Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Síða 34
34 Fólk 25.–27. október 2013 Helgarblað
Kveikti óvart í
kærastanum
B
laðamaður mælir sér mót
við Eddu á Kaffitári í Borg-
artúninu og ilmurinn af ný-
löguðu kaffi leikur um vitin.
Edda byrjar á því að segja
frá því að hún sé búin að koma sér
á hryllingsfæði eins og hún kallar
það og sé rétt að hefja þriggja daga
safakúr. „Ég lét draga mig í öfluga
líkamsþjálfun þrisvar í viku og ég er
sko mætt klukkan sjö á morgnana.
Ég hefði aldrei getað trúað þessu,“
segir Edda um heilsuátakið með til-
heyrandi mataræði.
Er haldin sykurfíkn
„Ég er hjá Sigrúnu Kjartansdóttur
í World Class og hún lemur okkur
áfram, viktar og mælir og bann-
ar okkur að snerta mjólkurvörur,
hveiti og sykur. Það er svo mikið
af aukaefnum og hryllingi í þessu
öllu, mjólk er líka bara fyrir beljur,
eða kálfa þið vitið. Við eigum ekkert
að vera að slurpa þetta í okkur. En
það verður auðvitað tómlegt þegar
búið er að taka brauðmeti og hvít-
an sykur úr fæðinu,“ segir Edda sem
segist verða hálf veik þegar hún
„dettur í það“, eins og hún kallar
það, og missir sig í sykuráti.
„Ég er fíkill og ef mér þætti til
dæmis áfengi yfirhöfuð gott þá
væri ég líklega alkóhólisti. Ég fæ
Edda Björgvinsdóttir, ein ástsælasta leikkona
Íslendinga, segist hlæja óspart að eigin óförum og
safnar pínlegum atvikum í gleðibankann. Hún útskrif-
aðist frá Bifröst í vor með próf í menningarstjórnun og
heldur námskeiðið Húmor sem stjórnunartæki fyrir
fyrirtæki. Svala Magnea Georgsdóttir ræddi við Eddu
um húmor, sykurfíkn, Sólheima og kærastann sem
hún kveikti næstum því í á fyrsta stefnumótinu.
Svala Magnea Georgsdóttir
svala@dv.is
Viðtal
Haldin sykurfíkn
Edda segist verða hálf
veik þegar hún „dettur í
það“, eins og hún kallar
það, og missir sig í
sykuráti. Mynd Sigtryggur Ari