Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Side 54

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Side 54
54 Fólk 4.–6. október 2013 Helgarblað „Finnst Ísland æðislegur staður“ n Bam Margera giftir sig á laugardaginn Þ etta er allt voða fallegt og í minningu vinar hans, Ryan Dunn, sem lést fyrir tveimur árum síðan,“ segir Óli Finns- son um fyrirhugað brúðkaup og góð- gerðatónleika Jackass-stjörnunnar Bam Margera, en brúðkaupið fer fram í Hafnarhúsinu næstkomandi laugar- dag. Óli er einn skipuleggjenda þessa stóra viðburðar sem að hans sögn er í raun þríþættur. Klukkan sjö mun Margera kvænast unnustu sinni til tveggja ára, Nicole Boyd, en í stað hefðbundinnar brúðkaupsveislu munu brúðhjónin slá upp tónleik- um í hæsta gæðaflokki þar sem lokaatriðið í væntanlegri kvikmynd Margera verður tekið upp. Á tónleikunum koma fram hljómsveitir á borð við Sísí Ey, Kaleo, Endless Dark og Emmsjé Gauti auk þess sem Margera mun sjálfur troða upp ásamt hljómsveit sinni, Fuck- face Unstoppable, og geta allir keypt sér miða. „Tónleikarnir eru í raun haldnir til að vekja athygli á skorti á hjóla- brettagarði í Reykjavík og eins til að vekja athygli á söfnun sem hann er að hefja í kjölfarið. Svo ætlar Margera líka að taka upp lokaat- riðið í nýjustu bíómyndinni sinni sem heitir Let‘s Go to Jail og mun koma út á næstu mánuðum en hluti af ágóða þeirrar myndar mun renna til byggingar á hjólabrettagarði í Reykjavík.“ En af hverju er Margera svona umhugað um íslenska hjólabretta- menningu? „Hann er búinn að koma til Íslands oft áður, alveg sjö eða átta sinnum, og finnst Ísland alveg æðislegur staður. Honum hefur verið hjólabrettamenn- ingin á Íslandi hugleikin og hefur haft áhyggjur af því að það sé enginn hjóla- brettagarður í Reykjavík. Það er nátt- úrulega verið að rífa Hjartagarðinn, sem var byggður af áhugafólki, og það er alltaf verið að þrengja að niðri á Ingólfstorgi og minnka þannig þá aðstöðu sem hjólabrettafólk hefur í Reykjavík. En við erum búin að vera, í samstarfi við Brettafélag Reykjavíkur, að „díla“ við ÍTR og Reykjavíkurborg um að fá úthlutaða lóð og það ætti að skýrast núna á næstu dögum hvort að það sé ekki komið grænt ljós á það.“ n horn@dv.is Bam Margera Margera vill að hjóla- brettafólk í Reykjavík fái góða aðstöðu. Flytja á Nesið Hannes Smárason og Brynja X. Vífilsdóttir eru að flytja á Sel- tjarnarnesið. Munu þau hafa augastað á raðhúsi við Bakkavör sem Jóhannes Stefánsson, veitingarmaður í Múlakaffi og Hörpunni, er að flytja úr. Eiríkur Jónsson segist hafa öruggar heimildir fyrir þessu á bloggsíðu sinni. Samkvæmt sömu heimildum hafi Hannes ráðgert að flytja til Boston ásamt Brynju en barnsfaðir hennar, Þorsteinn Stephensen tónleikahaldari, hafi komið í veg fyrir það í krafti sam- eiginlegs forræðis yfir barni þeirra. Seltjarnarnesið verði því milli- lending í því máli. Pulla er nýjasta viðbótin Það hefur fjölgað á heimili Steinda Jr. en hann og unnusta hans Sig- rún hafa fengið sér hund. Í Séð og heyrt segir að nýjasti fjöl- skyldumeðlimurinn, sem er franskur bolabítur, hafi fengið nafnið Pulla. Skötuhjúin ku vera afar ánægð með litla krílið en þau hafa beðið komu hans í nokkra mánuði. Steindi segir í samtali við Séð og það verði spennandi og krefjandi að ala Pullu upp. Hann muni ekki fara neitt án hennar næstu vikurnar og muni fela hana innan klæða, ef svo ber undir. n Keyrir inn í framtíðina á Tesla-S n Rúmar fjórar sekúndur í hundrað v ið ættum að skoða mjög alvarlega, akkúrat núna þegar að batteríin eru orðin svona endingargóð, að skipta út bensínbílum fyrir rafmagnsbíla,“ segir Eyþór Arnalds, tónlistarmaður og formaður bæj- arráðs Árborgar í samtali við DV. „Ef það er einhvers staðar hægt að reka rafmagnsbíl í heiminum þá er að það á Íslandi.“ Eyþór er einn af sjö íslenskum kaupendum að nýju raf- magnsbifreiðinni Tesla-S sem nafn- greindir eru á bandarísku vefsíðunni Plugincars.com. Eyþór fer fögrum orðum um tæknilega þróun rafbíla síðustu ár en þykir þó heldur undarlegt að banda- rísk vefsíða skuli birta nöfn einstakra kaupenda að lúxusbifreiðinni en alls hefur fyrirtækið Northern Lights Energy selt 20 eintök af lúxusbílnum samkvæmt frétt hjá Viðskiptablað- inu. Að sögn Eyþórs hefur þegar ver- ið gengið frá samningi og er bíllinn væntanlegur til landsins um næstu mánaðamót. Um er um að ræða öfl- ugan gráan fólksbíl að sögn Eyþórs sem kostar með flutningi um 12 milj- ónir króna. „Segjum sem svo að hluti af kaupunum verði lán þá sýnist mér að sparnaðurinn á móti borgi nið- ur það lán. Þannig að þetta er hag- kvæmur kostur,“ segir Eyþór. Nánast ekkert viðhald „Ég keyri mjög mikið, kannski 100 til 150 kílómetra að meðaltali á dag. Þessi bíll er langdrægur og á að kom- ast 450 kílómetra í einu. Raforku- verðið er það lágt á Íslandi miðað við olíuna sem við erum að flytja inn að mér sýnist ég geta sparað um millj- ón á ári í bensínkostnað,“ segir Eyþór sem segir bifreiðina einnig ódýrari í almennu viðhaldi. „Það er ekki vél í bílnum og það þarf ekki að smyrja eða setja olíu. Með því að skipta um hjólbarða og batterí getur bíllinn enst lengur en bílarnir sem eru á göt- unni í dag.“ Eyþór bendir á að batter- íið í bílnum endist í allt að sjö árum áður en þörf er á endurnýjun. Ferðamáti framtíðarinnar Eyþór bendir á að góð ending á batt- eríum sé forsendan fyrir ört stækk- andi markað á rafbílum. „Stillingin á bílnum og rafkerfið er allt uppfært við netið eins og með farsíma. Þú tengir hann bara við tölvu þráðlaust heima hjá þér og færð uppfærslu á bílnum yfir netið,“ segir Eyþór um hina kynngimögnuðu þróun rafbíls- ins en maðurinn á bak við hönnun- ina er athafnamaðurinn Elon Musk sem er einn af stofnendum PayPal en hann vinnur nú að þróun á framtíð- ar hátækniferðamáta í samstarfi við NASA. Umhverfisvænt Eyþór er ekki síst spenntur fyrir um- hverfisþættinum í valinu á bifreið og telur hann endingarbetri til lengri tíma litið. „Það má ætla að líftíminn verði lengri þar sem bíllinn er byggð- ur úr áli,“ segir Eyþór. „Aðalatriðið er að þetta er umhverfisvænn bíll. Ef þú ert að kaupa raforku á Íslandi sem er búin til með grænum hætti, en ekki með losun á gróðurhúsalofttegund- um, þá ertu á umhverfisvænum bíl.“ Rafmagnið er valkostur Töluverð þörf er á fleiri rafbílum hérlendis að mati Eyþórs þar sem Íslendingar eigi tvöfalt fleiri bensín- bíla á hvern íbúa miðað við Evrópu- búa. Hér gangi engar rafmagnslestar og að Íslendingar þurfi að flytja inn allt sitt jarðefnaeldsneyti. „Við Ís- lendingar notum tvöfalt meira af olíu og bensíni en Bandaríkjamenn. Þetta er í dag valkostur, við getum valið rafmagnið,“ segir Eyþór og tel- ur að ekki sé þörf á að leggja áherslu á olíuleit á íslenskum miðum. „Ég held að við ættum að byrja á því að nota rafmagnið sem við höfum því við erum með það mikið rafmagn að við ættum að nýta það í fleiri hluti en við erum að gera í dag,“ segir Ey- þór að lokum. n Svala Magnea Georgsdóttir blaðamaður skrifar svala@dv.is Eyþór kEypti 12 milljóna rafbíl Eyþór Arnalds „Við Íslendingar notum tvöfalt meira af olíu og bensíni en Bandaríkjamenn. Þetta er í dag valkostur, við getum valið rafmagnið,“ segir Eyþór. Reimleikar í Reykjavík Ný bók Steinars Braga og Rakel- ar Garðarsdóttur sem ber heitir Reimleikar í Reykjavík og byggir á sönnum atburðum, er vænt- anleg í nóvember. Rakel, sem er framkvæmdastýra Vesturports, hyggst svo framleiða sjónvarpsser- íu byggða á hugmyndinni en þetta mun vera í fyrsta sinn sem Vestur- port og Steinar Bragi starfa saman. Ekki er ljóst hvenær von er á þátt- unum en þeir verða sýndir á RÚV.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.