mat, kíkja í sund, leigja spólu, lesa bók, slaka á, drekka jólabjór og njóta lífsins. Die Hard 1 og 2 kvöld. Bestu jólamyndir allra tíma. Bruce Willis ógeðslega þunnur og pirraður í sínu besta hlutverki. Passaðu stressið. Stutt í jólin – vertu glaður. Þá kemstu í gegnum þetta. Ekki fara í miðbæinn. Vertu frekar heima með fjölskyldunni og skreyttu tréð. Kíkið í nágrannakaffi og fáið ókeypis jólakökur. Sofðu út, horfðu á barnatímann með börnunum, leyfðu þeim að fá Coco Puffs, hitaðu gott kaffi, njóttu dagsins og brostu. Það eru nú einu sinni komin jól. Stress, eyðsla, hraði og viðbjóður einkenndu jólahald í góðærinu. Nú er öldin önnur hjá fólkinu i landinu. Gleði, sparnaður, rólegheit og yndislegheit eru orð hins sanna jólaanda. Gleðileg jól! Jóladagatal dv
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.