Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2013, Qupperneq 18
E
kki hefur verið hægt að bera
kennsl á að minnsta kosti
tuttugu börn sem létust í
efnavopnaárásinni í Sýrlandi
á miðvikudag í síðustu viku.
Ástæðan er sú að foreldrar og ætt
ingjar þessara barna létust einnig.
Þetta segir kvikmyndagerðarmað
urinn Humam Husari sem tekið
hefur viðtöl við bráðaliða á þeim
sjúkrahúsum sem tóku á móti fórn
arlömbum árásarinnar. Breska
sjónvarpsstöðin ITV fékk stiklur úr
viðtölum Husari afhentar í vikunni.
Stúlka númer 14
„Við tókum á móti um sex hund
ruð sjúklingum sem urðu fyrir
árásinni,“ segir Abu Akram, sjálf
boðaliði á sjúkrahúsinu í bænum
Akram sem er skammt frá höfuð
borginni Damaskus. Akram segir
að af þeim sex hundruð sem með
höndlaðir voru á sjúkrahúsinu hafi
145 látist; 110 hafi verið hægt að
bera kennsl á en 35 hafi ekki enn
verið hægt að bera kennsl á. Í þeim
hópi eru ung börn sem misstu ætt
ingja sína í árásinni. „Þessi unga
stúlka er númer 14,“ segir Akram
og bendir á mynd af mánaðargam
alli stúlku sem lést í árásinni. „Það
hefur enginn getað borið kennsl á
hana og því er hún einfaldlega köll
uð númer 14,“ bætir hann við.
Bandaríkjamenn tilbúnir
Bandarísk yfirvöld virðast vera viss í
sinni sök og telja að sýrlenski stjórn
arherinn beri ábyrgð á voðaverkinu
í síðustu viku. Eftirlitsmenn á veg
um Sameinuðu þjóðanna komu
til Sýrlands í vikunni til að rann
saka meinta efnavopnaárás betur
og safna sönnunargögnum um að
efnavopnum hafi verið beitt. Barack
Obama Bandaríkjaforseti er sagð
ur vera að undirbúa árás á Sýrland
sem lagst hefur illa í bandamenn
Sýrlendinga, þá einna helst Rússa
sem eru fastafulltrúar í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna. Bandaríski
herinn er í viðbragðsstöðu og til
búinn til aðgerða þegar og ef kallið
kemur frá Barack Obama.
Framleiða gasgrímur
Íbúar í Damaskus virðast vera við
öllu búnir ef frekari efnavopn
um verður beitt. Verksmiðja í
Damaskus hóf fjöldaframleiðslu á
eins konar gasgrímum til að verj
ast annarri mögulegri árás. „Það
voru margir sem reyndu að hylja vit
sín með klútum eða fötum og við
reyndum að finna betri lausn. Við
ráðfærðum okkur við lækna og von
andi mun þetta bjarga mannslífum
ef önnur árás verður gerð. Þetta er
ekki 100 prósent öruggt en mun án
nokkurs vafa gera eitthvað gagn,“
segir Abu Ibrahim, starfsmaður í
verk smiðjunni. n
18 Fréttir 30. ágúst - 1. september 2013 Helgarblað
Fáklæddur Pútín tekinn úr umferð
n Listagalleríi lokað í Rússlandi n Pútín og Medvedev í kvenmannsgervi
R
ússneska lögreglan hefur
lagt hald á málverk sem sýnir
Vladimír Pútín, forseta Rúss
lands, og Dmitry Medvedev,
forsætisráðherra landsins, fáklædda.
Málverkið hefur vakið talsverða
athygli enda er Medvedev málaður
sem kona; klæddur í bikiní og með
löguleg brjóst. Á myndinni er Pútín
einnig nokkuð kvenlegur, klæddur í
kvenmannsundirföt og með hendurn
ar í hári Medvedevs.
Myndin hafði hangið uppi á mál
verkasýningu í St. Pétursborg í Rúss
landi. Ástæðan fyrir því að myndin var
tekin niður er sú að hún er talin brjóta
gegn rússneskum lögum. Hvaða lög
það eru liggur þó ekki fyrir. Lagt var
hald á fleiri myndir, meðal annars
ádeilumynd sem sýnir Vitaly Milonov
og Yelenu Mizulina, rússneska þing
menn sem barist hafa hart gegn
réttindum samkynhneigðra. Málverk
af aðstoðarborgarstjóra St. Péturs
borgar, Vitaly Mironov, hékk einnig
uppi á sýningunni en á henni mátti
sjá liti regnbogafánans, sem tákna
sam félag samkynhneigðra, á andliti
borgar stjórans. Í samtali við rússneska
fjölmiðla sagði Mironov að myndirnar
væru „óviðeigandi„ og „klámfengnar.“
Eigandi gallerísins er Alexand
er Donskoy og segir hann að lögregla
hafi ekki einungis lagt hald á mynd
irnar heldur einnig lokað galleríinu.
„Þetta er ólöglegt,“ sagði hann um
aðgerðir lögreglunnar, í samtali við
Reuters.
Fjölmargir hafa lýst yfir óánægju
sinni með þá ákvörðun efri deildar
rússneska þingsins í sumar að banna
það sem kallað er áróður fyrir samkyn
hneigð og hafa rússnesk stjórnvöld
verið mikið í umræðunni vegna um
deildra laga sem sett voru í landinu og
draga verulega úr réttindum samkyn
hneigðs fólks. n
einar@dv.is
Þrjátíu dagar
fyrir nauðgun
Dómari í Montana í Banda
ríkjunum hefur ákveðið að skil
orðsbinda 15 ára fangelsisdóm
yfir kennara sem sakfelldur var
fyrir að nauðga fjórtán ára nem
anda sínum, Cherice Morales.
Stúlkan framdi sjálfsvíg eftir að
málið komst upp. Dómurinn
hefur vakið reiði margra en sam
kvæmt honum þarf kennarinn,
Stacey Dean Rambold, aðeins
að sitja inni í 30 daga. Atvikið
átti sér stað árið 2008 og játaði
kennarinn að hafa haft samræði
við nemandann í eitt skipti.
„Það hefur enginn
getað borið kennsl
á hana og því er hún ein-
faldlega kölluð númer 14.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Geta ekki borið
kennsl á börnin
n Foreldrarnir látnir n Við öllu búnir og fjöldaframleiða gasgrímur
Tómlegt Það hefur verið tómlegt um
að litast í þeim hverfum sem urðu fyrir
barðinu á efnavopnum í síðustu viku.
Númeruð Ekki hafa verið borin kennsl á þessi börn. Ástæðan er sú að foreldrar þeirra
létust að öllum líkindum í árásinni.
Gasgrímur Verksmiðja í Damaskus hefur hafið fjöldaframleiðslu á eins konar gas
grímum. Þó þær séu ekki 100 prósent öruggar veita þær allavega einhverja vörn.
Myndin Hér má sjá
myndina sem gerði
það að verkum að
galleríinu var lokað.
Rukkað fyrir
tómatakast
Tómatahátíðin La Tomatina hófst
með pomp og prakt í bænum
Bunol á Spáni á miðvikudag.
Þessi hátíð trekkir þúsundir gesta
að á hverju ári en há punkturinn
er án efa tómatakastið þar sem
gestir kasta tómötum í hvern
annan í drykklanga stund. Spán
verjar glíma við mikinn fjár
hagsvanda og það kostar sitt að
halda hátíðina. Í fyrsta skipti í
sögu tómata kastsins var r ukkað
sérstakt þátttökugjald að þessu
sinni. Þetta er gert vegna þess
hversu kostnaðarsamt það er
að þrífa eftir tómatakastið og
að sjálfsögðu fer því fjarri að
tómatarnir sjálfir séu ókeypis.
Hörmulegt
slys í Svíþjóð
Ellefu ára stúlku blæddi út
þegar hún hljóp á glerhurð í af
mælisveislu í Malmö síðastliðinn
sunnudag. Samkvæmt sænska
blaðinu Expressen varð slysið
þegar stúlkan var að hlaupa
til dyra eftir að dyrabjöllu var
hringt. Stúlkan sá ekki gler
hurðina sem splundraðist þegar
hún hljóp á hana. Stúlkan skarst
illa á hálsi og var úrskurðuð látin
þegar á sjúkrahús var komið.
Fjöldi barna var í afmælisveisl
unni og var þeim veitt áfallahjálp
í kjölfarið.