Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2013, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2013, Qupperneq 48
Helgarblað 13.–16. desember 2013 140. tölublað 103. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Verður þá ekkert skeggrætt í Kastljósi? Kláraði „Dostó“ fyrir tvítugt n Menningarvitinn og umsjónar- maður Kiljunnar, Egill Helgason, fylgir í fótspor margra sem hafa birt á Facebook lista yfir þær tíu bækur sem eru í mestu uppá- haldi. Að sjálfsögðu er um há- menningarlegan lista að ræða og til að mynda má nefna hina torlesnu Ulysses eftir Joyce og Ilí- onskviðu eftir Hómer. Sérstaka athygli vekur þó að Egill segist hafa lesið allar bækur stórskálds- ins rússneska Dostojevskí sem barn. „Var búinn að klára Dostó fyrir tvítugt, hef ekki snert hann síðan og mun ekki gera það,“ skrifar Eg- ill. „Alskeggið er komið úr tísku“ n Líflegar umræður fóru af stað þegar Arnar Eggert Thoroddsen, menningarblaðamaður Morgun- blaðsins, tilkynnti á Facebook- síðu sinni að alskeggið væri kom- ið úr tísku. Fjölmiðlamaðurinn Gunnar Smári Egilsson benti á að þegar menn eins og Árni Sigfús- son, Guðlaugur Þór Þórðarson væru komnir með skegg væri kominn tími til að fara að nota rakvélina. Að lokum benti hann á að þegar Sigurður Einarsson væri kominn með skegg ætti „maður að rífa af sér skeggið þótt maður eigi enga rakvél.“ Kastljós- maðurinn Helgi Seljan var ekki ánægður með þessa umræðu og skrifaði: „Great. Og ég loksins kominn með hýjung. Takk veröld.“ Karlar gráta víst n Tilfinningalíf karlmanna er Eiríki Erni Norðdahl hugleikið í bloggfærslu sem hann birti á dögunum. Hann bendir á að það sé þrálát mýta að karlar gráti ekki. „Mér finnst karlar vera sí- grátandi. Alls kyns stórbokkar. Obama, Beckham, Eminem, Eiður. Meira að segja Bush. Og alltaf eru það fréttir. Þetta eru dálítil láta- læti,“ skrifar Eiríkur Örn. Skáldið segir karlmenn hafa tilfinningar jafnt á við konur. „Og heilt yfir litið held ég að þeir eigi ekki í neinum sérstökum vandræð- um með að tjá þær – bæl- ingunni er alveg jafnt skipt milli kynja,“ segir hann. D YN AM O R EY KJ AV ÍK „Meistarióhugnaðarins.“ FRIÐRIKA BENÓNÝS, FRÉTTABLAÐINU „DÚNDURÞRILLER“ „Hörkuspennandi bók ... vel plottuð og það er margt sem kemur á óvart ... Yrsa eins og hún gerist best ... Lokin eru rosaleg ... rígheldur ... dúndurþriller ... með hennar bestu bókum.“ KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR, KILJUNNI „Yrsu er lagið að skapa drungalega stemningu ... [heldur] lesandanum á tánum með getgátum, allt til enda.“ Þ.Þ. FRÉTTATÍMANUM Sérsveitin mætti í barnaafmæli Barnung stúlka ýtti á öryggishnapp utanríkisráðherra af forvitni R íkislögreglustjóri gætir sér- staklega öryggis þeirra einstaklinga sem tilheyra æðstu stjórn ríkisins, þar á meðal ráðherra í ríkisstjórn. Meðal öryggisráðstafana eru sérstak- ir neyðarhnappar sem eru stað- settir í ráðuneytum og á heimil- um ráðherra. Ekki eru mörg dæmi um að gerð hafi verið atlaga að ráðherrum á heimilum þeirra en dæmi eru þó um að ýtt hafi verið á þessa neyðarhnappa. Össur Skarphéðinsson, fyrrver- andi utanríkisráðherra, segir frá einu slíku dæmi í bókinni sinni Ár drekans, þar sem hann rekur dag- bókarfærslur sínar frá árinu 2012. Í færslu frá því um haustið það ár rifjar hann upp atvik sem átti sér stað árið 2010 þegar stelpuhnokki í afmæli dóttur hans ýtti á öryggis- hnapp á heimili hans af forvitni. „Fyrr en varði var sérsveitin kom- in í afmælið, litla stúlkan hágrét og allir urðu skelfingu lostnir,“ segir hann í bókinni. Þetta er ekki eina dæmið þar sem einhver hefur ýtt á neyðar- hnapp Össurar. Hjálpsamur starfs- maður í utanríkisráðuneytinu sem ætlaði að aðstoða Össur við að komast inn á skrifstofuna sína þegar hann hafði læst sig úti, ýtti óvart á rangan hnapp og ræsti út neyðarliðið. „Næstum áður en ég gat dregið andann voru lafmóðir öryggisverðir komnir inn á gólf,“ skrifar Össur um það atvik. n adalsteinn@dv.is Með hnapp Össur segir, í bókinni sinni, frá tveimur skondnum atvikum í kringum öryggishnappinn sem hann var með þegar hann var ráðherra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.