Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2014, Page 23
Vikublað 12.–14. ágúst 2014 Fréttir Stjórnmál 23
L
ekamálið hófst í nóvember í
fyrra þegar upplýsingum um
hælisleitandann Tony Omos
var lekið úr innanríkisráðu
neytinu. Málið hófst með frétta
flutningi DV af yfirvofandi brott
vísun hælisleitandans Tonys sem
átti von á barni með Evelyn Glory
Joseph.
Boðað var til mótmæla vegna
brottvísunarinnar og lak um það
leyti minnisblað úr innanríkisráðu
neytinu, sem hefur mál hælisleit
enda á sinni könnu, til Mbl.is og
Fréttablaðsins. Upplýst hefur verið
að Gísli Freyr átti samtal við blaða
mann Morgunblaðsins stuttu áður
en frétt miðilsins birtist.
Lekinn var kærður til lögreglu
og hefur hann verið til rannsóknar
síðustu mánuði. Í þeirri rannsókn
hafa aðstoðarmenn Hönnu Birnu
haft réttarstöðu grunaðs. Það var
svo í lok júlí sem DV greindi frá því
að Hanna Birna hefði átt fundi með
lögreglustjóranum á höfuðborgar
svæðinu þar sem hún ræddi um
rannsóknina. Í kjölfar þess sendi
umboðsmaður Alþingis fyrirspurn
til hennar og krafðist svara.
Á vef DV er hægt að skoða mun
ítarlegri umfjöllun um atburða
rásina í málinu allt frá upphafi til
ágústbyrjunar 2014. n
Gagnvirk tímalína fyrir lekamálið
Kynntu þér lekamálið á DV.is
Hundruð vilja af-
sala sjálfstæðinu
n Fylkisflokkurinn stofnaður í haust n Á fjórða hundrað hafa þegar skráð sig
N
okkur hundruð manns
hafa þegar skráð sig í nýjan
stjórnmálaflokk sem berst
fyrir inngöngu Íslands í
Noreg. Fjölmiðlamaður
inn Gunnar Smári Egilsson hafði
forgöngu um stofnun flokksins en
hann byrjaði á Facebook. Vefsíða
hefur verið opnuð sem tekur við
skráningum í flokkinn og eru þeir
sem skrá sig fyrir haustið stofnfé
lagar hans. Á vefsíðunni segir að
Fylkisflokkurinn verði formlega
stofnaður í haust en ekki hefur
verið gefin út nánari tímasetning
á því. Umræður hafa verið virkar
á Facebooksíðu flokksins en þar
eru bæði stuðningsmenn og and
stæðingar hugmyndarinnar sam
ankomnir.
Yrðum fimmta stærsta fylkið
Noregur samanstendur af nítján
fylkjum sem eru misstór og fjöl
menn. Ef Ísland yrði eitt af fylkjun
um yrði það fimmta stærsta fylkið,
miðað við íbúafjölda. Stærsta fylk
ið, Ósló, telur 640 þúsund manns
en það minnsta, Finnmörk, aðeins
um 75 þúsund. Íslendingar voru
326 þúsund um síðustu áramót.
Ekki eru allir jafn hrifnir af inn
göngu Íslands í Noreg og forsvars
menn hins nýja flokks. Frosti
Sigurjónsson, þingmaður Fram
sóknaflokksins, er einn þeirra
sem hefur lýst furðu á áhuganum.
Á Facebooksíðu Fylkisflokksins
segir hann að Ísland sé eitt besta
land í heimi. „Noregur auðvitað
fínn líka, en ég sé nú ekki að það
sé mikið tilefni fyrir Íslendinga að
gefast upp á sjálfstæðinu og gerast
útkjálki í Noregi,“ skrifaði hann á
síðuna á sunnudagskvöld.
Hvaða breytinga má vænta?
Gunnar Smári lagði til um helgina
hugmynd að kosningaloforðum
Fylkisflokksins. Í þeim segir hann
að með sameiningu við Noreg
verði íslenska krónan lögð niður
og „nothæfur gjaldmiðill tekinn
upp“, að launataxtar flestra starf
stétta muni hækka, verðtrygging
lána verði aflögð, vinnuvikan verði
stytt í 37,5 klukkustundir og að af
borganir af húsnæðislánum lækki
og eignamyndum almennings við
húsnæðiskaup verði tryggð.
Tíunda og síðasta kosningalof
orðið er líklega það athygliverð
asta en það snýr að íslenskum
stjórnmálamönnum. „Íslensku
stjórnmálaflokkarnir munu ekki
geta eyðilagt grunnkerfi samfé
lagsins sem líf og öryggi venjulegs
fólks byggir á. Völd gömlu flokk
anna takmarkast við ákvarðan
ir á fylkis og sveitarstjórnarstigi
(meðan einhver kýs þá),“ segir
hann og heldur áfram: „Mögulegt
er að flokkarnir þroskist af tengsl
um sínum við þroskaðri umræðu
og ákvarðanahefð í Noregi.“ n
Stefna flokksins
Samkvæmt heimasíðu hans
Fylkisflokkurinn vinnur að endursamein-
ingu Íslands og Noregs með því að Ísland
verði 20. fylki Noregs; íslenska verði eitt
af ríkismálum Noregs; norska ríkinu beri
samkvæmt stjórnarskrá að vernda og
efla íslenska menningu og tungu; og að
Íslendingar njóti allra réttinda norskra
borgara.
Stærð fylkja Noregs
Ísland yrði í fimmta sæti
Fylki Höfuðstaður Mannfjöldi*
Oslo Oslo 634 463
Akershus Oslo 575 757
Hordaland Bergen 505 246
Rogaland Stavanger 459 625
Ísland Reykjavík 325 671
Sør-Trøndelag Trondheim 306 197
Østfold Sarpsborg 284 962
Buskerud Drammen 272 228
Møre og Romsdal Molde 261 530
Nordland Bodø 240 877
Vestfold Tønsberg 240 860
Hedmark Hamar 194 433
Oppland Lillehammer 187 820
Vest-Agder Kristiansand 178 478
Telemark Skien 171 469
Troms Tromsø 162 050
Nord-Trøndelag Steinkjer 135 142
Aust-Agder Arendal 113 747
Sogn og Fjordane Leikanger 108 965
Finnmark Vadsø 75 207
*Mannfjöldi 1. janúar 2014. Heimild Hagstofa Íslands og Statistisk sentralbyrå
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Leiðtogi Gunnar Smári Egilsson fjölmiðlamaður er leiðtogi hins nýja stjórnmálaflokks. Óvíst er hvort hann verði formaður hans. Formlega
verður gengið frá stofnun Fylkisflokksins í haust. MYnd SigtRYgguR ARi
Formaðurinn
vinsæll á
Facebook
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins og fjármála
ráðherra, er ekki vinsæll í öllum
kreðsum. Hann á þó sína dyggu
stuðningsmenn sem endur
speglast meðal annars í vinsæld
um hans á samskiptasíðunni
Facebook. Bjarni fær að jafnaði
ekki færri en tvöhundruð „like“
á stöðuuppfærslur sínar á síð
unni en í sumar hefur hann einu
sinni rofið „þúsundlækamúrinn“.
Það var færsla hans um fyrsta
lax sumarsins, sem hann veiddi
í Norðurá. Hann var líka ansi
nálægt því að komast í þúsund
„like“ þegar hann skrifaði um
göngu sína frá Hesteyri yfir í Að
alvík og upp á Straumnesfjall.
Vill tómatana
Í kjölfar þess að Sóley Tómas dóttir,
forseti borgarstjórnar, var gerð
að sérstökum beikonsendiherra
á dögunum hefur kollegi hennar
úr pólitíkinni stigið fram og óskað
eftir sendiherrastöðu. Katrín Júl
íusdóttir, varaformaður Samfylk
ingarinnar, tilkynnti á Facebook
síðu sinni að hún myndi gjarnan
vilja verða sendiherra íslenska
tómatsins. „Það upplýsist hér
með að ég er mjög til í að verða
sendiherra íslenska tómatsins.
Hef þekkingu og reynslu til þess
enda mært gæði hans í ræðu og
riti bæði hérlendis og erlendis um
nokkurt skeið,“ skrifar ráðherrann
fyrrverandi. Ekki liggur fyrir hvort
hún hafi nælt sér í embættið þegar
þetta er skrifað.
Pólitíkusar Hanna Birna
innanríkisráðherra ásamt að-
stoðarmönnum sínum tveimur,
Gísla Frey og Þóreyju.
Halldór svarar
Víkverja
Halldór Auðar Svansson, Pírati
í Reykjavík, gagnrýndi skrif Vík
verja Morgunblaðsins á Face
booksíðu sinni í gær, en Víkverji
gerði vímuefnaumræðu sem er
í deiglunni hér á landi að um
ræðuefni sínu. „Það er umhugs
unarvert þegar fólk, sem vill
láta taka sig alvarlega, leggur til
að þeir þröskuldar sem neyslu,
sölu og vörslu fíkniefna eru settir
verði lækkaðir,“ segir Víkverji um
Pírata. Þá segir hann sorgleg sjón
armið fólks sem gagnrýnt hefur
aðgerðir lögreglu á tónlistarhá
tíðum í sumar. Halldór segir að
betra sé að reyna að skilja fólk og
ástæður þess að það fer út í neysl
una og taka á þeim ástæðum.
„Byrgja brunninn í stað þess að
skammast í barninu fyrir að detta
ofan í hann,“ segir hann.