Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2013, Page 27
Fólk 27Helgarblað 30. ágúst–1. september 2013
B
laðamaður mælir sér mót
við Hjört Hjartarson á kulda
legum og gráum rigningar
degi. Haustið er farið að
minna óþarflega mikið á sig
þrátt fyrir að enn sé ágúst. Veðrið
virðist þó ekki hafa hlaupið í skapið
á Hirti sem birtist glaðlegur skömmu
eftir að blaðamaður hefur fengið sér
sæti á kaffihúsi í miðborginni. Hann
er strákslegur í fasi og léttur á fæti.
Töluvert unglegri en fæðingarárið
segir til um. Hjörtur fær sér kaffi og
kemur sér vel fyrir áður en við hefj
um spjallið.
Hann er fæddur á Akranesi árið
1974 og þrátt fyrir að hafa búið fyrstu
fjögur árin á Ísafirði þá lítur hann á
sig sem Skagamann í húð og hár, og
er stoltur af upprunanum. „Mamma
og hennar fjölskylda eru reyndar frá
Akureyri þannig það er smá Akur
eyringur í mér, en ekki mikill. Fyrst
og síðast er ég Akurnesingur,“ segir
hann og brosir.
Hjörtur byrjaði ungur að spila
fótbolta eins og Skagastrákar gera
gjarnan. „Þetta gerist þarna uppi á
Skaga. Annaðhvort ertu í fótbolt
anum eða þú ert ekkert inni í sam
félaginu. Maður á engra kosta völ.“
Framtíð Hjartar var því að
ákveðnu leyti ráðin á Merkurtúninu
og niðri á Langasandi þar sem hann
byrjaði að sparka í tuðruna með vin
um sínum.
Kynntist ungur alkóhólisma
Þrátt fyrir að ákveðin vandamál hafi
verið heima fyrir hjá Hirti þegar
hann var barn, telur hann sig hafa átt
ágæta og nokkuð hefðbundna barn
æsku.
„Það var misnotkun á áfengi á
mínu heimili þegar ég var barn og
það litaði æsku mína vissulega. Það
fylgdu þessu mörg vandamál sem
ég þurfti að eiga við frá unga aldri og
eitthvað fram eftir. Foreldrar mínir
eru edrú í dag. Móðir mín er búin
að vera edrú í yfir 20 ár og pabbi er
í mjög góðum málum líka. Þau eru
bæði yndislegt fólk sem glímdi við
þetta vandamál um tíma. Þau gerðu
sitt besta og það er gott samband á
milli okkar allra í fjölskyldunni í dag.“
Hjörtur telur að ástandið á heim
ili hans í barnæsku hafi haft ein
hver áhrif á hann á fullorðinsárum
en hann hefur þó reynt að vinna úr
reynslu sinni eftir bestu getu. „En
eins allir og þeir sem alast upp við
alkóhólisma þekkja, þá eru margir
fylgifiskar sem maður hefði viljað
vera án.“
Hjörtur segir foreldra sína þó hafa
passað sérstaklega vel upp á hann,
enda var hann yngstur af þremur
systkinum þangað til hann var 16
ára. En þá kom yngsti bróðir hans í
heiminn. Hann telur sig hafa verið
frekar þægilegan ungling og var
aldrei með neitt vesen. „Minn vina
hópur átti aldrei neinar magnaðar
fylleríissögur. Þetta var nokkuð hefð
bundið hjá okkur.“ Hann viðurkennir
þó hlæjandi að það séu komin 20 ár
síðan hann var unglingur og því hafi
kannski eitthvað skolast til í minn
inu.
Varð óvænt pabbi 19 ára
Hjörtur var þó ekki alveg hinn hefð
bundni unglingur því 19 ára eign
aðist hann sitt fyrsta barn. „Það var
frekar óvænt, en maður reyndi eftir
bestu getu að tækla það. Það er fullt
af fólki sem eignast barn á þessum
aldri og tekur á því á þroskaðan hátt.
En þegar ég lít til baka þá finnst mér
ég hafa verið sérstaklega óþroskað
ur til að taka á þessu og vinna með
þetta.“ Hjörtur og barnsmóðir hans,
sem er jafngömul honum, gerðu þó
sitt besta í ala upp dóttur sína og
voru saman í þrettán ár.
„Eldri dóttir mín verður tvítug í
september og við erum mjög góð
ir vinir. Það er gott samband á milli
okkar, hún er algjört æði og stendur
sig rosalega vel í öllu sem hún gerir.
Hún er klár og skemmtileg hugs
andi manneskja. Þetta fór því allt
mjög vel.“ Hjörtur segist njóta þess
að fylgjast með dóttur sinni verða
að fullorðinni manneskju og það fer
ekki á milli mála að hann fyllist stolti
þegar hann ræðir um hana.
Hjörtur á svo aðra dóttur sem er
þriggja og hálfs árs og segir mjög
gaman að bera það saman að verða
pabbi 19 ára og svo á fullorðinsárum.
„Þetta er svo allt öðruvísi upplifun.
Maður kann að meta þetta á annan
hátt. Hún er líka ótrúlega kát og
skemmtileg, alltaf í góðu skapi og
sér ekki sólina fyrir systur sinni. Al
gjör dásemd.“ Hann viðurkennir að
hann fái hálfgert samviskubit yfir
því að hafa ekki vitað það sem hann
veit núna þegar hann átti eldri dóttur
sína.
Draumurinn rættist í boltanum
Hjörtur lét barneignir á unglingsaldri
þó ekki aftra sér frá því að spila fót
bolta. Blaðamann leikur forvitni á að
vita hvernig fótboltaferillinn þróaðist
úr saklausum boltaleik á Merkurtún
inu yfir í alvöru keppni í meistara
deildinni.
„Það er ótrúlega merkilegt að ég
sé búin að vera að spila í meistara
flokki í næstum tuttugu ár því ég
hef enga stórkostlega hæfileika í fót
bolta,“ segir Hjörtur hreinskilinn og
hlær.
Hann var eiginlega hættur að
spila fótbolta þegar hann var 19 ára,
en þegar hann var tvítugur hafði
þjálfari Skallagríms í Borgarnesi
samband við hann og vildi fá hann
í liðið. Hjörtur sló til og hefur spilað
síðan.
Árið 2000 rættist svo draumur
hans þegar Ólafur Þórðarson, þjálf
ari ÍA, hafði samband við hann og
bauð honum að spila með uppeldis
liðinu. „Ég hafði sosum takmarkað
ar væntingar um að ég myndi slá í
gegn með liðinu, en það gekk von
um framar. Við urðum tvisvar bikar
meistarar og Íslandsmeistarar 2001,
þar sem ég náði því að vera marka
kóngur. Miðað við fótboltamann
sem er alls ekki nógu góður til að
vera í landsliðinu eða atvinnumaður,
þá hef ég upplifað draum hvers fót
boltamanns á Íslandi. Að vera í lykil
hlutverki í Íslandsmeistaraliði upp
eldisfélags síns.“
Titillinn steig liðinu til höfuðs
Hjörtur segist ennþá fá gæsahúð
þegar hann hugsar um þennan
tíma, þegar Íslandsmeistararnir
komu heim frá Vestmannaeyjum
með bikarinn í farteskinu. „Þetta
var ein af mínum yndislegustu
stundum í lífinu.“ Hann viður
kennir að titillinn hafi stigið
liðinu aðeins til höfuðs og náðu
það ekki að fylgja ár
angrinum eftir.
Hjörtur er hvergi
hættur að spila fót
bolta þó hann sé að
verða 39 ára. Boltinn er
stór hluti af lífi hans og
hann hefur ástríðu fyrir
leiknum. „Ég nýt þess
enn þann dag í dag að
spila fótbolta. Ég er í
ágætisformi og get eitt
hvað. En með hverju ár
inu sem líður þá styttist
í að maður hætti þessu.
Á meðan einhver telur
sig hafa not fyrir mann
og maður hefur gam
an af þessu þá heldur
maður áfram. Svo þegar
maður hættir þá er
maður bara hættur. Með
mína hæfileika þá tel ég
mig hafa blóðmjólkað
allt sem hægt er að gera
úr þessum ferli.“
90 sekúndna atvinnuviðtal
Fótboltinn opnaði líka dyr fyrir Hjört
utan landsteinanna, en hann komst
á skólastyrk inn í háskóla í Alabama
þar sem hann nam stjórnmálafræði
og spilaði fótbolta í fjögur ár. Tvisvar
sinnum var hann valinn besti leik
maðurinn í bandaríska háskólabolt
anum og það var mikil upphefð fyrir
hann.
Á þessum tíma var Hjörtur kom
inn með fjölmiðlabakteríuna í blóð
ið eftir að hafa starfað stuttlega á
Skessuhorni áður en hann fór út.
Skömmu eftir að hann kom heim úr
námi, haustið 2007, reyndi hann því
fyrir sér á RÚV. Hann var þó ekkert
sérstaklega spenntur fyrir íþrótta
deildinni í fyrstu, sá ekki fyrir sér
hann myndi starfa sem íþrótta
fréttamaður. En Hrafnkell Kristjáns
son heitinn, sem þá var yfir íþrótta
deildinni á RÚV, fannst Hjörtur
greinilega fæddur í starfið. „Ég held
ég sé ekki að ýkja, hann sagði já
eftir 90 sekúndur.“ Mánuði síðar var
Hjörtur kominn í fullt starf hjá stofn
uninni og fann sig mjög vel frá fyrsta
degi.
Frétti af andláti
Hrafnkels á Facebook
Hjörtur og Hrafnkell urðu góðir
vinir og fóru meðal annars saman
á Evrópumót kvenna í fótbolta sem
haldið var í Finnlandi haustið 2009.
Þar styrktust vinaböndin enn frekar.
„Með okkur Kela mynduðust með
sterkari vinaböndum sem ég hef
eignast á fullorðinsárum.“ Hjörtur
á erfitt með að beygja ekki af þegar
hann talar um Kela sem lést eft
ir hörmulegt bílslys á jóladag 2009.
Hann tekur sér smá hlé og heldur
svo áfram. „Það tók rosalega á mig
og var mjög erfitt. Hann dó viku eftir
að hann lenti í slysinu en ég trúði því
aldrei að hann myndi fara. Ég vissi
auðvitað að hann var illa slasaður
en ég trúði því að hann myndi hafa
þetta af. Það hvarflaði ekki að mér að
þetta færi svona.“
Á jóladag kom hins vegar harma
fregnin. Hjörtur frétti fyrst af and
láti vinar síns á Facebook, en
Ýmislegt hefur gengið á í lífi Hjartar Hjartarsonar síðustu tvö árin. Hann var
rekinn nánast fyrirvaralaust af RÚV eftir að samstarfsfélagi hans kærði hann
fyrir líkamsárás. Sú kæra var dregin til baka skömmu síðar, en Hjörtur átti ekki
afturkvæmt á RÚV. Brottreksturinn var honum mikið áfall og við tók erfiður tími
þar sem hann gekk í gegnum mikla sjálfsskoðun. Hann náði að vinna sig upp
úr erfiðleikunum með hjálp góðra vina og fagaðila og hefur snúið aftur á sjón-
varpsskjáinn, nú sem fréttamaður á Stöð 2. Hann kann mjög vel við sig á nýjum
stað og er þakklátur fyrir að hafa fengið annað tækifæri. Blaðamaður settist
niður með Hirti og ræddi um brottreksturinn af RÚV, nýjan starfsvettvang, fót-
boltaferilinn, sorgina, sigrana og sjálfsskoðunina sem stendur enn yfir.
einhver alveg ótengdur Hrafnkeli
hafði sett inn stöðuuppfærslu
um að hann væri farinn. Þá hafði
enginn af vinnufélögunum heyrt að
hann væri látinn, en staðfestingin
kom skömmu síðar. „Það var ótrú
lega vont að sitja einn við tölvuna
og fá þetta svona.“ Verst finnst Hirti
hins vegar að fjölskylda Hrafnkels
hafi ekki fengið tækifæri til að syrgja
hann í einrúmi áður en andlátið
varð opinbert.
Eignaðist dóttur rétt
fyrir jarðarförina
Hrafnkell var jarðsunginn þann 5.
janúar 2010, en yngri dóttir Hjartar
fæddist 2. janúar. „Það var rosalega
mikið af tilfinningum sem börðust
um í mér. Ég var með þriggja daga
gamalt barn heima, með alla þá
gleði og hamingju sem fylgir því, og
svo var ég að kveðja ungan, góðan
vin á sama tíma. Þetta var allt alveg
ferlega sorglegt. Ég er mjög sorg
mæddur að hafa misst hann en á
sama tíma þakklátur fyrir að hafa
kynnst honum. Og þakklátur fyrir að
hann hafði trú á mér á sínum tíma.“
Andlát Hrafnkels ýfði líka upp
gömul sár hjá Hirti, en þegar hann
var um tvítugt létust tveir góðir vin
ir hans úr veikindum með árs milli
bili. Hann hafði því kynnst sorginni,
sem skall aftur á honum við andlát
Hrafnkels.
Hjörtur segir alla stofnunina,
RÚV, hafa verið hálflamaða eft
ir þennan atburð, en lífið hafi auð
vitað haldið áfram og þeim hafi
tekist að finna taktinn aftur.
Vel liðinn á RÚV
Eins og fram hefur komið kunni
Hjörtur vel við sig hjá RÚV. Honum
þótti starfið í raun svo skemmtilegt
hann tímdi varla að fara í sumar
frí. „Ef ég var ekki að spila fótbolta
eða leika við dætur mínar þá vildi
ég helst bara vera í vinnunni. Það
var aldrei kvöð að mæta í vinnuna
og þetta var algjört draumastarf.“
Smám saman fór hann að spila
stærra hlutverk hjá íþróttadeildinni
og var kominn í ábyrgðarstöðu áður
en hann vissi af. Kom
með hugmyndir sem
féllu í góðan jarðveg og
var vel liðinn af vinnufé
lögunum. „RÚV er frábær
vinnustaður, mjög lifandi
og skemmtilegur. Upp
fullur af hæfileikaríku
og gáfuðu fólki. Það var
mjög gefandi að vinna
þarna.“
Skyndilegur brott
rekstur af RÚV í upphafi
árs 2012 varð Hirti því
mikið áfall. Gerðist það
í kjölfar atviks sem átti
sér stað á Grand Hótel
eftir kynningu á íþrótta
manni ársins. Ósætti
varð á milli Hjartar og
samstarfskonu hans á
íþróttadeild RÚV sem
leiddi til þess að hann
var kærður fyrir líkams
árás. Kæran var hins vegar dregin til
baka skömmu síðar.
Rekinn nánast fyrirvaralaust
„Fyrstu viðbrögð mín þegar mér var
sagt upp voru að vera sár og bitur.
Ég bölvaði óréttlæti heimsins og
vorkenndi mér mjög mikið,“ segir
Hjörtur sem hefur einsett sér að tala
ekki um atvikið sjálft.
„Ég mun aldrei verða sáttur við
hvernig RÚV tók á þessu máli. Tíu
tímum eftir að þessi atburður átti sér
stað kölluðu Kristín Hálfdánardóttir,
yfirmaður íþróttadeildar RÚV, og
starfsmannastjóri mig á sinn fund.
Þar var sagt við mig að í ljósi þess
sem gerðist kvöldið áður hefði ver
ið ákveðið að rifta ráðningarsamn
ingi mínum og að lögfræðingur
fyrirtækisins væri samþykkur þessu.
Þær voru klárar með uppsagnar
bréfið sem ég átti að skrifa undir.
Þetta kom mér hreinlega í opna
skjöldu og ég trúði ekki að þetta
væri að gerast.“ Hjörtur spurði hvort
hann fengi ekki tækifæri til að bera
hönd fyrir höfuð sér og gerði það þó
að ekki væri eftir því leitað. Hann
fékk það í gegn að málið yrði skoð
að betur. „Tveimur dögum síðar var
svo hringt í mig og mér tilkynnt að
það yrði staðið við fyrri ákvörðun.
Ég var aldrei boðaður á neinn fund
til að ræða þetta. Ég reyndi ítrekað
að hafa samband við yfirmenn RÚV
þessa helgi en skilaboðum mínum
var ekki svarað.“ Sama dag og
Hjörtur fékk símtalið fór hann upp á
RÚV þar sem uppsagnarbréfið beið
undirritunar hans. „Mér var tjáð að
ég ætti ekki afturkvæmt á RÚV og ég
skrifaði undir þetta bréf. Og þar lauk
mínum afskiptum af RÚV.“
Þjáðist af sjálfseyðingarhvöt
Eftir þetta tók við erfitt tímabil í
lífi Hjartar og það tók hann marga
mánuði að jafna sig. Hann segist
lengi hafa barnalega haldið í von
ina um að hægt væri að leysa mál
ið og að hann gæti snúið aftur til
starfa á RÚV. Hann vildi því ekki tjá
sig um málið í fjölmiðlum. Taldi að
það myndi myndi gera illt verra.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Viðtal „Á meðan
fólkið sem
skiptir mig máli
hefur trú á mér
og þykir vænt
um mig, þá er
ég sáttur
Lítill Hjörtur Lítur á sig sem Skagamann í húð
og hár þrátt fyrir að
hafa búið fyrstu fjögur árin á Ísafirði.
Dæturnar Hjörtur eignaðist eldri dóttur sína, Herdísi Björk, þegar hann var 19 ára. Sú yngri, Málfríður Inga, er þriggja og hálfs árs.