Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Page 22
22 Fréttir 25.–27. október 2013 Helgarblað
Berlusconi enn í bobba
n Sagður hafa greitt næstum hálfan milljarð króna í mútur
S
ilvio Berlusconi, fyrrverandi
forsætisráðherra Ítala, á ekki
sjö dagana sæla. Nú sér hann
fram á enn ein réttarhöldin.
Í þetta skiptið er Berlusconi gefið
að sök að hafa greitt þingmanni
þrjár milljónir evra, eða ígildi hátt
á fimmta hundrað milljóna ís-
lenskra króna árið 2006, í mút-
ur. Þingmaðurinn var meðlimur í
meirihluta ríkisstjórnar Romano
Prodi á þingi og var samkvæmt
þessu gerður að auðmanni fyrir að
svíkja flokkinn sinn og fella ríkis-
stjórnina þáverandi. Það gerðist
2008 og leiddi til kosninga þar sem
Berlusconi komst aftur að kjötkötl-
unum.
Þingmaðurinn, Sergio De
Gregorio, játaði sök á miðvikudag
og hlaut 20 mánaða fangelsisdóm.
Sjálfur hefur Berlusconi haldið
því fram að hann sé fórnarlamb
einhvers konar áróðursherferðar
dómarastéttarinnar. Hann hefur
þó ekki tekið afstöðu opinberlega
til þessa máls. Berlusconi hefur
samtals hlotið tólf ára fangelsis-
dóma undanfarið ár. Hann fékk
fjögur ár fyrir skattsvik í október
2012, árs fangelsi fyrir að hafa
lekið afritum af hlerunum lög-
reglu í mars á þessu ári og sjö ára
dóm fékk hann í sumar fyrir að
hafa stundað kynlíf með ólögráða
vændiskonu.
Aðstoðarmaður Berlusconis,
Valter Lavitola, er einnig ákærður í
málinu. Hann hafði milligöngu um
múturnar. Gert er ráð fyrir að rétt-
arhöldin hefjist í febrúar, hver svo
sem reyndin verður. n
Hefur atvinnu
af reykingum
n Li Hui vinnur hjá tóbaksfyrirtæki og reykir 30 sígarettur á dag
L
i Hui hefur eytt lunganum
úr 21 ári í reykingar. Hún
hefur reykt 30 sígarettur, eða
hálfan annan pakka, á dag
í rúma tvo áratugi. Næst-
um allan þennan tíma hefur Li
unnið fyrir Heilongjiang-tóbaks-
fyrirtækið í samnefndu héraði í
norðaustur hluta Kína.
Li lætur engan bilbug á sér finna,
þó á undanförnum árum hafi skað-
semi reykinga orðið ljósari með
hverju árinu og að reykingar, sem
og óbeinar reykingar, séu almennt
litnar hornauga í kínversku sam-
félagi. „Þetta er vinnan mín og
mér líkar vel við hana,“ segir Li við
Global Times. Hún er ekki sann-
færð um skaðsemi reykinga. „Ég
er við góða heilsu og hef þess utan
ekki orðið vör við að neinn af þeim
sem ég umgengst hafi orðið veikur
af reykingum.“
Li er nokkuð þekkt í heima-
héraði sínu eftir að hafa kom-
ið fram í fjölmiðlum og talað um
vinnuna sína. Þegar Global Times
hafði samband við hana var hún
hins vegar mótfallin því að koma
í viðtal, þrátt fyrir að hafa nýver-
ið komið fram í sjónvarpi þar sem
hún talaði um starf sitt. „Ég vil ekki
tala núna. Þetta er ekki rétti tíminn
til þess. Þeim fer sífellt fjölgandi
sem eru beinlínis á móti reyking-
um.“ Hún hefur raunar notið að-
dáunar fyrir dugnað sinn og elju,
innan tóbaksgeirans, að því er fjöl-
miðillinn fullyrðir.
Þriðji hver reykingamaður
Kínverji
Vindlingaiðnaðurinn er hvergi
stærri en í Kína. Eftirspurnin er
enda mikil en í landinu búa 350
milljónir reykingamanna. Það
er um 35 prósent allra reykinga-
manna í heiminum. Li er ein af
hundrað sem starfa við prófun á sí-
garettum og er staðráðin í að halda
áfram að starfa á þessum vett-
vangi. Hún situr við skrifborð allan
liðlangan daginn og reykir sem
mest hún má. Hún andar djúpt að
sér tóbaksreyknum, heldur hon-
um niðri í svolitla stund, áður en
hún blæs rólega frá sér. Hún leggur
vandlega mat á bragðið og hvaða
áhrifum hún verður fyrir þegar hún
reykir hverja rettu. Eftir þrjá kröft-
uga „smóka“ er sígarettan næstum
upp urin og hún kveikir sér í nýrri.
Stundum reykir hún meira en tvo
pakka á einum vinnudegi.
Má ekki nota farða
Árið 1992 lauk Li efnafræðinámi
við Heilongjiang-háskólann. Hún
var reyklaus þegar hún fékk vinnu
við R&D Center of Harbin Cigar-
ette Plant en hefur viðurkennt að
hún hafi verið á báðum áttum.
Hún hafi hins vegar þurft á vinnu
að halda og áróður gegn reyking-
um í samfélaginu hafi verið hverf-
andi.
Fram kemur í grein Global
Times að starfið henti næmum
skilningarvitum kvenna betur
en karla. Li megi hins vegar ekki,
frekar en aðrar konur í þessum
störfum, nota andlitsfarða, krem
eða ilmvatn í starfi sínu. Allt slíkt
geti haft áhrif á upplifun þeirra af
sígarettunni. Þá má starfsfólkið
ekki neyta þess matar sem það kýs.
Kryddaður matur er á bannlista
auk kaffis og fleiri matvæla.
Við hestaheilsu
Eins og nærri má geta er starfið
nokkuð krefjandi og ekki fyrir
hvern sem er. Li hefur í nokkur
skipti reykt yfir sig, ef svo má að
orði komast, og kastað upp eða
fengið svima. Hún er hins vegar
sögð við hestaheilsu og glímir ekki
við neina sjúkdóma. Hún er dug-
leg að taka inn vítamín og steinefni
auk þess að borða hollan mat.
Ekki er sömu sögu að segja um
alla þá sem lagt hafa starfið fyrir
sig. „Ég vakna oft upp með háls-
inn fullan af slími og með óþægi-
lega tilfinningu í öndunarveginum.
Ég finn líka stundum til þyngsla í
brjóstholi,“ er haft eftir starfsmanni
sem hefur eftirnafnið Gao.
En hvernig eru launin? Global
Times segir að Li fái greitt um 100
þúsund krónur á mánuði. n
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Vitundarvakning í Kína Kínversk skóla-
börn sitja fyrir á mynd í tilefni af baráttu-
degi gegn reykingum.
Í vinnunni Li segist hafa kastað upp og fengið svima í vinnunni.
Eyðslubiskup
leystur frá
störfum
Vatíkanið í Róm hefur leyst Franz-
Peter Tebartz-van Elst, biskup í
Hesse í Þýskalandi, frá störfum
tímabundið. Ástæðan er óhóf-
leg eyðsla biskupsins sem eyddi
31 milljón evra, eða um fimm
milljörðum króna, í byggingu nýs
biskupsseturs. Franz, sem fengið
hefur viðurnefnið eyðslubiskup-
inn eða lúxus-biskupinn í erlend-
um fjölmiðlum, gekk á fund Franz
páfa í vikubyrjun og á miðviku-
dag var ákvörðun Vatíkansins til-
kynnt. Ekki liggur fyrir hvort eða
þá hvenær biskupinn snýr aftur til
starfa en rannsókn mun fara fram
áður en sú ákvörðun verður tekin.
Málið þykir allt hið vandræðaleg-
asta fyrir biskupinn sem einnig var
sakaður um að hafa flogið á fyrsta
farrými til að heimsækja fátæk
börn á Indlandi.
Alvöru byssa
reyndist vera
leikfangabyssa
Lögreglumenn í Kaliforníu í
Bandaríkjunum skutu þrettán ára
dreng til bana sem þeir töldu vera
vopnaðan hríðskotabyssu. Síðar
kom í ljós að aðeins reyndist um
leikfangabyssu að ræða. Atvikið
átti sér stað á þriðjudag og að
sögn lögraeglu reyndu lögreglu-
menn að fá drenginn til að láta
vopnið frá sér. Þegar hann neit-
aði skutu lögreglumenn nokkrum
skotum að honum. Drengurinn
var úrskurðaður látinn nokkrum
mínútum síðar.
Ókunnugur
maður í
líkkistunni
Ættingjum Bandaríkjamannsins
Jerry Moon var brugðið þegar
þeir opnuðu líkkistu hans áður en
hann var borinn til grafar á dögun-
um. Í líkkistunni reyndist vera lík
af öðrum manni. Fjölskyldan ætl-
aði að berja Moon augum áður en
hann yrði borinn til hinstu hvílu
en að sögn bandarískra fjölmiðla
var lík af 97 ára manni í kistunni.
Sá hafði verið klæddur í fötin sem
Moon átti að vera í. Í ljós kom að
herfileg mistök höfðu átt sér stað
á útfararstofu í bænum. Og til að
bíta höfuðið af skömminni var þá
þegar búið að brenna lík Moons
sem var eitthvað sem Moon vildi
alls ekki. „Við erum trúað fólk
og það eina sem við vitum er að
hann er í himnaríki núna,“ segir
sonur Moons.
Berlusconi sér fram á enn
ein réttarhöldin. Hann gengur
laus þrátt fyrir þrjá fangelsis-
dóma undanfarið ár. Mynd ReuteRS