Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Qupperneq 12
Útgerðirnar tóku
fimm milljarða arð
12 Fréttir 4.–6. október 2013 Helgarblað
Annþór og Börkur fá þunga dóma
n Sjö og sex ára fangelsi fyrir margvísleg ofbeldisbrot
H
æstiréttur Íslands staðfesti
á fimmtudag dóm Héraðs
dóms Reykjaness yfir Ann
þóri Kristjáni Karlssyni, Berki
Birgissyni og Sindra Kristjánssyni.
Annþór hlaut sjö ára óskilorðsbund
inn fangelsisdóm, Börkur sex ára
dóm og Sindri 20 mánaða.
Voru þremenningarnir sakfelldir
fyrir að hafa í félagi við aðra veist að
manni og þremur öðrum með marg
víslegu ofbeldi á heimili mannsins.
Taldi Hæstiréttur að þótt þáttur
hvers og eins yrði ekki nákvæmlega
aðgreindur væri ljóst að þeir hefðu
allir átt þátt í brotinu, hver með sín
um hætti og væru því allir aðalmenn
í því.
Annþór og Börkur voru að
auki sakfelldir fyrir að hafa í ann
að sinn farið inn í íbúð, barið þar
mann í höfuðið með trébarefli,
skipað öðrum að leggjast á gólfið
og þvingað þann þriðja til að kasta
þvagi yfir hann. Annþór og Börkur
reyndu síðan að kúga hálfa millj
ón króna úr þeim sem var bar
inn í hnakkann og hótuðu honum
frekara ofbeldi yrði hann ekki við
því.
Annþór og Börkur voru hins
vegar sýknaðir af ákæru um frelsis
sviptingu á mönnunum þremur.
Annþór var sakfelldur fyrir lík
amsárásir með því að hafa á til
tekinni sólbaðsstofu slegið mann
oftar en einu sinni í andlitið, tekið
hann hálstaki með þeim afleiðing
um að hann missti meðvitund og
slegið annan mann í andlitið með
þeim afleiðingum að hann hlaut
mar og nokkra bólgu í kringum
hægra auga og yfirborðslæg sár á
bæði eyru. Þá var hann einnig sak
felldur fyrir tilraun til fjárkúgunar
á mönnunum sem hann réðst á,
en hann krafði þá um hálfa milljón
einnig. Ekki taldist þó sannað að
Annþór hefði svipt mennina frelsi
við handrukkunina. n
Fara í fangelsi Annþór og Börkur fengu þunga dóma.
n Veiðigjaldið hefði staðið undir niðurskurði til heilbrigðismála í heild sinni
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
A
rðgreiðslur fimm af stærstu
útgerðarfélögum lands
ins á þessu ári nema miklu
hærri upphæð en sem
nemur lækkun á veiði
gjöldum sjávarútvegsfyrirtækja sem
Alþingi samþykkti eftir kosningarn
ar fyrr á árinu. Þau tvö stærstu, Sam
herji og HB Grandi, hafa ekki til
greint hversu mikinn arð þau ætla
að greiða á þessu ári. Upphæð arð
greiðslna tíu stærstu útgerða lands
ins mun því á endanum nema tvöfalt
eða þrefalt hærri upphæð en ríkis
stjórn gaf eftir til útgerða landsins
fyrr á árinu. Lækkun veiðigjaldanna
er með umdeildari ákvörðunum nú
verandi ríkisstjórnar.
Fram hefur komið á liðnum
mánuðum að Ísfélagið í Vestmanna
eyjum greiddi hluthöfum sínum
arð upp á 1,2 milljarða króna vegna
rekstrarársins í fyrra og Síldar
vinnslan í Eyjum greiddi tveggja
milljarða arð og Vinnslustöðin 1,1
milljarð. Samtals eru þetta arð
greiðslur upp á 4,3 milljarða króna
en lækkun veiðigjaldanna á þessu
ári nam 3,2 milljörðum króna.
FISK og Þorbjörn
með vænan arð
Tvær af stærri útgerðunum, FISK
Seafood á Sauðárkróki og Þorbjörn
í Grindavík, greiddu sömuleiðis út
vænan arð vegna ársins í fyrra. Þetta
kemur fram í nýbirtum ársreikning
um þessara fyrirtækja. FISK greiddi
arð upp á 340 milljónir króna og arð
greiðsla Þorbjarnar nam tæplega
292 milljónum króna. Sé þessi upp
hæð lögð saman sést að heildararð
greiðslur þessara fimm fyrirtækja
nema samtals tæpum fimm milljörð
um króna.
Tekið skal fram að arðgreiðslurn
ar eru greiddar út úr fyrirtækjun
um og til hluthafanna sem þá nýta
arðinn til þess sem þeir vilja. Þess
ir peningar nýtast því ekki til áfram
haldandi uppbyggingar í fyrirtækj
unum. Líkt og komið hefur fram í DV
þá eru ýmsir af hluthöfum stórra út
gerða á Íslandi mjög skuldsettir, til
dæmis stærstu hluthafar Vinnslu
stöðvarinnar í Eyjum, og nota þær
arðinn til að greiða niður skuldir fé
laganna sem halda utan um hluta
bréfin í útgerðunum.
Aðrir standa miklu betur, til dæm
is Samherji, sem á tæpan fimmtíu
prósenta hlut í Síldarvinnslunni, og
Guðbjörg Matthíasdóttir, eigandi Ís
félagsins. Þessir aðilar þurfa því ekki
á arðinum sem um ræðir að halda
til að greiða niður skuldir. Raunar er
staða þeirra allra mjög traust, nema
Þorbjarnar sem er nokkuð skuld
settur og fékk meðal annars annars
afslátt af veiðigjaldinu vegna þess.
Niðurskurður til heilbrigðismála
rúmir tveir milljarðar
Í lagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar
sem kynnt var í vikunni kemur fram
að á milli áranna 2013 og 2014 eigi
útgjöld til heilbrigðismála í landinu
að lækka um 2,3 milljarða króna,
fara úr rúmlega 130,6 milljörðum
og niður í rúmlega 128,3 milljarða.
Þessari lækkun hefði verið hægt að
sleppa ef ríkisvaldið hefði fengið
umrædda 3,2 milljarða króna í ríkis
kassann sem veiðigjaldið á útgerð
irnar var lækkað um.
Á sama tíma nemur niðurskurður
til löggæslu og öryggismála á milli
áranna 2013 og 2014 tæplega 2,4
milljörðum króna og niðurskurður
til almannatrygginga og velferðar
mála tæpum 2,8 milljörðum. Báðum
þessum lækkunum hefði verið hægt
að sleppa með innheimtu þessara
3,2 milljarða króna í veiðigjald sem
ríkisvaldið ákvað að innheimta ekki.
Fleiri slík dæmi væri hægt að taka.
Í ljósi þess hversu mikill hagnað
ur hefur verið af stærstu útgerðum
landsins og hversu háar arðgreiðslur
þær greiða til hluthafa þessi árin þá
verður að segja að forgangsröðunin
er nokkuð sérstök. Peningarnir sem
teknir eru út úr útgerðum sem arð
ur nýtast ekki til innri uppbyggingar
sjávar útvegarins á Íslandi, eins og
endurnýjunar á skipum og öðrum
vinnutækjum, heldur rennur hann
beint í vasa útgerðarmannanna
sjálfra eða upp í persónulegar skuld
ir þeirra. n
„Þessari lækkun
hefði verið hægt
að sleppa ef ríkisvaldið
hefði fengið umrædda
3,2 milljarða króna í ríkis-
kassann.
340 milljóna arður Fjórða stærsta útgerðarfélag landsins, FISK Seafood sem er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga, greiddi út 340 milljóna
arð í fyrra. Þórólfur Gíslason og Sigurjón Rúnar Rafnsson stýra kaupfélaginu. MyNd MorguNblaðIð/ragNar axelSSoN
Tvö ár fyrir
nauðgun
Hæstiréttur staðfesti á fimmtu
daginn að karlmaður skuli sæta
tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun.
Maðurinn nýtti sér að fórnar
lamb hans gat ekki spornað við
framferði hans sökum ölvunar og
svefndrunga. Nauðgunin átti sér
stað á hóteli fyrir tæpum tveimur
árum. Í dómnum kemur fram að
fórnarlambið og nauðgarinn hafi
verið vinir fyrir árásina. Hún mun
hafa sofnað alklædd en vaknað
upp er maðurinn var að hafa við
hana samfarir og hafði þá verið
búinn að færa hana úr fötunum.
Sköttun þrota-
búa ómöguleg
Steingrímur J. Sigfússon, fyrrver
andi fjármálaráðherra og þing
maður Vinstri grænna, segir að
ekki hafi verið mögulegt að inn
heimta skatt af þrotabúum fall
inna banka meðan hann sat í
ríkisstjórn. „Stutta svarið er að
þetta var skoðað sem algjörlega
óframkvæmanlegt og raunhæft á
árunum 2009 og 2010. Og það er
umhugsunarefni hvort að það sé
orðið til í dag með nægilega skýr
um hætti þannig að það sé hægt
að nota það sem skattaandlag,“
segir Steingrímur. Frá þessu segir
í frétt á RÚV. Í nýkynntu fjárlaga
frumvarpi er gert ráð fyrir að ellefu
milljarðar innheimtist með skatti
af þrotabúunum.
Vínþjófar
handteknir
Síðastliðinn miðvikudag voru tveir
karlmenn handteknir, en þeir eru
grunaðir um ítrekaðan þjófnað í
vínbúðum á höfuðborgarsvæðinu.
Alls er talið að þeir hafi stolið tutt
ugu og þremur flöskum af sterku
víni við ýmis tækifæri. Talið er að
verðmæti þýfisins hlaupi á hund
ruðum þúsunda króna. Nokkrar
flöskur fundust við húsleit heima
hjá mönnunum á Akranesi, en
þær eru taldar vera hluti góssins.
Mennirnir hafa játað brot sín að
því er fram kemur í tilkynningu frá
lögreglunni á Akranesi.