Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Síða 74
„Ég man ekki eftir ökuferðinni frá
útibúinu í vinnuna. Ég keyrði bara
eins og ég væri að keyra út í tóm-
ið,“ segir Sverrir. Hann vinnur nú
sem málari í verktakavinnu og veit
á föstudegi hvort hann eigi að mæta
í vinnu á mánudegi. Hún er sölu-
maður í heildsölu og hefur þurft að
bæta á sig vinnu og taka á sig lækkun
launa. Þau eru komin í vanskil með
nýju lánin og framtíðin er ekki björt.
„Við náum engan veginn að láta
enda ná saman þrátt fyrir að vera
bæði vinnandi. Við erum þó það
heppin að við erum bæði að vinna.
Við erum mjög þakklát fyrir það,“
segir Sverrir.
Íhugaði sjálfsvÍg
Sverrir segir þetta síðastliðna rúma
ár hafa haft gríðarlega slæm áhrif
á fjölskylduna. Hann hefur verið
langt niðri og ekki séð tilgang í líf-
inu á tímum.
„Það hafa komið tímar þar sem
ég er mjög langt niðri. Ég er and-
lega gjaldþrota. Ég skal alveg játa
það að á svörtustu tímunum hafa
komið augnablik þar sem ég hef
íhugað sjálfsvíg. Ég sé ekki fram úr
þessu, ég sé ekki tilgang. Til hvers
að vakna á morganana? Ég bara
klára þetta. Að þurfa að fara í gegn-
um þessar hugsanir út af dæmi sem
ég stofnaði ekki til er hrikalegt. Jú,
ég stofnaði fjölskyldu, það er mín
sök. Jú, ég kaus þetta fólk á þing,
það er mín sök. Jú, ég tók lán fyr-
ir húsnæði, það er mín sök. Ég er
sekur. En ég er ekki sekur á hruni
á Íslandi og að þurfa að gjalda fyr-
ir afhroð nokkurra einstaklinga í
bankakerfinu er hlutur sem ég er
ekki sáttur við.“
Björk hefur líka verið mjög langt
niðri og er haldin miklum kvíða.
„Þetta er búið að vera mjög erf-
itt. Mér finnst ég alltaf vera algjör
aumingi, lúser. Ég brýt mig nið-
ur daglega. Sjálfsásökunin er rosa-
leg. Þetta er ekki búið að stía okkur
í sundur en hefur haft þungar afleið-
ingar. Það kemur einn og einn dagur
sem er skemmtilegur en síðan kem-
ur eitthvað inn um lúguna eða ein-
hver hringir með hótanir og þá verð-
ur maður brjálaður og þarf að byggja
sig aftur upp. Ég er kvíðin alla daga
og sef rosalega illa. Ég hef séð Sverri
mjög, mjög, mjög langt niðri. Ég var
týpan sem gat frekar sokkið niður og
verið þung, enda hef ég látið hann
sjá um alla þessa gluggapósta og bar-
áttu því ég myndi brotna niður. Ég
væri örugglega komin inn á spítala ef
ég hefði séð um þetta. Ég á svo erf-
itt með að vera í vanskilum, ég kann
það ekki. Mér finnst vont að skulda
einhverjum.“
af hverju er pabbi reiður?
Ástandið hefur ekki síður haft áhrif
á börn þeirra, Margréti Mjöll sem er
sautján ára og Óliver Örn, ellefu ára.
„Sonur minn hefur spurt mömmu
sína: „Af hverju er pabbi alltaf svona
reiður?“ Þau þora ekki að tala við
mig af því að ég er svo reiður. Það
sést í mílu fjarlægð. Ég vakna reið-
ur, ég kem heim reiður,“ segir Sverr-
ir. Björk segir börnin samt sem áður
hafa tekið þessum breyttu aðstæð-
um ótrúlega vel.
„Við höfum ekkert öryggi, allra
síst fyrir börnin. Við vitum ekkert
hvað bíður okkar. Það er rosalega
vont. Þetta hefur ekkert með börnin
að gera. Þau eiga enga sök en þurfa
samt að taka þátt í þessu. Ég hef
reynt að útskýra fyrir þeim hvern-
ig aðstæður eru í þjóðfélaginu og
að við getum ekki gert sömu hluti
og við gerðum. Þessum yngra finnst
það erfitt því hann fær ekki að gera
það sem aðrir fá að gera í skólanum.
Honum finnst það sárt. En krakkarn-
ir eru duglegir að taka utan um mann
og peppa mann upp. Ég er ótrúlega
stolt af þeim að taka þessu með slíku
jafnaðargeði.“
gleyma stund og stað
Fjölskylda Bjarkar hefur reynst hjón-
unum gríðarlega vel á þessum erfiðu
tímum. Einnig stundar fjölskyldan
öll mótorcross saman sem hefur gert
andlegu heilsunni gott.
„Ég veit ekki hvar við værum ef
við hefðum ekki fjölskylduna hennar
Bjarkar. Einnig vinina sem við höfum
eignast síðustu ár í mótorcrossinu.
Þar eru nokkrar perlur. Ég veit ekki
hvar við værum ef þetta fólk væri ekki
til staðar. Ég veit ekki einu sinni hvort
ég væri ofan jarðar. Það á mikið hrós
skilið.
Við fórum út að hjóla saman og
erum mikið úti í náttúrunni. Það hef-
ur gefið okkur mikið. Mótorcross hef-
ur algjörlega haldið geðheilsunni.
Útrásin er slík að þú gleymir stað og
stund,“ segir Sverrir.
Knésett fjölsKylda
Sverrir og Björk sendu Jóhönnu Sig-
urðardóttur bréf fyrir áramót vegna
stöðu sinnar en hafa ekkert svar feng-
ið. Í byrjun mánaðarins skrifuðu þau
Árna Páli Árnasyni, félagsmálaráð-
herra og útskýrðu sögu sína. Krafa
þeirra til hans er að uppgjörið á hús-
næðisláninu miðist við 1. janúar árið
2008. Þau hafa ekkert svar fengið
enn.
„Ég er ekki útrásarvíkingur sem fer
fram á að fá milljarða að gjöf frá þjóð-
félaginu en held áfram að fara í golf.
Við erum ósköp venjuleg fjölskylda
sem er búið, tæknilega og kerfislega,
að knésetja vegna einkafyrirtækja
sem fóru á hausinn.
Við reyndum allt. Við seldum eign
sem við vorum búin að strita fyrir. Við
gengum inn í bankann með fimmtíu
milljónir í peningum og það er eins
og ekkert hafi gerst. Við löbbuðum út
með þvottavél og þurrkara eftir rúm-
lega tuttugu ára sambúð. Við höfum
unnið fyrir öllu. Allt sem við gerðum
er farið,“ segir Sverrir. Hann hefur
íhugað að flytja til útlanda en Björk er
ekki tilbúin til þess.
„Ég er ekki tilbúin að skilja eftir
mig sviðna jörð. Ég vil standa við okk-
ar þó að þeir hafi ekki staðið við sitt.“
Þess er vert að geta að daginn áður
en DV tók viðtal við Sverri og Björk
var nafnlaust viðtal við þau í Ísland í
bítíð á Bylgjunni. Það kvöld fengu þau
símhringingu frá skilanefnd gamla
Kaupþings um að þeirra mál hafi
aldrei lent inni á borði hjá nefndinni
og að þau ættu að færa nefndinni alla
nauðsynlega pappíra svo hægt væri
að skoða málið.
liljakatrin@dv.is
74 föstudagur 27. nóvember 2009 helgarblað
Lífrænar
mjólkurvörur
Lífræn jógúrt
6
ferskar
bragðtegundir
Múslí
Kókos
Mangó
Kaffi
Hrein
Jarðarberja
„við vorum nánast úthrópuð
sem sKúrKar þvÍ við vorum
Komin Í vansKil og hætt að
borga af húsnæðisláninu.“
Stór hluti ÍSlendinga
tæknilega gjaldþrota
n Liðlega þriðjungur þjóðarinnar mun eftir hálft annað ár búa við átt-
hagafjötra ef spár Seðlabanka Íslands, frá því í sumar, um þróun fast-
eignaverðs ganga eftir. Að tveimur árum liðnum munu um 40 prósent
húsnæðiseigenda skulda meira í húsum sínum en þau geta fengið fyrir
þau; búa við neikvæða eiginfjárstöðu. Hlutfallið jafngildir um 32 þús-
und heimilum, eða um 90 þúsund manns miðað við að á hverju heimili
búi að jafnaði þrír einstaklingar. Þessir Íslendingar munu eiga mjög erf-
itt með að flytjast búferlum, nema sitja uppi húsnæðislausir með millj-
óna króna skuldabagga.
Stórfelld lækkun íbúðaverðs
Um fimmtungur húseigenda hefur nú þegar neikvæða eiginfjárstöðu,
samkvæmt Seðlabankanum. Fimmtungur í viðbót hefur afar litla já-
kvæða eiginfjárstöðu, eða núll til fimm milljónir. Þessi hópur mun því
einnig lenda í neikvæðri eiginfjárstöðu árið 2011.
Til samanburðar má sjá að í lok ársins 2007 voru alls 7.500 heimili
með neikvæða eiginfjárstöðu, að meðaltali um 3,1 milljón króna, sam-
kvæmt útreikningum fjármálaráðuneytisins. Því er spáð að neikvæð eig-
infjárstaða verði nú í lok ársins að meðaltali 6,4 milljónir.
Íbúðaverð hrynur
Íbúðaverð hefur þegar lækkað að raunvirði um 25 prósent frá því það
náði hámarki haustið 2007. Þetta kemur fram í nýjustu Peningamálum
Seðlabankans. Bankinn spáir því að íbúðaverð muni halda áfram að
lækka, alls um 46 prósent að raunvirði frá árinu 2007 til ársins 2011.
Til einföldunar má setja dæmið upp svona: Íbúð sem var metin á 20
milljónir haustið 2007 kostar nú fjórðungi minna, eða um 15 milljónir.
Miðað við 46 prósenta raunverðslækkun mun íbúðin kosta 10,8 milljón-
ir á þarnæsta ári. Þessi útreikningur miðast við stöðugt verðlag. Margir
eigendur íbúða í þessum verðflokki eiga því eftir að tapa í kringum fimm
milljónum af íbúðum sínum í viðbót. Verðbólgan gerir það hins vegar að
verkum að hærri krónutala fæst fyrir íbúðina. Verðrýrnunin sést þó vel.