Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Side 8
R ST ehf., eignarhaldsfélag Guðna Níelsar Aðalsteins­ sonar, fyrrverandi fram­ kvæmdastjóra fjárstýringar Kaupþings, hefur verið tek­ ið til gjaldþrotaskipta. Héraðsdóm­ ur Reykjaness setti félagið í gjaldþrot þann 12. september síðastliðinn. Skiptastjóri er Gizur Bergsteinsson. Gjaldþrot félagsins má rekja til lánafyrirgreiðslu sem það fékk frá bankanum vegna hlutabréfakaupa í honum. Félagið skuldaði vel á annan milljarð króna eftir hrunið 2008. Krafðir um nærri sjö milljarða Guðni Níels var einn af æðstu stjórn­ endum Kaupþings á árunum fyrir hrunið og fékk kúlulánið til hluta­ bréfakaupanna á þeim forsendum að verið væri að tengja hagsmuni hans og bankans saman. Slitastjórn Kaupþings hefur í nokkrum tilfellum höfðað mál á hendur fyrrverandi starfsmönn­ um bankans vegna kúlulánanna til starfsmanna sem urðu verðlaus þegar Kaupþing féll um haustið 2008. Slitastjórnin hefur yfirleitt haft bet­ ur í þeim málaferlum, meðal annars gegn eignarhaldsfélagi í eigu Ingvars Vilhjálmssonar, fyrrverandi fram­ kvæmdastjóra markaðsviðskipta hjá Kaupþingi, árið 2011 þegar hann var dæmdur til að greiða þrotabúinu 2,6 milljarða króna vegna slíks kúluláns. Samtals hafa fyrrverandi stjórn­ endur Kaupþings verið dæmdir til að greiða búinu um sjö milljarða króna vegna þessara lána. Meðal þeirra eru Sigurður Einarsson, Ingólfur Helga­ son og Magnús Guðmundsson. „Gífurleg skakkaföll“ Í ársreikningi RST ehf. fyrir árið 2011 kemur fram að tæplega 1.600 millj­ óna króna skuldir hafi verið afskrif­ aðar hjá eignarhaldsfélaginu. Af­ skriftin var bókfærð sem hagnaður, líkt og alltaf er gert þegar um slíkar afskriftir ræðir. Í skýrslu stjórnar fé­ lagsins segir: „Félagið hefur orðið fyrir gífurlegum skakkaföllum og er gjaldhæfi félagsins ekki til staðar.“ Út frá þessum ársreikningi að dæma var ljóst árið 2011 að fé­ lag Guðna Níelsar væri gjaldþrota. Stærsti lánardrottinn félagsins er væntanlega þrotabú Kaupþings. Starfaði í skilanefndinni Eftir íslenska efnahagshrunið 2008 settist Guðni Níels í skilanefnd Kaupþings þrátt fyrir að hafa verið einn af æðstu stjórnendum bank­ ans fram að hruni hans. Skipun hans í skilanefndina vakti mikla athygli á sínum tíma og endaði vera hans í nefndinni með því að Fjármála­ eftirlitið ákvað að víkja honum úr henni um sumarið 2008. Áður en Guðni Níels hætti sagði Vilhjálmur Bjarnason, núverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og lektor í Háskóla Íslands, að ekki væri við hæfi að fyrrverandi starfsmenn bankanna sem fengið höfðu kúlulán sætu í skilanefndunum. „Mér finnst alveg skelfilegt að þetta fólk sitji enn í skilanefndunum. Þetta er endaleysa … Þessir menn, sem stunduðu það að taka við þýfi, þeir eiga ekkert að koma nálægt þessu því þeir áttu þátt í að koma bönkunum í ógöngur. Þessi út­ deiling þarna til starfsmannanna var útdeiling á þýfi og þetta voru þjófs­ nautar sem tóku á móti þessum pen­ ingum. Það gengur ekki upp að hafa þetta fólk þarna inni.“ Fór til breska fjármálaeftirlitsins Eftir þetta fór Guðni Níels meðal annars til starfa hjá breska fjármála­ eftirlitinu FSA en í mars 2011 var hann handtekinn í rannsókn efnahags­ brotadeildar bresku lögreglunnar á Kaupþingi. DV sagði frá málinu á sín­ um tíma. Guðni hefur hins vegar ekki verið ákærður fyrir nein lögbrot hjá embætti sérstaks saksóknara, líkt og nokkrir fyrrverandi samstarfsmenn hans hjá Kaupþingi, til að mynda Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson. n 8 Fréttir 4.–6. október 2013 Helgarblað Neita að greina frá ástæðunni n Útibússtjóra Landsbankans á Patreksfirði sagt upp S taðgengill upplýsingafulltrúa Landsbankans, Kristjáns Kristjánssonar, neitar að gefa upp ástæðuna fyrir uppsögn útibússtjóra Landsbankans á Pat­ reksfirði. Líkt og DV greindi frá á miðvikudaginn var útibússtjóran­ um sagt upp með skömmum fyrir­ vara fyrir stuttu. Útibússtjórinn fyrrverandi, Jens­ ína Kristjánsdóttir, neitaði að tjá sig um ástæður uppsagnarinnar þegar DV hafði samband við hana á mið­ vikudaginn. Hún benti á upplýsinga­ fulltrúa bankans, Kristján Kristjáns­ son. „Ætli það sé ekki bara rétt að fjölmiðlafulltrúi bankans segi þér frá því. Það er best fyrir þig að tala við hann; ég held að það sé farsælast.“ Kristján er hins vegar staddur er­ lendis og hefur DV ekki náð í hann. Staðgengill Kristjáns á skrif­ stofu bankastjóra Landsbankans segir hins vegar að bankinn muni ekki gefa ástæðuna upp. Hún segir að „komist hafi verið að samkomu­ lagi um starfslok“ og lætur þar við sitja. Hún undirstrikar hins vegar að Kristjönu hafi ekki verið sagt upp sökum ætlaðs misferlis eða brota í starfi eða einhvers í þeim dúr. Lengra hefur DV ekki komist í því að grafast fyrir um ástæður uppsagnarinnar en upphaflega snerust ábendingarnar til blaðsins um það að útibúið hefði lánað út fjármuni til fiskeldis á sunnan­ verðum Vestfjörðum með óábyrg­ um hætti. Málið telst því óupplýst að þessu leyti. n ingi@dv.is Risagjaldþrot hjá Kaupþingsmanni n Skuldaði á annan milljarð n Starfaði í skilanefnd bankans Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Félagið hefur orðið fyrir gífurlegum skakkaföllum og er gjald- hæfi félagsins ekki til staðar. Gjaldþrot kúlulánafélags Félag Guðna Níelsar Aðalsteinssonar hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Gripin með kannabis eftir rifrildi Lögreglan á höfuðborgarsvæð­ inu var kölluð að fjölbýlishúsi í Breiðholti á tólfta tímanum á miðvikudagskvöld vegna hávaða sem barst úr einni íbúð hússins. Í dagbók lögreglu kemur fram að á vettvangi hafi par verið að ríf­ ast. Þegar lögreglumenn höfðu af þeim afskipti mætti þeim mikil kannabislykt og við leit í íbúðinni fundust fíkniefni. Málið var af­ greitt á vettvangi. Þá hafði lögregla afskipti af fjórum aðilum í Hafnarfirði síð­ ar sama kvöld, en allir höfðu þeir fíkniefni í fórum sínum Harmar lokun útibús á Akureyri Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjar­ stjóri á Akureyri, kveðst harma þá ákvörðun að loka eigi útibúi um­ boðsmanns skuldara á Akureyri. Greint var frá fyrirhugaðri lokun á mánudag og var hún sögð liður í hagræðingu og endurskipulagn­ ingu embættisins. Eiríkur segir að óhætt sé að fullyrða að mikil þörf sé fyrir emb­ ættið á Akureyri og Eyjafjarðar­ svæðinu, en að auki hafi starfs­ stöðin veitt einstaklingum og fjölskyldum í skuldavanda á Aust­ urlandi og annars staðar á Norð­ urlandi þjónustu. „Á Eyjafjarðarsvæðinu búa inn­ an við 8% þjóðarinnar en til úti­ búsins á Akureyri hafa þó borist um það bil 360 umsóknir […] sem er 12% af heildarumsóknum til stofnunarinnar á landsvísu. Stöðugildi hjá umboðsmanni skuldara hafa verið um 70 en fyrir­ hugað er að fækka þeim í 55. Fæ ég engan veginn séð hvers vegna skera þarf niður þau 2 stöðugildi sem verið hafa á Akureyri þar sem eftirspurn eftir þjónustunni er þó jafn mikil og raun ber vitni. Afar brýnt er að verja þau opinberu störf sem sinnt er á landsbyggð­ inni og skýtur skökku við að loka nú útibúinu á Akureyri sem þýð­ ir einvörðungu að leysa verður úr vanda þessara 12% umsækjenda frá skrifstofunni í Reykjavík,“ segir Eiríkur í tilkynningu til fjölmiðla. Líkfundur í Reykjavíkurhöfn Lík af konu fannst í Reykjavíkur­ höfn á fimmtudagsmorgun. Lögreglan varðist allra fregna af málinu þegar DV hafði sam­ band og sagði rannsókn málsins vera á frumstigi. Líkið mun hafa fundist í höfninni, við Miðbakk­ ann svokallaða. Ástæðan óljós Ástæðan fyrir uppsögn útibússtjóra Lands- bankans á Patreksfirði er ennþá óljós. Steinþór Pálsson er bankastjóri Landsbankans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.