Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Síða 77
helgarblað 27. nóvember 2009 föstudagur 77
KOMIÐ ÚT
Endurnærir og hreinsar
ristilinn Allir dásama
OXYTARM - Í boði eru
60-150 töflu skammtar
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is
OXYTARM
OXYTARM
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is
30 days
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota
náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman
120 töflu skammtur
30days
KOMIÐ ÚT
KOMIÐ ÚT
hamingjusamur
í hegningarhúsinu
um. Ramos var ákærður fyrir bæði
morðin en hefur ávallt neitað sök.
Kærasta hans á þessum tíma,
Marisa Gabaglia, skrifaði bók um
lífið með Ramos, My Bandit Love,
sem seldist vel. Þar segir: „Sag-
an um Hosmany gæti hvergi gerst
nema hér í Brasilíu. Hér er spill-
ingin svo mikil og þetta mál nær
til æðstu manna Brasilíu. Ég elska
hann enn, hann er frábær maður
og hefur þjáðst nóg.“
Álitinn hetja innan veggja
fangelsisins
Ramos var settur á bak við lás og
slá þar sem hann sló í gegn með-
al fanganna. „Ég var álitinn hetja
innan veggja fangelsisins fyrir starf
mitt á föngum. Lögreglumennirnir
hikuðu ekki við að skjóta fanga og
ég hlúði að þeim.
Hér á Íslandi eru fangelsin góð
og það er mikill munur á fangels-
um á Íslandi og í Brasilíu. Prófaðu
bara að gúggla „prison in Brazil“
og sjáðu með þínum eigin augum.
Ísland er fyrirmyndarríki og það er
enginn grimmur yfirmaður eins og
í Brasilíu.“
Ramos trúir því að allir eigi að fá
annað tækifæri til að byggja upp líf
sitt. „Mitt mál er líkt Bobby Fischer-
málinu. Ég mun reyna að þrauka og
ég tel að viskan muni sigra og að yf-
irvöld hér á landi muni skoða mál
mitt út frá mannúðarsjónarmið-
um. Íslensku lögin eru skýr varð-
andi þetta. Fischer var eftirlýstur í
Bandaríkjunum og ég sat inni í 27
ár við skelfilegar aðstæður. Fyrir
hvað?“ spyr Ramos. „Brasilíumenn
vilja bara gera skrípaleik úr máli
mínu.“
Ljós í myrkrinu
Þó að margir myndu kvarta yfir að
vera á bak við lás og slá sér Ramos
ljós í myrkrinu og bjartsýnn tónn
kemur í rödd hans þegar hann ræð-
ir næstu skref. „Ég ætla að skrifa
mína bestu bók hér á landi. Alla-
vega gera heiðarlega tilraun til þess.
Helst vildi ég lifa rólyndislífi og vera
góður þegn Íslands. Ég kom hingað
til að reyna að finna frið og eyða efri
árum mínum hér.
Síðustu þrír mánuðir hafa ver-
ið magnaðir þrátt fyrir fangelsis-
vist. Ævintýri og mikil lífsreynsla
sem hefur tekið mikið á. Ef ég fæ
að vera hér áfram þá verð ég glað-
ur til dauðadags. En hvað sem ger-
ist mun ég ávallt hugsa um tímann
minn hér í Hegningarhúsinu sem
góða daga.“ benni@dv.is
Heimsfrægur
lýtalæknir
Hosmany Ramos
með tæki sín og tól.
Við ritstörf
Hosmany við
skriftir. Hann
kláraði eina bók,
Bank Robbers,
hér á Íslandi.
„Ég er í raun fangi
texta, ekki rimla.“
Gjálífi, gull og peningar
Hosmany þótti mikið sjarmatröll.
Naut velgengni, átti fræga vini og
skrifaði vinsælar bækur.