Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Síða 8
8 Fréttir 25.–27. október 2013 Helgarblað Eldur hjá Borgarplasti Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höf­ uðborgarsvæðinu var kallað út skömmu fyrir hádegi á fimmtudag vegna tilkynningar um að eldur væru laus í Mosfellsbæ. Um var að ræða húsnæði iðnaðarframleiðslu­ fyrirtækisins Borgarplasts að Völu­ teig 31. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og segir í tilkynningu að um minniháttar atvik hafi verið að ræða. Betur fór en á horfðist en talið er að eldurinn hafi kviknað í vél. Auðbrekku 19 - Kópavogi - S. 5445550 GODDI.IS SÁNA KLEFAR Með infra rauðum hitageislum. Margar gerðir. Þorskroð græðir sár Fyrirtækið Kerecis hlýtur hvatn­ ingarverðlaun LÍÚ árið 2013. Sam­ kvæmt tilkynningu frá LÍÚ er fyrir­ tækið í fararbroddi í heiminum í hagnýtingu omega 3­olíu við fram­ leiðslu á húðkremi. Fyrirtækið fékk nýlega einkaleyfi í Bandaríkjunum á aðferð sinni. „Stærsta verkefni Kerecis er framleiðsla og markaðs­ setning á stoðefninu MariGen úr þorskroði, sem notað er til að græða þrálát sár,“ segir í tilkynningunni. Braut gegn fjórtán ára Ónafngreindur karlmaður var í Héraðsdómi Austurlands í gær dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi, þar af tólf skilorðs­ bundna, fyrir kynferðisbrot gegn stúlku þegar hún var fjórtán ára gömul og hann ára­ tug eldri. Maðurinn braut gegn stúlkunni aðfaranótt laugar­ dagsins 11. ágúst 2012 en fyrir dómi játaði hann skýlaust brot sitt. Dómurinn kveður á um að maðurinn muni sitja inni í þrjá mánuði af fimmtán haldi hann skilorð. Þá var hann dæmdur til að greiða stúlkunni 250 þúsund krónur í miskabætur ásamt vöxtum og 631 þúsund krónur í sakarkostnað. ekki af fundum B jarni Benediktsson fjármála­ ráðherra vék ekki af fund­ um skipulagsnefndar Garða­ bæjar þegar málefni tengd jörðinni Selskarði voru tekin fyrir. Jörðin er að hluta til í eigu föður Bjarna, Benedikts Sveinssonar, sem deilir tíu prósenta hlut í henni með systkinum sínum, en eignarhlutur­ inn hefur verið í eigu fjölskyldunnar í hálfa öld. Eins og DV hefur greint frá eru hagsmunir eigenda jarðarinn­ ar miklir þegar kemur að lagningu nýs Álftanesvegar í gegnum Garða­/ Gálgahraun, en framkvæmdin mun auka verðmæti lands í eigu þeirra og gera þeim kleift að selja þar byggingalóðir. Landeigendur Selskarðs, sem tala iðulega einu máli í fjölmiðl­ um, hafa sjálfir talað um milljarða hagsmuni þegar kemur að skipulagi svæðisins. Beittu þeir sér sérstaklega gegn þremur vegleiðum á þeim forsendum að þær myndu stórskaða hagsmuni eigenda Selskarðs, eins og Morgunblaðið greindi frá. Fallist var á leið D sem kölluð var „sáttaleið“. Bjarni sat fundi þar sem vegleiðirnar voru til umfjöllunar í skipulags­ nefnd. Nú þegar eru fimm hektarar landsins á aðalskipulagi en ljóst er að eigendur vonast eftir því að geta nýtt landið til frekari byggingafram­ kvæmda í nánustu framtíð, ef marka má nýleg ummæli þeirra í fjölmiðl­ um. Garðabær sendi frá sér sérstaka fréttatilkynningu í kjölfar fréttaflutn­ ings DV af málinu þar sem stað­ hæft var að Bjarni hefði „ávallt vikið sæti þegar málefni jarðarinnar Sel­ skarðs voru á dagskrá.“ Upplýsinga­ fulltrúi Garðabæjar staðfestir í sam­ tali við DV að þær upplýsingar hafi ekki verið réttar. Bjarni hafi ekki vik­ ið af fundum skipulagsnefndar þegar málefni jarðarinnar voru til umfjöll­ unar, nema einu sinni. DV gaf fjár­ málaráðherra tækifæri til að tjá sig um málið en hann kaus að gera það ekki. Gáfu rangar upplýsingar Upplýsingafulltrúi Garðabæjar sendi tilkynningu á fjölmiðla í kjöl­ far fréttaflutnings DV, og var sú til­ kynning einnig birt á vef bæjarins undir fyrirsögninni: „Fagleg sjónar­ mið ráða veglínu“. Þar kom fram að ákvörðun um veglínu Álftanes­ vegar hefði ávallt byggst á faglegum forsendum og aldrei verið tekin í sérstöku samráði við landeigendur. Þá fullyrtu bæjaryfirvöld að Bjarni Benediktsson hefði hvergi komið að ákvörðunartökunni og ávallt vikið af fundum skipulagsnefndar Garða­ bæjar, eða eins og sagði orðrétt í til­ kynningunni: „Rétt er að taka fram að þann tíma sem Bjarni Benedikts­ son fjármálaráðherra sat í skipulags­ nefnd Garðabæjar vék hann ávallt sæti þegar málefni jarðarinnar Sel­ skarðs voru á dagskrá.“ Yfirlit yfir fundargerðir skipulags­ nefndar Garðabæjar á vef Garða­ bæjar leiðir annað í ljós. Af þeim sjö skiptum sem Bjarni sat fundi þar sem málefni Selskarðslandsins voru til umfjöllunar, vék hann einu sinni, eða þann 24. október 2007. Bjarni sat þar af leiðandi sex fundi allt frá árinu 2002, þar sem málefni jarðar­ innar voru til umfjöllunar. Guðfinna B. Kristjánsdóttir, upplýsingafull­ trúi Garðabæjar, staðfestir í samtali við DV að fullyrðing bæjarins um að Bjarni hefði ávallt vikið sæti væri röng. Upplýsingarnar hafi byggt á einni fundargerð þar sem fram kom að Bjarni hefði vikið. Skipulagði veglínu Á einum þeirra funda, þar sem mál­ efni Selskarðs voru til umfjöllun­ ar, þann 24. október 2007, vék hann vegna hagsmunatengsla, en það gerði hann hins vegar ekki í hin­ um sex tilfellunum. Bjarni sat meðal annars fund þann 5. mars árið 2003, þar sem veglína D um Garða­/Gálga­ hraun var sérstaklega til umfjöllun­ ar, en núverandi vegaframkvæmdir byggja á þeirri tillögu. Í fundargerð frá þeim fundi kemur fram að Ey­ vindur G. Gunnarsson, lögmaður eigenda Selskarðslandsins, hafi skil­ að inn sérstöku erindi fyrir hönd landeigenda Selskarðs. Þá sat Bjarni fund þann 26. september 2007 þar sem lögð var fram tillaga að breytingu aðal­ skipulags Garðabæjar, sem unnin hafði verið af skipulagsstjóra bæj­ arins. Miðaði hún að því að flytja legu Álftanesvegarins „til suðurs frá hraunjaðri Gálgahrauns, til vesturs að Selskarði.“ Samkvæmt tillögunni átti byggð norðan við Álftanesveg að verða „skilgreind sem svæði fyrir íbúðabyggð og þjónustustofnanir.“ Á núverandi aðalskipulagi Garðabæj­ ar er fyrirhugað að selja lóðir fyrir þjónustukjarna á landi Selskarðs, norðan við nýjan Álftanesveg, með­ al annars til að þjónusta 5.000–6.000 íbúa byggð í Garðaholti. Þá greindi Fréttablaðið frá því í september að eigendur landsins væru ennþá með áætlanir uppi um að reisa 400 íbúða hverfi á landi sínu, en það hverfi hef­ ur ekki verið samþykkt af skipulags­ yfirvöldum. Vilja meira byggingarland Morgunblaðið fjallaði ítarlega um áhyggjur eigenda Selskarðs af nýj­ um Álftanesvegi í tveimur greinum á árunum 2000–2001. Þar kom með­ al annars fram að eigendur Selskarðs legðust gegn þremur veglínum sem rætt hafði verið um í matsáætlun, þar sem þær „stórskaði hagsmuni eigenda.“ Síðar var lögð fram ný til­ laga að veglínu sem kölluð var lína D eða „sáttaleið“ en samkvæmt þeirri áætlun færi nýi vegurinn hvergi inn á land Selskarðsmanna nema þá þar sem hann tengdist gamla vegin­ um, sem liggur í gegnum land þeirra. Framkvæmdir við gerð Álftanesvegar byggja á þessari leið. Þrátt fyrir að þessi leið hafi á end­ anum verið verið farin eru eigendur jarðarinnar þó ekki á eitt sáttir í dag. Í umfjöllun Fréttablaðsins þann 27. september var haft eftir þeim að nýr Álftanesvegur myndi kljúfa verð­ mætt byggingarland á jörð þeirra og valda þeim fjárhagstjóni. Þessu hefur Garðabær hins vegar neitað eins og fram kemur í tilkynningu á vefsíðu bæjarins: „[N]ýr Álftanesvegur er ekki látinn kljúfa væntanlega íbúða­ byggð sem er að öllu leyti fyrir sunn­ an veginn.“ Ný tillaga þeirra er á þá leið að fylgja eigi vegleið D í gegnum hraunið, en að vegurinn liggi síð­ an niður í fjöru í stað þess að tengj­ ast gamla Álftanesveginum þar sem hann liggur í gegnum land þeirra. Þannig vilja eigendur losa meira land við gamla veginn til byggingar­ framkvæmda. Sendu eigendur sér­ stakt minnisblað á innanríkisráð­ herra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, vegna málsins. Fleiri verðmæti DV greindi frá því í vikunni að lög­ maður eigenda Selskarðsjarðarinn­ ar, Sigurður Kári Kristjánsson, hefði fundað með Vegagerðinni á þriðju­ dag. Ekki fengust upplýsingar hjá Sig­ urði Kára eða Vegagerðinni um hvað fundurinn snerist. Heimildir blaðsins herma að málið snúist um ólíka túlk­ un aðila á landamörkum, og hvort að nýi vegurinn, skerði að einhverju leyti framtíðarhagsmuni landeigenda. Þó að eigendur Selskarðs hafi að­ allega horft til þess að nýta landið fyrir byggingalóðir, hafa þeir einnig bent á að fleiri verðmæti séu í húfi. Þannig sendi lögfræðingur þeirra erindi sem tekið var fyrir á fundi skipulagsráðs þann 5. febrúar 2002, þar sem vísað var til þess að eigend­ ur teldu sig eiga sandnámuréttindi í Garðaholti: „Vísað er til bréfs, dags. 12. júlí 2002, sent til bæjarstjórnar varðandi sandnámuréttindi eigenda Selskarðs í Garðaholti.“ Þá sagði lögmaður eigendanna í samtali við Morgunblaðið á sín­ um tíma, að mögulega væri frekari verðmæti að finna í landi Selskarðs: „Þá segir Björn Erlendsson [lögmað­ ur landeigenda, innsk. blm.] að fleiri verðmæti séu í húfi því tilraunabor­ anir bendi til þess að nýtanlegur jarðhiti sé í landinu, sem nota megi til að hita upp þá byggð sem reist verði í landi Selskarðs.“ n n Upplýsingafulltrúi Garðabæjar viðurkennir að hafa farið með rangt mál Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is „Rétt er að taka fram að þann tíma sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sat í skipulagsnefnd Garða- bæjar vék hann ávallt sæti þegar málefni jarðarinnar Selskarðs voru á dagskrá. Vék ekki Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra vék ekki af fundum skipulagsnefndar Garðabæjar þegar fjallað var um Selskarðsland. Bjarni Ben vék Framkvæmdir Eigendur Selskarðs- landsins eiga mikilla hagsmuna að gæta þegar kemur að nýjum Álftanesvegi um Garða-/Gálgahraun. Myndir SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.