Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Page 11
Fréttir 11Helgarblað 4.–6. október 2013
Nocria Arctic 14
Öfl ug varmadæla - japönsk gæði!
Loft í loft - Loft í vatn!
Heldur jöfnum hita við allar íslenskar aðstæður s
Sjálfvirk rakavörn, endurræsing og loftsíuhreinsun
Framleiðandi: Fujitsu General Kawasaki, Japan
Fujitsu er mun ódýrari
í rekstri en flestar aðrar tegundir varmadæla
Söluaðili á Íslandi
með sjö ára reynslu:
Stekkjarlundur ehf. - Sjá heimasíðu!
S í m a r : 6 9 5 2 0 9 1 / 8 9 4 4 3 0 2
www.stekk jar lundur.com • s tekk jar lundur@stekk jar lundur.com
V a r m a d æ l u r f r á F u j i t s u , P a n a s o n i c , M i t s u b i s h i o g T o s h i b a
B j ó ð u m u p p á V I S A o g M a s t e r c a r d r a ð g r e i ð s l u r
A
u
g
l.
S
ta
p
a
p
re
n
t ✦✦
8 ára
ábyrgð!
Lögreglan leitar
sambýlismanns
Þ
að er ekki búið að finna hann
en það er verið að leita að hon-
um. Lögreglan er að leita að
honum þannig að það er eitt-
hvað að gerast hjá þeim,“ segir
Berglind Ýr Aradóttir sem undanfarið
hefur verið ofsótt af þjóðþekktum fyrr-
verandi sambýlismanni sínum.
Hún sagði DV sögu sína í síð-
asta mánudagsblaði þar sem hún
greindi frá hótunum og andlegu of-
beldi mannsins auk þess sem hún
sagði frá því hvernig hann hefur birt
nektarmyndir af henni á netinu og
sent ókunnugum mönnum um allar
trissur. Berglind hafði áður leitað ár-
angurslaust til lögreglu vegna málsins
en nú virðist eitthvert skrið vera komið
á það mál. Yfirmaður hjá lögreglunni
vildi í samtali við DV ekkert gefa upp
um hvort leitað væri að manninum.
Berglind segir svo vera og kveðst hafa
verið í miklu sambandi við lögreglu-
menn undanfarna daga.
Hún segir að svo virð-
ist sem maðurinn hafi
látið sig hverfa af yfir-
borði jarðar því illa virð-
ist ganga að hafa uppi
á honum. Hann sé bú-
inn að loka Facebook-
síðunni sinni, símum
og öllum helstu sam-
skiptaleiðum.
En það hefur ekkert
lát orðið á áreiti og hót-
unum frá manninum.
Berglind kveðst hafa
síðast í gær fengið sím-
tal frá ókunnugum manni sem vildi
vita hvernig þau þekktust. Hún brást
illa við og benti honum á að hann
væri að hringja í hana. „Þá sagði hann:
„Mér finnst bara allt í lagi að ég fái að
vita af hverju þú ert að senda mér
nektarmyndir af þér og símanúmer-
ið þitt.“ Þá fór ég bara að
gráta.“ Berglind segir of-
sækjandann líka senda
heimilisfang hennar með
þessum skilaboðum.
„Þannig að það er bara
tímaspursmál hvenær
það kemur eitthvert ógeð
inn um dyrnar hjá mér því
mannskapurinn sem er að
fá þessi skilaboð er mjög
skrautlegur. Allt frá lista-
mönnum til lögfræðinga.“
Aðfaranótt miðviku-
dags barst blaðamanni
DV síðan lítt dulin hótun
frá nafnlausum aðila úr tölvupóst-
fanginu draumurdraums@gmail.com
vegna umfjöllunar um mál Berglind-
ar. Í tölvupóstinum var heimilisfang
blaðamanns birt með þeim skilaboð-
um að þeir myndu hittast þar. Sú hót-
un hefur verið tilkynnt til lögreglu. n
n Heldur áfram að ofsækja Berglindi n Blaðamanni DV hótað
Lögreglan komin í málið
Berglind segir lögregluna nú
leita mannsins en lögreglan
verst frétta af málinu. Eftir
umfjöllun DV barst blaða-
manni hótun. Mynd Sigtryggur Ari
30. september 2013
Landspítalinn Framlag til tækjakaupa á spítalanum verður lagt niður.
styrkingar á stjórnsýslu og stoð-
þjónustu skólans. Framlag til Land-
búnaðarháskóla Íslands lækkar um
24,2 milljónir, þar á meðal 10 millj-
óna króna tímabundið framlag sem
veitt var í fjárlögum þessa árs vegna
langvarandi rekstrarerfiðleika. Þá
lækkar framlag til Háskólans á Hól-
um um 35,8 milljónir króna og ber
þar helst að nefna niðurfellingu á 39
milljóna króna tímabundnu fram-
lagi vegna rekstrarerfiðleika.
Framlög til Háskólans á Bifröst
lækka mest, eða um 83,4 milljónir
króna, og vegur þar þyngst að fellt
verður niður 40 milljóna króna
tímabundið framlag vegna rekstrar-
erfiðleika. Þá lækkar framlag til Há-
skólans í Reykjavík um 43 milljónir
króna og framlag til Listaháskóla Ís-
lands um 9,2 milljónir. Loks verður
framlag til háskóla- og rannsóknar-
starfsemi lækkað um 58,3 milljónir
króna.
niðurskurður í
umhverfismálum
Stofnanir á sviði náttúruverndar
og umhverfismála eru ekki undan-
skildar niðurskurði samkvæmt fjár-
lagafrumvarpinu. Þannig er gert ráð
fyrir að fjárveiting til Umhverfis-
stofnunar, sem meðal annars beitir
sér fyrir verndun og sjálfbærri nýt-
ingu náttúruauðlinda, nemi 984,5
milljónum króna og lækki þar með
um 78,1 milljón frá fjárlögum þessa
árs. Þá verður 28 milljóna króna
tímabundið framlag vegna áætlun-
ar um vernd og nýtingu orkusvæða
fellt niður, sem og sex milljóna
króna tímabundið framlag vegna
nýrrar Náttúruverndaráætlunar fyrir
árin 2009 til 2013. n
fyrir óbreytt veiðigjald
n Draga hefði mátt úr niðurskurði ef veiðigjaldið hefði staðið n Hefði mátt kaupa ný tæki á LSH fimm sinnum
Óbærilegt fyrir
útgerðirnar
Sigurður Ingi
Jóhannsson,
sjávarútvegs- og
landbúnaðarráð-
herra, sagði að ef
veiðigjaldið yrði
ekki lækkað yrðu
rekstarskilyrði út-
gerðarfyrirtækja
óbærileg.
Þetta hefði mátt gera