Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2014, Page 19
Vikublað 12.–14. ágúst 2014 Skrýtið 19
Mafíósar flagga
auði á Facebook
M
eðlimir mafíunnar eru
þekktir fyrir einstaka
þagmælsku sem hefur
náð að halda þeim utan
sviðsljóssins. Eitthvað
virðist þetta vera að breytast því
þeir eru farnir að stunda samfélags-
miðlana af miklum móð. Í fyrstu
voru samfélagsmiðlar líkt og Face-
book nýttir til koma á fíkniefnavið-
skiptum og kúga fé af borgurum
með loforðum um „vernd“.
Þetta var allt saman gert í gegn-
um falska Facebook-aðganga en
nýverið hefur það færst í aukana
að meðlimir mafíunnar noti sam-
félagsmiðlana til að flagga auði sín-
um og valdi, að því er fram kemur
í úttekt ítalska fjölmiðilsins L´Es-
presso.
Einn þessara mafíósa er Domen-
ico Palazzotto, 28 ára frá Palermo á
Ítalíu, sem stofnaði aðgang á Face-
book undir fölsku nafni og birti
þar myndir af sér um borð í vélbát-
um og einnig þar sem hann snæðir
humar og skolar honum niður með
kampavíni.
Reiddu sig áður á
handskrifuð bréf
Þessi ungi maður er sagður stjórna
fjárkúgunaraðgerðum glæpasam-
taka í Arenella-hverfinu í Palermo.
L´Espresso vitnar í heimildar-
mann sem er einn þeirra sem
standa að baki rannsókn ítölsku
lögreglunnar á starfsemi glæpa-
mannanna í Palermo en starfsemi
mafíunnar þar á bæ var nánast út-
rýmt með handtökum. Ný kynslóð
virðist þó vera á uppleið en heim-
ildarmaður ítalska blaðsins segir
háttsemi þessarar nýju kynslóðar
vera afar frábreytta því sem áður
var.
„Áður fyrr bjuggu forverar
þeirra á bóndabæjum og lifðu á
brauði, ostum og grænmeti sem var
ræktað á landinu. Þeir notuðu ekki
síma heldur reiddu sig á handskrif-
uð bréf til að koma skipunum til
réttra aðila.“
Vilja ekki glæpaveldi
Talið er að þetta grobb í Palazzotto
sé einungis til þess fallið að ögra
lögreglunni en hann var á meðal 95
glæpamanna sem voru handtekn-
ir í Palermo í júní síðastliðnum en
aðgerðin var af lögregluyfirvöld-
um kölluð „Opinberunin“ og mið-
aðist að því að gera glæpasamtök-
in í borginni að höfuðlausum her.
Lögreglan er sögð hafa tímabundið
komið í veg fyrir kosningasvindl,
fjárkúgun, eiturlyfjasölu og pen-
ingaþvætti samtakanna. Lögreglan
lagði þó áherslu á að það sem
mestu hefði skipt við þessa aðgerð
hefði verið að koma í veg fyrir að
litlir hópar glæpamanna næðu að
mynda eitt glæpaveldi í borginni
líkt og þekktist í tíð Toto Riina sem
var fangelsaður árið 1993.
Frændinn sagður
skuggastjórnandi
Lögreglan telur manninn á bak
við Palazzotto vera frænda hans,
Gregorio Palazzotto, sem er sagður
stjórna aðgerðum þrátt fyrir að vera
í fangelsi.
Gregorio er virkur notandi á
Facebook en hann hefur meðal
annars notað miðilinn til að móðga
uppljóstrara innan mafíunnar sem
hafa lekið upplýsingum í lögregluna
til að komast úr fangelsi. „Ég óttast
ekki handjárn. Ég er hins vegar
hræddur við þá sem syngja til að
losna úr þeim.“
Hann hefur einnig notað Face-
book til að tjá ást sína á eiginkonu
sinni: „Ef hjarta mitt væri fangelsi,
þá fengir þú lífstíðardóm.“ Eigin-
konan hans svaraði að sjálfsögðu:
„Ástin mín, ég styð þig. Þegar
þessari martröð er lokið mun lífið
hefjast á ný.“
Eitt er víst að eftir því sem virkni
þessara glæpamanna eykst á Face-
book skilja þeir eftir sig stafræn spor
sem gætu orðið þeim að falli. Í það
minnsta auðveldar það lögreglunni
að hafa upp á þeim við rannsókn
mála. n
n Forverarnir forðuðust síma og reiddu sig á handskrifuð bréf n Skilja nú eftir stafræn spor
Nánir Domenico
Palazzotto, til vinstri,
ásamt félaga sínum
á vélbáti. Mynd sem
Palazzotto birti á
fölskum Facebook-
aðgangi sínum.
Sjóari og siglir
um haf Domenico
Palazzotto nýtur
lífsins.
Flottur prófíll Domenico virðist líkt og margir
aðrir leggja ríka áherslu á flottan Facebook-prófíl.
Lífið í limmósínu Hér er Palazzotto í
limmósínu, mynd sem hann birti á Face-
book og minnir á Rich Kids of Instagram. „Ef hjarta
mitt væri
fangelsi, þá fengir
þú lífstíðardóm.