Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Page 27
Fréttir 27Helgarblað 4.–6. október 2013
Hlóðu síma
með eldingu
Vísindamönnum í háskólanum
í Southampton hefur, í samstarfi
við farsímaframleiðandann Nokia,
tekist að finna aðferð sem gerir
hleðslu símtækisins miklu meira
spennandi en hin hefðbundna
aðferð; að stinga símanum í sam-
band við rafmagn. Þeim tókst
að hlaða síma með eldingu sem
framkölluð var á vísindastofunni.
Því miður hafa vísindamennirnir
ráðið fólki frá öllum tilraunum í
þessa veru heima fyrir. Með því að
nota straumbreyti og 200 þúsund
volt tókst þeim að senda eldingu
um 30 sentímetra leið um loftið,
yfir í símann. Við það hlóðst raf-
hlaðan í símanum, þeim til mikill-
ar undrunar.
Barn gekk með
bróður sinn
Tveggja ára kínverskur drengur,
Xiao Feng, þurfti á dögunum
að gangast undir aðgerð vegna
óvenjulegrar ástæðu. Hann gekk
með tvíburabróður sinn, ef svo má
að orði komast. Foreldrar drengs-
ins fóru með hann á sjúkrahús
vegna öndunarörðugleika og út-
þanins kviðar. Í kjölfar röntgen-
myndatöku var hann fluttur á
skurðstofu í flýti þar sem í ljós
kom að í kvið hans var vanskap-
að lítið fóstur, um 20 sentímetrar í
þvermál. Fóstrið var með hendur
og fætur og meira að segja fingur
og tær. Læknarnir segja að dreng-
urinn hefði ekki lifað af ef ekkert
hefði verið að gert.
Fjöldaframleidd
börn á Indlandi
n Vasanti fær milljón fyrir meðgönguna n Margföld árslaun eiginmannsins
Á
Indlandi eru fjölskyldu-
böndin sterk. Fólk gerir
hvað sem er fyrir börnin
sín,“ segir Vasanti, 28 ára
indversk kona. „Ég ákvað
að gerast staðgöngumóðir því ég
vil sjá börnin mín fá allt það sem
mig dreymdi um.“
Vasanti er barnshafandi en mun
sjálf ekki eiga barnið sem hún fæð-
ir. Hún ber undir belti barn sem
japanskt par mun eiga. Fyrir vikið
fær hún andvirði rétt um einnar
milljónar íslenskra króna. Fyrir
þann pening getur hún byggt sér
nýtt hús og það sem meira er, sent
börnin sín tvö, fimm og sjö ára,
í enskumælandi skóla – eitthvað
sem hún bjóst aldrei við að hafa
bolmagn til að gera. „Hamingja
mín nær til dýpstu hjartaróta,“ seg-
ir Vasanti í samtali við BBC.
Tíu saman í herbergi
Fósturvísi var komið fyrir í Vasanti í
borginni Anand í Gujarat-ríki á Ind-
landi. Hún eyðir nú mánuðunum
níu á eins konar heimavist þar sem
um eitt hundrað staðgöngumæð-
ur halda til meðan á meðgöngu
stendur, allar undir eftirliti dr.
Naynna Patel. Þar má segja að börn
séu fjöldaframleidd. Tíu barnshaf-
andi konur deila herbergi, þar sem
þeim er færður matur og vítamín.
Þær eru hvattar til að hvílast.
Vasanti viðurkennir að henni
leiðist biðin og aðgerðarleysið. „Ég
ráfa um húsið á næturnar því ég get
ekki sofið. Eftir því sem bumban
stækkar, tíminn líður og barnið vex
verð ég leiðari. Mér dauðleiðist.
Ég get ekki beðið eftir því að kom-
ast heim til barnanna minna og
mannsins míns.“
Fær meira fyrir tvíbura
Reglur hússins kveða á um að kon-
urnar megi ekki stunda kynlíf með-
an á meðgöngunni stendur. Þá bera
hvorki læknarnir, spítalinn eða for-
eldrar barnsins ábyrgð á því ef eitt-
hvað fer úrskeiðis á meðgöngunni.
Ef staðgöngumóðirin fæðir tví-
bura er gjaldið aðeins hærra, eða
um 1,2 milljónir króna. Ef hún hins
vegar missir fóstur innan þriggja
mánaða fær hún 73 þúsund krón-
ur. Fætt barn kostar foreldra þess
3,4 milljónir króna, eða 28 þúsund
dollara.
„Sökuð um að framleiða börn“
Dr. Nayna Patel, sú sem á og rekur
stofuna og heimavistina, auk þess
að taka á móti börnunum, er með-
vituð um að starfsemin sé um-
deild. „Ég hef verið gagnrýnd. Ég
sætti mig við gagnrýnina og tek
henni, því staðgöngumæðrun er
mjög umdeild,“ segir hún í samtali
við BBC. „Ég er sökuð um að fram-
leiða börn og að þetta snúist bara
um sölu á nýfæddum börnum.
Það er bara sagt til að særa,“ segir
hún enn fremur. Í hennar augum
fá staðgöngumæðurnar heilmikið
fyrir sitt framlag. Þær sjái um með-
gönguna og fái erfiðið ríkulega
launað. Þeim sé, auk greiðslunnar,
kennt að sauma meðan á dvölinni
stendur. Með þá færni í farteskinu
geti þær unnið fyrir sér eftir slík
námskeið.
Til sanns vegar má færa að kon-
urnar fá vel borgað fyrir ómakið. Til
að setja upphæðina, um eina millj-
ón króna, í samhengi má nefna að
eiginmaður Vasanti hefur minna
en fimm þúsund krónur í mánað-
arlaun. Upphæðin samsvarar því
tæplega 17 ára vinnu eiginmanns-
ins.
Konurnar réttlausar
Patel segir að sama konan geti gerst
staðgöngumóðir oftar en einu sinni
hjá henni. Þrjú skipti séu þó há-
markið. Hún segir að á Indlandi sé
gott aðgengi að ódýrri heilbrigðis-
aðstöðu. Sú staðreynd, auk þess
sem lagaumhverfið í kringum stað-
göngumæðrun sé skýrt, sé megin-
ástæða þess að Indland sé í farar-
broddi hvað þessa hluti varðar.
Konurnar sem gangi með börnin
hafi engan rétt á því að umgang-
ast þau og séu ekki skráðar mæð-
ur barnanna. Það einfaldi málið til
muna.
Á Indlandi býr þriðjungur af fá-
tækasta fólki veraldar. Bent hefur
verið á að fátæktin, neyðin, sé það
sem knýi þann „iðnað“ sem Patel tek-
ur þátt í. Hún viðurkennir að margar
konur á Indlandi búi við kröpp kjör.
„Matur, húsaskjól, lyf og læknisþjón-
usta er ekki ókeypis á Indlandi. Fólk
verður að sjá um sig sjálft.“ Hún seg-
ist hvetja konurnar til að fara vel með
peninginn sem þær fá.
Verða fyrir aðkasti nágranna
Eiginmaður Vasanti heitir Ashok.
Þau búa í leiguhúsnæði núna en
geta byggt sér nýtt húsnæði þegar
meðgöngunni lýkur. „Foreldrar
mínir eru alsælir fyrir okkar hönd.
Samfélagsstaða okkar batnar og
það er dýrmætt.“
Ashok og Vasanti geta ekki byggt
húsið sitt í sama hverfi og þau búa
nú. Almennt er staðgöngumæðr-
un litin hornauga í Indlandi og As-
hok segir að þeim verði ekki vært í
hverfinu sem þau búa í núna. „Ef
við byggðum hús hérna myndu all-
ir vita að það væri fyrir peninga fyr-
ir staðgöngumæðrun. Okkur yrði
ekki vært hérna,“ segir Vasanti.
Sá barnið í fimm sekúndur
Blaðamaður BBC fylgdist með
Vasanti meðan á meðgöngunni
stóð. Fæðingin gekk erfiðlega og
barnið var að lokum tekið með
keisaraskurði. Vasanti tárast þegar
hún rifjar upp fæðinguna. Henni
gafst færi á að sjá barnið í um
fimm sekúndur áður en það var
tekið. „Það var drengur en ég veit
að þau vildu stúlku. Þau eiga í það
minnsta barn núna,“ segir hún og
bætir við að hún hafi séð að dreng-
urinn var lifandi. Það skipti hana
mestu.
Hún er bjartsýn á framhaldið,
þótt erfitt hafi verið að sjá á eftir
barninu sem hún bar undir belti
í níu mánuði. „Börnin mín dafna
og þroskast með hverjum degin-
um sem líður. Ég gerði þetta til að
tryggja þeirra framtíð. Ég myndi
samt aldrei vilja að dóttir mín
gerðist staðgöngumóðir.“ n
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Reglur hússins
n Konurnar neyðast til að búa á
heimavistinni á meðan þær ganga með
börnin.
n Staðgöngumæðurnar mega ekki
stunda kynlíf á meðan þær dvelja í
húsinu.
n Foreldrar barnsins, eigandi stofunnar
eða starfsfólk er ekki ábyrgt ef eitthvað
kemur upp á á meðgöngunni.
n Hjúkrunarfræðingur fylgist með líðan
kvennanna á meðgöngunni og færir
þeim lyf.
n Á sunnudögum er heimsóknardagur.
Þá mega eiginmenn og börn heimsækja
konurnar.
n Sama konan má þrisvar sinnum
ganga með barn hjá dr. Patel.
n Sumar konurnar eru ráðnar af for-
eldrum barnsins til að annast það fyrstu
vikur eða mánuðina eftir fæðingu, eða
þar til pappírsvinnan er frá og fjölskyld-
an getur farið frá Indlandi.
Dr. Nayna Patel Hefur
tekið á móti mörg hundruð
börnum á stofunni sinni.
Vasanti Gat byggt sér hús og sent börnin sín tvö í skóla fyrir milljónina sem hún fékk fyrir
að ganga með barn fyrir japanskt par.
„Ég hef verið gagn-
rýnd. Ég sætti
mig við gagnrýnina og
tek henni, því stað-
göngumæðrun er mjög
umdeild
Dýrkeypt
að dilla
Bæjarstjórinn í Louisiana í Banda-
ríkjunum, Maynard Wilkens, hef-
ur sagt bossadilli eða „twerk“
stríði á hendur. Hann hefur sett
lög í borginni sem kveða á um að
30 daga fangelsisvist liggi við því
að dilla bossanum á almanna-
færi. Að sögn vefmiðilsins Or-
ange News hefur nokkurs konar
æði gengið yfir Bandaríkin eft-
ir að barnastjarnan fyrrverandi
Miley Cyrus dillaði bossanum á
MTV-tónlistarhátíðinni. Wilkens
vill meina að slík hátterni ögri al-
mættinu, eða Jesú, réttara sagt.
„Önnur stjórnvöld í Bandaríkj-
unum mega mín vegna stinga
höfðinu í sandinn og horfa fram
hjá kynferðislegu hátterni ungra
stúlkna fyrir hjónaband – en ekki
þessi borg,“ sagði hann við CNN.
Til stendur að herða viðurlögin
þegar fram líða stundir.