Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Side 46
46 Föstudagur 27. nóvember 2009 Jólablað
eftir að hafa borðað nánast yfir sig af dýrindis jólamat er fátt betra en að koma sér fyrir í sófanum ásamt fjölskyldunni og horfa á góða
jólamynd. dv tók saman tíu frábærar jólamyndir sem enginn má láta framhjá sér fara.
ómissandi
jólamyndir
Love ActuALLy (2003)
Hér er á ferðinni afar hjartnæm rómantísk
gamanmynd sem fékk einróma lof gagnrýnenda
þegar hún var frumsýnd. Myndin hefst fimm
vikum fyrir jól og segir frá ástarmálum átta mjög
svo ólíkra einstaklinga. Leikstjóri myndarinnar er
Richard Curtis sem getið hefur sér gott orð fyrir að
leikstýra myndunum um ævintýri Bridget Jones.
Pottþétt skemmtun um jólin.
einkunn á IMDB.com: 7,9
A chrIstMAs
story (1983)
Þó hún sé orðin
rúmlega aldarfjórð-
ungsgömul eru fáar
jólamyndir sem komast
með tærnar þar sem A
Christmas Story hefur
hælana. Sögusviðið er
fimmti áratugur síðustu
aldar og gerist í
smábænum Hohman í
Indiana í Bandaríkjun-
um. Ralphie er níu ára gamall og þráir ekkert
heitar en að fá loftbyssu í jólagjöf. Óskin mætir
mikilli andstöðu foreldra hans, kennara og jafnvel
jólasveinsins. En Ralphie gefst ekki upp og hver
veit nema einhver hafi eitthvað óvænt í pokahorn-
inu? Hugljúf mynd sem allir ættu að hafa gaman
af.
einkunn á IMDB.com: 8.0
scroogeD (1988)
Dyggir aðdáendur Bills
Murray ættu ekki að láta
þessa framhjá sér fara.
Murray leikur eigingjarn-
an yfirmann sjónvarps-
stöðvar, Frank Cross, sem
er ekki allt of hrifinn af
jólahátíðinni. Á
aðfangadagskvöld fær
hann óvænta heimsókn
frá þremur draugum og
segir myndin frá
ævintýrum þeirra. Getur Cross breytt viðhorfi sínu
til jólanna eða verður hann áfram sami eigingjarni
yfirmaðurinn með óbeit á jólunum? Bill Murray í
essinu sínu í óvæntri gamanmynd. Myndin er þó
bönnuð börnum innan tólf
ára.
einkunn á IMDB.com: 6,7
NAtIoNAL LAMp-
ooN‘s chrIstMAs
vAcAtIoN (1989)
Chevy Chase leikur
hinn mislukkaða
fjölskylduföður Clark
Griswold sem vill allt
gera til að jólin verði
sem best. Hann býður
tengdaforeldrunum,
foreldrum sínum og
frændum og frænkum
að eyða aðfangadags-
kvöldinu í faðmi
fjölskyldunnar. En óheppnin virðist elta Griswold-
fjölskylduna og þá sérstaklega fjölskylduföðurinn
Clark. Hér er á ferðinni óborganleg jólagrínmynd
sem kemur öllum í frábært skap.
einkunn á IMDB: 7,3
eLf (2003)
Elf segir frá hinum
mennska Buddy, sem
leikinn er af Will
Ferrell. Hann missti
móður sína ungur að
árum og er tekinn í
fóstur af álfum
jólasveinsins á
Norðurpólnum.
Buddy stóð alltaf í
þeirri trú að hann
væri álfur eða allt þar
til fósturfaðir hans segir honum sannleikann. Buddy
ákveður að fara í stórborgina til að hafa upp á hinum
raunverulega föður sínum. En lífið í stórborginni er
töluvert frábrugðið lífinu á Norðurpólnum og lendir
Buddy í ýmsum ævintýrum. Pottþétt fjölskyldu-
skemmtum um jólin.
einkunn á IMDB: 6,8
framhald á 48
Hvaða minningar á fólk frá bernskujólunum? Hvert er gildi þessarar
stór hátíð ar? Í bókinni Jólaminningar eru birtar frásagnir af
jólasiðum fyrir meira en einni öld, rætt við tólf þekkta Íslendinga um
jólin í þeirra lífi og rifjaðar upp fréttir af jólahaldi á tuttugustu öld.
Allir eiga dýrmætar jólaminningar – um samveru fjölskyldunnar,
kyrrðina, eplalyktina, kertaljósin, jólalögin og fleira.
Þetta er bók sem kemur öllum í jólaskap.
jólaminningar íslendinga
Karl Sigurbjörnsson Ólöf Kolbrún Harðardóttir Geir Jón Þóris son Magnús Scheving
Gissur Ó. Erlingsson Jenna Jens dóttir Salome Þorkelsdóttir Ingibjörg Þorbergs
Vigdís Finnbogadóttir Ragnar Bjarnason Ómar Ragnarsson Ragnheiður Ásta Pétursdóttir