Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Side 52
Í
vikunni bárust fregnir af því að
tónlistarmaðurinn Kanye West
hafi beðið Kim Kardashian á af-
mælisdegi raunveruleikastjörn-
unnar. Fjölskylda og vinir voru
viðstödd og bar Kanye spurninguna
örlagaríku upp í borginni San
Fransisco. Kim á að hafa tekið bón-
orðinu á staðnum.
Kanye og Kim fóru að stinga
saman nefjum í apríl 2012. Fjöl-
skylda Kim hefur frá upphafi sam-
bandsins stutt við bakið á þeim og
bera tónlistarmanninum umdeilda
góða söguna. Á gamlársdag sama
ár tilkynnti parið að Kim ætti von
á stelpu á nýju ári. Stúlkan kom í
heiminn 15. júní og var skírð North
West.
Upphaflega reis frægðarsól Kim
þegar kynlífsmyndband af henni og
þáverandi kærasta hennar, söngvar-
anum Ray-J, lak á netið. Í ágúst 2011
giftist Kim körfuknattleiksmannin-
um Kris Humphries en skömmu síð-
ar fór allt í háaloft og skilnaður þeirra
var staðfestur í júní 2013.
Kanye West þekkja flestir
tónlistar unnendur. Plötur kappans
hafa slegið í gegn og sérstaklega má
nefna plötu hans My Beautiful Dark
Twisted Fantasy, sem hann gaf út
árið 2010. Framkoma og hegðun
Kanye hefur oft komið honum í
klandur, en frægt er þegar hann tók
míkrófóninn á MTV-tónlistarmynd-
bandaverðlaununum árið 2009
og sagði að Beyoncé ætti sigurinn
frekar skilinn en Taylor Swift, sem
vann til verðlauna.
Athyglisvert verður að fylgjast
með stórstjörnunum tveimur ganga
í það heilaga, með nýfætt barn undir
arminum. n
ingosig@dv.is
52 Fólk 25.–27. október 2013 Helgarblað
Ronaldo og Chai í eina sæng
K
nattspyrnustjarnan Crist-
iano Ronaldo, 28 ára, mun
kynna nýja nærbuxna-
línu sína 1. nóvember. Yfir-
hönnuður nærbuxnanna er Ric-
hard Chai og sér danska fyrirtækið
JBS Textile Group um framleiðsl-
una. Richard Chai er amerískur
tískuhönnuður og starfaði hjá
Marc by Marc Jacobs áður en hann
gaf út eigin línu, sem er fyrir bæði
kyn.
Ronaldo og Chai hafa unnið
hönnunina í sameiningu, en Ron-
aldo kom að heildarhönnuninni,
litunum og efninu sem notað verð-
ur í nærbuxurnar.
Ronaldo hefur getið sér gott orð
á knattspyrnuvellinum undanfar-
inn áratug, fyrst með enska stór-
liðinu Manchester United og síðar
með stjörnum prýddu liði Real
Madrid. Einnig ber hann fyrirliða-
band Portúgals. Hann er á samn-
ingi hjá bandaríska íþróttavöru-
merkinu Nike, þar sem hann er
eitt af stóru andlitum fyrirtækisins,
og hefur síðast-
liðin ár tekið þátt
í að hanna eig-
in fatalínu og
knattspyrnuskó
undir merkjum
fyrir tækisins. Í vik-
unni kom út ný
lína, en geimur-
inn er þemað að
þessu sinni og má
líta stjörnubjart-
an himingeiminn á
nýjum knattspyrnu-
skóm kappans. n
ingosig@dv.is
„Kimye“ trúlofuð
n Bað hennar að viðstöddum fjölskyldu og vinum n Kim gott sem nýskilin
n Hanna nærbuxnalínu saman
topp 5
Leikkonur
með stór nef
1 Barbara Streisand Trónir á toppnum með virðulegt og stórt
nef sitt sem hefur ekki aftrað henni frá
því að verða stjörnuleikkona í Hollywood.
Hún hefur einnig slegið í gegn sem söng-
kona og leikið í óteljandi söngleikjum.
2 Sarah Jessica Parker Gerði stór og stæðileg nef að
tískufyrirbæri í sjónvarps-
þáttunum Sex and the
City. Núverandi nef
er þó talsvert minna
en fyrir um 20 árum
áður en leikkonan
lagðist undir hnífinn
vegna utanaðkomandi
þrýstings.
3 Penelope Cruz Það er erfitt að taka eftir því að
nef þokkagyðjunnar sé
nokkrum númerum
stærra en gengur og
gerist, enda hefur
Penelope ekki veitt
umræðunni sérstaka
athygli og lifir sátt með sitt.
4 Sofia Coppola Er margverð-launaður kvikmyndaleikstjóri og
yrði eflaust óþekkjanleg
ef nefstærð yrði
raskað. Kannski erfði
hún nef sitt frá föður
sínum Francis Ford
Coppola sem einnig
er goðsögn í kvik-
myndagerðarlistinni.
5 Jennifer Aniston Viður-kennir í dag fúslega
að hafa lagst undir
hnífinn í leit sinni
að hinu fullkomna
nefi en þrætti þó
fyrir það lengi vel og
hélt því fram að nefið
væri eðlilegt. Það getur
verið erfitt að útskýra nef sem fer
minnkandi með aldrinum.
Frægt atvik
Kanye West truflar
Taylor Swift á
MTV-verðlaunun-
um árið 2009.
Geislandi fegurð
Kim Kardashian þykir stór-
glæsileg vestanhafs.
Hress Kanye West og
Kim Kardashian á góðri
stundu. Mynd REX USA
Stjörnupar
Miðlar vestan hafs
flytja stöðugar fréttir
af stjörnuparinu.
Töffari Ronaldo er
vinsæll og veit af því.
Flinkur Richard Chai þykir
flinkur hönnuður
Mynd RicHARdcHAilovE
.coM
Óþekkjanlegur
Gyllenhaal
Leikarinn Jake
Gyllenhaal
var algjörlega
óþekkjanleg-
ur á Annual
Hollywood
Film Awards á
mánudaginn.
Hann ákvað
að létta sig
fyrir hlutverk sitt í myndinni
Nightcrawler en í henni leikur
hann blaðamann sem finnur
hættulegan heim neðanjarðar í
Los Angeles. Hann segist sjálf-
ur hafa viljað hafa persónu
sína svona granna og aðspurð-
ur hvernig hann hafi farið að
þessu sagði hann að hlutverk-
ið væri honum mikilvægt. „Ég
elska þessa mynd og það er
þannig sem ég fór að þessu. Ég
notaði enga tækni við þetta.“