Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Page 73

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Page 73
Í október hafði Sverrir samband við LÍN. Af- borganir af námslánum eru tekjutengdar og þar sem hann hafði haft góðar tekjur var greiðslan orðin há. Hann athugaði hvort hann gæti feng- ið frestun á láninu en fékk þau svör frá ríkisfyrir- tækinu að hann þyrfti að tala við einkafyrirtækið Intrum. „Allt í einu átti einkafyrirtæki sem sinn- ir innheimtu á skuldum sem eru komin í van- skil að semja um einhverja lengingu eða frest- un greiðslna af afborgunum. Þeir komu af fjöllum. Vissu ekki neitt. Þetta voru snjóbolta- áhrif og enginn virtist vita hvað var að gerast,“ segir Sverrir. Ráðlagt að hætta að boRga „Í nóvember fer ég aftur í bankann í leit að hjálp eftir að búið er að senda út yfirlýsingar um að verklagsreglur séu komnar í bankann um hvern- ig á að takast á við þetta. Þá var farið að tala um greiðsluaðlögun og annað í þeim dúr. En það var enn sama sagan: „Nei, það er ekkert hægt fyrir ykkur að gera. Þið eruð með íslenskt, verðtryggt lán og það er í skilum.“ Þá var fókus á erlendu lán- in en það vill alltaf gleymast að við, eins og aðrir, erum með bílalán og þau er í erlendri mynt. Af- borganirnar hækkuðu úr sextíu þúsundum í 180 þúsund. Á móti lækkuðu ráðstöfunartekjur okk- ar og voru fjörutíu prósent af því sem þær voru.“ Á þessum tíma var húsnæðislán hjónanna í skilum og þeim ráðlagt að hætta að borga til að komast í samningsstöðu við bankann. „Við eigum vini og kunningja sem starfa í bönkum og sögðu undir rós að við værum ekki í nógu miklum skítamálum því við værum ekki í vanskilum. Að við þyrftum að koma okkur í skítamál þannig að bankinn færi að gera eitt- hvað fyrir okkur.“ Þegar Björk og Sverrir fengu þessar ráðlegg- ingar ákváðu þau að hætta að borga í desember. Þá voru þau komin í vanskil með bílalán en öll önnur lán voru í skilum. „Við sátum á rökstólum í tvær vikur um hvort við ættum að hætta að borga. Það var erfið ákvörðun og við þurftum að sannfæra sjálf okkur að þetta væri kannski eina leiðin fyrir okkur til að fá bankann til að tala við okkur,“ segir Sverr- ir. Hann fór yfir stöðuna á húsnæðisláninu hjá Kauþingi í leiðinni. Upprunalega var það tæpar 27 milljónir. Í janúar 2008 stóð það í 32,2 millj- ónum. Í desember sama ár var það 36 milljónir tæpar. Íslenskt, verðtryggt lán, í skilum með föst- um vöxtum. Flokkuð sem hálFvitaR Hjónin hummuðu fram af sér vanskilatilkynn- ingar í fjóra mánuði, fram í mars. „Þá höldum við að það hljóti að vera kom- inn tími til að tala við bankann. Allt hljóti að hafa opnast. Það séu komnar verklagsreglur um hvernig eigi að taka á þessum málum. En þá var kominn allt annar tónn í bankann. Við vor- um nánast úthrópuð sem skúrkar því við vorum komin í vanskil og hætt að borga af húsnæðis- láninu. Nánast flokkuð í hóp hálfvita fyrir að vera hætt að borga af láninu og bankinn vildi ekkert við okkur tala. Þessi ráðlegging um að fara í vanskil var í rauninni bjarnargreiði. Við vorum að fá það í bakið að hlusta á það sem við töldum vera góð ráð.“ PeRsónunjósniR „Upp frá þessu samtali fóru starfsmenn bankans að kanna í hvað peningarnir fóru. Þeir fóru inn á reikningana okkar án þess að hafa heimild fyr- ir því og könnuðu hver neyslan væri. Í eitt skipti tók Sverrir að sér verkefni sem hann fékk borgað fyrir. Þá hringdi þjónustufulltrúinn og sagði: „Ég er mjög óhress með ykkur. Ég sé að þið eruð ekki að greiða okkar lán. Hvar eru þessir peningar?“,“ segir Björk. Sverrir segist þekkja fleiri sem hafa lent í því að starfsmenn bankans geri sjálfvirkar færslur til að borga eitthvað sem þeir hafa ekki heimild fyrir. Eftir þetta töluðu hjónin ekki við bankann fyrr en í maí. „Þá var það orðið þannig að það var farið kanna með laun Bjarkar og af hverju þau höfðu ekki komið inn á reikninginn. Þetta eru bara per- sónunjósnir. Að sjálfsögðu er það þannig að þeg- ar þú upplifir slíkt eftirlit þá fer að draga úr því að þú setjir þessar tekjur inn. Af hverju á ég að setja inn peninga sem eru notaðir í eitthvað sem ég leyfi ekki. Ég hef bara um eitt að velja: að setja ekki peninga þarna inn,“ segir Sverrir. áttu ekki FyRiR mjólk Í maí fylltust hjónin von þegar par sýndi húsi þeirra áhuga. Það hafði þá staðið á sölu í tæpt ár. Þau heyrðu ekki meira í þeim í dágóðan tíma og ákváðu að gera úrslitatilraun til að tala við bank- ann. „Við vildum áætlun til að gera upp okkar skuldir. Við báðum ekki um einhvern afslátt. Það var alveg sama við hvern við töluðum, starfsfólk- ið var orðið valdalaust í viðkomandi útibúi og þorði ekki að gera neitt. Málið okkar var sent í aðalútibúið þar sem einhver nefnd fór yfir málið og úrskurðaði að ekkert væri hægt að gera fyr- ir okkur því ég væri svo tekjulítill að bankinn sá ekki fram á að ég réði við neitt. Loksins sáu þeir það. Þó ég væri búinn að benda þeim á það síð- an í ágúst að ég væri búinn að missa atvinnuna tóku þeir fyrst eftir því þarna að ég var ekki með sömu tekjur,“ segir Sverrir. Á þessum tíma var orðið mjög þröngt í búi. „Í kjölfarið vorum við búin að átta okkur á því að við stefndum bara í eina átt. Við vorum að verða gjaldþrota. Tekjurnar voru óreglulegar hjá mér og Björk hafði lækkað í launum. Þetta voru mjög erfiðir tímar. Það hafa komið tímar þar sem við höfum ekki átt fyrir mjólk eða bíllinn hefur þurft að standa því við höfum ekki átt fyrir bens- íni. Við vorum vonsvikin eftir fundinn við bank- ann sérstaklega í ljósi þess að atburðarás var búin að eiga sér stað sem við áttum afskaplega lítinn hlut í, það er hrunið. Þjóðin sem slík var að líða fyrir einkafyrirtæki.“ Fylltust tRú Í júní sýndi parið húsi Sverris og Bjarkar aft- ur áhuga. 54 milljónir voru settar á húsið og í júlí fengu þau tilboð upp á 49 milljónir nánast á borðið. Til að liðka fyrir sölunni létu þau með sértæk eldhústæki eins og örbylgjuofn, ísskáp og uppþvottavél án þess að fá aukalega greitt fyrir. „Við fyllumst trú í kjölfar sölunnar að við get- um gengið frá þessum málum. Ég fer í bankann í júlí með kaupsamninginn. Ég tek það fram að kaupin myndu ekki eiga sér stað nema bank- inn myndi samþykkja þau. Það kemur fram í samningum af okkar hálfu. Við vorum að reyna að gera þetta til að vinna með bankanum til að borga upp okkar skuldir. Þá er lánið búið að hlaða gríðarlega upp á sig lögfræðikostnaði og dráttarvöxtum. Á sex mán- uðum voru dráttarvextir 3,8 milljónir og inn- heimtukostnaður ein milljón. Það af ástandi sem við sköpuðum ekki. Ég spyr hvort við megum ekki koma með greiðslutillögu og starfsmenn bankans taka vel í það. Tillagan hljóðaði upp á að við gerðum upp 87 prósent af skuldum okkar við bankastofn- anir og að við vildum fá niðurfellda dráttar- vexti og innheimtukostnað. Bankinn fengi þess- ar 49 milljónir og það sem stæði út af yrði sett í nýtt skuldabréf til tíu til fimmtán ára sem við myndum borga. Það stóð til að hreinsa allt sem hægt var að hreinsa. Starfsfólk útibúsins leist vel á þetta en sagði okkur að þetta væri í höndum skilanefndar gamla bankans. Hún myndi taka ákvörðun.“ hótun lá ljós FyRiR Björk og Sverrir höfðu aðeins átta vikur til að ganga frá húsnæðislánunum, flytja og afhenda húsið. Þau, ásamt fasteignasalanum, hringdu reglulega í bankann til að ýta á eftir málunum og fengu þær upplýsingar að kaupin myndu eiga sér stað. 25. júlí ákváðu þau því að leigja sér húsnæði í Grafarvogi og flytja út úr húsinu í Hafnarfirði. Þann 20. ágúst var ekki komin endanleg útfærsla á láninu og Sverrir og Björk áttu að afhenda hús- ið eftir tíu daga. Þann dag fengu þau símtal frá fasteignasala sem sagði þeim að þau þyrftu að fara niður í banka að skrifa undir pappíra til að- bankinn veitti skilyrt veðleyfi svo hægt væri að ganga frá sölu á húsinu. „Þegar við komum í bankann eru þrjú bréf á borðinu. Annars vegar skilyrt veðleyfi og hins vegar tvö ný lán sem voru eftirstöðvar skulda ásamt, að stórum hluta, allir dráttarvextir og innheimtukostnaður. Okkur var gert grein fyrir því ef við skrifuðum ekki undir þessi tvö nýju lán myndi bankinn ekki senda frá sér þetta skilyrta veðleyfi og salan myndi ekki ganga í gegn. Í raun og veru lá hótunin alveg ljós fyrir. Ég spyr hvort ekki sé hægt að ganga frá sölunni og semja um hitt seinna. Svarið var: „Nei, þetta er það besta sem skilanefndin er tilbúin að gera.“ Það sauð á Björk. „Við vorum í rosalega miklu sjokki yfir þessari framkomu. Þarna var okkur stillt upp við vegg og það má segja að við höfum verið beitt þvingun. Þarna voru nauðasamningar í gangi gegn fólki sem var ekki að reyna að koma neinu undan. Við vorum ekki að flytja eignir til Honululu eða hvað sem þessar eyjur heita. Við vorum ekki búin að stunda kennitöluflakk, ekki að stofna einkahlutafélög, ég var ekki búinn að færa eignina yfir á systur mína. Það var enginn feluleikur í gangi. Kannski var maður heimskur að leika ekki þessa leiki því allir þeir sem hafa gert það, þar á meðal starfsmenn bankanna, virðast komast upp með það,“ segir Sverrir. ók út í tómið Í þokkabót fengu hjónin þær upplýsingar að fyrsta greiðsla af þessum tveimur lánum væri eft- ir tíu daga. Þau reyndu að biðja um frest en var neitað. Nú er mánaðarleg greiðslubyrði þeirra tvö hundruð þúsund krónur, hærri en það sem þau greiddu af húsnæðisláninu. helgaRblað 27. nóvember 2009 FöstudaguR 73 „Við vitum ekkert hvað bíður okkar“ „Ég skal alveg játa það að á svöRtustu tímunum haFa komið augnablik þaR sem Ég heF íhugað sjálFsvíg.“ Núðlur í matiNN Sverrir og Björk ná engan veginn endum saman og eru núðlur og hrísgrjóna- grautur oft í matinn á heimilinu. mYND Bragi Þór JósefssoN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.