Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Page 80

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Page 80
80 föstudagur 27. nóvember 2009 minningar Guðmundur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1938, embættisprófi í lögfræði við HÍ 1947, öðlaðist hdl.-réttindi 1948 og hrl.-réttindi 1958. Guðmundur réðist til starfa á mál- flutningsskrifstofu föður síns 1947, var þar fulltrúi til 1948 er faðir hann andaðist og starfrækti þá stofuna ásamt Einari B. Guðmundssyni hrl. og Guðlaugi Þorlákssyni og eftir and- lát þeirra með Axel Einarssyni hrl. þar til hann lést 1986, ásamt Pétri Guð- mundarsyni hrl. frá 1986 og jafnframt Hákoni Árnasyni hrl. frá 1988 og Jak- obi R. Möller frá 1991. Guðmundur starfaði við málflutning allt til ársins 1996 og lauk lögmálsferli sínum með því að flytja fyrsta málið sem flutt var í nýju húsi Hæstaréttar við Arnarhól. Málflutningsstofan var stofnuð af Sveini Björnssyni, síðar forseta, 1907, og er því elsta starfandi lögfræðistofa landsins. Guðmundur sat í stjórn Lög- mannafélags Íslands 1966-69, í stjórn gerðardóms Verslunarráðs Íslands frá stofnun 1980-92, í stjórn Almennra trygginga hf 1965-86 og var stjórnar- formaður þar 1981-84. Guðmundur var mikill hestamað- ur alla tíð. Frá því 1960 og framundir 1985 fór hann á hverju sumri í tveggja til þriggja vikna hestaferðir um há- lendi Íslands. Fjölskylda Guðmundur kvæntist 16.4. 1949 Sig- ríði Ingibjörgu Níelsdóttur, f. 11.8. 1920, húsfreyju og fyrrv. verslunar- manni. Hún er dóttir Níelsar Guðna- sonar, f. 8.3. 1888, d. 27.6. 1975, húsa- smíðameistara í Borgarnesi, og k.h., Soffíu Hallgrímsdóttur, f. 21.3. 1887, d. 3.6. 1977, húsfreyju. Synir Guðmumdar og Sigríðar Ingibjargar eru Pétur Guðmundar- son, f. 5.5. 1950, hrl. í Reyikjavík en kona hans er Erla Jóhannsdóttir; Ní- els Guðmundsson, f. 17.2. 1952, bygg- ingaverkfræðingur í Reykjavík en kona hans er Jónanna Guðrún Björnsdótt- ir; Snorri Guðmundsson, f. 6.12. 1956, dýralæknir í Danmörku en kona hans er Bolette Steen Guðmundsson. Systkini Guðmundar: Magnús Pétursson, f. 4.8. 1914, d. 30.1. 1984, lögreglumaður og forstjóri á Litla- Hrauni; Sigríður Pétursdóttir, f. 6.12. 1919, nú látin, húsmóðir í Noregi; Ásgeir Pétursson, f. 21.3. 1922, fyrrv. sýslumaður og bæjarfóegti í Kópa- vogi; Andrés Pétursson, f. 1.7. 1924, nú látinn, útgerðarmaður í Garða- bæ; Stefán Pétursson, f. 9.4. 1926, nú látinn, hrl. og aðstoðarbankastjóri Landsbankans í Reykjavík; Þorbjörg Pétursdóttir, f. 8.4. 1928, fyrrv. hús- freyja á Guðnabakka í Stafholtstung- um, nú á Seltjarnarnesi; Pétur Péturs- son, f. 8.2. 1931, forstjóri í Reykjavík. Hálfbróðir Ásgeirs, samfeðra, er Gunnar Már, f. 16.10. 1919, fyrrv. deildarstjóri hjá Sjóvá-Almennum í Reykjavík. Foreldrar Ásgeirs voru Pétur Magnússon, f. 10.1. 1888, d. 26.6. 1948, hrl., bankastjóri, alþm. og ráð- herra, og k.h., Þórunn Ingibjörg Guð- mundsdóttir Viborg, f. 6.6. 1895, d. 14.1. 1966, húsmóðir. Ætt Pétur var sonur Magnúsar, prófasts og alþm. á Gilsbakka Andréssonar, hreppstjóra í Syðra--Langholti Magn- ússonar, alþm. þar Andréssonar, lang- afa Ásmundar Guðmundssonar bisk- ups. Móðir Magnúsar var Margrét Ólafsdóttir, b. á Efra-Seli Magnússon- ar og Marínar Guðmundsdóttur, b. á Kópsvatni Þorsteinssonar, ættföður Kópsvatnsættar. Móðir Andrésar var Katrín Eiríksdóttir, dbrm. og ættföð- ur Reykjaættar Vigfússonar, langafa Sigurgeirs Sigurðssonar biskups, föð- ur Péturs biskups. Móðir Katrínar var Ingunn Eiríksdóttir, b. í Bolholti Jóns- sonar, ættföður Bolholtsættar. Móð- ir Péturs var Sigríður, systir Sigurð- ar, afa Jónasar Gústavssonar, fyrrv. borgarfógeta. Sigríður var dóttir Pét- urs Fjeldsted Sívertsen, b. í Höfn í Melasveit Sigurðarsonar Síverts- en, kaupmanns í Reykjavík Bjarna- sonar Sívertsen, kaupmanns í Hafn- arfirði. Móðir Sigurðar var Guðrún Guðmundsdóttir, systir Helga Thor- dersen biskups. Móðir Sigríðar var Sigríður Þorsteinsdóttir, systir Ragn- heiðar, langömmu Þorsteins Thorar- ensen rithöfundar, föður Bjargar, lög- fræðiprófessors. Ingibjörg var dóttir Guðmundar Viborg, gullsmiðs á Ísafirði Jónatans- sonar, b. í Sveinshúsum við Djúp Jón- assonar. Móðir Ingibjargar var Helga, systir, samfeðra, Torfa í Ólafsdal, afa Snorra skálds og Torfa tollstjóra Hjartarsona. Helga var dóttir Bjarna, b. í Bessatungu Bjarnasonar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 30.11. og hefst athöfnin kl. 13.00. Guðfinnur fæddist í Reykjavík. Hann lauk námi við Lögregluskól- ann 1969, sótti upprifjunarnám- skeið á vegum lögreglunnar 1980 og lauk lögreglunámskeiði fyrir yf- irmenn 1986. Guðfinnur starfaði í lögreglunni í Vestmannaeyjum 1964, í lögregl- unni í Reykjavík 1964-66, í lögregl- unni í Ólafsvík 1966-70, í lögregl- unni á Keflavíkurflugvelli 1970-76, í lögreglunni á Akranesi 1976-78, kom þá aftur til starfa fyrir lögregl- una í Reykjavík og starfaði þar fyrst í almennri deild en varð síðan for- varnafulltrúi lögreglunnar í áfeng- isvörnum og starfaði við það til 1995 er hann var leystur frá störf- um vegna veikinda. Hann varð að- stoðarvarðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík 1984 og síðar varðstjóri. Guðfinnur var fyrsti forvarnafull- trúi í áfengismálum á vegum lög- reglunnar í Reykjavík. Hann vann mikið brautryðjendastarf í þessum málaflokki á vegum lögreglunnar og með ýmsum aðilum, s.s. SÁÁ, Sam- hjálp, Kvennaathvarfi og fleiri fag- aðilum. Hann var vel liðinn í þessu mikilvæga starfi sem sneri ekki síst að heimilislausum áfengissjúkling- um. Guðfinnur sinnti ýmsum trún- aðarstörfum fyrir Framsóknarflokk- inn, sat í miðstjórn flokksins og ýmsum ráðum hans og nefndum. Fjölskylda Fyrri kona Guðfinns var Guðbjörg Pálína Einarsdóttir, f. 4.8. 1942. Börn þeirra: Einar Óli, f. 16.7. 1961, d. 7.1. 1980; Sigurður Kristinn, Einar fæddist á Hömrum í Eyjafirði, sonur Árna Guðmundssonar, bónda þar, og k.h., Petreu Sigríðar Jónsdótt- ur húsfreyju. Einar lauk gagnfræðaprófi á Möðruvöllum 1893, vann á búi foreldra sinna 1893-1900 og var bóndi á Litla-Eyr- arlandi frá 1901 og til æviloka. Þá stundaði hann barnakennslu um skeið. Einar var fyrst kosinn á Alþingi 1916, var þingmaður Eyfirðinga til 1942, fyrst fyrir Bændaflokkinn eldri en síðan Framsóknarflokkinn. Hann varð fjármálaráðherra í hinu fræga ráðuneyti Tryggva Þórhallsson- ar á miklum umbrotatímum í sögu Framsóknarflokksins og þjóðarinnar frá 1929. Hann gegndi embætti fjár- málaráðherra til 1931 er Ásgeir Ás- geirsson tók við. Einar þótti glöggur fjármálamaður enda var hann for- maður Sambands íslenskra sam- vinnufélaga frá 1936 og til æviloka. Þá var hann oddviti Öngulsstaða- hrepps og átti lengi sæti í Lands- bankanefnd. minning fyrrv. lögregluvarðstjóri og forvarnafulltrúi merkir Íslendingar Fæddur 16.11. 1940, dáinn 18.11. 2009 Guðfinnur Sigurður Sigurðarson minning Einar Árnason alþingismaður, ráðherra og formaður sÍs Eftirmæli „Guðfinnur starfaði innan Fram- sóknarflokksins til margra ára. Hann var áhugasamur um borg- armál og var tillögugóður og lagði margt gott til. Einkum á sviði for- varnastarfa. Því miður varð Guðfinnur fyrir heilsubresti sem gerði það að verk- um að hann gat ekki sinnt áhuga- málum sínum eins og áður, engu að síður fylgdist hann vel með og var borgarfulltrúum Framsókn- arflokksins ávallt innan handar í störfum þeirra fyrir borgarbúa.“ Alfreð Þorsteinsson Jón Pálmason, alþm. frá Akri, fæddist á Ytri-Löngumýri í Blöndudal, sonur Pálma Jóns- sonar, bónda þar, og k.h., Ingi- bjargar Eggertsdóttur húsfreyju. Jón var af Skeggstaðaætt, fjöl- mennustu þingmannaætt lands- ins. Sonur Jóns er Pálmi Jónsson, fyrrv. alþm. og ráðherra sem varð áttræður fyrir skömmu. Jón lauk búfræðiprófi frá Hólum 1909, var bóndi á Ytri- Löngumýri, á Mörk í Laxárdal og loks á Akri frá 1923 og þar til hann lét af búskap 1963. Hann var alþm. 1933-1959 og landbún- aðarráðherra í nokkra mánuði í minnahlutastjórn Ólafs Thors 1949-1950. Jón var einn helsti þing- bændahöfðingi sjálfstæðis- manna og stuðingsmaður landbúnaðarhaftastefnu Sjálf- stæðisflokks og Framsókn- ar. Hann studdi þó Nýsköp- unarstjórnina, ólíkt þeim Jóni Sigurðssyni á Reynistað, Pétri Ottesen, Þorsteini Þorsteinssyni, Ingólfi á Hellu og Gísla Sveins- syni og uppskar embætti forseta Alþingis í stað Gísla. Jón Pálmason forseti sameinaðs alþingis f. 26.1. 1963, málari og hljómlistar- maður, búsettur í Reykjanesbæ en kona hans er Aldís H. Matthíasdótt- ir; Stefán Birgir, f. 28.11. 1965, veit- ingamaður, búsettur í Reykjavík en kona hans er Rositsa Guðfinnsson; Sveinn Hjörtur, f. 2.5. 1971, fram- kvæmdastjóri í Reykjavík; Helga Björg, f. 7.8. 1972, verslunarmað- ur í Sandgerði en maður hennar er Ingólfur Marteinn Jones. Seinni kona Guðfinns er Helen Sigurðsson. Systkini Guðfinns: Sesselja Sig- urðardóttir, húsmóðir í Reykjavík; Guðmundur E. Sigurðsson, nú lát- inn, lengst af öryggisvörður hjá Sameinuðu þjóðunum. Foreldrar Guðfinns voru Sig- urður Sigurðsson, f. 24.1. 1908, d. 26.3. 1971, sjómaður í Reykjavík, og Helga Kristín Guðmundsdóttir, f. 14.11. 1913, d. 18.12. 1947, hús- móðir. hæstaréttarlögmaður Fæddur 25.7. 1917, dáinn 20.11. 2009 Guðmundur Pétursson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.