Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Side 14
14 Fréttir 4.–6. október 2013 Helgarblað
Vilja ekki vinna
undir Þorsteini
n „Þetta mál tekur allan okkar tíma og orku“ n Læknar telja Þorstein óstarfhæfan
E
f Þorsteinn fer frá þá sný ég
aftur til starfa um leið,“ seg
ir Tómas Halldór Pajdak,
læknir við Fjórðungssjúkra
húsið á Ísafirði, sem er einn
þriggja lækna sem skrifuðu fram
kvæmdastjóra Heilbrigðisstofn
unar Vestfjarða, Þresti Óskarssyni,
bréf 27. september síðastliðinn.
Þar sögðu þeir Þorstein Jóhannes
son, framkvæmdastjóra lækninga
við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
og skurðlækni, vera óstarfhæfan
vegna veikinda, dómgreindarleys
is, algjörs skorts á samstarfsvilja
og áberandi minnistruflana. „Allt
þetta hefur leitt til þess að við treyst
um okkur ekki lengur til að starfa
með honum og förum við því fram
á að honum verði vikið frá störfum
tafarlaust,“ segir í bréfi læknanna
þriggja til framkvæmdastjórans en
undir það rita Örn Erlendur Inga
son, Úlfur Gunnarsson og Tómas
Halldór Pajdak.
Allt byrjaði þetta á bréfi sem
þessir þrír læknar ásamt tveimur
öðrum, Sólveigu Helgadóttur og
Ingu Láru Ingvarsdóttur, rituðu til
framkvæmdastjóra Heilbrigðis
stofnunar Vestfjarða 4. september
síðastliðinn en í því bréfi kemur
fram að þriðjudaginn 27. ágúst síð
astliðinn hefðu komið í ljós veikindi
hjá Þorsteini. „Í framhaldi af því átt
um við í samtölum við hann. Eft
ir þau samtöl og samkvæmt skiln
ingi okkar á þessari sjúkdómsmynd
var það samdóma álit okkar að rétt
ast væri að hann framkvæmdi ekki
aðgerðir á sjúklingum, né stæði
skurðlæknisvaktir við stofnunina
þar til sjúkdómsgangur skýrðist,“
segir í bréfi læknanna fimm en þar
kemur fram að Þorsteinn hafi ekki
verið sammála áliti þeirra og sagð
ist geta stundað óbreytta vinnu frá
því sem verið hafði. Á morgunfundi
lækna þann 29. ágúst síðastliðinn
kom fram að læknarnir fimm voru
ekki sammála þessari niðurstöðu
Þorsteins og ákvað Þorsteinn þá í
kjölfarið að fara í veikindaleyfi sem
hann sneri aftur úr 24. september
síðastliðinn.
„Leysast aldrei í fjölmiðlum“
Þegar haft var samband við Þor
stein vegna málsins neitaði hann
að tjá sig um það. „Svona hlutir
leysast aldrei í fjölmiðlum,“ sagði
Þorsteinn þegar DV hafði samband
við hann en Þorsteinn hefur starfað
um 23 ára skeið á Fjórðungssjúkra
húsinu á Ísafirði en samhliða því
sat hann einnig um tíma í bæjar
stjórn Ísafjarðarbæjar fyrir hönd
Sjálfstæðisflokksins og var meðal
annars kjörinn forseti bæjarstjórn
ar árið 1996 þegar sveitarfélögin
Ísafjörður, Suðureyri, Flateyri og
Þingeyri sameinuðust í eitt sveitar
félag undir nafninu Ísafjarðarbær.
Aðeins þrír læknar starfa við
Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði og
eru tveir þeirra í veikindaleyfi og sá
þriðji í fríi.
Erfitt að ráða fólk
Á meðan þetta ástand varir er þó
ekki algjörlega læknalaust á sjúkra
húsinu. Til að mynda starfar einn
skurðlæknir við sjúkrahúsið sem
leysir Þorstein af og þá starfar
einnig unglæknir við sjúkrahúsið.
Áður nefndar Sólveig Helgadóttir
og Inga Lára Ingvarsdóttir tóku
báðar til starfa hjá Heilbrigðis
stofnun Vestfjarða í vor. Inga Lára
var ráðin út árið en fór í leyfi í haust
vegna barneigna. Sólveig fór í veik
indaleyfi í september síðastliðnum
og er ekki búist við að hún snúi aft
ur til starfa. Áður en þær réðu sig
til starfa við stofnunina í vor höfðu
Þórður Guðmundsson og Helgi Kr.
Sigmundsson sagt upp störfum
sínum við hana. Í frétt á vef ísfirska
fréttamiðilsins Bæjarins besta, sem
birtist 2. september síðastliðnum,
var haft eftir Herði Högnasyni,
framkvæmdastjóra hjúkrunar við
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, að
erfiðlega gengi að manna stöður
við stofnunina. Þessir tveir sem eru
í veikindaleyfi eru Örn Erlendur
Ingason og Tómas Halldór Pajdak.
Þriðji læknirinn, Úlfur Gunnars
son, hafði ráðgert að snúa aftur til
vinnu eftir helgi eftir leyfi.
„Eins og er, er ég bara í fríi sem
hitti nú bara svona á fyrir tilviljun
en ég veit ekki hvernig það verð
ur eftir helgi þegar meiningin var
að fara aftur í vinnu en ég hef ekki
ákveðið það ennþá,“ segir Úlfur og
á mjög erfitt með að svara því hvort
hann snúi aftur til vinnu. „Undir
þessum kringumstæðum sem hafa
skapast þá finnst mér það allavega
erfitt,“ segir Úlfur.
„Varð mjög ósáttur“
Örn Erlendur segir þessi veikindi
Þorsteins hafa komið í ljós þegar
hann sneri til baka í vinnu í sum
ar eftir að hafa starfað í Þýskalandi
í eitt ár í leyfi frá starfi sínu við Heil
brigðisstofnun Vestfjarða og tekur
Tómas Halldór undir þá frásögn:
„Það byrjaði í rauninni þannig að
hann reyndist hafa fengið flog og
vildi halda áfram að gera aðgerðir
og við vildum ekki að hann gerði
það. Þá ákvað hann fara í veik
indaleyfi og varð mjög ósáttur við
okkur – að við hefðum þvingað
hann í veikindaleyfi,“ segir Tómas.
Í bréfi læknanna fimm til fram
kvæmdastjóra Heilbrigðisstofn
unar Vestfjarða kom fram að þeir
teldu eðlilegast að vísa málinu til
faglegs álits landlæknis á hvað rétt
ast væri að gera í þessari stöðu.
Tómas og Örn Erlendur segjast þó
ekki hafa séð nein svör frá land
læknisembættinu. „Það virðist
nefnilega ekki vera skýrt hver eigi
að meta hvort hann sé starfhæfur
eða ekki. Það væri eðlilegt að land
læknir úrskurðaði um það þegar
svona leiðindamál koma upp,“ seg
ir Tómas.
Sótti aðstoð til að leysa deilu
Þröstur Óskarsson, framkvæmda
stjóri Heilbrigðisstofnunar Vest
fjarða, svaraði ekki erindi DV en
það kom fram í kvöldfréttum RÚV
að Þröstur hefði verið staddur í
Reykjavík á miðvikudag þar sem
hann sótti fund í velferðarráðu
neytinu til að fá aðstoð við að leysa
deiluna. Þegar DV hafði samband
við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á
fimmtudag var hann ekki á staðn
um. DV reyndi einnig að fá svör frá
landlækni sem gat ekki tekið síma
vegna fundar sem hann sótti í vel
ferðarráðuneytinu á fimmtudag og
fékkst ekki uppgefið hvert erindi
fundarins var.
Ná ekki hvíld
Örn Erlendur segir málið í pattstöðu
þrátt fyrir ítrekaðar kvartanir þeirra
til framkvæmdastjóra Heilbrigðis
stofnunar Vestfjarða og hafi ekki
verið starfsfriður fyrir þá á sjúkra
húsinu síðan Þorsteinn sneri aftur
til starfa eftir veikindaleyfi í síðustu
viku. „Þetta snýst um að þessi mað
ur fari frá svo það sé starfsfriður
hérna,“ segir Örn. „Við vorum varla
starfshæfir í síðustu viku. Þetta mál
tekur allan okkar tíma og orku og
við náum ekki hvíld. Það gengur
ekki fyrir okkur að vinna undir hans
stjórn. Allra vegna erum við því í
veikindaleyfi á meðan málin skýr
ast,“ segir Örn Erlendur.
Bæjarstjóri áhyggjufullur
„Auðvitað hefur maður áhyggjur
af þessu,“ segir Daníel Jakobsson,
bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, um
málið. „Það er náttúrulega aðal
atriði að það sé tryggt að það séu
læknar en auðvitað hefur maður
áhyggjur af þessu,“ segir Daníel
sem vildi þó ekki tjá sig um málið
að öðru leyti. n
Yfirlæknir Þorsteinn Jóhannesson hefur
starfað á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði
um 23 ára skeið. Þrír læknar við Heilbrigð-
isstofnun Vestfjarða hafa farið fram á að
hann víki.
Vill starfsfrið Örn Erlendur Ingason er
einn þriggja lækna sem vilja að Þorsteinn
Jóhannesson víki frá Heilbrigðisstofnun
Vestfjarða. MYNd MYNd BæjariNS BESta
Fyrsta bréfið Bréfið sem læknarnir fimm
rituðu til framkvæmdastjóra Heilbrigðis-
stofnunar Vestfjarða.
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
„Þetta snýst um að
þessi maður fari
frá svo það sé starfsfriður
hérna.
Fjórðungssjúkrahúsið Þar starfa Þorsteinn og hinir læknarnir þrír.
Bæjarstjórinn Daníel Jakobsson er
áhyggjufullur vegna málsins.
Gat ekki unnið
með Þorsteini
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem fregnir
af ólgu innan heilbrigðisgeirans fyrir
vestan berast. Í maí árið 2009 sendi
Lýður Árnason læknir frá sér yfirlýsingu
þar sem hann tilkynnti að hann myndi
láta af störfum við Heilbrigðisstofnun
Vestfjarða. Sagðist Lýður hafa tekið þá
ákvörðun eftir að Þorsteinn Jóhannes-
son hafði verið settur yfir heilsugæslu-
stöðvarnar á Flateyri, Þingeyri og
Suðureyri þar sem Lýður hafði annast
læknisþjónustu. Lýður sagðist hafa
hafnað boði um að vinna undir Þorsteini.
„Því hafnaði ég meðal annars vegna
takmarkaðs áhuga á að vinna undir
stjórn yfirlæknis spítalans. Í þeim efnum
er þó ekki bara við hann að sakast, við
einfaldlega eigum ekki skap saman og
sömuleiðis langsótt að hann fengist til
að vinna undir minni stjórn,“ sagði Lýður
í yfirlýsingunni.