Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Page 27
Þetta var
alveg frábært
Mistök sem kostuðu
næstum líf ungrar konu
Ég stend á rétti mínum
og beygi mig fyrir valdinu
Þorsteinn M. Baldvinsson um árshátíð Síldarvinnslunnar í Búdapest. – DVJón Gauti Jónsson í inngangi að bók sinni. – FjallabókinÓmar Ragnarsson þegar lögreglan handtók hann í Gálgahrauni. – DV
Ríkisstjórnin svíkur aldraða
Spurningin
„Já klárt mál. Engin spurning.“
Benjamín Þorlákur Eiríksson
16 ára nemi
„Ég satt best að segja veit það
ekki.“
Dagur Rafn Ingvarsson
23 ára nemi
„Já, mér finnst það.“
Áshildur Friðriksdóttir
17 ára nemi
„Mín skoðun er sú að hún sé pínu
spillt, en samt ekki í stórum
dráttum.“
Sigurður Baldvin Friðriksson
16 ára nemi
„Ég bara veit það ekki.“
Hermann Björgvin Haraldsson
17 ára nemi
Er íslensk stjórn-
sýsla spillt?
1 Lækni sleppt við refsingu vegna vanlíðunar
Páll Sverrisson vill að þeir sem brutu á
honum svari til saka.
2 Reið vegna rangrar sjúkdóms-greiningar
Var greind með magakveisu sem
reyndist vera einkirningasótt.
3 Ljósmyndasýning á enda-þörmum vekur eftirtekt
Sýning í Portúgal sem er ekki fyrir
viðkvæma.
4 „Tími sýklalyfja er liðinn“ Alvarleg sýklalyfjakreppa er
yfirvofandi.
5 Bjarni vék af fundum vegna tengsla
Eigendur höfðu áhyggjur af
fjárhagstjóni og sendu minnisblað á
innanríkisráðherra.
6 Öllum boðið til Búdapest Síldarvinnslan bauð 360 manns á
árshátíð til Ungverjalands.
Mest lesið á DV.is Sýnum þeim tærnar!
É
g tek þátt í knattspyrnuleik lífsins,
ég reyni að fara eftir þeim leikregl
um sem eru sannastar, réttastar og
bestar. Ég heimta að mönnum sé
sýnt rauða spjaldið ef þeir svindla. En ég
verð oft fyrir aðkasti og á mig er ráðist
vegna þeirra skoðana sem ég hef. Samt
sem áður reyni ég að virða fólk þótt ég
ráðist á skoðanir þess. Auðvitað er það
þó svo, að stundum fara menn þannig
að; hafa svo margar óheiðarlegar og óvið
eigandi framkvæmdir á samviskunni, að
ég leyfi mér ekki þann munað að hlífa
þeim við árásum mínum. Þetta hefur
þá með það að gera sem við mennirnir
köllum „skynsemi“. Skynsemishugtakið
er ekki alveg nýtt af nálinni, jafnvel þótt
það sé lítið notað. Það er rakið til manns
sem hét Þales og er af mörgum talinn
faðir vestrænnar heimspeki. Hann setti
skynsemina á oddinn og lét hugmyndir
trúar og hindurvitna ekki raska ró sinni.
Í meira en 2.600 ár hefur mannkynið
leyft skynseminni að vera með, allavega
alltaf annað slagið. Og þótt hugtakið þyki
bæði loðið og teygjanlegt, verðum við
samt sem áður að vona að skynsemin sé
eitt af þeim tækjum sem við neyðumst
til að styðjast við, ef við ætlum að bjarga
mannkyninu frá glötun.
Skynsemin ætti að vera nærtæk þegar
við leikum okkur, þegar við björgum
heiminum, þegar Guð blessar Ísland,
þegar Sigmundur Davíð Oddsson er
sigurvegari kosninga og þegar íslenska
landsliðið í knattspyrnu eygir von um
að komast í úrslitakeppnina um sjálfan
heimsmeistaratitilinn. Alltaf ætti skyn
semin að flækjast fyrir.
Við getum ráðist að öllu fólkinu sem
kaus Framsókn og sagt það vera heimskt
og illa gefið. En við getum einnig dustað
rykið af skynseminni og sagt um þetta
sama fólk, að það hafi í örvæntingu sinni
reynt að grípa í það eina hálmstrá sem
var hlaðið loforðum um réttláta lausn fyr
ir hin svokölluðu heimili í landinu. Við
getum sýnt þessu fólki meðaumkun og
samúð, þegar við áttum okkur á því að
Sigmundur Davíð Oddsson hafði aldrei
í hyggju að standa við loforðin. Hann
vildi bara halda áfram að nærast á þeirri
spillingu sem um æðar hans hefur ávallt
runnið. Og hann vildi líka styrkja íhaldið í
sessi og leyfa Bjarna Ben að njóta þess að
setjast á stjórnarbekkinn. Og svo hafa þeir
báðir leyft sér sjálfum að fara inná leikvöll
stjórnmálanna, þar sem þeir leika sér með
þann bolta sem er fjöregg þjóðarinnar.
Núna fáum við Íslendingar tveggja
leikja umspil um sæti í lokakeppninni og
við ætlum svo sannarlega að sýna and
stæðingum okkar tærnar. Við ætlum að
standa saman, öll sem eitt. Við ætlum
okkur að komast áfram og við ætlum að
sýna öllum hverjir eru bestir. En á sama
tíma erum við með tvo strákhnokka í
ríkis stjórninni; tvo óknyttagutta sem
kunna ekki að skammast sín þótt þeir séu
staðnir að verki við ótuktarhátt í hvert
skipti sem þeir hreyfa sig. Reyndar ættum
við öll að beita skynseminni og sýna þess
um tveimur guttum tærnar; sparka þeim
útaf vellinum og láta þá njóta afraksturs
þeirra verka sem þeir hafa sjálfir unnið.
Ef við leyfum skynseminni að opna
augu okkar þá sjáum við sorann sem
blasir við. Við munum sjá, að meira að
segja vegaframkvæmdir njóta vinsælda
hjá stjórnarherrum ef þeir sjálfir sjá í
þeim persónulega hagnaðarvon. n
Ef engum þarf að gefa grið
og græðgi veldur meini;
alltaf liggur íhaldið
einsog dýr í leyni.
S
tærsta kosningaloforðið, sem
núverandi stjórnarflokkar gáfu
öldruðum og öryrkjum í síð
ustu þingkosningum, var að
kjaragliðnunin, sem þessir hópar urðu
fyrir á krepputímanum, yrði leiðrétt
strax kæmust þeir til valda. Á lands
fundi Sjálfstæðisflokksins fyrir kosn
ingar 2013 var eftirfarandi samþykkt:
Ellilífeyrir sé leiðréttur strax til saman
burðar við þær hækkanir, sem orðið
hafa á lægstu launum síðan í ársbyrj
un 2009. Svipuð ályktun var sam
þykkt á flokksþingi Framsóknar. Þar
var eftirfarandi samþykkt: Lífeyr
ir aldraðra og öryrkja verði hækkað
ur vegna kjaraskerðingar þeirra (og
kjaragliðnunar) á krepputímanum.
Með kjaragliðnun er átt við, að lífeyrir
aldraðra og öryrkja hefur ekki hækkað
samsvarandi og kaup láglaunafólks en
tilskilið er í lögum, að svo skuli vera.
Kjaragliðnunin ekki leiðrétt
Þess var beðið með nokkurri
eftirvæntingu, hvort fjárveiting til leið
réttingar á kjaragliðnun lífeyrisþega yrði
í fjárlagafrumvarpinu, einkum þar sem
formaður Sjálfstæðisflokksins var orðinn
fjármálaráðherra og samþykkt lands
fundar flokksins um leiðréttingu strax var
afdráttarlaus. En það var ekki að finna
eina krónu í frumvarpinu til leiðréttingar
á umræddri kjaragliðnun. Það er því
ljóst, að ríkisstjórnin ætlar að svíkja aldr
aða um leiðréttingu á líf eyrinum.
Lífeyrir þarf að hækka um 20%
Hækka þarf lífeyrinn um a.m.k.
20% til þess að leiðrétta hann vegna
kjaragliðnunarinnar. Kaup láglaunafólks
hefur hækkað um 40% frá ársbyrjun 2009
en lífeyrir aldraðra (þeirra,sem búa einir
og hafa aðeins tekjur frá TR) hefur aðeins
hækkað um 17% á sama tíma. Öryrkja
bandalag Íslands telur að hækka þurfi líf
eyri öryrkja meira en 20% til þess að leið
rétta hann að fullu vegna kjaraskerðingar
krepputímans. Með því að hækka lífeyri
um 20% nú væri aðeins verið að hækka
hann í dag, mörgum árum síðar, til sam
ræmis við hækkun, sem láglaunafólk
hefur fengið fyrir mörgum árum og mest
á fyrri hluta krepputímans. Í því fælist
hins vegar engin leiðrétting fyrir liðinn
tíma. Sumir frambjóðendur stjórnar
flokkanna gáfu mjög róttækar yfirlýsingar
um að leiðrétta þyrfti kjör aldraðra og ör
yrkja til baka.
Aðeins hluti skerðinga afturkallaður
Ríkisstjórnin afturkallaði á sumarþinginu
tvær skerðingar á kjörum lífeyris
þega: Frítekjumark vegna atvinnu
tekna var hækkað á ný úr 40 þúsund
um á mánuði í 120 þúsund á mánuði
og þeir, sem misstu grunn lífeyri sinn
árið 2009 vegna greiðslna úr lífeyris
sjóði, fengu hann á ný. Þessi afturköll
un var góð svo langt sem hún náði en
hún var því marki brennd, að hún kom
aðeins þeim lífeyrisþegum til góða,
sem höfðu tiltölulega góð kjör svo sem
góðan lífeyrissjóð. Ekkert var gert fyr
ir þá lífeyrisþega, sem illa voru stadd
ir. Til dæmis afturkallaði sumarþingið
ekki kjaraskerðingu þeirra, sem urðu
fyrir barðinu á því að skerðingarhlut
fall tekjutryggingar var hækkað 2009 úr
38,35% í 45%.Við það urðu 28.000 lífeyris
þegar fyrir kjaraskerðingu. Fyrrverandi
ríkisstjórn tekur hins vegar ómakið af
núverandi stjórn í því efni: Lögin um
skerðingarhlutfall tekjutryggingar falla
sjálfvirkt úr gildi um næstu áramót. Þau
voru tímabundin.
Landssamband eldri borgara og Fé
lag eldri borgara í Reykjavík hafa ítrekað
ályktað að leiðrétta verði lífeyrinn vegna
kjaragliðnunar krepputímans. Þess er
krafist, að staðið verði við kosningalof
orðið í því efni og að það verði gert strax
eins og lofað var fyrir kosningar. Það hef
ur verið níðst á kjörum lífeyrisþega. Nú
er komið að því að leiðrétta kjörin.n
Rimmugýgur Þeir voru heldur vígalegir félagarnir í víkingafélaginu Rimmugýgi þegar ljósmyndari heimsótti þá á bardagaæfingu á dögunum.
Mynd þoRRiMyndin
Umræða 27Helgarblað 25.–27. október 2013
Skáldið skrifar
Kristján Hreinsson
Aðsent
Björgvin Guðmundsson
Formaður kjaranefndar Félags eldri borgara í Reykjavík
„Alltaf ætti skyn semin
að flækjast fyrir