Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1959, Side 12

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1959, Side 12
10* Búnaðarskýrslur 1957 á einstökum búnaðarskýrslum og skattaframtölunum sjálfum. Þ6 mun eigi koma fram að fullu á búnaðarskýrslu 1957 allt það, sem þar ætti að vera og talið hefur verið fram. 2. Frainteljendur til búnaðarskýrslna 1955—57. Possessors of livestock, producers of agricultural products 1955—57. Tafla I (bls. 2—3) sýnir íbúatölu landsins, tölu bænda, ábúðarkundruð jarða og tölu framteljenda. íbúatala landsins í töflu I er samkvæmt Þjóðskránni 1. desember bvert þessara ára.Við skiptingu íbúa í sýslurn milli sveita og kauptúna eru þéttbýlisbverfi með 300 íbúa og fleiri tabn kauptún, en öll önnur mannabyggð talin sveitir. í sveitum er því eðlilega talið allmargt fólk, sem lifir á öðru en landbúnaði, en bins vegar lifir nokkuð af fólki í kauptúnum og kaupstöðum á landbúnaði. í Reykjavík eru um 10 sérmetnar jarðir, þar sem rekinn er landbúnaður, sumar inni í sjálfum bæn- um, en aðrar utan við þá byggð, sem eðlilegt er að telja til sjálfs bæjarins, en auk þessa eru enn fleiri sérmetnar jarðir, sem lítill eða enginn búskapur er rekinn á. í Kópavogi eru 5—6 sérmetnar jarðir, þar sem búskapur er rekinn. Á Siglufirði eru 9 jarðir. Ólafsíirði fylgir heil sveit með um 25 sérmetnum jörðum, og á Akur- eyri eru um 20 sérmetnar jarðir, enda hefur hluti af Glæsibæjarhreppi (suðurhluti Kræklingahlíðar) með mörgum jörðum nýlega verið lagður undir bæinn. Um kaup- tún fylgir Hagstofan þeirri reglu, að telja því alla íbúa hreppsins, ef í því búa 90% íbúa hans. Að hinu leytinu eru mörg verzluuar- og útgerðarþorp, og jafnframt iðnaðarþorp, talin með sveitum, af því að íbúatala þeirra nær ekki 300. Meðal þeirra er einkum að nefna Gerðar og Silfurtún í Gullbringusýslu, Álafoss í Kjósar- sýslu, Búðardal í Dalasýslu, Súðavík í Norður-ísafjarðarsýslu, Drangsnes og Borð- eyri í Strandasýslu, Árskógssand og Hjalteyri í Eyjafjarðarsýslu, Svalbarðseyri, Grenivík og Flatey í Suður-Þingeyjarsýslu, Höfn (í Bakkafirði) og Bakkagerði í Norður-Múlasýslu, Hvolsvöll og Hellu í Rangárvallasýslu og Þorlákshöfn í Ár- nessýslu. Sum þessi þorp mega að vísu skoðast sem sveitaþorp, þar sem verzlunin er eingöngu sveitaverzlun, og sá atvinnuvegur, sem helzt er stundaður jafnframt verzluninni, er landbúnaður. En þetta má reyndar líka segja um sum þeirra þorpa, sem hafa yfir 300 íbúa. Tala bœnda reyndist nokkru lægri 1957 en 1954. Um talningu bændanna ber þess þó fyrst að gæta, að þeir eru ögn öðruvísi taldir 1957 en í búnaðarskýrslum 1954 og 1951. Hefur að þessu sinni verið leitazt við að samræma talm'nguna í öllum sýsl- um landsins, þó þannig að talningu skattanefnda liefur að mestu verið fylgt, aðeins felldir úr tölunni þeir ,,bændur“, er vafalaust þótti, að væru oftaldir. Ilér var aðal- lega um þrjá hópa manna að ræða: 1) Gamla menn, sem voru raunverulega liættir búskap, töldu þó fram 2—10 kindur og sumir hest, en voru raunverulega „í horninu“ hjá syni eða dóttur, er tekið hafði við jörðinni. 2) Unga menn, er höfðu nokkurt athvarf hjá foreldrum sínum og liöfðu þar best eða fáeinar kindur, en höfðu fram- færi sitt mestmegnis af vinnu utan heimilis. Þessir menn eru flestir erfingjar að jörð og búi, en ekki byrjaðir búskap. 3) Konur í óvígðri sambúð, sem töldust eiga hlut í búinu og skiluðu sérstöku framtali, þó að búið væri rekið sem eitt bú. Hér sýndist raunverulega enginn munur á aðstöðu konunnar og þar, sem um giftar konur var að ræða eða „sambúðarkonur“, sem samkvæmt framtölum var reiknað kaup fyrir vinnu við búið, beldur var aðeins fram talið til skatts með öðrum hætti. Á þennan
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Hagskýrslur um landbúnað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um landbúnað
https://timarit.is/publication/1125

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.