Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2014, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2014, Blaðsíða 8
Vikublað 12.–14. ágúst 20148 Fréttir Róttækur sumarháskóli Róttæki sumarháskólinn 2014 hefur göngu sína miðviku- daginn 13. ágúst. Þemað í sumar er verkalýðsbaráttan í dag sem verður rauður þráður í gegnum marga dagskrárliði. Um dagskrá skólans segir meðal annars: „Það er hluti af nýsamþykktri stefnu sumarháskólans að tengja bar- áttumál ólíkra samfélagshópa, andkapítalisma, afnám heims- valdastefnu, jöfnuð kynja, nátt- úruvernd, sjálfbærni og lýðræði á innbyrðist styrkjandi hátt. Því verður verkalýðsbaráttan skoðuð frá sjónarhóli ólíkra hópa til að dýpka skilning okkar á ólíkum víddum launavinnu og verkalýðs- baráttu.“ Á boðstólum verða 11 ólíkar námsstofur í umsjón fjöl- breytts hóps fólks, þar af fjórar á ensku og tvær með bíósýningum. Dagskráin fer fram dagana 3.–19. ágúst í húsnæði Reykjavíkur- Akademíunnar, Hringbraut 121, í Vesturbæ Reykjavíkur. Margir óku of hratt Lögreglan myndaði brot 69 ök- umanna á Breiðholtsbraut og á Reykjanesbraut fyrir síðustu helgi. Á einni klukkustund eftir hádegi fóru 1.228 ökutæki um Reykjanesbraut og þar ók 31, eða 3%, of hratt en meðalhraðinn var 93 km/klst. Sá sem fór hrað- ast yfir mældist á 107 kílómetra hraða á klukkustund. Talsvert fleiri óku of hratt á Breiðholts- braut, alls 38 af 458 sem fóru þessa leið á einni klukkustund eftir hádegi. Það eru 8% öku- manna. Meðalhraði þeirra var 82 km/klst en þar er hámarkshraði 70 km/klst. Stal lyfseðlum Barn var flutt á slysadeild Landspítalans eftir að hafa hlot- ið brunasár á fæti eftir að hafa stigið ofan í setlaug við sumar- bústað í Bláskógabyggð í vikunni sem leið. Blöndunartæki voru í ólagi þannig að of heitt vatn rann í setlaugina að sögn lögreglu. Lögreglan í Árnessýslu hafði í mörgu að snúast í liðinni viku en sjö þjófnaðir voru kærðir til lög- reglu. Aðfaranótt mánudags var brotist inn í ullarvinnslubúðina í Þingborg í Flóa og þaðan stolið skiptimynt. Nissan Patrol-jeppa var stolið frá Selfossi, en lögreglu- menn á Dalvík fundu bifreiðina þar og gripu þjófinn sem viður- kenndi verknaðinn. Aðfaranótt laugardags var brotist inn í Lyf og heilsu í Þorlákshöfn. Þjófurinn hafði á brott lyfseðla og eitthvað lítilræði af peningum. Tilkynnt var um innbrot í tvo sumarbú- staði, annan í Öndverðanesi og hinn við Þingvallavatn skammt frá Heiðabæ. N ý íslensk vefsíða sem lofar aðgangi að útsendingum frá efstu deildum í enska, spænska, þýska og ítalska boltanum í gegnum netið fyrir 1.750 krónur er farin að safna áskrifendum. Forráðamaður síð- unnar er tvítugur, dæmdur fjársvik- ari sem hlaut níu mánaða dóm, þar af sex skilorðsbundna, í janúar síð- astliðnum fyrir meðal annars það að svíkja ítrekað út fé af notendum sölusíðunnar bland.is. Fjölmiðlafyrirtækið 365 er rétt- hafi að útsendingum frá enska og spænska boltanum hér á landi og þar á bæ segja menn að vefsíðan sé ólögleg og að verið sé að hafa fé af fólki sem kaupir sér áskrift að útsendingum síðunnar því henni verði lokað. Dæmdur fjársvikari Vefurinn sem um ræðir heitir knattspyrna.is en sá sem er skráð- ur fyrir síðunni samkvæmt lénaskrá Íslands heitir Jóhannes Gísli Egg- ertsson. Héraðsdómur Suðurlands dæmdi hann í níu mánaða fangelsi, þar af sex skilorðsbundna, þann 23. janúar síðastliðinn fyrir marg- vísleg brot. Þar á meðal fyrir að hafa blekkt fjóra notendur bland.is til að leggja tugþúsundir króna inn á bankareikning hans fyrir Samsung Galaxy S3-farsíma. Hann hirti pen- ingana og viðskiptavinirnir fengu aldrei símann. Engar upplýsingar er að finna um aðstandanda síð- unnar, aðrar en þær að kennitala hans er gefin upp sem viðtak- anda þegar kemur að því að greiða áskriftina. Raunar er almennt grun- samlega litlar upplýsingar að finna á síðunni. Þar er aðeins lofað gulli og grænum skógum og fólk hvatt til að leggja peninga inn á reikn- ing ókunnugs manns í blindni á netinu. Engar sannanir eru færð- ar fyrir því að fólk fái það sem það greiðir fyrir. Ódýr aðgangur Á knattspyrna.is, sem var opnuð nú í byrjun júlí, er boðið upp á net- varp og samkvæmt upplýsingum sem gefnar eru þar upp getur fólk gerst áskrifendur og fengið aðgang að beinum netútsendingum frá of- angreindum deildum fyrir 1.750 krónur. Er það kynningarverð fyr- ir áskrift sem dugar út árið 2014. Fullt árgjald er sagt 3.290 krónur. Er tilvonandi viðskiptavinum lof- að bestu mögulegu gæðum sem í boði eru í netútsendingum. Jafnvel háskerpu ef svo ber undir. Til samanburðar þá er 365 að selja svokallaðan Sportpakka, sem veitir aðgang að Stöð 2 Sport, Sport 2 og fleiri sportrásum auk heimasíma og internets, fyrir 11.990 krónur á mánuði. Það er því ljóst að verðið sem knattspyrna.is býður, freistar margra. Hátt í þrjú þúsund fylgjendur Jóhannes Gísli hefur verið dugleg- ur að safna fylgjendum fyrir Face- book-síðu knattspyrna.is. Til að koma sér á kortið var vefsíðan upp- haflega auglýst á Facebook með leik þar sem lofað var Playstation 4-tölvu og Fifa 15-tölvuleik í vinn- ing. Þurftu þátttakendur að deila mynd af vinningunum, líka við Facebook-síðu knattspyrna.is og skrifa athugasemd við myndina. Tæplega þrjú þúsund manns deildu henni og á síðan nú rúmlega 2.800 fylgjendur á Facebook. Síðastliðinn þriðjudag birtist síðan auglýsing fyrir annan Face- book-leik þar sem skráðum not- endum að netvarpinu gefst kostur á að vinna Samsung Galaxy S5-snjall- síma. Aukavinningar eru sagðir 50 þúsund krónur í reiðufé, áskrift að netvarpinu í heilt ár auk ýmissa aukahluta fyrir síma, fótboltatreyja og fótboltar. Fullyrðir að netvarpið sé löglegt DV hefur ekki upplýsingar um hvort knattspyrna.is sé komin með marga áskrifendur en ef marka má athugasemdir á Facebook-síðunni þá hafa einhverjir þegar greitt fyrir áskrift. Einn tilvonandi viðskipta- vinur ákveður þó að spyrja hvort þetta sé löglegt: „Er þetta löglegt? Þ.e. Einka- réttur 365? Er hætta á að mað- ur borgi árgjaldið og svo er þetta stoppað?“ Þessari fyrirspurn er svarað af Jóhannesi Gísla í gegnum Face- book-aðgang knattspyrna.is þar sem hann segir tilvonandi áskri- fendur ekki þurfa að hafa neinar áhyggjur: „Þetta var ekki löglegt en er það nú. Íslenski stream-netþjónn- inn okkar er tengdur við erlend- an í gegnum VPN og þaðan sækj- um við efnið. Íslenskt niðurhal en efnið er hýst úti. Þannig tæknilega séð er þetta ekkert tengt Íslandi en samt tengt Íslandi. 365 hefur enga ástæðu til að sækja á okkur vegna þessa.“ Þessum samskiptum hefur síð- an verið eytt af Facebook-síðunni en DV náði afriti af þeim áður en það gerðist. Af ummælum einstaklinga sem gerst hafa áskrifendur þá eru þeir farnir að ókyrrast yfir því hvort þeir fái það sem þeir hafa þegar greitt fyrir og kvarta undan því að erfið- lega gangi að fá svör frá forráða- manni síðunnar. Þá hefur einhver tekið að sér að vara notendur við því að eiga viðskipti við Jóhannes og birtir hlekk á dóminn sem hann fékk í janúar síðastliðnum. 365: Fé haft af fólki – verður stöðvað DV barst ábending um síðuna en þar áður höfðu menn verið varaðir við að eiga viðskipti við síðuna á spjallborð- um um fótbolta á netinu, sökum for- tíðar forráðamanns hennar. DV spurðist fyrir um málið hjá forsvarsmönnum 365 og hvort þeir vissu af síðunni og hvort gripið yrði til aðgerða. Í svari sem barst frá Jóni Sigurðssyni, forstöðumanni áskrift- ardeildar 365, er fólk varað við að kaupa sér aðgang því forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar muni grípa til aðgerða: „Það er ljóst að 365 eru rétthafar á Íslandi, bæði að enska boltanum sem og spænska boltanum. Það er ólöglegt skv. höfundalögum að miðla efni án þess að eiga rétt til. Mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því. Við vitum til þess að Premier League sé meðvitað um þessa þjón- ustu. Ljóst er að þeir munu grípa til aðgerða, en fyrir því eru mörg for- dæmi. Þarna er augljóslega verið að taka fé af fólki á röngum forsendum. Allar líkur á að fólk fái ekki það sem það borgar fyrir, þegar þjónustan verður stöðvuð.“ Ekki náðist í Jóhannes Gísla við vinnslu þessarar fréttar. DV óskaði einnig eftir viðtali í gegnum tölvpóst- fang sem gefið er upp á knattspyrna. is en var ekki svarað. n Of gott til að vera satt? Hér má sjá hverju er lofað á vefsíðunni knattspyrna.is og hvað áskriftin kostar. MynD SkjáSkOt Leikjalisti Svona er netvarpið sagt líta út þar sem einfalt er að velja sér leiki. Þeir sem gerast áskrifendur hafa hins vegar enga tryggingu fyrir því að þetta virki. MynD SkjáSkOt Dæmdur svikari lofar fótbolta útsendingum Rétthafinn, 365 miðlar, segir verið að hafa fé af fólki og að vefsíðunni verði lokað Sigurður Mikael jónsson mikael@dv.is Dýrmæt vara Útsendingar frá ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eru verðmæt vara og 365 greiðir fúlgur fjár fyrir réttinn til að sjónvarpa frá leikjum þar hér á landi. MynD ReuteRS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.