Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Blaðsíða 63
63Föstudagur 27. nóvember 2009Jólablað
JÓLAKORT SKB
STYRKJUM GOTT MÁLEFNI
Glæsileg jólakort SKB eru til sölu á heimasíðunni www.skb.is.
Mynd eftir MæjuPottasleikir eftir Braga Einarsson
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna selur
falleg hálsmení fjáröflunarskyni. Hálsmenin eru
með áletruninni VON á þremur tungumálum,
íslensku, ensku og latínu. Fáanleg bæði úr silfri
og stáli (grófari fyrir herra).
Silfurmen kostar aðeins 4.000 krónur og
stálmen 3.500 krónur. Hálsmenin eru til sölu
á heimasíðu Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna, www.skb.is og í síma 588 7555.
Boðið er upp á heimsendingu.
Hjálpum félagsmönnum að halda í sína von.
V O N · H O P E · S P E S
OKKAR VON
Tilvalin jólagjöf
Í kaupfélaginu hlupu
misstuttir fætur frá
einni hillu til ann-
arrar og einstaka
tilkynningar voru
sendar með háum
köllum. engu líkara
var en leitað væri að
hinum heilaga gral.
Ógnvænleg bið
Tók þá við löng og strembin bið sem
þó styttist því ganga þurfti frá eftir
matinn, vaska upp og þurrka leirtau
og ganga frá afgöngum.
Loks rann upp sú stund að gjafirn-
ar yrðu kannaðar, en ekki skal hér fjöl-
yrt um hvert innihald allra jólapakk-
anna var, enda hvíldu örlög kvöldsins
á einni gjöf umfram aðrar. Pakkasafn-
ið undir jólatrénu minnkaði jafnt og
þétt, en ekkert örlaði á pakka, sem
vel á minnst hafði verið erfitt að út-
búa sökum óreglulegrar lögunar gjaf-
arinnar. Fjögur systkin gjóuðu aug-
unum í laumi hvert til annars í þeirri
blendnu von að pakkinn hefði fyrir
eitthvert ólán, eða lán, týnst með dul-
arfullum hætti.
JÓlagJöfin Óvænta
En nei. Með síðustu pökkunum sem
tíndir voru undan trénu var pakk-
inn sem við fjögur systkinin höfðum
beðið með eftirvæntingu, og reynd-
ar þiggjandinn líka, en eftirvænting
okkar og hans var ekki af sama toga.
Þrátt fyrir nokkra fullvissu um
að gjöfin slægi ekki í gegn lifði með
okkur von um hið gagnstæða allt þar
til við sáum svipinn á bróður okkar:
„Hestur,“ stundi hann vonsvikinn,
„og úr plasti!“ Frekari vitnisburð-
ar var ekki þörf, klúður okkar hinna
var fullkomnað. En til að undirstrika
vonbrigðin settist hann súr á svip
í stólinn undir símanum og dvaldi
þar drjúga stund svo ekki færi fram-
hjá nokkrum manni að honum væri
sterklega misboðið. Þess má geta að
það augnablik var fest á filmu.
Sælla að gefa en þiggJa?
Þessar minningar lifnuðu í huga mér
þar sem ég klóraði Bjarti á kviðnum,
og ég komst að þeirri niðurstöðu að
það sé þyngra en tárum taki að finna
til kvíða vegna þeirra gjafa sem mað-
ur gefur. Reyndar þykir mér líka afleitt
þegar þiggjendur láta í ljósi óánægju
með innihald gjafapakka, einkum og
sér í lagi fullorðið fólk. Börn lúta að
sjálfsögðu öðrum lögmálum, upp
að vissu marki. En einhver ástæða
er fyrir því að verslunarmiðstöðvar
bjóða upp á verslunarkort sem hægt
er að gefa til gjafa um jól. Ég minn-
ist þess ekki í fljótu bragði að ég hafi
sýnt óánægju vegna gjafa sem ég
hef fengið, en ef mér yrði gefið slíkt
kort yrði mér sennilega um megn að
halda andlitinu.
Umbúðir í JÓlagJöf
Í því gegndarlausa góðæri sem hér
ríkti til margra ára, kannski á hæpn-
um grunni, var hvergi að finna vé
gagnvart auglýsingum tryllts neyslu-
samfélags og óhjákvæmilega ein-
kenndist aðventan af þeim.
Nú er brýnna en oft áður að til-
einka sér hóf um hátíðirnar því þeim
hefur fjölgað í íslensku samfélagi
sem ekki eiga þess kost að halda jól-
in með gjöfum og kræsingum. Þó er
ekki gefið að jól þeirra sem minna
mega sín séu á nokkurn hátt ham-
ingjuminni en hinna.
Ég geri ekki ráð fyrir að Bjart-
ur gefi mér nokkuð í jólagjöf og ég
mun svara líku líkt, enda gerir hann
ekki miklar kröfur í þeim efnum. En
Bjarti verður guðvelkomið að fá um-
búðirnar utan af gjöfunum og er ég
þess fullviss að þær eiga eftir að veita
honum gleði fram undir nýár líkt og
oft vill verða raunin með veraldleg-
ar gjafir í mannheimum. Þess ber að
sjálfsögðu að geta að Bjartur mun
álykta sem svo að jólatréð sé sérstak-
lega sett upp fyrir hann og skraut-
ið eins og það leggur sig eingöngu
hugsað honum til ánægju og yndis-
auka.
Gleðileg jól.
kolbeinn@dv.is
Hafðu samband
í síma 515-5555
eða sendu tölvupóst
á askrift@dv.is
- inn í hlýjuna
Fáðu DV heim
í áskrift
Hafðu samband
í síma 515-5555
eða sendu tölvupóst
á askrift@dv.is
- inn í hlýjuna
Fáðu DV heim
í áskrift
Hafðu samband
í síma 515-5555
eða sendu tölvupóst
á askrift@dv.is
- inn í hlýjuna
Fáðu DV heim
í áskrift
Hafðu samband
í síma 515-5555
eða sendu tölvupóst
á askrift@dv.is
- inn í hlýjuna
Fáðu DV heim
í áskrift