Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Qupperneq 26
26 Fréttir 4.–6. október 2013 Helgarblað
Vilja losna við Bill Gates
n Stórir hluthafar telja að hann muni hafa hamlandi áhrif á frekari uppgang Microsoft
Þ
rír af tuttugu stærstu fjárfestum
í tæknirisanum Microsoft eru
sagðir vilja losna við Bill Gates,
stofnanda fyrirtækisins, úr stóli
stjórnarformanns. Frá þessu greindi
breska blaðið The Guardian í vikunni.
Að sögn blaðsins hafa þessir þrír fjár-
festar sett þrýsting á stjórn Microsoft
vegna málsins.
Steve Ballmer, fráfarandi fram-
kvæmdastjóri Microsoft, hefur verið
undir miklum þrýstingi frá fjárfestum
í nokkur ár um að grípa til aðgerða til
að hækka hlutabréfaverð í fyrirtækinu
og bæta samkeppnisstöðu þess. Þetta
er hins vegar í fyrsta skipti sem stórir
fjárfestar í fyrirtækinu beina spjótum
sínum að Bill Gates sem er í hópi virt-
ustu og áhrifamestu aðila tækniheims-
ins. Ballmer mun stíga úr stóli fram-
kvæmdastjóra á næstu mánuðum.
Í frétt The Guardian er tekið fram
að talsmenn fyrirtækisins hafi ekki
viljað tjá sig um málið. Þar kemur
einnig fram að stjórnin muni að öll-
um líkindum gefa þessum þrýstingi
fjárfesta gaum í ljósi þess að þeir eiga
samanlagt rúmlega fimm prósenta
hlut í fyrirtækinu. Sjálfur á Bill Gates
4,5 prósenta hlut í Microsoft og er
hann stærsti einstaki eigandi þess.
Heimildarmaður The Guardian
segir að Bill Gates gæti haft
hamlandi áhrif á frekari upp-
byggingu fyrirtækisins og nær-
vera hans gæti dregið úr áhrifum
nýs framkvæmdastjóra þegar Ball-
mer lætur af störfum. Bendir heim-
ildarmaðurinn á að Gates eigi sæti
í sérstakri valnefnd sem velur nýj-
an framkvæmdastjóra. Gates, sem
átti 49 prósenta hlut í Microsoft
áður en það fór á markað árið 1986,
hefur minnkað hlut sinn í fyrirtæk-
inu á undanförnum árum. Sá háttur
hefur verið hafður á að hann hefur
selt 80 milljón hluti á hverju ári og
ef þeirri áætlun verður haldið áfram
mun hann ekki eiga neitt í fyrirtæk-
inu árið 2018. n einar@dv.is
Missti fimmtán nána
ættingja sama daginn
n Létust allir í sprengjuárás í Peshawar n Voru hamingjusöm fjölskylda
A
ð minnsta kosti 40 létu lífið
í bílsprengjuárás í borginni
Peshawar í Pakistan síðast-
liðinn sunnudag. Yfir hund-
rað manns særðust í árásinni
sem framin var á fjölmennum mark-
aði í borginni. Fréttir sem þessar virð-
ast daglegt brauð en á bak við þær all-
ar er harmleikur eftirlifandi ættingja.
Hinn 61 árs gamli Sartaj missti fimmt-
án nána ættingja í sprengjuárásinni í
Peshawar á sunnudag.
Erfitt símtal
„Á árásarstaðnum hafði einhver fund-
ið síma bróðursonar míns, Sohrab,“
segir Sartaj í samtali við breska ríkis-
útvarpið, BBC. Sá sem fann símann
notaði hann til að hringja í Sartaj og
var hann spurður hvort hann væri
tengdur Sohrab-fjölskylduböndum.
„Þá sagði hann mér að hann hefði
látið lífið í sprengingunni,“ segir Sartaj
sem búsettur er í bænum Shabqadar
sem er um 30 kílómetra norður af Pes-
hawar.
Líkin voru alls staðar
Sartaj segir að hann og sonur hans
hafi drifið sig til borgarinnar til að bera
kennsl á lík Sohrab. Á sjúkrahúsinu
mætti þeim hins vegar skelfileg sjón
sem Sartaj líkir við martröð. Á sjúkra-
húsinu var fjöldi líka og segir Sartaj
að hann hafi þekkt flest þeirra, nánast
öll voru af nánum ættingjum hans. „Á
bráðamóttökunni sá ég fyrst lík yngsta
sonar míns, síðan eiginkonu minnar.
Öll líkin virtust vera af ættingjum mín-
um. Þau voru alls staðar og ég gjör-
samlega tapaði mér,“ segir hann.
200 kíló af sprengiefni
Alls létust fimmtán ættingjar Sartaj
í sprengingunni, yngstur þeirra var
þriggja mánaða stúlka, Zainab að
nafni, sem var barnabarn hans.
Fimm aðrir ættingjar hans, fjórar
konur og eitt barn, eru enn á sjúkra-
húsi að jafna sig eftir árásina.
Árásin var gerð þegar fjölskyldan
var að ferðast í stórri bifreið um gamla
hluta Peshawar-borgar en áætlað var
að fjölskyldan sneri aftur í heimabæ-
inn Shabqadar þennan sama dag.
Bifreið, sem innihélt sprengjuna, var
við hliðina á bifreið fjölskyldunnar
þegar hún sprakk í loft upp. Bílstjóri
fjölskyldunnar var mikill fjölskyldu-
vinur og lést hann einnig í árásinni.
Lögregla telur að um 200 kíló af
sprengiefni hafi verið í bifreiðinni
sem sprakk.
Hamingjusöm fjölskylda
Sartaj segir að dagurinn hafi farið vel
af stað hjá honum og ættingjum hans.
Sonur hans, hinn tvítugi Dilraj, var
trúlofaður og var tilgangur ferðarinn-
ar meðal annars að heimsækja aðra
ættingja sem búsettir eru í Peshaw-
ar og bjóða þeim í brúðkaupið. „Það
var alltaf mikil gleði á okkar heimili.
Börnin hlógu og göntuðust þegar þau
kvöddu þennan morgun en núna eru
þau öll dáin.
Sjálfur segist Sartaj eiga erfitt með
að fara inn á heimili fjölskyldunnar
eftir árásina. „Við höfðum aldrei mikið
á milli handanna en þrátt fyrir það
vorum við hamingjusöm fjölskylda.“
Sartaj, líkt og margir samlandar
hans, á erfitt með að skilja hvers vegna
árásir sem þessar virðast vera dag-
legt brauð í Pakistan og hvers vegna
hryðjuverkamenn beini spjótum sín-
um að saklausum borgurum, konum
og börnum. „Það mun aldrei hjálpa
mér að kenna einhverjum um. Þetta
voru mín örlög; þetta var það sem Guð
ætlaði að myndi gerast. Ef þetta hefði
ekki komið fyrir mig hefði þetta kom-
ið fyrir einhvern annan,“ segir hann að
lokum.
Þau létust í árásinni:
Anwara, 49 ára, eiginkona
Meena, 30 ára, dóttir
Zainab, 3 mánaða, barnabarn
Adnan, 14 ára, sonur
Zaiby, 16 ára, dóttir
Khalida, 18 ára, dóttir
Sadia, 28 ára, tengdadóttir
Hamad, 7 ára, barnabarn
Junaid, 3 ára, barnabarn
Sohrab, 22 ára, bróðursonur
Nargis, 50 ára, mágkona
Haris, 9 ára, bróðursonur
Mumlika, 23 ára, frænka
Aziz, 4 ára, frændi
Shagufta, 17 ára, frænka
Bahar Ali, 23 ára, bílstjóri
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Börnin hlógu og
göntuðust þegar
þau kvöddu þennan
morgun en núna eru þau
öll dáin.
Öflug sprenging
Bílsprengjan skyldi eftir
sig mikla eyðileggingu. Að
sögn lögreglu voru um 200
kíló af sprengiefni notuð.
Harmleikur Sartaj missti fimmtán nána ættingja í sprengjuárásinni á sunnudag. „Við höfðum
aldrei mikið á milli handanna en þrátt fyrir það vorum við hamingjusöm fjölskylda,“ segir hann.
Netníðingur
neitar sök
45 ára sænskur karlmaður sem
ákærður er fyrir fjölda kynferðis-
brota gegn börnum hefur neitað
sök. Maðurinn er meðal annars
sakaður um að hafa hótað að
birta opinberlega nektarmyndir
af 13 ára stúlku sem hann fékk
hana til að senda sér í gegnum
netið. Stúlkan framdi sálfsvíg í
kjölfarið eins og DV greindi frá
fyrir skemmstu. Maðurinn er ekki
ákærður fyrir að hafa átt þátt í
dauða hennar en hann er ákærður
fyrir að hafa ginnt tvær stúlkur á
aldrinum 11 til 14 ára til að senda
sér nektarmyndir, en í heildina
hafði hann samband við um tutt-
ugu stúlkur í sama tilgangi. Þá
er hann ákærður fyrir að nauðga
fjórtán ára stúlku sem hann segist
hafa átt í ástarsambandi við.
Fljótari að læra
á bíl en konur
Það er ekkert athugavert við að
konur greiði meira en karlar fyrir
ökunám sitt. Þetta er mat Javier
Albar, dómara við dómstól Zara-
goza-borgar á Spáni, sem kvað
upp dóm þess efnis á dögunum.
Forsaga málsins er sú að neyt-
endasamtök borgarinnar sektuðu
ökuskóla í borginni fyrir að bjóða
karlkyns ökunemum hagstæðari
kjör í skólanum en konum. Var
karlmönnum gefinn kostur á að
greiða 665 evrur, 108 þúsund
krónur, en konum tæpar 140 þús-
und krónur fyrir ökunámið. Inni
í því verði voru allir þeir ökutím-
ar sem viðkomandi þurfti áður en
hann gæti tekið ökupróf, en öku-
kennari metur hversu marga tíma
viðkomandi þarf áður en hann er
tilbúinn í sjálft ökuprófið.
Forsvarsmenn ökuskólans sem
um ræðir voru ekki sáttir við sekt-
ina, enda var það mat þeirra að
karlar væru almennt fljótari að
læra að keyra en konur og þyrftu
því færri ökutíma. Þeir kærðu því
úrskurð neytendasamtakanna,
lögðu fram gögn máli sínu til
stuðnings og féllst dómari á það
að karlar væru sannarlega fljótari
að læra á bíl en konur. Því væri
það rökrétt að þeir fengju hag-
stæðari kjör en konur.
Undir þrýstingi
Ef fjárfestar ná
markmiði sínu mun
Bill Gates hætta sem
stjórnarformaður
Microsoft.
Flóttamenn
fórust
Óttast er að liðlega 300 hælisleit-
endur hafi farist undan ströndum
Ítalíu á fimmtudag. Staðfest er að
liðlega 100 eru látnir. Eldur kvikn-
aði í bátnum með þeim afleiðing-
um að honum hvolfdi. Á meðal
þeirra sem fórust voru óléttar
konur og börn. Fólkið var meðal
annars frá Egyptalandi, Sýrlandi,
Erítreu og Sómalíu.