Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2013, Side 24
24 Umræða 30. ágúst–1. september 2013 Helgarblað
Natan Kolbeinsson Stendur
til að draga til baka breytingar
sem gerðar voru á greiðslukerfi
lyfja í lok síðasta kjörtímabils?
Kristján Þór Júlíusson Hafin er
heildarendurskoðun á greiðslu
þátttöku sjúklinga í heilbrigðis
kerfinu. Þeirri vinnu mun Pétur
Blöndal stýra og allir þingflokkar
munu hafa aðkomu að því verki.
Þar mun m.a. verða fjallað um þær
athugasemdir sem komið hafa
fram um greiðslukerfi lyfjanna sem
þú spyrð um. Áætlað er að þessari
vinnu ljúki fyrir áramót.
Rafn Steingrímsson Kristján,
þú varst kjörinn 2. varafor
maður Sjálfstæðisflokksins
2012. Samkvæmt nýsamþykktum
reglum á síðasta landsfundi
Sjálfstæðisflokksins getur 2.
vara formaður ekki gegnt ráðherra
embætti. Hefur þú sagt af þér sem 2.
varaformaður? Og ef ekki, hvers vegna
ekki og hvenær hyggst þú gera það? Ég
spyr vegna þess að ég hef ekki heyrt til
þess að flokksráðsfundur hafi verið
boðaður til að kjósa 2. varaformann.
Kristján Þór Júlíusson Ég lét af
starfi 2. varaformanns sama dag og
ég var skipaður heilbrigðisráðherra,
í samræmi við skipulagsreglur
flokksins.
Anna Einarsdóttir Sæll.
Áhyggjur mínar beinast að
kynslóðinni sem er að
útskrifast úr heilbrigðisnámi og er sú
kynslóð sem tekur við einu mikilvæg
asta batteríi þjóðarinnar. Stór hluti
þessa fólks íhugar nú að halda út fyrir
landsteinana annaðhvort í vinnu eða
áframhaldandi nám. Ég hef heyrt utan
af mér að helstu ástæður þess séu
launamál, álag og aðbúnaður. Hvað
ætlar þú sem heilbrigðisráðherra að
gera (ekki bara tala um) til þess að
sporna gegn þessari þróun? Kv.
nemandi í hjúkrunarfræði við HÍ.
Kristján Þór Júlíusson Leggja
mitt af mörkum til þess að íslenskt
heilbrigðiskerfi verði samkeppnis
fært við nágrannalöndin um starfs
krafta heilbrigðisstarfsfólks. Það
felur ekki eingöngu í sér úrbætur í
aðstöðu og launamálum heilbrigð
isstétta heldur einnig og ekki síður
þarf íslenskt þjóðfélag að geta
búið þegnum sínum sambærileg
lífskjör og annars staðar gerast
best.
Helgi Gunnarsson Síðastliðið
vor ákvað Heilbrigðisstofnun
Vestfjarða á Ísafirði að loka
Dvalarheimilinu Tjörn á Þingeyri í tvo
og hálfan mánuð og flytja heimilis
menn á sjúkrahúsið á Ísafirði. Létu þeir
sér í léttu rúmi liggja réttindi
heimilisfólks til að dvelja í heimabyggð
og njóta samvista við ættingja sína.
Þáverandi velferðarráðherra stoppaði
þessi áform eftir umfjöllun Kastljóss
og mótmæli aðstandenda. Hver er
afstaða Kristjáns Þórs til þessa og mun
hann láta þetta viðgangast næst
þegar það verður reynt?
Kristján Þór Júlíusson Það var
rétt hjá Guðbjarti að leggjast gegn
þessum áformum. Ég hef sama
hug til þessarar spurningar þinnar.
Teitur Guðmundsson Hvaða
lausnir sérð þú á vanda
heilsugæslu höfuðborgar
svæðisins hvað varðar mönnun,
tímaframboð og framleiðni? Stendur
til að opna á frekari einkarekstur en
stöðvanna í Lágmúla, Salahverfi og
Læknavaktarinnar?
Kristján Þór Júlíusson Ég
hef þegar sett í gang vinnu við
innleiðingu þjónustustýringar
í heilbrigðiskerfinu þar sem
heilsugæslan mun gegna lykil
hlutverki. Allar upplýsingar sem
mér hafa borist benda til að þær
stöðvar sem þú nefnir skili góðu
verki.
Ástasigrún Magnúsdóttir
Væri ekki tilvalið að flytja
innanlandsflug til Keflavíkur
og stuðla þar að uppbyggingu á
heilbrigðiskerfinu, fleiri störfum og
fjölbreyttari heilbrigðisþjónustu?
Kristján Þór Júlíusson Nei.
Jens Gud Sæll Kristján. Hefur
þú smakkað færeyskan bjór?
Kristján Þór Júlíusson Já.
Bergur Benjamínsson Sæll
Kristján. Nú er það staðreynd
að mikill fjöldi aldraðra liggur
inni á bráðasjúkrahúsum í stað
hjúkrunarheimila. Sérð þú fyrir þér að
nýtt sjúkrahótel gæti leyst þennan
vanda að hluta til, sér í lagi ef í boði
væri aðstaða til afþreyingar og
þjálfunar á sama stað?
Kristján Þór Júlíusson Það gæti
verið hluti af lausn að greiða úr
svokölluðum „fráflæðisvanda“
LSH og að hluta FSA að sjúklinga/
sjúkrahótel þjónustuðu þennan
þátt með öruggum hætti.
Guðvarður Ólafsson Ætlar
þú að einkavæða heilbrigðis
kerfið?
Kristján Þór Júlíusson Nei, alls
ekki. Einkavæðing heilbrigðiskerf
isins er ekki á dagskrá þessarar
ríkisstjórnar. Hins vegar hefur
einkarekstur í þessari þjónustu
skilað miklum og óumdeildum
árangri, sbr. Salastöðina, starfsemi
sjúkraþjálfara og fleira mætti til
taka.
Guðrún María Varðandi lokun
skurðst. í Eyjum: Hafið þið
áttað ykkur á hvaða áhrif það
hefur fyrir Vestmannaeyinga þegar við
missum ekki bara skurðstofuna heldur
einnig tvo lækna af sólarhringsvakt
sem hafa hingað til sinnt veiku fólki
hvort heldur sem er á heilsugæslu og á
sjúkradeild? Gerið þið ykkur grein fyrir
því að sennilega eru tveggja klst.
lágmarkstími sem líður frá því að
sjúkraflug er pantað þangað til
sjúklingur kemst undir hendur sérfr. í
Rvk? Auk þess sem hvert flug kostar
yfir 300 þús. kr.!
Kristján Þór Júlíusson Ég deili
með þér áhyggjum af þessum
þáttum sem þú nefnir. Stefni
á að eiga fund með starfsfólki
heilbrigðisstofnunarinnar og
bæjaryfirvöldum í næstu viku til að
ræða þann vanda sem þar er við að
glíma.
Heiða Heiðars Af hverju má
ekki skoða það að byggja upp
heilbrigðiskerfi á Suðurnesjum
og flytja innanlandsflug þangað? Af
hverju þetta stuttaralega „nei“?
Kristján Þór Júlíusson Vegna
þess að ég er eindregið þeirrar
skoðunar að miðstöð innanlands
flugsins sé best fyrir komið í höfuð
borg landsins. Það þýðir ekki að að
heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum
megi ekki byggja áfram upp.
Íris Stefánsdóttir Sæll,
hyggst þú beita þér fyrir því að
„sjúkrahúsið“ Vogur fari að
barnaverndarlögum og tilkynni til
yfirvalda þegar barn undir 18 ára aldri
skráir sig inn í meðferð? Sbr. grein í
Fréttablaðinu 20. ágúst viðurkennir
Þórarinn Tyrfingsson að þar sé ekki
farið að þessum lögum í dag.
Kristján Þór Júlíusson Að sjálf
sögðu ber öllum sjúkrastofnunum
að fara að þeim lögum sem um
þær gilda. Ég þekki hins vegar ekki
þetta tiltekna mál.
Auðbjörg Jóhannsdóttir
Hvað finnst þér um að stjórn
sjúkrahússins í Vestmanna
eyjum hafi ákveðið að loka skurðstof
unni í hagræðingarskyni? Er ekki
hreinlega hættulegt að hafa bæ með
rúmlega 4.000 íbúa, og ótryggar
samgöngur sem geta lokast með
skömmum fyrirvara, án skurðstofu?
Kristján Þór Júlíusson Það er ekki
gott þegar leggja þarf af starfsemi
sem þessa vegna fjárskorts. Aðrir
þættir spila að mínu mati eitthvað
inn í þessa ákvörðun en hagræðing
ein og sér. Legg áherslu á að þetta
var ekki ákvörðun ráðuneytisins.
Vinnuhópur á vegum þess hafði
lagt til aðrar leiðir til að bregðast
við ítrekuðum athugasemdum um
hallarekstur stofnunarinnar. Ég
ítreka það sem ég sagði hér áðan
um væntanlegan fund minn með
starfsfólki og bæjaryfirvöldum í
næstu viku til að fara yfir stöðuna.
Jón Páll Pálmason Sæll kæri
vinur. Hvernig hreyfingu
stundar heilbrigðisráðherra
þjóðarinnar þessa dagana? Eru menn í
ræktinni og kannski jafnvel byrjaðir í
golfinu?
Kristján Þór Júlíusson Sæll minn
kæri. Að sjálfsögðu er ég trúr þinni
leiðsögn í Hreyfingunni og líður
bærilega vel með það. Læt golfið
eiga sig – ekki tími fyrir þann leik.
Sigurjón Guttormsson Sæll
Kristján, er ekki kominn tími til
að færa fjórðungssjúkrahúsið
á Norðfirði til Egilsstaða til að hafa
betri tengsl við sjúkraflug?
Kristján Þór Júlíusson Ekki veit
ég hvaða þyngd er á sjúkrahúsinu
á Norðfirði og tæpast kemst það
í gegnum Oddskarðsgöngin. En ef
þú átt við það að færa starfsemina
þá hefur það ekki komið til skoðun
ar og er ekki forgangsverkefni í
mínum huga.
Sigurður Eggertsson Nú fara
margar sögur af fólki sem
hefur ekki fjárráð til að leysa út
lyfin sín eftir að nýja greiðsluþátttöku
kerfið tók gildi. Hvenær ætlar þú að
bregðast við þeim vanda?
Kristján Þór Júlíusson Ég vitna
til fyrra svars míns um þessi efni
þar sem kemur fram að ég vænti
tillagna starfshóps nú í haust.
Ísak Hinriksson Hver er
afstaða þín gagnvart
listamannalaunum?
Kristján Þór Júlíusson Hún er
jákvæð en ákvörðun um viðbætur
og sérstaka flokkun listamanna er
og verður alltaf álitaefni.
Siggi Braga Sæll. Hversu
mikið er áætlað í fjörlögum í
nýjan landspítala?
Kristján Þór Júlíusson Á fjárlögum
þessa árs er áætlað að verja u.þ.b.
40 milljörðum króna í starfsemi
LSH. Fjárlög næsta árs munu liggja
fyrir í fyrstu viku október.
Íris Stefánsdóttir Sæll, nú
þegar velferðarráðuneytinu
hefur verið skipt upp í tvö
ráðuneyti, hvað verður um málefni
barna sem fást við samþættan
geðrænan og félagslegan vanda?
Engin úrræði eru í boði í dag fyrir
skjólstæðinga BUGL sem leiðast út í
neyslu, afbrot og aðra áhættuhegðun.
Meðferð þeirra hjá BUGL endar
hreinlega í þeim tilfellum.
Kristján Þór Júlíusson Að úrvinnslu
slíkra mála er unnið með sama
hætti og áður var í ráðuneytinu.
Sigurður Eggertsson Hvað
telur þú að hægt sé að gera til
að sporna við að læknar flytjist
úr landi. Nú starfa margir læknar með
annan fótinn erlendis og mikil hætta á
að við missum þá alveg?
Kristján Þór Júlíusson Það er
ekki til ein ákveðin lausn á þessum
vanda. Það má ekki heldur gleyma
þeim kostum sem felast í því
fyrir jafnfámenna þjóð og okkar
að fá tækifæri til þess að fólk sem
helgar þessum störfum krafta sína
geti sótt sér viðbótar þekkingu
og færni í sínu fagi. Hins vegar
er algerlega ljóst að víða þarf að
bæta tækjakost og aðbúnað í
heilbrigðiskerfinu til að vinna gegn
þeim atgervisflótta sem á sér stað.
Ásgeir Ólafsson Um St.
Jósefsspítala: Eru einhver
áform um að koma einhverri
starfsemi fyrir í húsnæðinu eða eiga
byggingarnar að fá að skemmast hægt
og rólega þannig að á endanum svari
ekki kostnaði að koma uppbyggilegri
starfsemi fyrir í þessum húsakosti?
Kristján Þór Júlíusson Húsnæði
St. Jósefsspítala er ekki á forræði
heilbrigðisráðherra. Við höfum hins
vegar lýst yfir vilja til þess að styðja
bæjaryfirvöld í Hafnarfirði til allra
góðra verka sem miða að því að
koma húsnæðinu í önnur not.
Siggi Óli Geta þessi ráðuneyti
ekki tekið neinar ákvarðanir án
þess að einhverjir starfshópar
eða vinnuhópar komi að þeim? Eruð þið
ekki kosnir til þess að taka erfiðar
ákvarðanir?
Kristján Þór Júlíusson Jú, mikil
ósköp. En við erum líka kosin og
treyst til þess að vanda til verka
þegar kemur að því að ráðstafa
skattgreiðslum almennings.
Helgi Eyjólfsson Ertu í
frímúrarareglunni, Kristján?
Kristján Þór Júlíusson Nei, er bara
„innvígður og múraður“ í Sjálf
stæðisflokkinn :)
Ísak Hinriksson Geta börn séð
fram á að fá fría tannlækna
þjónustu í náinni framtíð?
Kristján Þór Júlíusson Vonandi
ber okkur gæfa til að búa svo um
hnúta að þessi kostnaður lækki
m.a. með meiri og betri forvörnum í
framtíðinni. Ég geri ráð fyrir að þau
áform sem kynnt voru á síðasta
vori í þessum efnum muni ganga
eftir.
Ásdís Björgvinsdóttir Sæll
Kristján Þór. Við erum hérna
nokkrar saman á morgunvakt
á Sjúkradeild Heilbrigðisstofnunarinnar
í Vestmannaeyjum. Við erum að
„brainstorma“ um það hvort ekki væri
hægt að halda skurðstofunni opinni
með dagsþjónustu, sem sagt að
skurðstofan yrði opin bara á
dagvinnutíma? Einnig kom okkur til
hugar að ef til vill væri hægt að nýta
hana betur með því að fá aðgerðir ofan
af landi, til dæmis taka kúfinn af
biðlistum eða eitthvað í þá áttina. Takk
:)
Kristján Þór Júlíusson Frábært
að heyra af því þegar hugsað er í
lausnum. Hlakka til að hitta ykkur í
næstu viku og ræða lausnir.
Árelíus Þórðarson Nú er verið
að létta álögum af
auðmönnum. Hvenær kemur
að millitekjufólki og fátækum! Er
þetta hægt miðað við skuldastöðu
ríkisins?
Kristján Þór Júlíusson Ég trúi því
að allir njóti þegar skattar á fólk og
fyrirtæki lækka. Í það minnsta er ég
þess fullviss að einstaklingum sé
betur treystandi til þess að skapa
auknar tekjur með meiri umsvifum
en stjórnmálamönnum.
Skúli Hansen Sæll Kristján.
Ertu hlynntur því að
Reykjavíkurflugvöllur verði
áfram í Vatnsmýrinni?
Kristján Þór Júlíusson Já, hef alla
tíð verið eindreginn stuðnings
maður þess.
Júlíus Ingason Finnst þér
ásættanlegt að aðeins sé
sjúkraflugvél á einum stað á
landinu? Þurfa ekki að vera vélar á fleiri
stöðum, t.d. í Vestmannaeyjum þar sem
allt stefnir í að skurðstofu verði lokað
með tilheyrandi skertu öryggi íbúa þar?
Kristján Þór Júlíusson Mér er tjáð
af þeim sem til þekkja að það fyrir
komulag sem verið hefur á þessari
þjónustu, nú í nokkur ár, hafi reynst
afar vel og öryggi og fagmennska í
þjónustunni hafi aukist.
Sigurður Sigurðsson Hvers
vegna er ekki búið að ganga frá
samningum um sjúkraflutn
inga á höfuðborgarsvæðinu?
Kristján Þór Júlíusson Vegna þess
að ekki liggja fyrir neinar fjárheim
ildir fyrir ráðherra til að ljúka slíkum
samningum.
Atli Kristjánsson Hver er
uppáhaldsstaðurinn þinn á
Íslandi?
Kristján Þór Júlíusson Berjalaut í
Böggvisstaðafjalli ofan Dalvíkur –
að sjálfsögðu!
Elías Eyþórsson Stendur til
að skera niður í heilbrigðiskerf
inu fimmta árið í röð?
Kristján Þór Júlíusson 1,5% hag
ræðingarkrafa var gerð til heilbrigð
ismála líkt og annarra málaflokka
vegna fjárlagagerðar næsta árs.
Pésú Harðarson Ég hef
hugmynd að bættri þjónustu
fyrir fólk sem glímir við
félagslegan vanda eins og kvíða,
þunglyndi o.s.frv. Hvert er best fyrir mig
að leita til að koma hugmyndinni í
framkvæmd?
Kristján Þór Júlíusson Fyrst
bendi ég þér á að hafa samband
við félagsþjónustu sveitarfélags
þíns en velferðarráðuneytið tekur
öllum raunhæfum og uppbyggjandi
hugmyndum fagnandi.
Atli Kristjánsson Hvert er þitt
mat á að byggja nýjan spítala
samkvæmt fyrri áætlunum
eða þarf að koma með nýjar lausnir?
Kristján Þór Júlíusson Fyrri áætl
anir lutu að því að andvirði af sölu
Símans (18 ma.kr.) rynnu til þessa
verkefnis. Það var afturkallað með
lögum í tengslum við hrunið. Áætl
aður hraði þessarar uppbyggingar
hlýtur því að koma til endurmats
og að mínu áliti þarf enn fremur að
vera búið að treysta undirstöður
heilbrigðiskerfisins að nýju áður
en hafin verður bygging sem kosta
mun marga tugi milljarða að reisa.
Hins vegar er ljóst að LSH býr ekki
við þann kost í dag, hvorki í húsnæði
eða tækjum, að við verði unað.
Óttarr Guðlaugsson Þegar
spurt var um heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins þá
svaraðir þú „Ég hef þegar sett í gang
vinnu við innleiðingu þjónustustýringar
í heilbrigðiskerfinu þar sem
heilsugæslan mun gegna lykilhlutverki.
Allar upplýsingar sem mér hafa borist
benda til að þær stöðvar sem þú nefnir
skili góðu verki.“ En hvenær mega
borgarbúar búast við því að þeirri
innleiðingu ljúki og borgarbúar geti
búið við sómasamlega heilsugæslu?
Kristján Þór Júlíusson Það mun
taka nokkurn tíma í ljósi umfangs
verkefnisins að innleiða þær
breytingar sem þar um ræðir og
eflaust eiga eftir að koma upp
einhver viðfangsefni sem nálgast
þarf með öðrum hætti en ráðgert
var. Ég sé það fyrir mér að þetta
verði unnið í nokkrum áföngum í
sem bestu samstarfi við starfsfólk
heilbrigðiskerfisins og notendur.
Vonandi sjáum við einhvern árangur
af þessu starfi þegar á næsta ári.
Vil þó taka fram að ég tel okkur búa
við góða heilsugæslu þó vissulega
megi víða gera betur
Eymundur Eymundsson Sælir
Kristján. Nú er mikið talað um
geðraskanir og að það þurfi
miklar úrbætur. Nú var ég í Hugarafli í
Reykjavík þar sem ég fékk mikla hjálp
við mínum geðröskunum og minnkaði
lyf mikið. Nú er ég fluttur norður og við
erum að fara opna sambærilegt dæmi.
Myndir þú getað hugsað þér að
heilsugæslan kæmi þar inn? Þetta
myndi hjálpa fjölskyldum mikið og
einstaklingnum þar sem er farið
forgangsraða á geðdeildinni. Er ríkið til í
að koma þarna inn til að létta á kerfinu ?
Kristján Þór Júlíusson
Óska þér hamingju og allra heilla
fyrir norðan Eymundur. Þetta er góð
hugmynd sem ég tel fyllilega þess virði
að skoða í samstarfi heilsugæslu og
félagsþjónustu sveitarfélagsins.
Ráðherra heilbrigðismála var spurður um starfskjör heilbrigðisstarfsfólks og lokanir stofnana á Beinni línu á fimmtudag.
Einkavæðing ekki á dagskrá
Nafn: Kristján Þór Júlíusson
Aldur: 56 ára
Menntun: Stúdentspróf frá
MA, Skipstjórnarpróf (1. og
2. stig), nám í íslensku og
almennum bókmenntun við HÍ
og kennsluréttindapróf frá HÍ.
Staða: Heilbrigðisráðherra