Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2013, Page 46
46 Bílar 30. ágúst–1. september 2013 Helgarblað
Cadillac ATS
-V Túrbo
Caddilac ATS hefur hingað til ver-
ið talinn einn helsti keppinautur
BMW 3-seríunnar í Bandaríkjun-
um. Nú er von á flottri uppfærslu
í þennan bíl þar sem 3.6 lítra V6-
vélin sem hingað til hefur skilað
321 hestafli fæst núna með tveim-
ur túrbínum. Eftir þær breytingar
verður þessi bíll orðinn 420 hest-
öfl í standardútgáfu og skilar togi
upp á 430.
GM lætur ekki staðar numið
þar því einnig mun bætast í hann,
frá og með 2014, sex gíra bein-
skipting sem ekki hefur verið
fáanleg hingað til. Það verður
spennandi að sjá þessum fák
reynsluekið og ljóst að BMW-
þristurinn má vara sig þegar þessir
bílar verða bornir saman.
1.750 hestöfl í
nýjum ofurbíl
Nýjasti ofurbíllinn á markaðn-
um, Laraki Epitome, er í raun
og veru 1.750 hestafla Corvetta
með breyttu boddíi. Þessi bíll
mun kosta tvær milljónir dollara
í Bandaríkjunum og ætti því
með gjöldum hér á landi að
detta á númer á Íslandi fyrir um
500 milljónir, ef einhver hefur
áhuga. Hönnuður þessa bíls er
Abdesslam Laraki en hann not-
ar C6 Corvettu-undirvagn og 7
lítra LS7-mótorinn sem grunn í
bílinn.
Í venjulegum akstri er bíllinn
„bara“ 1.200 hestöfl og gengur
á venjulegu bensíni en með því
að smella einum rofa er hann
kominn á varatank sem fylltur er
með 110 oktana bensíni, bústið í
túrbínunum er aukið og niður-
staðan er 1.750 hestafla götubíll.
Betri Silverado
Í bílaheiminum eru ekki til
tryggari viðskiptavinir en pall-
bílaeigendur. Þeir taka jafnan
ástfóstri við bíla sína og nær
undantekningarlaust hengja sig
á þá tegund sem þeim þykir best.
Þetta eru hollustu viðskiptavinir
bílarisanna þriggja; Ford, Chev-
rolet og Dodge.
Nú hyggst Chevrolet setja á
markað mikið bættan Chevrolet
Silverado 1.500 fyrir viðskiptavini
sína en þeir eiga í dag, á eftir Ford
F-150, annan vinsælasta pöllung
sem framleiddur er í heiminum.
Nýi Chevy-trukkurinn fær upp-
færslu á mótor frá fyrra módeli,
nýtt boddí og á að vera mun
„þægilegri“ í notkun en forveri
sinn sem þó hefur reynst mjög
vel. Ein helsta framför GM með
þessa Silverado-bíla mun vera
nýtt tölvukerfi fyrir mótorana en
í langkeyrslu munu allir mótorar
einungis ganga á fjórum sýlinder-
um til þess að spara eldsneyti.
C
hevrolet Cruze hefur verið
fáanlegur hér á landi í
nokkurn tíma en nú er kom-
inn „station“-útgáfa af bíln-
um. „Station“-bíllinn sam-
svarar sér vel en það er ekki algilt
að smærri bílar haldi sjarma sínum
í slíkri útgáfu. Þessi er meira segja
bara nokkuð rennilegur. Cruze fær
þrátt fyrir breytingarnar fimm stjörn-
ur í árekstrarprófunum Euro NCAP,
European Car Assessment Program,
og er hann jafnframt fyrsti fólksbíl-
inn sem hefur náð þeim árangri, í
báðum flokkum, síðan Euro NCAP
hóf árekstursprófun árið 1997.
Vel útbúinn
Staðalbúnaður í bílnum er mikill og
mun meiri en fæst í sambæri legum
bílum sem flestir kosta þónokkuð
meira. Hann er mjög rúmgóð-
ur að innan og innréttingin skír-
skotar vel til ytra útlits bíls-
ins. Farangursrýmið er í
minni kantinum miðað við
„station“-bíl en skottið hef-
ur þann kost að gólfið í því er
slétt við afturstuðara og auð-
velt er því að renna góssinu
þar inn.
Aftursæti má einnig fella
niður til þess að auka pláss-
ið en þau leggjast hins vegar
ekki alveg alla leið niður. Því
er ekki hægt að fá slétt rými
fram að framsætum eins og
í flestum öðrum bílum. Það
er rafmagn í flestöllum að-
alstillingum nema á sæt-
um en auðvelt er að stilla
þau handvirkt. Sætin í bíln-
um veita góðan stuðning
og við reynsluaksturinn
var ekki hægt að finna til
þreytu í líkamanum. Aft-
ursætin eru eins og oft ekki
eins íburðarmikil en þau rúma auð-
veldlega þrjá farþega. Hátt er til lofts,
meira segja fyrir fullsmíðaða einstak-
linga. Armpúði er á milli framsæta
en hann er mjög aftarlega og nýtist
því eiginlega ekki neitt, nema fyrir
geymsluhólfið sem er undir honum.
Vélbúnaður
Í Chevrolet Cruze Station Wagon er
hægt að velja um þrjár vélar; 1,6 lítra
bensínvél sem fæst bara í beinskiptri
útgáfu, 1,8 lítra bensínvél (eins og
er í bílnum sem var reynsluekið) og
þá bara með sjálfskiptingu. Að lok-
um má fá 2,0 lítra dísilvél sem
einnig fæst bara með sjálfskiptingu.
Dísilmótorinn er eins og hjá flest-
um framleiðendum í dag sá eyðslu-
grennsti en samkvæmt upplýsingum
frá framleiðanda notar vélin 5,9 lítra
af dísilolíu á hundraðið í blönduð-
um akstri. Uppgefnar eyðslutölur á
1,8 lítra mótornum sem var í bílnum
eru 7,2 lítrar á hundraðið en það er
svolítið langt frá því sem aksturstölva
bílsins gaf upp við reynsluakstur.
Þar sýndi hún aldrei undir 10 lítra á
hundraðið. Sjálfskiptingin sem í boði
er sex þrepa en afl bensínmótorsins
er fremur lítið og skiptingar því
oft ansi skrýtnar. Upplifunin er sú
að oft vanti afl eða tog til að taka við
næsta gír og því kemur vandræðalegt
hik í aksturinn. Þetta gæti þó verið
betra í dísilútgáfunni þar sem meira
afl er til staðar.
Mikið fyrir lítið
Þrátt fyrir upptalda galla og svolítið
af ódýru og veiklulegu plasti, sér í
lagi á geymsluhólfi fyrir ofan aksturs-
tölvu, þá er ekki hægt að einblína á
það sem ekki er eins og best verð-
ur á kosið í þessum bíl. Vissulega er
um að ræða góðan bíl af millistærð;
bíl í „station“-útgáfu með miklum
staðalbúnaði á rétt um þrjár milljón-
ir króna. Það er verð sem ekki er hægt
að finna á sambærilegum bíl hér á
landi. Því verður bíllinn heilt yfir að
teljast mjög góður fyrir peninginn.
Bíllinn fer vel með mann í akstri, er
flottur í útliti og endursala á nýju
Chevrolet-bílunum hefur verið mjög
góð – ásamt því að söluumboðið fyrir
Chevrolet er byggt upp frá grunni í
kringum bíladelluna og þjónustan
þar afburðagóð. Chevrolet Cruze
Station Wagon verður að því sögðu
að teljast ljómandi góður kostur fyrir
brúksbíl á góðu verði. n
Bílar
Björgvin Ólafsson
bilar@dv.is
Chevrolet Cruze
✘ Kostir: Verð, útlit og staðalbúnaður
✔ Gallar: Ódýrt plast, aksturstölva, leiðinlegar skiptingar
Eyðsla: 7,2 l/100 (blandaður akstur)
Hestöfl: 104
Gírar/þrep: 6 þrepa sjálfskipting
Árekstrarpróf: 71,3%
Verð: Frá 3.190 þús.
Sambærilegir bílar: Ford Focus, Toyota
Corolla, Kia Forte, Mazda 3
Umboðsaðili: Bílabúð Benna
ECOTECH mótorMeð þessum 104 hestafla 1,8 lítra mótor og sjálfskiptingu er elds-
neytisnotkun í blönduðum akstri uppgefin 7,2 lítrar á hundraðið.
Stílhrein innrétting Innréttingin er stílhrein og öll stjórntæki fyrir ökumann eru vel
uppsett. Svolítið er af ódýru plasti og armpúði milli sæta er mjög aftarlega.
Lítið pláss Þó hér sé Cruze í „station“-útgáfu er skottpláss fremur lítið miðað við aðra bíla. Gólfið er þó slétt við stuðara sem er gott, en aftursæti má einnig leggja niður til að auka plássið.
Flott útlit Chevrolet
Cruze Station Wagon
samsvarar sér vel. Myndir BÓ
Mikið fyrir lítið
n Chevrolet Cruze nú sem skutbíll n Ódýr og góður kostur