Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Side 37
tryggingum. Til dæmis var íslenska
bankakerfið ekki stærra hlutfalls-
lega en bankakerfi Sviss og Bret-
lands, en baktryggingarnar voru
ekki þær sömu. Það var eðlilegt að
menn huguðu ekki að því vegna
þess að rekstrarsvæðið var, sam-
kvæmt samningnum um EES, öll
Evrópa.
Erlendir bankar ógætnir
„Önnur goðsögnin er sú að ís-
lenskir bankamenn hafi verið
áhættusæknari eða óreyndari en
bankamenn annars staðar. Það er
ýmislegt að þeirri staðhæfingu, þá
á eftir að skýra hvers vegna banka-
menn erlendis lánuðu íslenskum
bankamönnum því þá voru þeir
jafn áhættufíknir og Íslendingar
Þá hefur komið í ljós að bankar
erlendis voru síst betri en þeir ís-
lensku.
Bankar erlendis voru jafn hætt
komnir, en þeim var bjargað. Svo
erum við að lesa um að stærstu
bankar heims hafi verið sektaðir
fyrir peningaþvætti, sektaðir fyrir
brellur í bankaviðskiptum og ýmsu
fleiru.“
Íslenski markaðurinn starfaði
eftir regluverki EES
„Þriðja goðsögnin sem ég ætla
að hrekja er að bankahrunið hafi
orðið hér vegna einhverrar frjáls-
hyggjutilraunar sem hafi mistekist.
Sannleikurinn er sá eins og blas-
ir við öllum sem vilja skoða málið
að íslenski markaðurinn starfaði
við sama regluverk og önnur lönd
EES. Það leiddi beint af aðild að
Evrópska efnahagssvæðinu. Það
er ekki hægt að segja að regluverk-
ið hér hafi verið minna eða losara-
legra.
Staðreyndirnar segja okkur al-
veg skýrt að erlendir bankamenn
voru alveg jafn ógætnir. Þetta eru
staðreyndirnar og þetta eru gögn-
in. Svo eru til menn sem spinna. Af
því þeir fá borgað fyrir það eða fá
lófatak í sínum hópi.“
Ár glataðra tækifæra
Þegar Hannes lítur um öxl finnst
honum árin eftir hrun vera ár glat-
aðra tækifæra. Hann hefði viljað
meiri einingu og samhug og minn-
ist orða Görans Persson.
„Þegar bankahrunið varð þá
var Göran hér. Hann sagði við Ís-
lendinga: „Gerið þið það sama
og við gerðum. Snúið þið bök-
um saman og vinnið ykkur út úr
þessari kreppu.“ Þess í stað hlupu
allir í skotgrafirnar og fóru að berj-
ast. Umræðan næstu árin var fólgin
í því að ná sér niðri á gömlum póli-
tískum andstæðingum. Framkom-
an var fyrir neðan allar hellur.“
Hann telur að nú sé að færast
yfir kyrrð og ró. „Rykið er að setjast
og við sjáum betur aðalatriði máls-
ins.“
Orðstírinn varð illa úti
í hruninu
Hannes segist hafa sloppið vel í
hruninu. „Ég slapp blessunarlega
við hrunið. Auðvitað hafði það þau
áhrif að kaupmáttur minna launa
minnkaði. En orðstír minn varð
illa úti við hrunið. Ég var talinn
fyrir hrunið einn af merkisberum
kapítalismans og mörgum fannst
kapítalisminn hefði beðið hnekki
í hruninu. Ég held að það sé al-
gjörlega fráleitt. Kapítalisminn er
„The only game in town“. Jafnvel
mikill gagnrýnandi kapítalismans,
Kóreumaðurinn Ha-Joon Chang,
viðurkennir að það þurfi að nýta
sköpunarkraft kapítalismans. Það
þurfi aðeins að beisla hann og
temja.“
Á mánudaginn í næstu viku
ætlar Hannes að flytja fyrirlestur
um hrunið. Hann segir að ólíkt öll-
um öðrum löndum hafi Ísland tek-
ið upp mjög ofstækisfulla vinstri-
stefnu eftir hrun og flutt völdin til
ríkisins.
„Þetta er þveröfugt við það sem
gerist í nágrannalöndum. Sjö ríki
Evrópu urðu verr úti en við Ís-
lendingar, þar á meðal Eystrasalts-
þjóðirnar. Þær hertu sultarólina,
núna eru þær að koma út úr þessari
kreppu á heilbrigðum grundvelli
án skuldasöfnunar. Við notuðum
ekki tækifærin til að koma þessu
í lag. Þetta voru ár glataðra tæki-
færi.“
Hann rannsakar gamla tíð
þegar markaðskapítalisminn
breyttist í það sem Hannes kallar
klíkukapítalisma.
„Frá 1991 til 2004 þá stóð hér
markaðskapítalismi.
Við sem höfðum áhrif reynd-
um að opna hagkerfið og fjölga
tækifærum fólks til þess að komast
úr fátækt í bjargálnir. Koma verð-
bólgu niður og greiða niður skuldir
ríkisins. Auka frelsið á öllum svið-
um. Gera þetta betra þjóðfélag.
Þetta tókst. Árið 2004 var Ísland í
röð fremstu ríkja, bæði um frelsi og
líka um tekjur. Það var 13. frjálsasta
hagkerfi í heimi.
En árið 2004 tekur klíkukap-
ítalisminn við af markaðsskap-
ítalismanum okkar. Það er fá-
menn auðklíka undir forystu Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar sem tek-
ur völdin í landinu. Hún átti fjöl-
miðlana, hún átti einn bankann
og hafði greiðan aðgang að hin-
um tveimur og hún átti smá-
söluna í landinu. Í skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis kom
þetta skýrt fram. Ég mun kynna í
fyrirlestri mínum á mánudag að
af þremur hópum sem voru að-
sópsmestir þá var Baugshópurinn
sá hópur sem bar ábyrgð á þensl-
unni.“
Baugsmenn vildu láta reka
Hannes
Hannes segir völd Baugsklíkunnar
hafa verið umfangsmikil. „Auð-
klíkan hafði hér öll völd. Eitt dæmi
um það er að hún skipar fyrir um
að Björn Bjarnason sé felldur um
sæti á lista í þingkosningum. Not-
aði til þess auglýsingaherferð.
Þar sýndi hún klærnar. Þeir sem
höfðu reynt að berjast gegn henni,
þeir voru ekki beinlínis ofsóttir en
þeir lentu úti í kuldanum.
Tveir Baugsmenn heimsóttu
rektor og vildu að ég yrði rek-
inn fyrir skrif mín um Baugsfjöl-
skylduna.“
Hannes er þó enn á sínum stað
og verður ekki haggað. Hann mun
ekki láta deigan síga og áfram
beita sínu helsta vopni; rökunum.
Þess má að lokum geta að
á mánudaginn verður haldinn
„Frelsiskvöldverður“ Rann-
sóknarsetursins. Ef að líkum læt-
ur mun ýmislegt bera þar á góma;
hrunið, Baugsveldið, listir, ný-
kynnt fjárlagafrumvarp, liðin tíð
og ókomin. n
„Mér var ógnað“
Hápunktar í
lífi Hannesar
1972 Hannes lýkur stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík. Snemma beygist
krókurinn því Hannes var
fyrirmyndarnemandi og lauk
náminu á þremur árum. Í MR
kynntist hann fyrst Davíð
Oddssyni, en þeir urðu vinir eins
og alþjóð veit. Sama ár hóf
Hannes störf sem blaðamaður
Eimreiðarinnar sem ungir
frjálshyggjumenn gáfu út. Í þeim
hóp voru margir framtíðarleið-
togar Íslands svo sem Þorsteinn
Pálsson, Geir H. Haarde, Kjartan
Gunnarsson og Davíð Oddsson.
1984 Hannes
vakti fyrst
athygli um
svipað leyti og
þessi mynd var
tekin. Hún sýnir er
Hannes skimar yfir 12
þúsund manna mótmælafund á
Austurvelli. Mótmælin voru
haldin í kjölfar verkfalls BSRB og
prentara. Í sama mánuði rak
Hannes ásamt Kjartani Gunnars-
syni ólöglega útvarpsstöð dagana
2.–10. október. Ári seinna lauk
hann doktorsprófi í stjórn-
málafræði frá félagsvísindadeild
Oxford-háskóla.
1986 Hannes hefur kennslu við
Háskóla Íslands, fyrst sem lektor í
sagnfræði. Tveimur árum seinna
var hann skipaður lektor í
stjórnmálafræði. Skipun hans
vakti hörð viðbrögð því dóm-
nefnd á vegum deildarinnar hafði
mælt með öðrum manni. Birgir
Ísleifur Gunnarsson, flokksfélagi
Hannesar, var þá menntamála-
ráðherra. Árið 1995 varð hann
prófessor í því fagi. Síðastliðin ár
hefur hann kennt stjórn-
málaheimspeki.
2004 Athafnamaðurinn Jón
Ólafsson höfðar meiðyrðamál
gegn Hannesi í Bretlandi. Hannes
hafði óspart gagnrýnt Jón meðan
hann átti og rak Stöð tvö. Hann
vændi Jón meðal annars um að
hafa efnast á fíkniefnasölu.
Hannes var dæmdur til að greiða
Jóni um 12 milljónir króna en sá
dómur var síðar ógiltur af
Hæstarétti í Bretlandi.
2008 Hannes
er dæmdur í
Hæstarétti fyrir
brot á höfundar-
rétti. Auður
Laxness hafði fjórum
árum áður höfðað mál gegn
Hannesi fyrir brot á höfundarrétti í
fyrsta bindi ævisögu Halldórs
Laxness, Halldór. Hann var
dæmdur fyrir að nota texta frá
Laxness án þess að geta tilvitnana.
Hannesi var gert að greiða Auði
samtals rúmar þrjár milljónir.
2009 Jóhannes heitinn
Jónsson í Bónus sakar Hannes um
að dreifa óhróðri um Haga í
Háskóla Íslands og krefst þess að
hann verði rekinn. Jóhannes sagði
í viðtali við DV þá: „Mér finnst
framganga háskólaprófessorsins
furðuleg, að vera með svona
útgáfustarfsemi þar sem drullað er
yfir fólk.“ Hannes viðurkenndi að
hafa prentað myndina út en
sagðist þó ekki standa bak við ritið.
2013 Hannes segir í Kastljósi:
„Ég er ekki inni í skáp, en ég er
með þykkan skráp,“ spurður álits
um leikritið Maður að mínu skapi.
Leikritið hefur verið umdeilt ekki
síst vegna þess að aðalpersóna
verksins er sögð mótuð eftir
Hannesi. Sjálfur sagði Hannes það
blasa við að hann væri aðalfyrir-
myndin. Hannes gagnrýndi verkið
fyrir „klisjukenndar árásir á
samkynhneigt fólk.“
Fólk 37Helgarblað 4.–6. október 2013
„Tveir
Baugs-
menn heimsóttu
rektor og vildu
að ég yrði rekinn
fyrir skrif mín
um Baugsfjöl-
skylduna