Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2013, Síða 53
Fólk 53Helgarblað 30. ágúst–1. september 2013
Þriggja ára brúðkaupsafmæli
n Jónína og Gunnar ástfangin í Póllandi
D
etox-drottningin Jónína Ben
og maður hennar Gunnar
Þorsteinsson, áður kennd-
ur við Krossinn, áttu þriggja
ára brúðkaupsafmæli í vik-
unni, ef marka má stöðuuppfær-
slu sem Jónína birti á Facebook-síðu
sinni. Þau eyddu brúðkaupsafmælis-
deginum í Póllandi þar sem Jónína
rekur fyrirtækið Nordichealth sem
sérhæfir sig í detox-meðferðum.
Þau rækta einnig trúna þar í landi,
enda ávallt í góðu sambandi við
Guð. „Við hlustuðum á frábært orð
í morgunsárið og erum endurnærð
innan um dásamlegt fólk sem gleður
okkur alla daga hér í Póllandi. Við eig-
um fjölskyldu og vini sem við elskum
og lífið getur ekki verið betra. Elsku
Gunnar Þorsteinsson takk fyrir ást
þína og Guð ég þakka þér hjónaband
okkar og hamingju,“ skrifaði Jónína á
Facebook-síðu sína í vikunni.
Jónína og Gunnar virðast því
halda upp á brúðkaupsafmælið sitt
oftar en einu sinni á ári því Jónína til-
kynnti það einnig á Facebook í mars
að þau hjónin ættu þriggja ára brúð-
kaupsafmæli.
Hjónin létu pússa sig saman í
laumi í mars 2010 og tilkynntu um
það á Facebook að athöfn lokinni.
Þau sögðu engum frá hjónavígsl-
unni, ekki einu sinni fjölskyldu sinni
og vinum. Þá höfðu þau aðeins verið
í sambandi í um hálft ár. Fyrst bár-
ust fregnir af sambandinu í október
2009, en þau neituðu í fyrstu. Þau
opinberuðu þó ást sína á Facebook
áður en langt um leið. n
Á
Menningarnótt fyrir tveimur
árum var einhver útlenskur
gaur sem sá okkur sándtékka
og tók það upp á símann
sinn. Svo var hann alltaf að
heyra lagið í útvarpinu meðan hann
var hér og á endanum sendi hann
það á vin sinn sem er dagskrárstjóri á
útvarpsstöð í Fíladelfíu og þeir byrj-
uðu að spila Little Talks,“ segir Brynj-
ar Leifsson, gítarleikari Of Monsters
and Men, í samtali við blaðamann.
„Það er frekar súrt að pæla í því
að ef við hefðum ekki spilað akkúrat
þessa tónleika hefði þetta kannski
ekki farið svona. Heppni er pottþétt
þáttur í velgengninni; að vera réttur
maður á réttum stað á réttum tíma,“
bætir Nanna Bryndís Hilmarsdóttir,
söngkona og gítarleikari sveitarinnar
við.
Hljómsveitin sló í gegn svo um
munaði fyrir einu og hálfu ári. 230
tónleikum og vel á fimmtu milljón
seldra smáskífulaga síðar, eru þau
komin aftur heim til Íslands til að
hlaða batteríin, leggja drög að nýrri
plötu og spila fyrir Íslendinga við
Vífilsstaði í Garðabæ á laugardags-
kvöld.
Húðflúraður texti
Þótt skífur Of Monsters and Men
hafi selst eins og strokkað smjör og
krakkarnir hafi að undanförnu gert
fátt annað en að ferðast þvers og
kruss um heiminn og komið fram á
jafnólíkum stöðum og Ástralíu, Jap-
an og Brasilíu, þá eru þeir með báða
fætur á jörðinni. Nanna Bryndís er
áhugaljósmyndari og hefur áhuga á
að bæta við sig þekkingu á því sviði
meðan Brynjar hefur verið að læra
flug og gæti vel hugsað sér að starfa
sem flugmaður.
Þau hafa samt dreypt á frægðinni.
„Við erum búin að hitta nokkur svona
„super-fans“. Það er svolítið skrítið.
Þau vita undarlega mikið um mann
og hafa kannski grafið upp myndir úr
einhverju partíi frá því ég var sextán
ára,“ segir Brynjar.
„Það kom stelpa upp að mér og bað
mig um að skrifa textabrot á hendina
á sér. Svo fékk ég senda ljósmynd þar
sem hún var búin að láta tattúera
það á hendina á sér. Það er vissulega
frekar spes að skrifa eitthvað á ein-
hvern sem verður þar að eilífu,“ segir
Nanna og bætir við: „Ég er að átta mig
á því núna að maður verður aðeins að
vera á varðbergi. Mér finnst til dæmis
ógeðslega gaman á Instagram og ég á
litla þriggja ára systur sem mig langar
stöðugt að mynda í bak og fyrir. En ég
er farin að fatta að kannski er það svo-
lítið skrítið að einhver John í Banda-
ríkjunum sé að fylgjast með henni
daginn út og inn.“
„Við erum alveg að lesa þetta“
En velgengninni fylgir líka neikvætt
umtal. „Ég las svolítið um okkur í
byrjun en ákvað að hætta því. Ef að
fólk segist ekki fíla tónlistina þá er
það í góðu lagi; mér finnst sjálfri fullt
af tónlist vera drasl. Það er þegar
hlutirnir verða persónulegir og hafa
ekkert með músík að gera sem ég tek
það nærri mér,“ segir Nanna.
Brynjar bætir við: „Ég sá einu
sinni blogg við einhverja frétt um
okkur þar sem einhver gæi hraun-
aði yfir okkur. Auðvitað má hann al-
veg hafa sína skoðun – en hann þarf
ekki að vera ljótur. Þetta er á netinu,
við erum alveg að lesa þetta.“
Of Monsters and Men stefnir á að
taka upp nýja plötu næsta sumar eða
haust. Er ekki ógnvekjandi að fylgja
eftir svo vinsælli plötu? „Ég held að
platan verði léleg ef maður stressar
sig á því. Við gerðum síðustu plötu af
algjöru sakleysi en svo varð hún að
einhverju sem okkur óraði ekki fyrir.
Okkur langar að halda í þetta sak-
leysi. Svo lengi sem maður gerir sitt
og fylgir eigin sannfæringu þá getur
maður verið sáttur,“ segir Nanna.
Meira rokk
Hvernig hljómar þá næsta plata?
„Við þykjumst allavega ætla að
leggja kassagítarana frá okkur. Allir í
bandinu eru búnir að kaupa sér raf-
magnsgítar!“ segir Nanna.
„Þetta verður bara „feedback!“,“
segir Brynjar og hlær. „Það er margt
búið að breytast í músíkinni. Það
er meira „overdrive“ í pedulunum.
Meira rokk.“ n
Hafa hitt nokkra
brjálaða aðdáendur
Útitónleikar
á laugardag
Útitónleikar Of Monsters and Men
verða haldnir við Vífilsstaði í Garðabæ.
Engin bílastæði verða á svæðinu en
strætó ekur reglulega án endurgjalds frá
Kauptúnssvæðinu (IKEA). Túnið verður
opnað kl. 17.00. Auk Of Monsters and
Men koma fram Hide Your Kids, Mugison
og Moses Hightower.
n Grafa upp gamlar partímyndir n „Langar að halda í þetta sakleysi“
Komin heim Hljómsveitin er búin að
vera á tónleikaferðalagi um heiminn.
Mynd Hörður SVeinSSon
Útitónleikar Verða haldnir við Vífilsstaði í
Garðabæ á laugardaginn.
Æfa göngu
fyrir keppnina
Keppnin Ungfrú Ísland fer fram
á Broadway þann 14. september
næstkomandi og eru stúlkurnar
í óðaönn að undirbúa sig undir
hana.
DV leit við á gönguæfingu hjá
stúlkunum í vikunni sem fór fram
í World Class í Laugum.
Keppnin sem hefur legið í
dvala undanfarin ár var gagnrýnd
snemma í sumar og skráði mikill
fjölda kvenna sig til keppni í mót-
mælaskyni. Þeirra á meðal voru
þær Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
þingkona Samfylkingarinnar,
Guðrúnu Jónsdóttir, forstöðukona
Stígamóta, og Hildur Lilliendahl.
Atli Bollason
skrifar ritstjorn@dv.is
„Heppni
er pott-
þétt þáttur í
velgengninni
Manuela
þrítug
„Ég átti mér persónulegt markmið
– að byrja í háskóla fyrir þrítugt.
Ég á þrítugsafmæli eftir þrjá daga
og er í þessum skrifuðu orðum,
á leiðinni á nýnemakynningu og
skólasetningu LHÍ. Áfram ég! Lífið
er gott krakkar,“ segir Manuela á
Facebook-síðu sinni, en Manuela
varð þrítug þann 29. ágúst. Manu-
ela, sem hefur haft mörg járn í
eldinum í gegnum tíðina, hefur
nú ákveðið að setjast á skólabekk
á ný og bæta háskólanámi í fata-
hönnun við þéttskipaða dag-
skrána.
Snekkjuferð á
Menningarnótt
Útvarpsstöðin K100 í samstarfi
við Vegamót bauð nokkrum
heppnum hlustendum í siglingu
á Menningarnótt þar sem að allt
var flæðandi í góðum veigum og
mikil stemming var á lúxussnekkj-
unni. Snekkjunni var siglt af stað
rétt fyrir klukkan 23.00 og hlé gert
á siglingunni á góðum útsýnisstað
til þess að gestirnir gætu notið
flugeldasýningarinnar. Plötusnúð-
ur og barþjónn voru á staðnum
til þess að sjá til þess að gestirn-
ir skemmtu sér í botn. Útvarps-
mennirnir Svavar Örn og Svali
létu sig ekki vanta á snekkjuna.
Gestirnir virtust vera afar glaðir
með vel heppnaða ferð þrátt fyrir
smá rigningu á Menningarnótt.
Ástfangin Jónína og Gunnar byrjuðu að vera saman á haustmánuðum 2009.
Mynd raKel ÓSK SiGurðardÓttir