Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2014, Qupperneq 2
Vikublað 12.–14. ágúst 20142 Fréttir
1 matsk. safieða 1 hylki.
F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i .
Jafnvægi og vellíðan
lifestream™
nature’s richest superfoods
A
ndinn sem ríkir á þessum
böllum er alveg einstakur,“
segir Vilborg Traustadóttir,
einn af skipuleggjendum
Hippaballsins sem haldið verður
í sjöunda skiptið á Ketilási í Fljót-
um næstkomandi laugardag. Vil-
borg sem hefur síðustu ár séð um
skipulagningu Hippaballsins ásamt
systur sinni Margréti Traustadóttur
segir ballið vera orðinn fastan lið
hjá mörgum íbúum svæðisins. Hinn
eini sanni friðarandi frá hippatíman-
um svífi yfir vötnum og ekki veiti af í
heimi sem versnandi fer.
„Við byrjum með friðarsöng á
túninu og fikrum okkur svo inn í
hús,“ segir Vilborg og bætir því við
á léttari nótum að þar verði dans-
að, spjallað og daðrað. Hljómsveitin
Flower Power mun síðan leika fyrir
dansi en eins og síðustu ár er aldurs-
takmarkið 45 ár þó að þeir sem yngri
séu geti komið með fullorðnum. Þá
verður opinn markaður á Ketilási
fyrr um daginn þar sem fjölbreytt úr-
val af ýmsum vörum, mat og hippa-
dóti verður til sölu á vægu verði.
Vilborg er augljóslega ennþá mik-
ill hippi í hjarta sínu en hún segir
boðskap hippanna alltaf hafa verið
einfaldan og hann snúist um það að
fólk eigi að vera gott við hvert annað.
„Hipparnir gerðu nefnilega merki-
lega og friðsama byltingu. Þeir höfn-
uðu ríkjandi gildum og stungu með
táknrænum hætti blómum í byssu-
kjafta í Víetnamstríðinu. Við getum
rétt ímyndað okkur hvernig heimur-
inn liti út í dag án hippamenningar-
innar og þeirrar samstöðu sem hún
boðaði.“ n
„Andinn er alveg einstakur“
Gamlir hippar koma saman á Hippaballi á Ketilási
„Svo miklu stærri
fugl en branduglan“
n Óvenju margar tilkynningar um snæuglur á Norðausturlandi
F
rá því í vor hafa borist óvenju
margar tilkynningar um snæ-
uglur á ferð á landinu og eink-
um á Norðausturlandi. Yann
Kolbeinsson, líffræðingur
hjá Náttúrustofu Norðausturlands
og meðlimur í Flækingsfuglanefnd,
segir í samtali við DV að um sé að
ræða þrjú staðfest tilvik um snæ-
uglu og hugsanlega hafi verið um
fleiri að ræða. Yann setur fyrirvara
á fjöldann. „Maður veit ekki hvort
að í sumum tilfellum sé um sama
fugl að ræða, sem er bara að flakka
um láglendissveitir, eða hvað,“ segir
Yann. Hann segir að yfirleitt séu ein-
hverjar snæuglur á ferð á hálendinu
en óvenjulegt sé að þær sjáist svona
reglulega á láglendi á þessum tíma.
Algengara er að heyra af snæuglum
á haustin þegar fé er smalað uppi á
fjöllum og heiðum.
Sést hefur til fuglanna í Aðaldal
og Mývatnssveit í Suður-Þingeyjar-
sýslu og Kelduhverfi og á Melrakka-
sléttu í Norður-Þingeyjarsýslu en
sem fyrr segir útilokar Yann ekki að
í einhverjum tilvikum hafi verið um
sömu snæuglu að ræða, þar sem ekki
sé langt fyrir fugl að fara á milli stað-
anna. Þá segir hann erfitt að segja til
um hvort heimkynni snæuglnanna
sem um ræðir séu hér á landi eða
hvort þær komi annars staðar frá.
Staðfest varp á einum
stað á tíu árum
Næsti varpstaður snæuglna við Ís-
land er Grænland en þær er einnig
að finna á heiðum á Skandinavíu.
Yann segir snæuglur þó hvergi vera
algengar. Á síðastliðnum tíu árum
hefur verið staðfest varp á einum
stað á Íslandi og ekki hefur frést af
meira en einu pari í varpi í rúm 60 ár,
að sögn Yanns. Varpstaðir þeirra fara
eftir fæðuframboði en fæða þeirra
byggir aðallega á læmingjum. Læm-
ingjar eru smá nagdýr sem eru um 8
til 22 sentímetrar að lengd og vega
20–112 grömm. Á Íslandi veiða snæ-
uglur helst rjúpur og gæsarunga sér
til matar.
Ruglast á brand- og snæuglu
Yann segir algengt að óvant fólk
ruglist á snæ- og branduglu. Sum-
ar branduglur verða mjög ljós-
ar og ef fólk sér þær skyndilega,
sér í lagi í bílljósum þegar tekur að
skyggja síðla dags, er það gjarnt á að
draga ályktun um að þar hafi snæ-
ugla verið á ferð. Yann segir að sem
betur fer komi þessar tilkynningar
alltaf frá stöðum þar sem vitað er
branduglur séu en að fólk eigi það
til að móðgast þegar það er leiðrétt.
„En þegar þú sérð snæuglu þá fer
það ekkert á milli mála. Hún er svo
miklu stærri fugl en branduglan,“
segir Yann.
Áhugasömum er bent á síðuna
Birding Iceland á Facebook en þar
benda sérfróðir og áhugamenn
reglulega á fugla sem hafa sést á
landinu, birta myndir og ræða um
hagi þeirra. n
Erla Karlsdóttir
erlak@dv.is
Algengur
misskilningur
Yann segir mjög
algengt að fólk
ruglist á brand-
og snæuglu.
Með brúnum skellum Snæugla
er með gul augu og hvít á lit með
brúnum skellum en brúni liturinn er
meira áberandi hjá kvenfuglinum.
Kvenfuglinn er einnig stærri, 52 til 71
sentímetra langur, vænghaf hans er
125 til 150 sentímetrar og hann vegur
1,6 til 3 kílógrömm.
Kennsluskrá
íþróttabrautar
við HA tilbúin
Aðeins vantar samþykki
menntamálaráðherra, Ill-
uga Gunnarssonar, fyrir því að
íþróttafræði braut verði bætt við
kennarafræðadeild Háskólans
á Akureyri. Þetta segir íþrótta-
kennarinn Jóhannes Gunnar
Bjarnason á Facebook-síðu sinni,
en hann hefur barist lengi fyr-
ir því að slíkt nám verði í boði
hjá HA. „Kennsluskrá er tilbúin,
bæjar yfirvöld eru afar jákvæð
hvað varðar afnot af íþróttamann-
virkjum og standa viðræður yfir,“
segir Jóhannes og hann segir jafn-
framt að rektor skólans sýni þessu
stuðning. „Meðal starfsaldur
íþróttakennara er 5–6 ár þannig
að ekki veitir af nýliðun,“ segir Jó-
hannes í færslunni en hann sér
fyrir sér að vetraríþróttir muni
sérstaklega njóta góðs af þessu.
Hækka miða-
verð á landsleiki
Gott gengi íslenska karla-
landsliðsins í knattspyrnu er
ástæða þess að miðaverð á leiki
liðsins hefur hækkað. Næsta
undankeppni hefst í september,
þegar leikið verður um sæti á
Evrópumótinu sem haldið verð-
ur í Frakklandi árið 2016. Áður
kostaði miði í dýrasta svæðið
4.000 krónur en kostar nú 5.500
krónur. Þá hafa miðar í önnur
svæði hækkað um 500 krónur. Þá
verður einnig í fyrsta sinn hægt
að kaupa miða á alla heimaleiki
í undankeppninni en þeir sem
hafa þann háttinn á geta sparað
sér 2.500 krónur, sama á hvaða
svæði miðinn gildir.
Gleði hjá gömlum hippum Oft er glatt
á hjalla á Hippaballinu á Ketilási eins og sjá
má á þessari mynd.