Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2013, Page 34
34 30. ágúst–1. september 2013 Helgarblað
pitbull-hundum var bjargað frá grimmilegum örlögum í Alabama og
Georgíu í Bandaríkjunum í byrjun vikunnar. Lögreglan réðst til atlögu við staði þar sem
stunduð voru ólögleg veðmál og var hundunum ætlað að berjast upp á líf og dauða, ef
ekki vildi betur. Tólf manns voru handteknir í aðgerðunum og bíður þeirra væntanlega að
svara til saka fyrir gjörðir sínar.367
T
imothy W. Spencer var
bandarískur raðmorðingi.
Á haustmánuðum og fram í
desember árið 1987 nauðg-
aði hann og myrti fjór-
ar konur í Richmond í Virginíu í
Bandaríkjunum. Reyndar hafði
hann framið eitt morð árið 1984 en
vegir réttvísinnar eru órannsakan-
legir og David nokkur Vasquez var
sakfelldur fyrir það og dvaldi á bak
við lás og slá í fimm ár fyrir vikið.
Þeim dómi var snúið árið 1989 og
segir ekki meira af því.
Timothy var hins vegar þess
heiðurs aðnjótandi að vera fyrstur
manna sakfelldur á grundvelli
DNA-sýna í Virginíu. Má með
nokkurri fullvissu telja að honum
hafi lítt hugnast sá heiður.
Fjórir mánuðir
Fyrsta fórnarlamb Timothy þessa
síðustu mánuði ársins 1987 var 35
ára kona, Debbie Dudley Davis.
Lík hennar fannst í íbúð henn-
ar í september, nakið á rúminu og
hafði Timothy nauðgað henni og
síðan kyrkt.
Tveimur vikum síðar fannst dr.
Susan Hellam látin í sinni íbúð.
Hún var klæðlítil og hafði verið
troðið inn í fataskáp og hafði verið
kefluð áður en hún hlaut sömu
örlög og Debbie.
Hinn 22. nóvember fannst
þriðja fórnarlamb Timothy. Þar
var um að ræða táningsstúlku,
Diane Cho, sem bjó rétt fyrir utan
Richmond og fannst lík hennar í
íbúð hennar. Enn og aftur hafði
sömu aðferð verið beitt – henni
hafði verið nauðgað og síðan kyrkt.
Síðasta fórnarlamb Timothy var
Susan Tucker, 44 ára. Tilkynnt hafði
verið um hvarf hennar í desember
og viku síðar fannst lík hennar á
heimili hennar. Rannsóknarlög-
reglan taldi ekki, í ljósi áverkanna,
leika vafa á að um sama morðingja
væri að ræða og í hinum þremur
morðunum. Morðinginn var þegar
þarna var komið við sögu nefndur
„Southside Strangler“ í pressunni.
Ný tækni kemur til sögunnar
Eftir að lík Susan fannst tók leitin
að morðingjanum nýja stefnu – um
stund. Einn og sama daginn – 16.
janúar 1988 – fundust tvö lík til við-
bótar. Rena Chapouris og Michael
St. Hilaire.
Upphaflega taldi lögreglan að
Southside Strangler bæri ábyrgð
á dauða þeirra, en komst að þeirri
niðurstöðu að lokum að sú væri
ekki raunin – Renu hafði ekki verið
nauðgað og Michael hafði framið
sjálfsmorð.
Síðar í janúar bárust böndin að
Timothy og hann var handtekinn
og ákærður fyrir morðið á Susan
Tucker. Innan skamms sýndu DNA-
sýni að hann tengdist morðunum
á Debbie Davis og Morð Hellam
og einnig var hægt að tengja hann
við morðið á Diane Cho. DNA-
sýni tengdi hann síðar við morðið
á Carol Hamm, morð sem David
Vaquez hafði fyrr meir verið sak-
felldur fyrir.
Dómur þyngdur
Fyrstu réttarhöldin yfir Timothy
Spencer fóru fram í júlí árið 1988. Í
þeim var réttað yfir honum vegna
morðsins á Susan Tucker og á grund-
velli DNA-sýna var hann sakfelldur
og dæmdur til lífstíðarfangelsisvistar.
Í röð réttarhalda árin 1988 og
1989 var Timothy sekur fund-
inn um að hafa nauðgað og myrt
Debbie Davis, Diane Cho og Susan
Hellam. Dómurinn var dauðadóm-
ur og var honum fullnægt 27. apríl,
1994. Segir ekki meira af Timothy
W. Spencer. n
n Timothy Spencer kyrkti fórnarlömb sín n Myrti fimm konur
Féll á DNA-sýNi
Uppskar sem hann sáði
Timothy þurfti ekki að kemba
hærurnar.
„Morðinginn var
þegar þarna var
komið við sögu nefnd-
ur „Southside Strangler“ í
pressunni.
Ól son og myrti
á salerni
Amanda Catherine Hein, 26 ára
bandarísk kona frá Pennsylvaníu,
hefur verið ákærð fyrir að hafa
myrt nýfæddan son sinn. Sam-
kvæmt ákæruatriðum fæddi Am-
anda barnið, þann 18. ágúst, inni
á salerni á sportbar, Starters Pub
í Bethlehem, í um 50 kílómetra
fjarlægð frá Fíladelfíu, og setti það
síðan í plastpoka. Plastpokanum
tróð hún síðan ofan í vatnskassa
klósetts.
Að því loknu kom hún sér mak-
indalega fyrir inni á barnum og
hélt áfram að fylgjast með glímu
sem sýnd var þar í sjónvarpinu.
Næsta morgun fann hreingern-
ingarfólk lík hins nýfædda drengs.
Rannsókn á málinu leiddi í ljós að
Amanda hafði verið gengin 33–36
vikur þannig að ekki voru nema
fjórar vikur, kannski rúmlega, eft-
ir af hefðbundinn meðgöngu.
Ljóst er að ekki var um andvana
fæðingu að ræða og ekkert því
til fyrirstöðu að drengnum hefði
orðið lífs auðið ef hann hefði feng-
ið tækifæri.
Að sögn saksóknara var Am-
anda í félagsskap fleira fólks á
barnum og hafði kvartað yfir bak-
verkjum rétt áður en hún brá sér
á salernið. Einn maður bar að
Amanda hefði verið drjúga stund
á salerninu og hafi fljótlega eft-
ir að hún kom aftur tekið hand-
tösku sína og brugðið sér út fyrir
til að reykja. Maðurinn tók eftir því
að henni hafði blætt og bauðst til
að koma henni á sjúkrahús. Am-
anda afþakkaði gott boð á þeim
forsendum að hún hefði enga
sjúkratryggingu og urðu málalykt-
ir þær að henni var komið til síns
heima. Að sögn Amöndu var eng-
um kunnugt um þungun hennar
eða að hún hefði fætt barn á sal-
erninu.
Á sjúkrahúsum í Pennsylvaníu
er tekið á móti nýfæddum börn-
um sem komið er með og einskis
spurt ef svo ber undir.
Amanda verður í varðhaldi þar
til réttað verður yfir henni og var
henni ekki gefinn kostur á frelsi
gegn greiðslu tryggingar.
Fórnarlömb Susan Hellam,
Debbie Dudley Davis og Diane Cho.
Vanilla, ekki
karamella
Tuttugu og sjö ára karlmaður er
bak við lás og slá eftir að hann
réðst á starfsmann kleinuhringja-
og kaffistaðarins Dunkin‘ Donuts
í Flórída á dögunum. Maðurinn
hafði stöðvað við bílalúgu staðar-
ins og pantað kaffi með vanillu-
sírópi. Þegar kaffið barst áttaði
maðurinn sig á því að í kaffinu var
karamellusíróp. Maðurinn, Jeffrey
Wright, brást ókvæða við og lét
höggin dynja á starfsmanninum
sem átti sér einskis ills von.