Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2014, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2014, Síða 20
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Elín G. Ragnarsdóttir • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir • Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Viktoría Hermannsdóttir • Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéttASkot 512 70 70FR jál S t, ó Háð DAg b l Að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AðAlnÚmeR RitStjóRn áSkRiFtARSími AUglýSingAR Sandkorn 20 Umræða Vikublað 12.–14. ágúst 2014 Sögufölsun um sjávarútveg Í leiðara Morgunblaðsins á mánu­ daginn birtist merkileg söguskýring sem er einhvern veginn á þessa leið. Síðasta ríkisstjórn – vonda vinstri stjórnin – reyndi hvað hún gat til að knésetja íslenskan sjávar­ útveg „í heilu lagi“ með ofurskött­ um. Á meðan þessi ríkisstjórn var við völd gátu útgerðarfyrirtækin ekki haf­ ið almennilega endurnýjun á fiski­ skipaflota sínum af því þau voru svo skattpínd vegna veiðigjaldanna. Nú­ verandi ríkisstjórn hefur hins vegar leiðrétt þessi rangindi að hluta og minnkað skattpíninguna þrátt fyrir að hún hafi sannarlega ekki gert nóg. Nú hefur þessi endurnýjun hins vegar hafist með kaupum á nýjum skip­ um „þrátt fyrir þær aðstæður sem út­ gerðinni eru búnar því að óvissan er enn fyrir hendi þó að vissulega séu ekki lengur við stjórnvölinn þeir sem vilja koma undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar á kné í heilu lagi.“ Þessi söguskýring er merkileg fyr­ ir þær sakir fyrst og fremst að hún er röng. Síðastliðin ár hefur verið góðæri hjá mörgum af stærstu útgerðarfélög­ um landsins sem skilað hafa nýjum methagnaði ár eftir ár. Það er þetta góðæri sem gerir íslenskum útgerðar­ félögum eins og Samherja, Ísfélagi Vestmannaeyja og FISK Seafood – öll eiga þau beint eða óbeint stóra hluti í útgáfufélagi Morgunblaðsins – kleift að endurnýja fiskiskip sín. Skýringin á góðærinu í íslenskum sjávarútvegi síðastliðin ár er meðal annars lágt gengi íslensku krónunn­ ar og koma makríls inn í íslenska fisk­ veiðilögsögu – útflutningsverðmæti makríls á árunum 2010 til 2013 nam um 60 milljörðum króna. Í skýrslu sem Íslandsbanki gaf út um íslenska sjávarútveginn í september í fyrra sagði meðal annars um þennan upp­ gangstíma: „Rekstur íslenskra sjávar­ útvegsfyrirtækja hefur gengið vel síð­ ustu ár og hefur lágt gengi krónunnar og hagfellt afurðaverð haft jákvæð áhrif á rekstrarafkomu greinarinnar. EBIDTA framlegð sjávarútvegarins í heild fyrir 2011 var um 80 ma.kr. sem er aukning um 26 % milli ára.“ Þegar litið er á tölur úr skýrslunni og á vef Hagstofunnar um hagnað sjávarútvegsfyrirtækja síðastliðinn áratug blasir þetta góðæri við. Á síð­ ustu fjórum árunum fyrir hrunár­ ið 2008 var hagnaður íslenskra fyrir­ tækja af fiskveiðum 3 milljarðar 2004, 9 milljarðar 2005, 10 milljarða tap 2006 og 13 milljarða hagnaður 2007. Eftir hrunið var 11,19, 23 og 21,5 millj­ arða hagnaður hjá íslenskum útgerð­ um næstu fjögur árin. Sérstaklega hefur góðærið í sjávar­ útvegi náð til stóru útgerðarfélag­ anna. Hagnaður Samherja hefur til að mynda verið ótrúlegur síðastliðin ár og skilaði félagið tæplega 8 millj­ arða hagnaði árið 2010, tæplega 9 milljarða hagnaði 2011 og tæpum 16 milljörðum árið 2012; hagnaður HB Granda jókst um 133 prósent á milli áranna 2011 og 2012 þegar hann nam 5,5 milljörðum; Ísfélag Vest­ mannaeyja hefur sömuleiðis skilaði nokkurra milljarða hagnaði á ári og greitt um milljarð í arð árlega. Þessi góðæristími í sjávarútvegi skrifast hins vegar ekki á síðustu ríkis­ stjórn, um það er leiðarahöfundur Morgunblaðsins örugglega sam­ mála mér sem og líklega ráðherrar vinstristjórnarinnar. Ekki var það vegna aðgerða hennar sem verðgildi krónunnar hrundi, að makríll byrj­ aði að veiðast við strendur landsins eða að erlend fyrirtæki vildu kaupa ís­ lenskan fisk. En kaup íslenskra útgerðarfyrir­ tækja nú á nýjum fiskiskipum skrif­ ast heldur ekki á núverandi ríkisstjórn þó vissulega sé heppilegt fyrir leiðar­ ahöfund Morgunblaðsins að benda á að skipin séu keypt núna, í stjórn­ artíð Sjálfstæðis­ og Framsóknar­ flokks, líkt og þeir hafi komið til valda og fært þjóðinni sannkallað útgerðar­ vor. Heppilegt er fyrir Morgunblaðið að birta forsíðumyndir af nýjum tog­ urum Ísfélagsins sigla í höfn í Vest­ mannaeyjum rúmu ári eftir stjórnar­ skiptin. Kaupin á fiskiskipunum sýna hins vegar að á síðustu árum hafa stór íslensk útgerðarfyrirtæki eins og stærstu hluthafar Morgunblaðsins sannarlega verið aflögufærir á þessu góðærisskeiði í íslenskum sjávarút­ vegi. Útgerðirnar greiddu veiðigjöld vinstristjórnarinnar til skamms tíma, enda skiluðu mörg stóru félögin ótrúlegum hagnaði, og geta svo líka keypt sér ný skip núna eftir góðær­ istímabil síðustu ára þrátt fyrir það. Að ætla að stilla kaupunum á skipunum upp í slíku pólitísku sam­ hengi gengur því ekki upp. Skipa­ kaupin eru ekki pólitísk í eðli sínu og ekki er hægt að segja að þau eigi sér stað þrátt fyrir eða út af síðustu ríkis stjórn eða þeirri sem nú fer með völd. Góðærið í sjávarútvegi er ekki pólitískt; það skrifast meðal annars á jákvæða afleiðingu af samfélags­ hruni – verðfall krónunnar, makríl­ göngur í hafi og eftirspurn erlendis eftir íslenskum fiski. En Morgunblað­ ið var keypt í ákveðnum tilgangi og er ekki óeðlilegt að hann birtist í leiðar­ askrifum blaðsins þar til veiðigjöld sjávarútvegarins hafa verið lækkuð niður úr öllu valdi eða afnumin með öllu. n Þetta verður rosaleg upplifun Þorbjörg Marinósdóttir verður fararstjóri í verslunarferð til New York. – DV Valdalesbía Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, nýtur víða virðingar eftir glæstan stjórn­ málaferil. Jóhanna hélt framan af einkalífi sínu út af fyrir sig. Það var lengi vel eitt best varðveitta leyndar­ mál íslensks sam­ félags að hún og Jónína Leósdóttir væru elskend­ ur. Síðar kom út bók og þær giftu sig. Jóhanna var stóra trompið við opnun Hinsegin daga. Þar var hún kynnt með pomp og prakt sem „power“ lesbía eða með öðrum orðum valdalesbía. Fyrirrennarar í stjórnarstöður Þrír fyrirrennarar Tinnu Gunnlaugs­ dóttur í starfi þjóðleikhússtjóra enduðu allir sem stjórnendur hjá öðrum opinberum menningar­ stofnunum við starfslok. Sveinn Einarsson varð for­ stöðumaður Þjóð­ menningarhússins þegar hann hætti á fyrri hluta níunda áratugarins; Gísli Alfreðsson varð skólastjóri Leiklist­ arskóla Íslands á fyrri hluta þess tíunda og loks varð Stefán Baldurs­ son stjórnandi Íslensku óperunnar eftir að hann hætti 2005 en starf­ aði reyndar sjálfstætt í tvö ár þar á eftir. Tveir þjóðleikhússtjórar af þremur fengu því aðrar opinber­ ar stjórnunarstöður fljótlega eftir starfslokin á meðan sá þriðji fékk slíka stöðu eftir aðeins lengri tíma. Lending Tinnu mýkt? Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhús­ stjóri vill fá að starfa í níu mánuði í leikhúsinu eftir að hún hættir sem æðsti stjórnandi. Svo vill hún fara á eftirlaun á næsta ári eftir 34 ár í leik­ húsinu. Mennta­ málaráðuneytið og þjóðleikhúsráð hafa ekki ákveðið hvernig starfslokum hennar skuli háttað. Sumum finnst ekkert athugavert við að komið sé til móts við fráfarandi þjóðleikhússtjóra og lending viðkomandi eftir starfslok­ in mýkt eins og kostur er. Dálítið skrítið getur til dæmis verið fyrir þjóðleikhússtjóra að verða aftur óbreyttur leikari. En skoðanir um mál Tinnu eru sannarlega skiptar. Árni umpólast Á Herðubreið.is fela menn ekki vanþóknun á því að VG hafi út­ vegað ríkisstjórninni skjólið til skipa fallinn forsætisráðherra Sjálfstæðisflokksins sem sendi­ herra. Ritstjórinn, Karl Th. Birgis­ son, rifjar þar upp að sá sem VG lagði til, Árni Þór Sigurðsson, hafi gengið í gegnum merkileg sinna­ skipti gagnvart Geir H. Haarde. Hafi hann áður verið meðal þeirra VG­manna sem einna harðast beittu sér fyrir að fá Geir dreginn fyrir landsdóm. Árni hafi hins vegar umpólast þegar sendi­ herrakapallinn var í bígerð. Í jún­ íbyrjun hafi hann skrifað grein og hafið Geir til skýjanna og sagt að þeir sem þekktu Geir vissu að þar færi „vandaður og heiðarleg­ ur einstaklingur sem tilefnislaust er að hnýta í“. Árni Þór varð svo sendiherra sama daginn og Geir. Handritið er tilbúið Ilmur Kristjánsdóttir er spennt fyrir nýrri þáttaröð af Stelpunum. – DV Ég er svolítill poppari í mér Felix Bergsson gaf út nýja plötu á dögunum. – DV Veiðgjöldunum mótmælt Veiðigjöldum síðustu ríkisstjórnar var harðlega mótmælt af forsvarsmönnum útgerðarfyrirtækja og létu þeir meðal annars sigla skipum sínum til Reykjavíkur sumarið 2012 þar sem fram fóru mótmæli gegn gjöldunum. Mynd SIGTryGGur ArI Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Leiðari Árni varð fyrir eggi umsjón: Henry Þór Baldursson „Heppilegt er fyrir Morgunblaðið að birta forsíðumyndir af nýjum togurum Ísfélagsins sigla í höfn í Vestmannaeyjum rúmu ári eftir stjórnarskiptin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.