Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Síða 14
14 | Fréttir 21.–23. janúar 2010 Helgarblað
Fjórir fyrrverandi starfsmenn
Landsbanka Íslands voru yfir-
heyrðir hjá sérstökum saksóknara
á fimmtudaginn. Yfirheyrslurnar
snérust um rannsókn á millifærsl-
um af reikningi Landsbankans í að-
draganda hrunsins haustið 2008 og
kaup á bréfum Landsbankans og
Straums úr peningamarkaðssjóð-
um Landsbankans eftir lokun sjóð-
anna. Um var að ræða millifærslur
upp á milljarða króna af reikning-
um bankans og inn á reikninga MP
Banka og Straums þann 6. október
2008, daginn sem neyðarlögin voru
sett og degi áður en Landsbank-
inn var yfirtekinn af íslenska ríkinu.
Húsleitir voru sömuleiðis gerðar á
fimm stöðum. Rannsakað er hvort
viðskiptin hafi verið brot á auðgun-
arbrotakafla hegningarlaga.
Mennirnir fjórir sem voru yfir-
heyrðir eru Þórir Örn Ingólfsson,
fyrrverandi yfirmaður áhættustýr-
ingar hjá Landsbankanum, Stef-
án Héðinn Stefánsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri eignastýringar
Landsbankans og stjórnarformaður
Landsvaka, Jón Þorsteinn Oddleifs-
son, fyrrverandi forstöðumaður fjár-
stýringar Landsbankans, og Kjartan
Þórólfsson, fyrrverandi starfsmað-
ur á verðbréfasviði bankans. Kjart-
an vildi ekki tjá sig um yfirheyrsluna
þegar DV hringdi í hann á fimmtu-
dag. Þessir fjórir einstaklingar bæt-
ast við þá 30 til 40 sem hafa verið yf-
irheyrðir upp á síðkastið í tengslum
við rannsókn sérstaks saksóknara á
Landsbankanum.
Skilanefnd og slitastjórn Lands-
bankans vísuðu málunum til sér-
staks saksóknara í lok árs 2010 sam-
kvæmt tilkynningu frá sérstökum
saksóknara.
Snýst um veðlánaviðskiptin
Rannsóknin tengist meðal annars
endurhverfum viðskiptum Seðla-
banka Íslands við fjármálafyrirtæki
landsins fyrir hrunið. Davíð Odds-
son, þáverandi seðlabankastjóri,
kallaði þessi viðskipti ástarbréfavið-
skipti og þótti lítið til þeirra koma,
eins og sést í skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis.
Þau viðskipti gengu út á það að
Seðlabankinn lánaði minni fjár-
málafyrirtækjum, eins og Sögu
Capital, Icebank og MP Banka, fjár-
muni sem þessir litlu bankar lánuðu
svo strax aftur til viðskiptabank-
anna þriggja, Glitnis, Kaupþings og
Landsbankans. Ástæðan fyrir því
að litlu bankarnir í landinu voru
milliliðir í viðskiptunum var sú að
viðskiptabankarnir þrír fengu ekki
lán hjá Seðlabankanum en minni
bankarnir fengu þau hins vegar.
Landsbankinn var stórtækastur
allra viðskiptabankanna þriggja í
þessum viðskiptum.
Svo virðist sem þennan dag,
6. október 2008, hafi Landsbank-
inn endurgreitt MP Banka hluta
af þeim fjárhæðum sem bankinn
hafði fengið að láni í þessum end-
urhverfu viðskiptum. Ekki er vitað
nákvæmlega hvað þykir athugavert
við þessi tilteknu viðskipti. Gerð var
húsleit hjá MP Banka í tengslum við
rannsóknina.
Hinn angi rannsóknarinnar
snýst um kaupin á bréfum Lands-
bankans og Straums úr peninga-
markaðssjóðum Landsbankans
eftir að sjóðunum hafði verið lok-
að. Eitt af því sem vekur athygli við
þennan anga rannsóknarinnar er
að sömu eigendur voru ráðandi í
fjármálafyrirtækjunum tveimur,
þeir Björgólfur Thor Björgólfsson og
faðir hans Björgólfur Guðmunds-
son. Lítið er vitað um þessa hlið
n Fjórir fyrrverandi starfsmenn Landsbankans yfirheyrðir n Húsleit á fimm
stöðum n Milljarðar fóru í að kaupa upp peningamarkaðsbréf Landsbankans
og Straums n Líklegt að yfirheyrslur saksóknara séu að bera árangur
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
MILLJARÐAKAUP
BANKANS TIL
RANNSÓKNAR
„Í tengslum við rannsóknir embættis sérstaks saksóknara á málum tengdum Landsbanka
Íslands fóru fram húsleitir á fimm stöðum í dag á höfuðborgarsvæðinu. Fjórir aðilar voru
fyrr um morguninn færðir til skýrslutöku. Nánar tiltekið eru til rannsóknar millifærslur til
MP banka og Straums fjárfestingabanka af reikningi Landsbankans í Seðlabanka Íslands
og kaup Landsbankans á verðbréfum af sjóðum Landsvaka eftir lokun sjóðanna. Umrædd
tilvik eru talin hafa átt sér stað 6. október 2008.
Til rannsóknar er grunur um meint brot á auðgunarbrotakafla hegningarlaga í tengslum
við ráðstafanir á fjármunum bankans, nánar tiltekið skilasvik. Um er að tefla verulega fjár-
hagslega hagsmuni og rannsóknin tengist fjölda manns. Málunum var vísað til embættis
sérstaks saksóknara með tilkynningu frá skilanefnd og slitastjórn Landsbanka Íslands í lok
síðasta árs. Málin hafa verið til meðferðar síðan.
Aðgerðirnar í dag hafa um nokkurt skeið verið í undirbúningi og tóku 35 starfsmenn
embættisins þátt í þeim auk lögreglumanna frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu.
Úrskurðir til leitar voru kveðnir upp við Héraðsdóm Reykjavíkur. Yfirheyrslur hófust í morgun
og er þess að vænta að þær standi fram á kvöld.“ *Fréttatilkynning sérstaks saksóknara
Skilasvik til rannsóknar
Á leið úr yfirheyrslu
Sigurjón Árnason sést
hér koma úr yfirheyrslu
hjá sérstökum
saksóknara í vikunni. Ný
rassía saksóknara þykir
benda til að yfirheyrslur
beri árangur og að fyllri
mynd sé að fást af
þeim málum sem eru til
skoðunar.