Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Page 44
44 Lífsstíll 25.–27. október 2013 Helgarblað
Alíslenskur sófi Þorkels
n Sófinn heitir Nátthagi og verður til sölu í Epal
Þ
orkell Gunnar Guðmunds-
son, húsgagna- og innan-
hússarkitekt, er hönnuð-
urinn á bak við alíslenskan
sófa sem verður til sölu í Epal í lok
október. Sófinn ber nafnið Nátt-
hagi og er íslensk smíði og bólstr-
un. Þorkell Gunnar á langan
hönnunarferil að baki á sviði hús-
gagna og innréttinga og kveðst
hann hafa unnið að sófanum frá
því í fyrravetur.
„Ég hef verið að huga að þess-
um sófa frá því í mars í vetur og
vildi með honum reyna að koma
með eitthvað nýtt,“ sagði Þorkell.
Í nýja sófanum koma greini-
leg fingraför Þorkels fram þar sem
hann vinnur alltaf með grunn-
formin, hringinn, ferninginn og
þríhyrninginn. Yfir sófanum býr
mikill léttleiki og er hann þeim
kostum gæddur að geta verið bæði
tveggja- og þriggjasæta, en fólk
getur valið hvort það sé með tvo
eða þrjá púða í bakinu. Eins og
fyrr segir er sófinn alíslenskur, en
Ingibjörg Vigdísardóttir smíðaði
grindina og Loftur Pétursson sá
um bólstrun.
Kynning á Nátthaga fór fram
á fimmtudaginn í verslun Epal í
Skeifunni.
ingosig@dv.is
Hvatti dóttur sína
n „Var voða spenntur fyrir þessu“ n Eva Laufey með nýjan þátt
E
va Laufey Kjaran Her-
mannsdóttir, sem heldur
úti matreiðslublogginu
Evalaufeykjaran.com,
frumsýndi á dögunum
fyrsta matreiðsluþátt sinn sem ber
heitið Í eldhúsinu hjá Evu. Þættirn-
ir verða sýndir á mánudagskvöld-
um á Stöð 3 í vetur.
Sjálfsmenntuð
Eva Laufey segir í samtali við DV
að nokkur þúsund manns heim-
sæki bloggsíðuna daglega en hún
hefur haldið henni úti í þrjú ár.
„Ég ætlaði ekki að vera með matar-
blogg upphaflega en það þróað-
ist þannig þar sem matur er mikið
áhugamál hjá mér. Það ríkir mik-
il ástríða fyrir mat í fjölskyldunni
og mamma er mjög góður kokkur.
Hún hefur kennt mér það sem ég
kann og það eru margar góðar fyr-
irmyndir í fjölskyldunni,“ segir Eva
Laufey en hún segist læra mikið á
því að prufa sig áfram sjálf í eld-
húsinu og eru kökur og kræsingar
í sérstöku uppáhaldi.
Pínu kvíðin
Tökur á matreiðsluþáttunum
standa enn yfir og miðar þeim vel
áfram. „Ég er voða spennt fyrir
þessu en líka auðvitað pínu kvíð-
in. Ég er samt með svo góðan
tökumann þannig að ég hef lítið
fundið fyrir sviðsskrekk. Það er
auðvitað skrýtið að hafa mynda-
vélar og ljósabúnað inni í eldhús-
inu en svo venst maður því bara.
Ég vona bara að fólk hafi gaman
að þessu. Það er búið að vera mjög
gaman að fá tækifæri til að gera
það sem manni finnst skemmti-
legast að gera.“
Fékk góða hvatningu
Einn af þeim sem hvöttu Evu Lauf-
eyju til að fylgja draumi sínum
eftir var faðir hennar, Hermann
Gunnarsson, fjölmiðlamaðurinn
ástsæli sem þjóðin sá á bak í sum-
ar. „Mig langaði voða mikið að
prófa þetta og ræddi hugmynd-
ir mínar meðal annars við pabba
minn. Hann stakk upp á því að ég
myndi senda inn tillögur mínar
með áherslu á hvernig þætti mig
langaði til að gera sjálfri. Ég gerði
það og við tókum síðan prufuþátt
í apríl en svo var ákveðið núna í
haust að við myndum gera átta
þætti fyrir jól. Honum fannst þetta
mjög spennandi sjálfum. Ég er
líka mjög þakklát fyrir að hafa haft
svona góða lesendur því annars
Svala Magnea Georgsdóttir
blaðamaður skrifar svala@dv.is
hefði ég ekki getað fengið tæki-
færi til að gera þættina,“ segir Eva
Laufey að lokum. n
Eva Laufey Kjaran „Það
ríkir mikil ástríða fyrir mat
í fjölskyldunni,“ segir Eva
Laufey sem er sjálfmennt-
uð í matgerðarlist.
Sósan ljúfa
n 1 msk. ólífuolía
n 2–3 hvítlauksrif, marin
n 1/2 laukur, smátt skorinn
n 2 dósir hakkaðir tómatar
n 4 dl vatn
n 1/2 kjúklingateningur
n 1 msk. fersk steinselja, smátt söxuð
n 1 msk. fersk basilíka, smátt söxuð
n 1 tsk. agave-síróp
n salt og pipar, magn eftir smekk
Aðferð:
Hitið olíu við vægan hita í potti, steikið lauk
og hvítlauk í olíunni í 1–2 mínútur. Bætið
öllu hinu í pottinn og leyfið sósunni að
malla á meðan þið búið til kjötbollurnar.
Kjötbollur
n 500 gr nautahakk
n 1 dl brauðrasp
n 1 laukur, smátt skorinn
n 3 hvítlauksrif, marin
n 3 msk. fersk steinselja, smátt söxuð
n 1 msk. fersk basilíka, smátt söxuð
n 2 msk. rifinn
parmesan-ostur
n 1 egg létt pískað
n salt og pipar, magn eftir smekk
Aðferð:
Blandið öllum hráefnum saman með
höndunum. Mótið í litlar kúlur, passið að
hafa þær ekki of stórar vegna þess að þá
er hætta á að þær klofni þegar þær fara
ofan í sósuna. Hitið olíu á pönnu og steikið
bollurnar í smá stund. Látið síðan bollurnar
ofan í sósuna, leyfið að malla við vægan
hita í 15–20 mínútur. Mér finnst best að
bera bollurnar fram með spagettí en þið
getið auðvitað notað hvaða pasta sem þið
viljið. Sjóðið spagettíið samkvæmt leið-
beiningum á pakkanum. Setjið spagettíið
í fat og raðið síðan bollunum ofan á og
hellið sósunni yfir. Rífið duglega af ferskum
parmesan-osti yfir, alls ekki spara þennan
dásamlega ost. Þið getið auðvitað borið
réttinn fram með salati en mér finnst hann
í raun bestur einn og sér með góðu brauði,
helst hvítlauksbrauði.
Uppskrift: Ítalskar
kjötbollur með sósu
„Það ríkir mikil
ástríða fyrir mat í
fjölskyldunni og mamma
er mjög góður kokkur.
Nátthagi Hægt er að ráða
því hvort sófinn sé með tvo
eða þrjá sætispúða.
Snigla-andlits-
bað nýjasta æðið
Ný japönsk snyrtimeðferð vekur
heimsathygli enda ansi óvanaleg.
Sniglar eru látnir skríða um andlit
kvenna í þeim tilgangi að auka feg-
urð og æsku húðar. Snigla-andlits-
bað á að hafa afar styrkjandi áhrif
á húðina og samkvæmt fréttum af
meðferðinni skilja sniglarnir eftir
sig slímuga slóða sem eru kokkteill
prótína, andoxunarefna og ávaxta-
sýra. Slímkokkteillinn á að auka
raka, minnka bólgur og fjarlægja
dauðar húðfrumur.
Snyrtistofan er staðsett í
Tókýó, nánar tiltekið í Ebisu-
hverfi borgarinnar.
Heilsusam-
legar hnetur
Hnetur eru afbragðskostur fyrir þá
sem vilja grenna sig eða bæta heils-
una. Þær innihalda fjölmörg nær-
ingarefni, heilbrigða fitu og prótín. Í
hnetum er afar góðar Omega-3 fitu-
sýrur sem hafa góð áhrif á heilsuna,
lækka kólesteról og styrkja beinin.
Þær eru líka ríkar af amínó-sýr-
um sem byggja upp ónæmiskerfið
og stuðla að því að sár gróa hraða.
Þá innihalda hnetur bæði góðar
trefjar og E-vítamín sem er gott fyrir
frumurnar og heilbrigða húð.
Það má nota hnetur á ýmsa
vegu. Möndlur má nota í heilsu-
drykki og öllum hnetum má breyta
í smjör og nota í álegg, valhnetur
og Brasilíuhnetur má baka í orkust-
angir og þá er gott að hafa hnetur
og rúsínur í litlum poka þegar
hungur gerir vart við sig.
Vinsæll á
Trip Advisor
Veitingastaðurinn Kryddlegin
hjörtu hefur aukið við sig og opn-
að nýjan stað undir sama nafni á
Hverfisgötu 33 í Reykjavík. Eigandi
staðarins, Íris Hera Norðfjörð, seg-
ist í samtali við DV hafa rekið stað-
inn á Skúlagötunni allt frá árinu
2008 og segist ánægð með að hafa
náð að halda staðnum gangandi í
gegnum efnahagshrunið. Stað-
urinn sé með afar háa einkunn
á Tripadvisor.com og að stríður
straumur ferðamanna sæki í stað-
inn. „Við erum búin að tróna í efstu
sætum á Trip Advisor síðastliðin ár
allt frá sjötta sæti upp í annað sæti.
Við erum núna í þriðja sæti af um
250 veitingastöðum í Reykjavík,“
segir Íris Hera í samtali við DV.
Viðskiptavinirnir halda von-
andi áfram að streyma inn á stað-
inn og ánægðir út en Íris Hera seg-
ist styðja sig við Feng Shui-fræði
þegar kemur að því að skapa sérs-
taka stemningu á veitingastaðnum.
Fékk hún sérstakan innanhússráð-
gjafa með sérhæfingu í Feng Shui
til að vinna rétt úr straumunum í
húsinu fyrir breytingar.