Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Qupperneq 56
Hitti Gary í
Mark?
Forvitnilegur
gestalisti
n Vökull vegfarandi sem leið átti
um Tjarnargötuna síðastliðið
föstudagskvöld rakst á röð lím-
mósína á litlum einkavegi við
ráðherrabústaðinn. Samkvæmt
upplýsingum DV virðast einhver
veisluhöld hafa staðið yfir í bú-
staðnum þar sem meðal annars
stóðu á skrafi góðglaðir saman
þeir Bjarni Benediktsson og Geir Ha-
arde. Þar gat einnig að líta þriðja
manninn, silfurhærðan með hvítt
alskegg, og giskaði vegfarandinn
á að þar færi Gylfi Arn-
björnsson, forseti ASÍ.
Ansi forvitnilegur
gestalisti það.
Nældi í kærustu
félaga síns
n Knattspyrnumaðurinn Gary
Martin er lukkulegur um þess-
ar mundir. Hann varð ekki að-
eins Íslandsmeistari með KR á
dögunum, þar sem hann nældi
í bronsskóinn, heldur er hann
kominn með kærustu. Séð
og heyrt greinir frá því að sú
heppna sé Guðrún Dögg Rúnars-
dóttir, sem krýnd
var ungfrú Ísland
árið 2009. Guð-
rún Dögg var
áður kærasta Mark
Doninger, liðs- og
herbergisfélaga
Martin hjá
ÍA, þegar
þeir léku
þar. Don-
inger var,
áður en
hann fór
af landi,
dæmdur
í fangelsi
fyrir of-
beldisbrot.
Morfísræða
Sigmundar
n Ræða Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar forsætisráðherra um
fyrirmyndarlandið vakti töluverða
athygli. Þá sérstaklega ummæli
hans um mikilvægi hins sameigin-
lega gildismats þjóðarinnar og að
leyfa ekki sundrung og niðurrif-
söflum „að draga úr okkur þrótt.“
Þeir sem vel þekkja til þykjast sjá
augljós ummerki aðstoðarmanns
Sigmundar, Jóhannesar Þórs Skúla-
sonar, á ræðu Sigmundar. Jóhann-
es hefur þjálfað ófá Morfísliðin
í gegnum tíðina með góðum ár-
angri. Spurning er
hvort Morfístaktík
gamla þjálfarans
dugi jafn vel til að
sannfæra þjóð um
hið rétta sameigin-
lega gildismat, eins
og hún dugði til að
vinna ræðu-
keppni í
mennta-
skóla.
S
ögulegar sættir urðu í húsa-
kynnum Bjarts og Veraldar
á þriðjudaginn þegar Guðni
Ágústsson og Hallgrímur
Helgason hittust þar óvænt. „Ég stóð
niðri í kjallara og tuttugu trappa stigi
upp, þá kom allt í einu rithöfund-
urinn með hattinn á hausnum nið-
ur stigann. Þegar hann kom niður á
gólfið þá heilsaði hann mér handa-
bandi, en við höfum aldrei heilsast.
Þar fóru fram orðaskipti okkar á milli
um fortíðina, en við höfum aldrei hist
eða náð saman. Hann er gagnrýn-
inn maður og hafði ýmislegt sagt um
mig og var lítill vinskapur með okkur,“
sagði Guðni í samtali við DV.
Spurður nánar úti hvað hafi far-
ið þeim á milli sagði Guðni: „Ég
sagði við hann um leið og hann tók
í höndina á mér: „Nú tek ég í hönd
sem ég hef aldrei tekið í fyrr, hönd
sem hefur skrifað um mig margan
ljótan texta.“ Hann svaraði að bragði:
„Þú tapaðir nú ekki á því sem ég skrif-
aði, þú græddir á því og gerðir þér
til tekna. Ég minnist áramótaskaups
sem ég vann og þá hófst frægð þín. Þá
sagðir þú í líki Jóhannesar Kristjáns-
sonar: „Þar sem tvö tré koma saman,
þar er skógur.““
Guðni segist hafa sagt
Hallgrími að þetta væri
rétt hjá honum, en hafi
svo bætt við að hann hefði
aldrei trúað því að hann
væri illmenni, því hann væri af
góðu fólki kominn. Hann hafi þekkt
foreldra hans, sérstaklega Helga Hall-
grímsson vegamálastjóra. „Þá spurði
hann: „Eigum við ekki að láta allar
þessar gömlu erjur niður falla?“ Þá
sagði ég að engin ástæða væri til að
bera það með sér, við skyldum láta
fortíðina eiga sitt.“ n
Sögulegar sættir Guðna og Hallgríms
n Guðni Ágústsson og Hallgrímur Helgason slíðra sverðin
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 4.–6. októBeR 2013 112. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr.
Guðni Hefur aldrei trúað því að Hallgrímur
væri fúlmenni þar sem hann þekkti foreldra
hans. MynD MynD SiGtRyGGuR ARi JóHAnnSSon
PHILIPPE STARCK
Philippe Starck hefur útfært hugmyndir svo lengi
sem hann man. Þó háþróaðar hugmyndir hans hafi
ekki fengið hljómgrunn kennara hans, var hann
þó um tvítugt búinn að afla sér heimsfrægðar og
viðurkenningar fyrir hönnun og arkitektúr.