Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2013, Qupperneq 2
Helgarblað 13.–16. desember 20132 Fréttir
1 matsk. safieða 1 hylki.
F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i .
Jafnvægi og vellíðan
lifestream™
nature’s richest superfoods
Bæta aðgengi
á Hverfisgötu
Á fimmtudag var unnið við að
malbika hjólastíga fyrir framan
Bíó Paradís á Hverfisgötu og í dag,
föstudag, verður sandað og þjapp
að yfir snjóbræðslulagnir svo veg
farendur eigi greiðari aðgang að
verslun og þjónustu á Hverfisgötu.
Í tilkynningu frá Reykjavíkur
borg kemur fram að í dag verði
opnað fyrir bílaumferð af Lauga
vegi niður Vatnsstíg og áfram
niður Hverfisgötu.
Verslunarmenn hafa gagn
rýnt borgina fyrir seinkun fram
kvæmda en til stóð að þeim lyki í
nóvember. Það gekk ekki eftir af
ýmsum ástæðum svo sem sein
legri lagnavinnu. Framkvæmdir
eru styst á veg komnar á gatna
mótum Hverfisgötu og Frakka
stígs en þar var orðið við óskum
um að hefja framkvæmdir síðar
en áætlanir gerðu ráð fyrir. Eðli
lega seinkar verklokum í samræmi
við það og endanlegum frágangi
á þessum gatnamótum lýkur ekki
fyrr en í janúar. Gönguleiðum
verður haldið opnum um fram
kvæmdasvæðið. Hanna Birna og
Katrín tókust á
n Forystufólk í stjórnmálum fundaði um stöðu kvenna n Engin niðurstaða
H
itafundur var í ráðherra
bústaðnum síðastliðinn
miðvikudag og tókust
Hanna Birna Kristjáns
dóttir innanríkisráðherra
og Katrín Júlíusdóttir, varaformaður
Samfylkingarinnar, meðal annars
á á fundinum. Efni fundarins var
staða kvenna í stjórnmálum en
hann var boðaður af þeim Hönnu
Birnu og Eygló Harðardóttur félags
málaráðherra. Forystumönnum
stjórnmálaflokka var boðið á fund
inn sem fram fór á sama tíma og
hitafundur í þingsal.
Áttu að kvitta undir ályktun
Rétt fyrir fundinn voru send út drög
að ályktun sem til stóð að sam
þykkja. Drögin gengu út á að for
ystumenn flokkanna samþykktu að
hvetja konur til þátttöku í stjórn
málum. Samkvæmt heimildum DV
var Árni Páll Árnason, formaður
Samfylkingarinnar, allt annað en
sáttur við þessi ályktunardrög og
talaði um að kynjakvótar hefðu
verið það sem skilaði jöfnu hlut
falli kynjanna á framboðslistum.
Hann gæti ekki skrifað undir álykt
un sem þessa verandi formaður í
femínískum flokki. Við þetta var
Hanna Birna ekki sátt, samkvæmt
heimildum DV, og gagnrýndi Árna
Pál fyrir karllæga nálgun á málið.
Katrín var hins vegar ekki sátt við þá
gagnrýni Hönnu Birnu og svaraði
henni fullum hálsi.
Heimildir DV af fundinum
herma líka að minnst þrjár kon
ur hafi lýst sig efnislega sammála
Árna Páli og Katrínu á fundinum;
þær Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Siv
Friðleifsdóttir og Sigrún Magnús
dóttir. Sú fyrsta tilheyrir Sjálfstæð
isflokknum en hinar tvær Fram
sóknarflokknum en hvorugur
flokkanna hefur reglur um kynja
kvóta við röðun á lista. Sigrún,
þingflokksformaður Framsóknar
flokksins, mun hafa sagt að ályktun
in og málflutningur Hönnu Birnu
væri sá sami og þegar hún byrjaði í
stjórnmálum fyrir þrjátíu árum.
Ekkert varð af samþykki
Fundurinn endaði án þess að álykt
unin væri samþykkt. Bæði Katrín
og Árni Páll fóru af honum áður
en honum lauk en á sama tíma var
fundur á Alþingi. Ekki voru allir for
menn sem sáu sér fært að mæta
en hvorki Sigmundur Davíð Gunn
laugsson, formaður Framsóknar
flokksins, né Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, voru
á fundinum.
Bæði Sjálfstæðisflokkurinn og
Framsóknarflokkurinn hafa verið
gagnrýndir harðlega fyrir kynjahlut
föll á listum og í störfum fyrir flokk
inn. Í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
fyrir komandi borgarstjórnarkosn
ingar röðuðust þrír karlmenn í efstu
þrjú sæti listans og þrír karlar úr
Framsóknarflokknum eru á ráð
herrastól á meðan aðeins ein kona
úr flokknum er það. Bæði Vinstri
græn og Samfylkingin hafa hins
vegar um árabil beitt kynjakvóta
til að jafna hlutföll kynja á listum
hjá sér en sjaldan hefur komið til
þess að breyta þurfi þeim reglum
undanfarin ár. n
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Boðaði fundinn Hanna Birna og
Eygló boðuðu til fundarins í ráðherra-
bústaðnum. Flokkar þeirra beggja
hafa verið gagrýndir fyrir kynjahalla.
Nóg boðið Katrín var ekki sátt við gagn-
rýni Hönnu Birnu á formann hennar og sagði
forystuna sammála – Árni Páll væri ekki að
bara að lýsa sinni persónulegu skoðun.
Landsvirkjun
verst spillingu
Landsvirkjun hefur undirritað
viðmið Sameinuðu þjóðanna
um samfélagsábyrgð, UN Global
Compact, og bætist þar með í
hóp átta þúsunda fyrirtækja og
stofnana sem ritað hafa undir
ábyrgðina. Með þessu skuldbind
ur Landsvirkjun sig til að virða
og innleiða tíu reglur um mann
réttindi, vinnurétt, umhverfismál
og varnir gegn spillingu.
„Landsvirkjun hefur frá stofn
un lagt mikla áherslu á samfé
lagslega ábyrgð fyrirtækisins.
Með undirritun Global Compact
tökum við enn eitt skrefið og von
umst til þess að aðildin styðji
okkur í því að gera áherslur og
aðgerðir okkar enn sýnilegri og
markvissari,“ segir Hörður Arnar
son, forstjóri Landsvirkjunar.
Hver er hetja ársins?
DV óskar eftir tilnefningum um hetjur frá lesendum
Á
hverju ári útnefnir DV hetju
ársins og verður árið í ár
engin undantekning. Við
leitum að tilnefningum frá
lesendum um einstaklinga sem
hafa unnið hetjudáð á árinu sem
senn er að líða. Þetta verður í sjötta
sinn sem hetja ársins verður út
nefnd af lesendum og dómnefnd
DV.
Tilnefningar má senda á net
fangið hetjaarsins@dv.is. Tekið
verður á móti tilnefningum næstu
daga og síðan farið yfir þær af sér
stakri dómnefnd sem einnig getur
bætt við tilnefningu. Niðurstaðan
verður svo birt á vefsíðu blaðsins,
DV.is, þar sem fólki gefst færi á að
skoða hverjir tilnefndir hafa verið.
Kosning verður svo um hver af þeim
tilnefndu hlýtur útnefninguna.
Við hvetjum lesendur til að til
nefna þá sem þeir telja hafa unnið
hetjudáð á árinu en tekið er á
móti öllum tilnefningum. Gott er
ef stuttur rökstuðningur fylgir til
nefningunni en nóg er að senda inn
nafn þess sem tilnefndur er.
Á síðasta ári útnefndu lesendur
DV baráttukonuna Hildi Lilliendahl
sem þótti hafa sýnt mikinn kjark og
elju í jafnréttismálum. Árið áður var
það Ólafur Karl Óskarsson, þriggja
ára drengur, sem var valinn hetja
ársins en barátta hans við veikindi
allt frá fæðingu þótti hetjudáð. Það
verður hins vegar undir lesendum
komið hver verður hetja ársins
2013. n Hetjan í fyrra Hildur Lilliendahl var hetja
ársins í fyrra.