Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Qupperneq 12
12 Fréttir 25.–27. október 2013 Helgarblað
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Ryksuguúrval
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Vestmannaeyjum
5.990,-
Spandy heimilisryksugan
• 1600W
• afar hljóðlát
• mikill sogkraftur > 18KPA
• Hepa filter
• margnota poki
Drive ryksuga í bílskúrinn
• 1200W
• 20 lítra
• sogkraftur > 16KPA
• fjöldi fylgihluta
7.490,-
Model-LD801
Cyclon ryksuga
2200W
8.990,-
Varar við djöfullegri
hugmyndafræði
n Sakar Drekaslóð um að búa til falskar minningar n„Þetta er land fáránleikans“
G
unnar Þorsteinsson setur
Drekaslóð í samhengi við
djöfla í pistli sem hann birti
á netinu, auk þess sem hann
sakar Thelmu Ásdísardóttur,
ráðgjafa á Drekaslóð, um að búa til
minningar í huga fólks og varar við
starfseminni.
Pistlar Gunnars um þessi málefni
birtust á miðvikudag og fimmtudag,
í tengslum við fyrirtöku á meiðyrða
máli sem Gunnar höfðaði á hend
ur Ástu Knútsdóttur, Sesselju Barð
dal, fyrrverandi ritstjóra Pressunnar
og útgáfustjóra Pressunnar, vegna
ummæla þeirra þegar þær sökuðu
Gunnar um kynferðisbrot. Gunnar
krefst fimmtán milljóna í skaða bætur
og afsökunarbeiðni.
Málið var tekið fyrir í Héraðs
dómi Reykjavíkur á miðvikudag. Þar
fór Gunnar fram á lokað réttarhald
og til vara fram á fjölmiðlabann, en
kröfum hans var hafnað. Enda er
meginreglan sú að þinghöld skuli
háð í heyranda hljóði og ríkar ástæð
ur þurfa að liggja fyrir til að vikið sé
frá því.
Lögmaður Ástu og Sesselju fór
einnig fram á að Thelma fengi að
gefa skýrslu við aðalmeðferð í mál
inu, á þeim forsendum að þegar
Thelma starfaði á Stígamótum árið
2007 hefði hún hitt konu sem sakaði
Gunnar um kynferðisbrot. Árið 2008
hafi hún síðan hitt aðra konu sem bar
svipaðar sakir á Gunnar. Auk þess
hafi hún sinnt handleiðslu fyrir hluta
hópsins sem steig fram opinberlega
og sakaði Gunnar um kynferðis brot,
eftir að þær höfðu sagt sögu sína í
fjölmiðlum. Þar sem Gunnar héldi
því fram að um upplognar sakir væri
að ræða gæti Thelma varpað ljósi á
málið. Því var hins vegar hafnað á
þeim forsendum að hún væri ekki
beinn aðili að málinu og Thelma
mun því ekki bera vitni í því.
Hlakkaði til að verjast
Síðar þennan sama dag birti Gunnar
pistil þar sem hann sagðist vera að
koma úr dómþingi. „Nú, dómþingið
í Reykjavík áðan fór vel. Það átti að
leiða fram vott sem býr yfir þeirri
hugmyndafræði að búa til minn
ingar og kenna fólki að muna og rifja
upp hluti sem aldrei hafa gerst. Það
sjá allir að fá slíkt inn í réttarsal er fá
dæma og þessi aðferðarfræði að búa
til minningar, kenna fólki að segja
ósatt, og annað í þeim dúr á sér ekki
stað fyrir íslenskum dómi, sem betur
fer.“
Sagðist hann þurfa að verja hend
ur sínar þar sem harkalega hefði
verið að honum sótt, hópur kvenna
hefði borið á hann sakir og lagt fjöl
skyldu hans í einelti með freklegum
hætti. Hann hlakki því til að verjast.
„Ég hef ekki fram að þessu haft mig
í frammi um að verja mig í sjálfu sér.
En nú mun það verða og ég verð að
segja að það er tilhlökkun að fá að
hreinsa sig af þessum ljóta áburði
sem hefur verið borinn á mig. Og síð
an að þessar barsmíðar á börnin mín
og barnabörn, að þeim fari að linna.
Þetta er ljótur leikur.“
Ljóst væri að einhverjir teldu sig
hafa hagsmuna að gæta og þannig
hefði málið allt verið búið til. „Það
er búinn til vöndull af fólki sem er að
segja sögur af ýmsu.“
„Búa til minningar“
Á fimmtudag birti Gunnar síðan
annan pistil þar sem gekk enn harð
ar fram gagnvart Thelmu og Dreka
slóð. Gunnar talaði í nafni trúarinnar
og þakkaði fyrir að fá nokkrar mín
útur með áheyrendum til að deila
Guðs orði. Hann ræddi síðan um
vald óvinarins, hversu öflugt það
væri og hvernig það tröllriði íslensku
samfélagi. „Ritningin kennir okkur
að óvinurinn hefur fjórar birtingar
myndir, það er að segja satan,
djöfull, höggormur og dreki. Þessar
birtingarmyndir eru misskæðar en
þeirra skæðust er drekinn, afl drek
ans,“ segir Gunnar. „Þetta afl óvinar
ins verkar með þeim hætti að það
tekur hugsanir og hugrenningar og
teygir úr þeim, skrumskælir og breyt
ir og notar lygaanda til að blekkja í
stórum stíl.“
Sagðist hann sjá það í umræðunni
að oft væri erfitt að henda reiður á
hvað væri rétt og rangt, því myndin
væri svo skekkt. „Við vitum líka að
margir Íslendingar glíma við erfiðar
hugsanir, svo erfiðar að menn þurfa
að leita sér hjálpar. Menn glíma
við þunglyndi. Hvað er þunglyndi í
raun? Oft er þunglyndi það að menn
dvelja við einhverjar hugsanir, ein
hvern viðburð og hann verður stór og
risavaxinn og það kemst ekkert ann
að á skjá hugans en það. Og menn
falla í þessa gildru óvinarins að vera
með hugsanir sínar læstar í einhverj
um farvegi sem er óguðlegur og and
kristilegur og þessu verðum við að
gæta að.
Nú, ég tek eftir því að samtök
hér á höfuðborgarsvæðinu kalla
sig Drekaslóðir. Það er merkilegt að
menn skuli kenna sig við þetta ofur
vald sem hefur það að hlutverki sínu
að skekkja og brengla það sem kem
ur upp á borðið. Ég veit að Dreka
slóðir starfa eftir hugmyndafræði
sem byggir á því að búa til minn
ingar.“
Varaði við valdi drekans
Í pistlinum ræddi Gunnar um bókina
Courage to Heal, máli sínu til stuðn
ings. „Þar er á ferðinni hugmynda
fræði sem er, að ég má segja hér, bara
djöfulleg. Hún byggir á því að rang
færa og búa til og síðan að hneppa
menn í fjötra eftir því. Þessi hug
myndafræði olli gríðarlegum skaða
víða í Bandaríkjunum og Bretlandi,
þar til menn sneru til varnar í sókn á
hendur aðila sem byggja á þeirri hug
myndafræði. Þetta eru algjör gervi
vísindi, þetta er land fáránleikans.“
Að lokum varaði Gunnar við
„valdi drekans“. „Það er hræðilegt.
Látum ekki blekkjast, höldum huga
okkar hreinum, látum Guðs orð
hreinsa hugann og höfum það sem
réttara er að leiðarljósi. Við eigum
aðgang að sannleikanum, hann er í
sinni Guðs og allir geta leitað sann
leikans. Jesús er vegurinn, sannleik
urinn og lífið.“
Talað niður til þolenda
Thelma hafði hlustað á pistla
Gunnars en sagði þá varla svara
verða. „En auðvitað þykir mér vænt
um Drekaslóð og er ekki ánægð með
að hann líki Drekaslóð við djöfla
starfsemi. Lýsingar hans á hug
myndafræðinni og starfinu eru fjarri
lagi. Enda veit ég ekki hvaðan hann
telur sig hafa þessar upplýsingar því
hann hefur ekki komið hingað og
kynnt sér starfið. Ef hann hefði gert
það þá vissi hann betur.“
Rétt er að taka fram að starf Dreka
slóðar byggir ekki á þessari bók, sem
er eins konar sjálfshjálparbók fyrir
þolendur kynferðisofbeldis. Starfið
byggir á svokallaðri jafningjahug
myndafræði, sem þýðir að allir sem
koma að ráðgjöf og tilfinningalegri
vinnu með fólki hafa sjálfir unnið úr
afleiðingum ofbeldis og að þeir sem
þangað leita ráða ferðinni sjálfir. „Í
raun þá finnst mér hann tala mjög
niður til þolenda kynferðisofbeldis og
gera lítið úr því fólki sem kemur hing
að þegar hann leyfir sér að fullyrða að
mitt starf felist í því að planta lygum í
huga fólks.
Það hlýtur að hafa velgt honum
verulega undir uggum að sjá að ég
myndi hugsanlega bera vitni í þessu
máli. En það er ekki hægt að taka
orð hans alvarlega. Orð hans dæma
sig sjálf. Mér finnst svona gaspur
ábyrgðarlaust og jarða við það að
vera hlægilegt, kjánalegt. Mér finnst
bara athyglisvert að maður sem er í
meiðyrðamáli skuli leyfa sér svona
grófan rógburð á netinu.“ n
Segir orðin dæma sig sjálf Thelma skilur ekki hvernig maður sem stendur í miðju meiðyrðamáli geti leyft sér slíkan rógburð á netinu, en
orð hans dæmi sig sjálf. Mynd SigTryggur Ari
Varar við valdi drekans Gunnar segir að samkvæmt ritningunni hefði óvinurinn fjórar
birtingarmyndir, sem satan, djöfull, höggormur og dreki. Skæðast er afl drekans og í Dreka-
slóð búi ráðgjafar til minningar.
„Drekaslóðir starfa
eftir hugmynda-
fræði sem byggir á því að
búa til minningar.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is