Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Síða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Síða 41
„Einstaklega ánægjulegt að fylgjast með barnaskaranum“ Óvitar Leikstjóri: Gunnar Helgason Menning 41Helgarblað 25.–27. október 2013 „Žižek er hér í essinu sínu“ „Brjáluð ást“ The Perverts Guide to Idealogy Leikstjóri: Sophie Fiennes Blue is the warmest color Leikstjóri: Abdellatif Kechiche Svona hljómaði framtíðin árið 1974 E f þú hefur ekki heyrt um Kraftwerk, þá hefurðu samt örugglega heyrt í þeim. Eða í einhverju sem líkist þeim mjög. Fjórmenningarnir þýsku í rauðu skyrtunum hafa ef til vill aldrei náð sömu vinsældum og Bítlarnir, en líklega hafa fáir haft jafn- mikil áhrif á rokksöguna síðan fjór- menningarnir frá Liverpool síðast komu saman. Og áhrifa þeirra gætir ekki síst uppi á Íslandi. Á fyrstu áratugum rokksins ferð- uðust straumarnir fram og aftur yfir Atlantshafið, en áttu nánast alltaf upptök sín í Bretlandi og Bandaríkj- unum. Fyrsta bylgjan var ættuð frá Suðurríkjum Bandaríkjanna með Elvis í fararbroddi, en á 7. áratugnum tóku Bretar í Liverpool og London við boltanum. Undir lok áratugarins færðist meginþunginn yfir til Kali- forníu með síðhærðu sýrurokki, en í upphafi þess 8. urðu Bretar aftur í fararbroddi með glamrokki Bowie og Bolan og progrokki Genesis og Pink Floyd. Meginland Evrópu hafði lítil áhrifa á meginstraumana. Frakkar héldu fast í sína Chanson-hefð sem með stórbrotnum textum á frönsku hentaði illa til útflutnings. En á með- an menn í London og New York voru uppteknir við að uppgötva sitt hvora grein pönksins í skugga diskóbylgj- unnar um miðjan 8. áratuginn, voru merkilegir hlutir að gerast í Þýska- landi. Engin eiturlyf, aðeins munkar Við lok seinni heimsstyrjaldar var Þýskaland hernumið af Bretum, Bandaríkjamönnum og jafnvel Frökkum líka. Menningaráhrif frá herstöðvunum ultu inn þar eins og hér árin á eftir, en margir í stúd- entahreyfingum 7. áratugarins höfn- uðu þessum áhrifum. Það var helst hljómsveitin The Monks, saman sett af bandarískum hermönnum sem rökuðu höfuðið á sér eins og munkar og gengu um með snörur um háls- inn og spiluðu undarlega endur- tekningarsama tónlist, sem nutu vin- sælda í Þýskalandi og hvergi annars staðar. Árið 1968 var fyrsta raunverulega rokkhátíðin haldin þar í landi í Essen, og þó menn væru undir nokkrum áhrifum frá bæði sýrurokki og proggi var tekin meðvituð ákvörðun um að ekki aðeins hafna eiturlyfjum sem áhrifavaldi heldur einnig rokktónlist sem slíkri. Í staðinn var sótt í djass og nútímaklassík og allt gert til að fara sínar eigin leiðir. Útkoman varð hin svonefnda krautrock-stefna, sem átti eftir að hafa áhrif langt út fyrir land- steinana. Meðal helstu forvígismanna hennar voru Tangerine Dream frá Vestur-Berlín, Can frá Köln (söngv- arinn Damo Suzuki kom fram á RIFF í fyrra) og Kraftwerk frá Düsseldorf. Þeir Florian Schneider og Ralf Hütter kynntust í tónlistarskóla og gáfu út þrjár afar tilraunakenndar plötur undir nafni Kraftwerk á árunum 1970–73. Árið 1974 var hljómsveitin orðin að kvartett sem spilaði á hin ýmsu hljóðfæri og höfðu þeir nú fíns- lípað hið sérkennilega, vélræna sánd sitt. Útkoman varð platan Autobahn, sem sló víða í gegn og komst meira að segja inn á topp fimm í Bandaríkj- unum. Krautrokkið kemur til Íslands David Bowie lagði við hlustir og flutti í kjölfarið til Þýskalands. Hann bauð hljómsveitinni að hita upp fyrir sig en hún hafnaði því, og í stað- inn samdi hann lagið V-2 Schneider, sem er nefnt í höfuðið á forsprakka Kraftwerk annars vegar og flugskeyt- um Þjóðverja í seinni heimsstyrjöld hins vegar, svo mikla sprengingu taldi hann Kraftwerk vera. Bowie og sam- starfsmaður hans Brian Eno áttu stór- an þátt í að breiða út fagnaðarerindi krautrokksins á Berlínarárum sínum, en það voru fleiri sem fylgdust með. Einar Melax, sem var meðlimur í ís- lensku pönksveitunum Van Houten‘s Kókó, Kukl og síðar Sykurmolunum, segir að eitt af því sem hafi aðskilið pönkkynslóðina frá fyrri kynslóðum íslenskra tónlistarmanna sé að áhrifa- valdar hennar hafi ekki aðeins verið breskir og bandarískir, heldur einnig þýskar hljómsveitir á borð við einmitt Tanger ine Dream, Kraftwerk og Can. Segja má að áhrif Kraftwerk séu alltu- mlykjandi í myndinni Rokk í Reykja- vík, í vélrænum hreyfingum sumra tónlistarmanna og ekki síst í laginu Creeps með Q4U. Ekki síður hafa þeir haft áhrif á seinni tíma hljómsveitir hérlendis, eins og heyra má til dæmis í Apparat Organ Quartet. Í kjölfar Autobahn gaf Kraftwerk út plöturnar Radio-Aktivität, Trans- Europa Express og Die Mensch Maschine, sem báru hróður þeirra víða um meginlandið og Bret- landseyjar. Í kjölfarið fylgdi þriggja ára hlé, en hljómsveitin sneri aft- ur með plötunni Computerwelt árið 1981. Tónlist þeirra varð æ að- gengilegri og fór í fyrsta sætið í Bret- landi, en á sviði létu þeir stundum gínur standa á sviðinu í stað þeirra sjálfra. Þær hljómsveitir sem spruttu upp í kjölfar pönksins lögðu margar hverjar rafgítarana til hliðar og sóttu í tölvur í staðinn. Þegar níunda plata Kraftwerk, Techno-Pop, kom út árið 1986 voru þeir ekki lengur að spila tónlist framtíðarinnar. Hún var orðin tónlist samtímans. Kraftwerk munu spila á Airwaves næstkomandi helgi, ásamt Apparat og mörgum, mörgum fleirum. n n Áhrif Kraftwerk mikil á Íslandi n Spila á Airwaves Tónlist Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Áhrifamiklir Fjórmenningarnir þýsku í rauðu skyrtunum hafa ef til vill aldrei náð sömu vinsældum og Bítlarnir, en líklega hafa fáir haft jafnmikil áhrif á rokksöguna síðan fjórmenn- ingarnir frá Liverpool síðast komu saman. Eins og munkar Nutu vinsælda í Þýskalandi og hvergi annars staðar. Þ ann 30. október er ekki úr vegi að fá sér heitt súkkulaði á Mokka á Skólavörðustíg. Þá verður opnuð ljósmynda- sýning Jóhanns Hansen, Dýrðin litin á ný. Fyrir 25 árum, í mars 1988, héldu Sykurmolarnir tón- leikana Dýrðin kvödd á Hótel Ís- landi. Nafn tónleikanna vísaði í bandaríska skemmtikraftinn og klæðskiptinginn Harris Glenn Mil- sted, sem var betur þekktur undir sviðsnafninu Divine, en hann hafði andast tveimur vikum fyrr. Ljós- myndarinn Jóhann fékk greiðan aðgang að tónlistarmönnum á sviðinu og úr varð hin forvitni- legasta ljósmyndasería. n Sykurmolar á Mokka Vildi vinna í líkhúsi n Steinar Bragi um tortryggilegan áhuga á dauðanum og Reimleika í Reykjavík svolítið neikvæð á að draugar væru enn hér mikið að hanga í tilteknum byggingum.“ Margar draugasögur Steinari Braga og Rakel tókst þó að hafa upp á þó nokkrum draug- um eftir ýmsum krókaleiðum. „Við náðum að safna hátt í 100 sögum. Margar þeirra voru at- vikasögur, þar sem einn heyrir brak, heyrir píanóspil eða ann- að slíkt. En við vorum meira að leita að einhverri framvindu, við vildum geta rakið uppruna draugsins og tengingu hans við húsið. Það tókst en svo þurfti að skreyta sögurnar svolítið þótt að þær væru byggðar á sönnum at- burðum. Við reyndum að finna sögur sem eru ekki þekktar og raunverulega hrollvekjandi og blása lífi í þessa hefð.“ En hefur Steinar Bragi séð draug? „Nei. Ég hef ekki séð draug. En ég hef trú á fólki og verð mjög forvitinn þegar fólk segir mér frá reynslu sinni.“ n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.