Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2014, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2014, Qupperneq 3
Vikublað 12.–14. ágúst 2014 Fréttir 3 Stöðupróf á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins verða haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð sem hér segir: STÖÐUPRÓF Í ÁGÚST 2014 Rafræn skráning í stöðupróf fer fram á heimasíðu skólans www.mh.is. Frekari upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 595-5200. Sýna þarf persónuskilríki með mynd í prófinu. Prófgjald, kr. 8000 fyrir hvert próf, ber að greiða inn á reikning Menntaskólans við Hamrahlíð í banka 323 hb 26 nr 106, kt. 460269- 3509. Greiðslufrestur er til hádegis á prófdegi, nauðsynlegt er að fram komi nafn og kennitala próftaka. Réttur til próftöku byggist á að prófgjald hafi verið greitt. PLACEMENT TESTS Placement tests (for Secondary School credit) will be held at Menntaskólinn við Hamrahlíð in the subjects listed above. On-line registration takes place on the school website www.mh.is. For more information call the school office tel. 595-5200 after August 10th. Everyone sitting the test must show an ID with a picture. The fee, kr. 8000 per test, should be paid to the account of the Menntaskólinn við Hamrahlíð bank 323 – 26 – account no. 106, id. 460269-3509 before noon on the day of the test. Please provide the name and identification number of the examinee when paying. Only those that have paid can sit the exam. Danska/Danish (6 einingar/10 fein*), mán. 18. ágúst kl. 16:00. Enska/English (9 einingar/15 fein*), mán. 18. ágúst kl. 16:00. Franska/French (12 einingar/20 fein*) fim. 14. ágúst kl. 16:00. Ítalska/Italian (12 einingar/20 fein*), fim. 14. ágúst kl. 16:00. Norska/Norwegian (6 einingar/10 fein*), mán. 18. ágúst kl. 16:00. Spænska/Spanish (12 einingar/20 fein*), fös. 15. ágúst kl. 16:00. Stærðfræði/ Mathematics (stæ103/5 fein, stæ203/5 fein , stæ263/5 fein) fim. 14. ágúst kl. 18:00. Sænska/Swedish (6 einingar/10 fein*), mán. 18. ágúst kl. 16:00. Þýska/German (12 einingar/20 fein*), fim. 14. ágúst kl. 16:00. *hámarks einingafjöldi sem hægt er að ná, frá og með fyrsta áfanga á framhaldsskólastigi. Rektor. póstfang 105 REYKJAVÍK sími: 595 5 00 · Fax: 595 5250 MENNTASKÓLINN VIÐ HAMRAHLÍÐ M EN N TA SK ÓL INN VIÐ H AM R A H LÍÐ STOFNAÐUR 19 66 Menntaskólinn við Hamrahlíð www.mh.is Lítið um holugeitung n Skordýrafræðingur segir ekki hægt að þakka veðrinu n Trjágeitungur lifir enn góðu lífi E rling Ólafsson, skordýra­ fræðingur hjá Náttúru­ fræðistofnun Íslands, seg­ ir holugeitung hafa haft hægt um sig í sumar, en á því segir hann enga skýringu vera. Hann segir það þó ekki eiga við um báðar tegund­ ir geitunga sem eru á Íslandi, enda sé ekki hægt að tala um geitunga sem eina tegund, ekki frekar en fiska eða hvali, til að mynda. Holugeitungar er sú tegund sem að sögn Erlings hefur verið að „abbast upp á fólk“. Atferli trjágeitungs er öðruvísi. „Svo hins vegar er trjágeitung­ ur, hann er úti um allt land og hann heldur sínu, hann er ekki í neinum vandræðum,“ segir Erling. Á tímabili voru til tvær aðrar tegundir geitunga á Íslandi, húsageitungur og roðageit­ ungur, en að sögn Erlings virðast þær vera alveg farnar. Hann kveðst ekki vita hvort holugeitungarnir séu næst­ ir til þess að fara. „Það er spurning, þeir muna fífil sinn fegurri,“ segir Er­ ling. Spurður hvort það megi þá ekki þakka votu veðri fyrir geitungaleys­ ið segir hann svo ekki vera. „Þetta er eitthvað flóknara en það,“ segir hann. 879 geitungar í einu búi Trjágeitungar eru árásargjarnir þegar þeir eru ónáðaðir við búin sín og geta þá stungið illa en eru annars yfirleitt til friðs. Þeir sækja sjaldan inn í hús. Þeir eru dekkri en aðrir geitungar og þekkjast meðal annars á rauðleitum bletti framarlega á hliðum afturbols og gulum bletti á fyrsta lið fálmara. Í stærsta búi trjá­ geitunga sem rannsakað hefur verið hér á landi voru 879 geitungar, sam­ kvæmt vef Náttúrufræðistofnunar Íslands. Halda sig einkum í byggð Holugeitungar eru kvikir og auðvelt er að fá þá upp á móti sér. Við búin þarf stundum lítið til að þeir snúist til varnar. Holugeitungar eru tvílitir, svartir og gulir. Þeir þekkjast með­ al annars á því að hvergi má finna rauðan lit á afturbol, og á örvarlaga svörtum bletti á gulu andliti og jafn­ breiðum, gulum hliðstæðum rönd­ um á frambol. Holugeitungar halda sig einkum í byggð, í húsagörðum og húsum. Ekki hægt að þekkja þá í sundur Erling segir geitunga sem höfuð­ borgarbúar sjá um þessar mund­ ir vera trjágeitunga en að þeir séu ekki eins áberandi á því svæði og á landsbyggðinni, því þar sé svo mikill gróður. Þá beri minna á þeim. Minni gróður sé í bæjum á landsbyggðinni, sem skýri hvers vegna þar kunni að bera meira á trjágeitungunum. Spurður hvort hægt sé að greina á milli tegundanna segir hann ekki á hvers manns færi að þekkja þá í sundur fljúgandi, jafnvel ekki skríð­ andi. Skoða þurfi einkenni þeirra en munurinn sé greinanlegur á góðum myndum. n Erla Karlsdóttir erlak@dv.is Trjágeitungabú Bú trjágeitunga eru oftast berskjölduð, hangandi í trjám og runnum, undir þakskeggjum húsa, á hús- veggjum, skjólveggjum og klettum, einnig í börðum og þúfnakollum úti í náttúrunni, þar sem oftast sést í þau. Mynd Erling Ólafsson Mynd Erling Ólafsson Mynd Erling Ólafsson Mynd Erling Ólafsson Trjágeitungur 13 millímetra löng drottn- ing af tegund trjágeitunga. Holugeitungur Drottning af tegund holugeitunga, 18 millímetrar að lengd. Holugeitungabú Bú holugeitunga eru oftast vel falin, í holum í jörðu, til að mynda undir hellum eða á milli hleðslusteina, einnig innanhúss á háaloftum, í kjöllurum, holum veggjum og garðskúrum. „Hún man fífil sinn fegurri „Einstrengingsleg og ósanngjörn afstaða“ Oddný gagnrýnir ummæli Péturs Blöndal P étur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrsti varaformaður efnahags­ og viðskiptanefndar, vill að for­ stöðumenn stofnana á borð við Landspítalann, Sjúkratryggingar Íslands og Vegagerðina verði kall­ aðir á teppið vegna framúrkeyrslu útgjalda. „Mér finnst þurfa að sýna meiri aga og það þarf að kalla forstöðu­ menn þessara ríkisstofnana á fund. Spyrja þá svo í leiðinni hvort þeir séu nokkuð að hætta,“ sagði Pétur í samtali við Bylgjuna á mánudag og spurði hvort forstöðumennirn­ ir gætu „ekki fundið sér annað starf sem þeir ráða við“. Oddný G. Harðardóttir, fyrr­ verandi fjármála­ og efnahagsráð­ herra, sem nú er annar varaformað­ ur fjárlaganefndar, undrast ummæli Péturs. „Hann lætur að því liggja að ef stofnun fer fram yfir fjárlög þá sé forstöðumaðurinn óhæfur. Þetta er mjög einstrengingsleg og ósann­ gjörn afstaða,“ segir hún í samtali við DV og bendir á að eftir hrun hafi forstöðumönnum og starfsmönnum ríkisstofnana tekist að halda uppi þjónustu við þá sem á henni þurftu að halda þrátt fyrir mikinn niður­ skurð og erfiðar aðstæður. „Við eigum auðvitað að gera þær kröfur að ríkisstofnanir standi við fjárlög og að starfsemi þeirra skili ár­ angri og hagkvæmni, en við þurfum jafnframt að gera okkur grein fyrir því að þegar stofnunum er sniðinn jafn þröngur stakkur eins og nú, þá má lítið út af bregða til að farið sé fram úr fjárlögum. Við þurfum að fara yfir hvað var ófyrirséð, hvað veldur fram­ úrkeyrslunni, eða hvort áætlanir ríkisstjórnarinnar séu hugsanlega ófullkomnar eins og forstöðumaður Sjúkratrygginga hefur bent á.“ n johannp@dv.is gagnrýnir Pétur Blöndal Oddný G. Harðardóttir segir um- mælin óviðeigandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.